Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 14. mai 1959
MORGUJVBLAÐIÐ
17
Karl Sigurðsson
eftirlitsmabur — minning
KARL Sigurðsson, fyrrum skip-
stjóri, andaðist þriðjudaginn 5.
maí s.l. í Bæjarsjúkrahúsinu í
Reykjavík, á 54. aldursári.
Karl var skipstjóri í Vestmanna J
eyjum frá 19 ára aldri um 15 ára
skeið, þar til hann fluttist til
Reykjavíkur árið 19J9. Eftir það
var hann skipstjóri í átta ár á
m/b Ásgeiri, er gerður var út af
Ingvari Vilhjálmssyni og Jóni
Sveinssyni, eða til ársins 1947, að
heilsa hans bilaði.
Leitaði hann sér lækninga er-
lendis og fékk verulegan bata.
Réðist hann þá sem eftirlitsmað-
ur til lögreglustjórans í Reykja-
vík og á sumrin starfaði hann í
mörg ár við síldarleitina á Rauf-
arhöfn.
Karl var alkunnur aflamaður,
bæði á þorskveiðum og síldveið-
um og voru skip þau, sem hann
var skipstjóri á, jafnan með
hæstu skipum.
Störf sín hjá lögreglustjóra og
síldarleitinni rækti hann einnig
með ágætum, enda var hann mik-
ill áhugamaður um störf sín.
Karl Kjartan Sigurðsson var
fæddur í Vestmannaeyjum 16.
nóv. 1905 og voru foreldrar hans
Sigurður Hróbjartsson, útgerðar-
maður og bóndi og Halldóra Hjör
leifsdóttir, er lengi bjuggu að
Litla-Landi í Vestmannaeyjum,
merk dugnaðarhjón.
Karl kvæntist Sigurbjörgu
Ingimundardóttur, ættaðri úr
Skagafirði árið 1930. Reyndist
hún manni sínum vel í langvinn
um veikindum hans hin síðustu
ár.
Börn þeirra eru Sigurður
Hróbjartur, sjómaður og Hanný,
sem enn er í foreldrahúsum, 17
ára gömul.
Allt frá því að Karl byrjaði sjó
sókn 13 ára gamall og til æviloka \
var hann mjög vinsæll af félög-
um sínum og samstarfsmönnum,
enda var hann fjörmaður mikill
og kunni þá list að segja skemmti
lega frá.
Hinir mörgu vinir og kunningj
ar Karls Sigurðssonar sakna
hans mjög og votta konu hans
og börnum innilega samúð í til-
efni af fráfalli hans.
Útför Karls fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 2 síðdegis.
S. B.
saman. Vann hann þar við lög-
gæzlu, þó aðallega eftirlitsstörf
með samkomu- og veitingahús-
um.
Er óhætt að segja, að starf
þetta rækti hann það vel, að vart
verður á betra kosið, enda prýði-
lega til starfans fallinn: Rólegur
og prúður, en þó ákveðinn og
framfylginn sínum málum, ef á
þurfti að halda. Alltaf fannst
mér hann sanngjarn í sínum dóm
um. Hjálpsamur var hann þeim,
er þess þurftu. Sá ég hann oft
víkja að þeim, er verst hafa orðið
úti í lífinu. Sýndi það bezt hjarta
lag hans.
í hópi vina og kunningja var
hann hrókur alls fagnaðar og
hafði sérstakt lag á að koma
mönnum í gott skap. Var fundvís
á það broslega og hafði gott lag
á að láta menn hlusta á sig, enda
gæddur sérstökum frásagnarhæíi
leikum.
Þrátt fyrir fullan vinnudag og
vanheilsu lagði Karl út í það
fyrir fáum árum að byggja fal-
lega íbúð að Austúrbrún 33, en
við það verk hjálpaðist að öll
fjölskyldan. Ber íbúð þeirra vott
einingu og smekkvísi.
Árið 1930 kvæntist Karl eftir-
lifandi konu sinni, Sigurbjörgu
Ingimundardóttur, ættaðri úr
Skagafirði. Var hún honum sam
hent í öllu og sivakandi yfir vel-
ferð hans. Eignuðust þau tvö
börn, sem bæði eru enn í föður-
húsum. Sakna þau nú góðs eigin-
manns og föður. En minningin
um hann er björt og guð mun
milda harma syrgjendanna.
Hinn 2. maí s.l. fórum við Karl
í smá ferðalag á vegum embætt-
isins. Er við snérum heimleiðis
var dagur á lofti. Var honum þá,
sem oft áður, hugsað heim til
konu sinnar og barn.a Var hann
fagnandi því að geta nú, að-
stæðna vegna, tekið alla íbúð
sína til eigin nota. Máske að
sagnarandi hans frá því á sjón-
um forðum hafi þá hvíslað að
honum, að stutt væri að leiðar-
lokum, og hann því viljað láta
mig vita, að hag heimilisins væri
borgið. Því gæti hann flutzt ró-
legur til æðri heims. Daginn eftir
vorum við að vinna að þessu
sama'máli. Því verki varð lokið.
Það var það síðasta, er við sá-
umst.
