Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 3
Fhnmíudagur 14. maí 1959 MORGVNBLAÐIÐ 3 Víðfœkar ráðstafanir fyrirhugaðar til varnar úthreiðslu mœðiveikinn- ar á Vestfjörðum Þáltill. Sigurðar Bjarnasonar sam- þykkt á Alþingi Kvikmyndagerðar menn á ferðimii FYRIR nokkru var frá því skýrt hér í blaðinu að danski kvik- myndastjórinn Erik Balling, enski leikarinn William Travers og Poul Pedersen aðalmyndatöku maður Nordisk Film Kompanis hafi farið hér um á leið til Grænlands. Fyrir nokkru komu þeir félagar til baka með flugvél Flugfélags íslands, alskeggjaðir eftir ferðina. Höfðu þeir farið þriggja vikna sleðaferð um A- Grænland, til að athuga allar að- stæður til kvikmyndunar á mynd inni „Sleðaferðin", sem gera á eftir bók Davids Howarths. Á Tavers að leika aðalhlutverkið, en myndina gerir Nordisk Film Kompani í samvinnu við British Lion-kvikmyndafélagið. Þess má geta að ekki leikur nokkur kven- maður í myndinni. Á myndinni eru talið frá Skipzt á kveðjum í neðri deild f LOK síðasta fundar í neðri deild Alþingis í gær ávarpaði deildarforseti, Einar Olgeirsson, þingdeildarmenn og . þakkaði þeim öllum innilega ágætt sam- starf, umburðarlyndi og hjálp- semi. Kvaðst hann með tilliti til þess, að vitað væri, að nokkrir þeirra þingmanna, sem lengi hefðu setið á þingi, gæfu ekki kost á sér til þingmennsku fram- ar vilja þakka þeim fyrir langt og gott samstarf og óska þeim velfarnaðar. Varaforsetum, skrif- urum og starfsfólki þingsins þakk aði deildarforseti samstarfið og óskaði utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar. Bjarni Benediktsson kvaðst í nafni deildarinnar vilja þakka deildarforseta mjög ánægjulegt samstarf og prýðilega fundastjórn í smáu sem stóru. Óskaði hann honum velfarnaðar og hans fjöl- skyldu. — Tóku þingdeildarmenn undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. vinstri Erik Balling leikstjóri, William Travers leikari og Poul Petersen kvikmyndatökumaður, er þeir stigu um borð í flugvél Flugfélagsins á Reykjavíkurflug- velli á heimleið. Þingsályktunartillaga Sigurðar Bjamasonar um skjótar varnar- ráðstafanir gegn útbreiðslu mæði veiki á Vestfjörðum var tekin til síðari umræðu í sameinuðu Al- þingi í gær. Pétur Ottesen hafði framsögu í málinu af hálfu fjárveitinga- nefndar. Kvað hann þær slæmu fréttir hafa borizt út síðla vetrar, að mæðiveiki væri komin upp í Reykjhólasveit á Barðaströnd. Hefði sú fregn vakið ugg og það því fremur, sem mæðiveiki hefði ekki gætt áður vestur þar. Af þessu tilefni væri þessi þáltill. flutt. Ræðumaður skýrði frá því, að mæðiveikinefnd hefði að sjálf- sögðu strax brugðið við er hún hefði kynnt sér málið, að gera ráðstafanir til að afstýra þeim voða er fyrir höndum var. Hefði hann rætt við framkvæmdastjóra nefndarinnar og fengið hjá hon- um upplýsingar fyrirhugaðar ráð- stafanir. Væru þær í fyrsta lagi að setja girðingu úr Berufjarðar- girðingu, nærri sýslumörkum Strandas. og Barðastrandas., vest- ur á hreppamörk Reykhólahrepps Árni Jónsson, heldur tón- leika víðs vegar um land Honum hafa borizt ýmis afvinnu- rilboð erlendis ÁRNI Jónsson, tenórsöngvari, er nýkominn heim frá Svíþjóð, þar sem hann stundaði framhaldsnám sl. vetur hjá Simon Edvardsen, sem kunnur er hér fyrir stjórn sína á óperum í Þjóðleikhúsinu. — Fréttamenn áttu í gær viðtal við Árna í tilefni þess, að næstu daga leggur hann upp í langa og mikla söngför um landið, mun hann að líkindum halda 12—15 tónleika í þeirri för. — Raunar hefur Árni þegar haldið eina tón- leika, sl. laugardag, í félagsheim- ilinu Gunnarshólma í Austur- Landeyjum — og hlaut hinar beztu viðtökur. Vélarbilun AKRANESI, 13. maí. — Dekselið sprakk í gær hjá vélbátnum Ver, er hann var kominn drjúgan spöl út í flóa á leið á síldarmiðin. Höfrungur var í þann veg að leggja af stað með hringnót, en hætti við það, sótti Ver og dró hann til hafnar. — Oddur. Hin eiginlega söngför hefst hins vegar um næstu helgi, og