Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 22
22 MORCVNBIAMÐ FlmmtuaagUr 14. maí 1959 Sigfús Valdimarsson prentari — minningarorð fÞAÐ kom okkur vinnufélögum ISigfúsar heitins Valdimarssonar ivissulega á óvart, þegar hann rkvaddi okkur og leiðir skildi til Jfiæsta dags, að það yrði hans íhinzta kveðja. En engin veit sína eevi fyrr en öll er, og við þetta ilögmál verðum við að sætta okk- ur. t í>að er alls ekki á mínu færi, •ð skrifa svo eftirmæli um Sigfús íheitinn, að sómasamlegt þyki, því ég kynntist honum raunverulega «kki fyrr en á síðustu æviárum 1 hans, þegar hann hafði lifað sinn /áeskúblóma, og auk þess skortir jxnig til þess hæfni. p En af hverju er ég þá að fást Ivið það. Það kemur einfaldlega til af því, að hér kveður vinnu- iélagi, sem skildi eftir sig minn- jingar um góðan dreng og á því jþakkir skilið. !! Sigfús heitinn Valdimarsson var fæddur 22. sept. 1887 á ísa- firði. Árið 1904 hóf hann prent- nám þar í prentsmiðju Vestra en fluttist að loknu námi til Keykjavíkur og hóf vinnu í Gut- enberg. Til Félagsprentsmiðjunn- ar réðst hann 1913—’14 og aftur 1918—-21. Þess á milli vann hann i Prentsmiðju Gunnars Sigurðs- sonar. Árið 1921 hóf hann vinnu lí ísafoldarprentsmiðju, en eftir að hann fór þaðan vann hann að jlokum í Félagsprentsmiðjunni. j Hann var ritari Reykjavíkurdeild ar Hins íslenzka prentarafélags 1925—27. Kvæntur var Sigfús heitinn Arnbjörgu Þorsteinsdótt- ur, en hún lézt árið 1945 og höfðu þau eignast 6 börn, en tvö dóu ung en uppkomna dóttur misstu þau 1946. Sigfús átti að baki sér langan vinnudag, því að hann var 71 árs er hann lézt og hafði frá þvl að hann nam prentiðn, unnið við hana sleitulaust, enda samvizku- samur að eðlisfari og ósérhlífinn. Þegar ég réðist í Félagsprent- smiðjuna, þar sem hann vann til síðasta dags, fannst mér ekki svo ýkjalangt síðan ég sá hann kvik- an á fæti í gömlu Morgunblaðs- prentsmiðjunni í Austurstræti og stóð ekki af honum minni gustur og vinnugleði en hinum ungu sveinum, sem með honum unnu þar. En mitt í þrasi og striti við hið annasama blaðaumbrot gaf hann sér alltaf tíma til að heilsa náunganum og miðla honum með brosi á vör úr sjóði liðinna æsku- minninga sinna. Það óð ekki á honum, eins og sagt er, heldur sagði hann frá á þann hátt, að maður gat á meðan hlustað var, séð þetta með eigin augum. Eftir að ég fór að kynnast Sig- fúsi heitnum betur í prentsmiðj- unni, tók ég fljótlega eftir því, hvað hann átti gott með að blanda geði við hvern sem var og er það sannarlega öfundsvert. Það var eins og ekkert gæti glatt hann meir en að geta unnið sleitu laust frá morgni til kvölds og sýna með því, að ellistyrks eða annarrar hjálpar þyrfti hann ékki meðan hann stæði á sínum tveim- ur. En hjá gömlum manni þrýtur úthaldið fyrr en varir og heilsu- leysi siglir jafnan í kjölfar þess, og hjá þessu komst Sigfús heitinn ekki. Hann kenndi hjartveiki fyr- ir um ári síðan og heilsaðist aldrei til fulls eftir það. Sigfús heitinn Valdimarsson kveður okkur á þeim árstíðar- skiptum, þegar vetrarnæðingur- inn verður að lúta í lægra haldi fyrir sólargeislum sumarsins og blóm vallarins byrja að fegra fyrir okkur umhverfið. Þá fegurð og hlýju býst ég við að hann hafi gert sér í hugarlund að stæði ó- dauðleg 1 því nýja heimkynni, sem hann nú heilsar. Ég votta börnum hans og öðr- um skyldmennum samúð mína. Kristinn Magnússon. Landsliðið i körfuknattleik fer utan i dag FYRSTA landslið íslendinga í körfuknattleik leggur af stað í dag til Danmerkur, en landsleik- ur verður háður við Dani í Kaup- mannahöfn á laugardaginn kem- ur. Ennfremur mun landsliðið leika 2—3 aukaleiki við dönsk úrvalslið. íslenzka landsliðið er þannig skipað: Ingi Gunnarsson, ÍKF, fyrirliði, Birgir Örn Birgis, Ár- manni, Guðni Guðnason, ÍS, Þór- ir Arinbjarnarson, ÍS, Jón Ey- steinsson, ÍS, Kristinn