Nú hefir hann séð dagsbrún
nýs lífs. Þar mun honum vel
fagnað.
Við samstarfsfólk hans þökk
um honum góða samfylgd og
kveðjum hann með söknuði. Um
leið sendum við konu hans og
börnum innilegar samúðarkveðj-
ur.
Ragnar Bergsveinsson.
Sellofinepokar
sem
Margar tegundir en litlar birgðir. Þeir,
hafa pantað þá, eða eru kaupendur að þeim, látið
okkur vita sem fyrst.
PAPPlRSPOKAGERÐIN
Vitastíg 3. — Sími 13015 og 12870.
Skrifstofuatvinna
í DAG fer fram útför Karls Sig-
urðssonar, eftirlitsmanns. Hann
andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu í
Reykjavik 5. maí s.l., 53 ára að
aldri.
Það er ekki ætlun mín að rita
hér ævisögu hans, það munu aðr-
ir gera. Ég vil aðeins, með þess-
um fáu línum, þakka honum
ánægjulegt samstarf og trygga
vináttu.
Karl Sigurðsson var fæddur í
Vestmannaeyjum og ólst þar upp.
Leitaði hugur hans fljótt til sjó-
mennskunnar, sem títt var um
tápmikla drengi í þá daga. Inn-
an fermingaraldurs byrjaði hann
sína fyrstu sjóróðra. Vann hann
sér þar fljótt traust, sem bezt
má sjá á því, að innan við tvítugt
var hann orðinn skipstjóri. Sýndi
Karl þar fljótt, að hann var þess
trausts verður. Gerðist hann
brátt mikill sjósóknari og afla-
kóngur, en það sæmdarheiti öðl-
ast ekki nema dugnaðarmenn.
Víst er um það að á sjónum
kunni hann vel við sig og hefði
viljað vera þar fram á síðasta
dag. En engin má sköpum renna.
Fyrir tæpum 12 árum kenndi
hann þess sjúkdóms, er orðið
hefir honum að aldurtila. Margar
og þungar legur þurfti hann að
liggja, áður en ýfir lauk. En þess
á milli sinnti hann störfum og lét
sem fullfrískur væri, þótt sár-
þjáður væri á stundum. Leitaði
hann sér lækninga til Danmerkur
og Ameríku og fékk þann bata,
að hann gat hafið starf að nýju.
Fyrir tæpum áratug gerðist
Karl starfsmaður á vegum lög-
reglustjóraembættisins í Reykja-
vík. Þar lágu leiðir okkar fyrst
Skrifstofumaður með góðri kunnáttu í ensku, vél-
ritun og bókhaldi getur fengið fasta atvinnu.
MAGNI h.f. Hveragerði.
Skrifstofustúlka
Heildverzlun óskar að ráða til sín stúlkú til síma-
vörzlu og almennra skrifstofustarfa. Umsóknir
merktar: „Skrifstofustarf—9816“, sendist afgr. Mbl.
fyrir 16. þ.m.
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka óskast til að annast erlendar og inn-
lendar bréfaskriftir.
Gísfi Jónsson & Co. hf.
Ægisgötu 10, Reykjavík. Sími 11740
Opef Kapitan 1955
(R-5566) mjög glæsilegur einkavagn, verður til
sýnis og sölu í dag og næstu daga.
BARÐINN ht.
Skúlagötu 40
TakiH eftir
Stór hringnótabátur nýr til sölu á Smábátaverk-
stæði Svavars Þorsteinssonar Akureyri. Sími 1937,
f nnbrennsluofn
Innbrennsluofn til sölu.
Uppl. hjá yfirverkstjóranum
LANDSSMIÐJAN
V eitingastofa
TU sölu er veitingastofa í Miðbænum. Þeir, sem áhuga
hafa fyrir kaupum sendi nafn sitt I lokuðu umslagi
til afgr. Mbi. fyrir 21. þ.m. merkt:
„V eitingastof a—4475“.
Viðarveg gf óður
Nokkurt magn nýkomið.
Páll Þorgeirsson
Laugavegi 22 — Sími 16412.
Málverkasýning
IX Kynslóðir Amerískrar Myndlistar. Yfirlitssýning
á amerískri myndlist í Listasafni ríkisins við Hring-
braut.
(Opin allan daginn frá kl. 10 til 10).
AÐGANGUR ÓKEYPIS.
Furu-utidyrahurðir
//
nnsi
Ármúla 20 — Sími 32400
M atreiðslunámskeið
Húsmœðrakennaraskóla íslands
Húsmæðrakennararskóli íslands heldur 6 vikna nám-
skeið að Laugarvatni í sumar fyrir stúlkur á aldr-
inum 13—18 ára.
Nánari upplýsingar í símum 16145 og 15245.
Helga Sigurðardóttir
Reykvíkingar - Nærsveitarmenn
Takið eftir
Til 1. júní n.k. seljum við öll bólstruð húsgögn með
jöfnum afborgunum mánaðarlega.
Tækifæri til að eignast húsgögn
með léttu móti.
Bólsturgerðin hf.
Skipholti 19. (Nóatúnsmegin) Slími 10388.