Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 1
24 siður
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík samþykktur einróma í gær
Bjarni Benediktsson Bjöm Ólafsson
Jóhann Hafstein
Gunnar Thoroddsen
Ragrnhildur Helgadóttir
Ólafur Björnsson
Ásgeir Sigurðsson
Angantýr Guðjónsson Sveinn Guðmundsson Davið Ólafsson
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík kom saman i
gærkvöldi tii þess að ákveða, hvernig framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins skyldi skipaður fyrir kosningarnar 28. júní.
Formaður kjörnefndar, Birgir Kjaran, hagfræðingur, iagði tii-
lögu nefndarinnar fyrir fundinn, en svo sem vani er hefur sérstök
kjörnefnd unnið að tillögu um listann. Innan nefndarinnar var eng-
inn ágreiningur um þá tillögu, sem gerð var á fundinum í gær-
kvöldi, en í kjörnefndinni eiga sæti fulltrúar úr öllum Sjálfstæðis-
félögunum í Reykjavík.
Á fundinum ríkti einhugur um tiilögu nefndarinnar og var hún
í fundarlok samþykkt með öllum atkvæðum.
Með þessu er kosningabarátta Sjálfstæðismanna í Reykjavík
raunverulega hafin, en framboðslistann skipa eftirtaldir menn:
1. Bjarni Benediktsson, ritstjóri.
2. Björn Ólafsson, stórkaupmaður.
3. Jóhann Hafstein, bankastjóri.
4. Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri.
5. Ragnhildur Helgadóttir, cand. juris.
6. Ólafur Björnsson, prófessor.
7. Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri.
8. Angantýr Guðjónsson, verkamaður.
9. Sveinn Guðmundsson, vélfræðingur.
10. Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri.
11. Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar.
12. Kristján Sveinsson, læknir.
13. Pétur Sæmundsen, viðskiptafræðingur.
14. Birgir Kjaran, hagfræðingur.
15. Ólafur H. Jónsson, framkvæmdastjórL
Birglr KJaran
Ólafur H. Jónsson Sigurður Kristjánsson
16. Sigurður Kristjánsson, forstjórL
♦