Jóhanns- son, ÍS, Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR, Lárus Lárusson, ÍR, Ingi Þor- steinsson, KFR, Guðmundur Árnason, KFR, Ólafur Thorlacius KFR, og Friðrik Bjarnarson, ÍKF. 1 fararstjórn eru þessir menn: Bogi Þorsteinsson, fararstjóri, skipaður af ÍSÍ, Ingólfur Örn- ólfsson, flokksstjóri, Ásgeir Guð- mundsson, landsliðsþjálfari, og Guðmundur Georgsson, fulltrúi landsliðsnefndar. Farið verður frá Reykjavíkur- flugvelli með Loftleiðum kl. 9,40 árdegis í dag og verður flogið beint til Kaupmannahafnar. — Landsliðið mun koma heim laug- ardaginn 23. þ. m. og verður þá flogið um Ósló og höfð stutt við- dvöl þar. Landsliðið hefur þjálfað vel undanfarinn mánuð og hafa flestar æfingar þess farið fram í KR-húsinu, en vallarstærð þar mun svipuð og á leikvöllum þeim sem keppt verður á í Danmörku. Engin leið er að spá nokkru fyrir fram um úrslit leika í Danmörku þar sem þetta er fyrsta utanferð íslenzks landsliðs í þessari íþróttagrein, en mikill baráttu- hugur er í piltunum og eru þeir ákveðnir í að leggja sig alla fram og reyna að vinna þennan fyrsta landsleik okkar í körfuknattleik. Meðalaldur landsliðsmanna er 23 ár. Tveir, þeir Birgir og Þor- steinn, eru aðeins 16 ára. • AV BRIDCE AV Valdimar Runólfsson Hólmi sextugur — Námsstyrkir Framh. af bls. 15. fyrra árið og styrk síðara árið. |l3. Þegar hjón sækja og bæði telj- ast verðug styrks, fá þau til J samans IV2 styrk eða lán. / Meginbreytingin fl-á fyrri regl- um er sú, að nú er umsækjendum í stað styrks veittur kostur á láni í upphafi náms. Áður fengu þeir styrk í upphafi, en lán síðar, þeg- ar á leið námstímann. Þykja mörg rök hníga að því, að gerð sé þar breyting á, enda ætti það sízt að verða til að draga úr stuðningi við þá, sem eru við langt nám og miðar áfram með eðlilegum hætti. Það skal að lokum tekið fram, að auk þeirra reglna, sem að framan greinir, var jafnan tekið tillit til undirbúnings umsækj- enda undir það nám, sem þeir Ihugðust stunda, svo og meðmæla, ief fyrir lágu. ) Enginn ágreiningur var í Menntamálaráði um framan- [greinda úthlutun. SEXTUGSAFMÆLI á í dag Valdimar Runólfsson, trésmíða- meistari og bóndi í Hólmi í Land- broti, Vestur-Skaftafellssýslu. Valdimar er Skaftfellingur að ætt og uppruna. Voru foreldrar hans Rannveig Bjarnadóttir og Runólfur Bjarnason, Runólfsson- ar frá Maríubakka. Voru þau bæði af kunnum ættum skaft- fellskum, þótt ekki verði þær hér raktar. Var Runólfur faðir Valdi- mars orðlagður smáskammtalækn ir á sinni tíð, góðgjarn maður og hjartahreinn. önduðust foreldrar Valdimars hjá honum í hárri elli í nóvember 1949. Snemma kom í ljós hjá Valdi- mar mikil lagvirkni og rík smíða gáfa. Lagði hann leið sína til Reykavíkur, lærði trésmíði og gerðist meistari í þeirri grein. Árum saman vann hann að iðn sinni í höfuðstaðnum og smíðaði þar fjölda húsa, enda er hann iðjumaður mikill og gengur aldrei verk hendi firr. í Reykjavík lét hann félagsmál stéttar sinnar mjög til sín taka og var um tíma formaður Trésmiðafélags Reykja- víkur. Árið 1942 fluttist Valdimar með fjölskyldu sína austur að Hólmi; Hafði Búnaðarfélag fs- lands eignazt jörðina og fékk Valdimar til að veita forstöðu smíðaskóla, sem stofnaður var á staðnum. Var sá skóli rekinn á annan áratug undir forstöðu Valdimars, oftast fullskipaður eins og húsrúm leyfði. Nú hefur Valdimar keypt Hólm af B.f. og hefur bætt jörðina mikið að rækt un og húsakosti. Rekur hann þar búskap jafnframt því, sem hann stundar smíðar af kappi. Síðan hann kom hingað austur hefur hann m.a. byggt bæði læknisbú- stað og samkomuhús hér á Klaustri, hvorttveggja miklar byggingar. Valdimar í Hólmi er kvæntur ágætri konu, Rannveigu Helga- dóttur frá Þykkvabæ. Eru synir þeirra þrír: Helgi trésmiður í Reykjavík, Runólfur rafvirki og Sverrir, sem stundar búskapinn með föður sínum. Á þessum merkisdegi í lífi Valdimars í Hólmi