syngur Árni þá, á annan dag hvítasunnu, austur í Hruna- mannahreppi, í hinu nýja félags- heimili þar. — Næsti konsert verður á Akranesi um þar næstu helgi, og þriðjudaginn 26. maí syngur Árni hér í Reykjavík, í Gamla Bíói. Hefst aðgöngumiða- sala að þeim tónleikum í dag, í Bókaverzlun Lárusar Blöndals á Skólavörðustíg og í Vesturveri, hjá Eymundsson í Austurstræti og Bókabúð Helgafells á Laugav. — Síðan rekur hver konsertinn annan, 27. maí á Sauðárkróki, 28. á Akureyri, á Húsavík hinn 29. og þann 30. í Skjólbrekku í Mý- vatnssveit. Síðan heldur Árni til Vestfjarða, syngur á ísafirði 4. júní, í Bolungarvík 6. og á Flat- eyri hinn 7. Um miðjan júní held ur hann tvenna tónleika á Höfn í Hornafirði og síðan sennilega austur á Fjörðum, sem þó er ekki fullráðið enn. — Þar sem tónlistarfélög eru starfandi á fyrrgreindum stöðum úti um land, verða tónleikarnir á þeirra vegum. Undirleikari á öllum tónleik- unum verður Fritz Weisshappel, en á efnisskránni verða lög eftir Árna Björnsson, Hallgrím Helga- son, Eyþór Stefánsson, Pál ísólfs- son, Sigvalda Kaldalóns, Árna Thorsteinsson, Sigfús Einarsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Árni Jónsson Grieg, Nordqvist, Ture Rang- ström og loks tvær aríur úr óper- unum I Pagliacci og Cavalleria Rusticana. Fréttamenn spurðu Árna um námsdvölina í Svíþjóð og fram- tíðaráætlanir. — Hann kvaðst hafa sungið ásamt fleirum á tón- leikum í Eriksstadshallens Kon- sertsal í Stokkhólmi rétt áður en hann kom heim. Þar hefðu verið staddir ýmsir umboðsmenn á hnotskógi eftir „nýjum mönn- um“, og eftir konsertinn hefðu sér borizt samningstilboð fyrir árið 1960 frá Stokkhólmsóper- unni, Folkparkarna í Svíþjóð og loks um tónleikaferðalag um Skandinavíu, ásamt Önnu Gretu Söderholm, einni fremstu sópran söngkonu Svía. — Þá er ákveðið, að Árni syngi til reynslu fyrir hina nýstofnuðu norsku óperu (sem Kirsten Flagstad stjórnar), í ágúst nk., og kvaðst hann ekki hafa viljað fastráða sig neins staðar fyrr en að því loknu. Helzt kvaðst Árni hafa kosið að setjast að hér heima, en vegna þess, hve starfsskilyrði fyrir söngvara væru léleg hér, myndi hann að líkindum freistast til að taka einhverju þeirra tilboða, sem sér hefðu borizt. 8TAK8TEINAR og Gufudalshrepps, niður Þor- geirsdal og í sjó vestan við Múla í Þorskafirði. Hreppurinn yrði þannig girtur af með nokkru heið arlandi. Þessi girðing yrði um 20 km. löng. Girðingin úr Kollafirði í ísafjörð verður tvöfölduð. í öðru lagi yrði tvöfölduð strax og við yrði komið girðingin úr Kollafirði í ísafjörð, sem væri um 25 km. löng. í þriðja lagi yrði féð á Miðhús- um einangrað og einnig fé á Reyk hólum, sem sækti vestur í Gufu- dalssveit. Til þess mundi þurfa um 3 km. girðingu. Km. af girð- ingu kostaði nú um 9.000,00 kr. og kostnaður við fyrirhugaðar framkvæmdir væri áætlaður 360 þús. kr. Pétur Ottesen gat þess, að þær ráðstafanir, sem mæðiveikinefnd hefði hafizt handa um, væru svipaðar og lagt hefði verið til af flm. tillögunnar. Væri mikið í húfi að takast mætti að bægja frá þessum voða. Þá gat hann þess að lokum, að fjárveitinganefnd legði eindregið til að tillagan yrði samþykkt, en gerðar á henni smá- vægilegar orðalagsbreytingar. Sigurður Bjarnason kvaddi sér hljóðs. Kvaðst hann vilja þakka fjárveitinganefnd skjóta og góða afgreiðslu þessa máls og væri hann fyllilega ásáttur með þá smávægilegu breytingu, sem nefndin gerði á tillögunni. Kjarni málsins væri sá, að gert yrði allt, sem hægt væri til að hindra útbreiðslu mæðiveikinnar á Vest- fjörðum. Tillagan var samþykkt með 30 samhljóða atkvæðum og afgreidd til ríkisstjórnarinnar sem ályktun sameinaðs Alþingis. Alþingi kýs full- trúa í Norður- landaráð Á DEILDARFUNDUM Alþing- is í gær voru kosnir fulltrúar í Norðurlandaráð. I efri deild voru kjörnir aðalmenn þeir Sigurður Bjarnason og Bernharð Stefáns- son, en til vara Friðjón Þórðar- son og Páll Zóphóníasson. í neðri deild voru kjörnir