óska ég hon- um og fjölskyldu hans allra heilla. Svo munu og gera allir þeirra mörgu vinir nær og fjær. Ég þakka honum og heimili hans alúðarríka vináttu, sem ég hef notið þar frá því ég kynntist hon- um fyrst. Ég veit hún endist með- an við eigum leið saman. — G. Br. Varamaður í síld- arverksmiðjustjórn Á FUNDI sameinaðs Alþingis í gær fór fram kosning eins vara- manns í stjórn síldarverksmiðja ríkisins í stað Ólafs Guðmunds- sonar, »em er nýlátinn. Kom fram einn listi með nafni Sveins Þorsteinssonar, Siglufirði, og var hann því rétt kjörinn. AÐ tveimur umferðum loknum í Hjónakeppni Tafl- og Bridge- klúbbsins var röð 5 efstu paranna þessi: 1. Sigríður Jónsdóttir og Ingólf- ur Ólafsson 25 5stig. 2. Anna Guðnadóttir og Friðrik Steinsson 245 stig. 3. Dóra Friðleifsdóttir og Guð- jón Ottósson 244 stig. 4. Sigríður Ottósdóttir og Ingólf- ur Böðvarsson 243 stig. 5. Andrea Oddsdóttir og Tryggvi Arason 240 stig. Þriðja og síðasta umferð var spiluð í gærkvöldi, en úrslit voru ekki kunn, er blaðið fór í prent- un. Aðalfundur Tafl- og Bridge- klúbbsins verður haldinn í Sjó- mannaskólanum fimmtudaginn 21. þ.m. og hefst fundurinn kl. 8 e.h. Auk venjulegra aðalfundar starfa verða afhent verðlaun fyr- ir keppnir þær, er fram hafa farið í vetur. Aðalf. Brid|fefélags Reykjavík- ur var haldinn sl. þriðjudags- kvöld. Formaður félagsins Agnar Jörgensson flutti skýrslu stjórn- arinnar, sem sýndi, að starfsemi félagsins hefur verið fjölbreytt og mikil. Auk venjulegra aðal- fundastarfa fór fram verðlauna- afhending fyrir keppnir þær, er fram hafa farið á vegum félags- ins í vetur. Núverandi stjórn Bridgefélags Reykjavíkur skipa þeir Agnar Jörgensson, formað- ur, Marino Erlendsson, Ásmund- ur Pálsson, Guðmundur Sigurðs- son og Ásbjörn Jónsson. Eftirfarandi spil er gott dæmi um öryggisúrspil. Suður er sagn- — Ræða Sigurðar Ólafssonar Framh. af bls. 13. sjónarmiðum í þessu máli, sem og mörgum öðrum. Að lokum þetta: Við breytingu á kjördæmaskipaninni, gat sú hætta vofað yfir að þéttbýlið heimtaði sinn rétt á kostnað strjálbýlisins. Þessari hugsanlegu hættu hefir verið afstýrt. Kjör- dæmamálið er leyst á þann hátt að strjálbýlið heldur sinni þing- mannatölu, sínum fulla rétti sem það áður hafði. Sem fulltrúi sveitakjördæmis fagna ég þeim úr'slitum. Góða nótt. hafi og spilar 4 Spaða. Útspil er laufa Gosi. A 9 5 2 V Á 4 3 A 10 9 6 4 A Á 5 3 4 7 6 4 N A 10 8 » D 10 9 8V .VG6 ♦ D75 s ♦ KG832 AG10 8 AKD92 A Á K D G 3 ♦ K 7 5 2 ♦ Á A 7 6 4 Þegar spil þetta kom fyrir, þá spilaði Suður trompi þrisvar og þar sem hjartað féll ekki þá varð hann að gefa 2 slagi á hjarta og 2 á lauf. — Réttast var að reikna ekki með því að hjartaliturinn félli. Taka aðeins einn slag á tromp, spila síðan lágu hjarta og gefa það. Þegar svo Suður kemst næst inn þá á hann að spila trompi einu sinni. Nú hefur hann þann viðbótarmöguleika, að falli hjartalíturinn ekki, þá eigi sá, sem á tvö hjörtu aðeins tvo spaða. Nú er hjarta ásinn tekinn og síðan lág hjarta úr borði. Ef báðir fylgja lit, þá eru trompin tekin ,annars er reynt að trompa fjórða hjartað í borði. Sameiginleg lög- reglu- og slökkvi- stöð í Reykjavík AÐ því er Mbl. hefur fregnað, mun nú vera frá því horfið, að reisa lögreglustöðina við norð- anverðan Arnahól á stóru lóð- unum, sem þar eru. Mun vera ákveðið að nýja lögreglustöðin og slökkvistöðin verði sameinuð. Sem kvuinugt er, verður slökkvi- stöðin reist þar sem gasstöðin var áður, og þar verður lögreglu- stöðin nú reist líka. Á fundi sínum á þriðjudaginn var ákvað bæjarráð að fela um- ferðarnefnd að gera áætlun um kostnað við að gera heljarmikið bílastæði á svæðinu milli Kalk- ofr^vegar, Sölvhólsgötu og Ing- ólfsstrætis, en einmitt á þessum stað, var lengi vel fyrirhugað að hin nýja lögreglustöð fyrir Reykjavík yrði reist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.