að- aðlmenn Bjarni Benediktsson, Emil Jónsson og Einar Olgeirs- son, en varamenn Magnús Jóns- son, Gylfi Þ. Gíslason og Hanni- bal Valdimarsson. Lög frá Alþingi FRUMVARP til laga um bygg- ingarsjóð Listasafns íslands var afgreitt sem-lög frá Alþingi í gær. Er stofnfé sjóðsins það fé, sem Alþingi hafði lagt fram til að byggja vinnusal og íbúð fyrir Jóhannes Kjarval. Þá var útflutningssjóðsfrum- varpið einnig afgreitt sem lög frá Alþingi eftir eina umræðu í neðri deild. Frumvarp um breyting á lög- um um hafnargerðir og lending- arbætur flutt af Jóhanni Þ. Jó- sefssyni var einnig afgreitt sem lög frá Alþingi í gær. Þá var í sameinuðu þingi sam- þykkt þáltill. um útgáfu á blaða- greinum Jóns Sigurðssonar á 150 ára afmæli hans. Er uppgjöfin gleymd? Það vakti gaman í nýafstöðn- um útvarpsumræðum eða eld- húsumræðum, eins og sumir kalbt þær, frá Alþingi, að Eysteinn Jónsson, fyrrVerandi fjármála- ráðherra, tók svo til orða út af ræðu, sem Hermann Jónasson hafði haldið, að forsætisráðherr- ann hefði orðið fyrir svörum út af varnarmálunum. Það má segja að þeir lifa í fortíðinni þeir Framsóknarmenn þegar þeir erw farnir að gleyma því, að Her- mann Jónasson, sjálfur formað- ur þeirra, er ekki lengur for- sætisráðherra heldur þingmaður fyrir Strandir, en oltinn úr sinni fyrri tign. E. t. v. stendur Ey- steinn Jónsson í þeirri meiningu að hann sé ennþá fjármálaráð- herra og væri það raunar vork- unarmál, svo lengi sem hann hef- ur verið í þeirri stöðu til litilla þrifa í þjóðfélaginu. Svona er ringulreiðin mikil hjá Framsókn armönnum, að svo sýnist sem þeir hafi ekki áttað sig á því, að •þeir eru ekki lengur í stjórn. En það er ekki oft, sem Ey- steinn Jónsson hefur orðið til skemmtunar þjóðinni, svo segja má að hér sé um ánægjulega til- breytingu að ræða. Tillaga handa Tímanum Annað dæmið um það, hvemig Framsókn lifir enn í sinni stjórn- arfortíð er, að Tíminn hefur hvað eftir annað, birt mynd af Her- manni Jónassyni, sem er tekin af honum, þegar hann eitt sinn forð- um daga liélt ræðu á Alþingi, meðan hann var forsætisráðherra landsins. Slík myndbirting var seinast í blaðinu í fyrradag í sam bandi við útvarpsumræðurnar og sést Hannibal, fyrrverandi ráð- herra, í sínum embættisstól í bak- sýn. Hermann Jónasson er prúð- búinn á myndinni, svo sem tign- armanni sæmir, með ljóst vesti til skarts og er út af fyrir sig ekkert um það að segja. Mörg- um mánuðum eftir fall Hermanns virðist Tímanum fróun að þvi að birta þessar myndir af Her- manni Jónassyni, þar sem hann gengur fram fyrir Alþingi í stöðu forsætisráðherra og má segja að blaðinu sé þetta svo sem ekki of gott. Hér væri vert að gera tillögu sem gæti orðið Tímanum til langrar fróunar. í einu herbergi Þjóðminjasafnsins eru vaxmynd- ir, þar sem m.a. eru myndir af íslenzkum valdamönnum. Hvern- ig væri, ef Tíminn sæi svo um, að falleg vaxmynd, sem jafnvel kann að vera til í þessu safni, yrði færð í forsætisráðherrabún- ing Hermanns Jónassonar að meðtöldu vestinu? Til þess væri því meiri ástæða sem það virðist ótrúlegt, svo framarlega sem ís- Iands óhamingju verður ekki allt að vopni, að Hermann Jónasson verði nokkurn tíma framar for- sætisráðherra landsins. En vax- myndin getur sjálfsagt enzt lengi með góðri meðferð. „Frjáls skoðana- myndun“ Tíminn hefur það fyrir aðal- fyyrirsögn á forsiðu í gær, að „fái frjáls skoðanamyndun að njóta sín verður kjördæmabreyt- ingin felld“. Þetta er haft eftir Eysteini Jónssyni, varaformanni Sambands íslenzkra samvinnufé- laga. Það er landskunn stað- reynd, hvernig kaupfélögin og SÍS hafa beitt sér í kosningum til þess að „frjáls skoðanamynd- un“ fái e k k i að njóta sín. Það er þessí. vegna engin tilviljun að það skuli einmitt vera Eysteinn, sem einn allra gefur í skyn, að kjósendur kunni að verða sviptir skoðanafrelsi við kjörborðið en um það ætti liann frekast að líta í sinn eigin barm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.