Morgunblaðið - 23.05.1959, Page 1

Morgunblaðið - 23.05.1959, Page 1
46. árgangur 112. tbl. — Laugardagur 23. maí 1959 Frentsmiðja Morgunblaðsia# Brezkt herskip sigl- ir á varðskipið Oðin í FYRSTA skipti hefur hin háskalega sigling brezkra herskipa, á lögbrotasvæðum þeirra hér við land, orsakað Þorvoldur Gorðor Kristjdnsson í kjöri fyrir Sjólfstæðisflokkinn í Vestur-isofjarðnrsýsln TRÚNAÐARMENN Sjálfstæðisflokksins í Vestur-lsafjarðarsýslu bafa einróma skorað á Þorvald Garðar Kristjánsson, bæjarfulltrúa, að vera í kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í íhönd farandi kosning- um. Hefur hann orðið við þeirri áskorun og er framboð hans því ákveðið. sem komst að á landslistaatkvæð um með stuðningi Alþýðuflokks- ins. Þorvaldur Garðar er gjör- kunnugur málefnum fólksins í Vestur-ísafjarðarsýslu. Hefur hann unnið að margvislegum hagsmunamálum héraðsins af miklum dugnaði og nýtur trausts og vinsælda héraðsbúa almennt. Er mikill hugur í Sjáifstæðis- mönnum í Vesturísafjarðarsýslu að vinna kappsamlega að kjöri hans í kosningum þeim, sem fram undan eru. Þorvaldur Garðar Kristjánsson j •r fæddur og uppalinn í Vestur- ísafjarðarsýslu. Hann lauk lög- fræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1948 og dvaldist síðan um eins árs skeið við framhalds- nám í London. Síðan hefur hann starfað hjá Útvegsbanka íslands og einnig rekið lögfræðiskrif- stofu Bæði á skólaárunum og síðar hefur Þorvaldur Garðar tekið mjög virkan þátt í félagsmálum og hafa honum verið falin fjölda mörg trúnaðarstörf. í háskólan- um var hann formaður félags laganema og átti sæti í stúdenta- ráði, en að loknu námi var hann um skeið formaður Stúdentaráðs Reykjavíkur. Þá hefur hann átt sæti í húsnæðismálastjórn, situr í útvarpsráði, er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og í stjórn byggingarsjóðs verka manna. Hann hefur einnig tekið virkan þátt í starfsemi Sjálfstæð isflokksins, var formaður Heim- dallar og er nú formaður Varðar. Þorvaldur Garðar fór fyrst í framboð í Vestur-ísafjarðar- sýslu í aukakosningunum haustið 1952 og hefur fylgi hans vaxið hröðum skrefum í sýslunni síðan og í kosningunum 1956 hlaut hann fleiri persónuleg atkvæði en fulltrúi Framsóknarflokksins, Erlendur Björnsson sýslumuður í kjöri fyrir Sjúlistæðisflokkinn ú Seyðislirði Á ALMENNUM fundi stuðningsmanna Sjáifstæðisflokksins á Seyðisfirði, er haldinn var í fyrrakvöld, var einróma samþykkt, að skora á Erlend Björnsson, bæjarfógeta á Seyðisfirði og sýslu- mann Norður-Múlasýslu, að vera í kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Seyðisfirði í kosningunum, sem framundan eru. Varð Erlendur við áskoruninni og er framboð hans því ákveðið. Erlendur Björnsson er fæddur að Orrastöðum í AusturHúna- vatnssýslu árið 1911, sonur Krist- bjargar Pétursdóttur og Björns Eysteinssonar bónda þar. Hann varð stúdent frá Menntaskólan- um á Akureyri árið 1934 og lauk lögfræðiprófi árið 1939. Sama ár varð hann bæjarstjóri á Seyðis- firði og gegndi því embætti til ársins 1954. Erlendur varð bæjar- fógeti á Seyðisfirði og sýslumað- ur í Norður-Múlasýslu árið 1953 og hefur verið það síðan við vaxandi vinsældir. Erlendur Björnsson er formað- ur héraðssambands Sjálfstæðis- manna á Austurlandi og hefur verið helzti forustumaður Sjálf- stæðisflokksins á Seyðisfirði og efstur á lista flokksins þar við bæjarstjórnarkosningar síðan 1954. Var hann um skeið forseti bæjarstjórnar Seyðisfjarðar. Sjálfstæðismenn á Seyðisfirði ganga vígreifir til kosninganna, sem framundan eru og er mikill hugur í mönnum að efla sem mest fylgi Erlends Björnssonar. Var fundurinn í fyrrakvöld sam- stilltur og sýndi bjartsýnan bar- áttuhug. árekstur varðskips og her- skips. Þetta gerðist í gær- morgun út af Vestfjörðum, er brezkt herskip sigldi á varð- bátinn Óðinn. Fyrstu fregnir af þessum atburði bárust Mbl. um kl. 2 í gær frá frétta- ritara þess á Patreksfirði, en þangað inn kom Óðinn um kl. 1 í gærdag. Hafði skipstjór- inn á Óðni, Pétur Jónsson, varizt allra frétta, en sagt að ekkert hefði komið fyrir áhöfnina. Skipstjórinn hafði þá gefið Landhelgisgæzlunni munnlega skýrslu um atburð- inn í síma. Skipsmenn á Óðni höfðu sagt fréttaritaranum, Trausta Árna- syni, að brezka herskipið hefði í heilan sólarhring elt Óðinn og stundum farið svo nærri, að lík- lega hefði fjarlægðin á milli skipanna ekki verið meiri en sem svarar fimm föðmum. Her- skipið, H. M. S. Chaplet, er 2600 tonn, ganghraði 31 sjómíla og vel vopnum búið. Óðinn er 72 tonn. ★ 1 gærkvöldi sendi landhelgis- gæzlan út svohljóðandi tilkynn- ingu um þennan alvarlega at- burð og segir þar á þessa leið: „X morgun, er varðskipið Óð- inn var að sigla að brezka tog- aranum St. Just, sem var að ó- löglegum veiðum úti fyrir Vest- fjörðum, sigldi brezka herskip- ið Chaplet Óðinn uppi og fór þétt fram með bakborðshlið hans. 'Skipin sigldu síðan samsíða nokkra stund, en allt í einu sveigði herskipið nær Óðni og skullu skipin saman, þannig að Óðinn lenti inn undir kinnung herskipsins. Við höggið brotnaði björgunarbátur varðskipsins og nokkrar skemmdir urðu á báta- uglum og borðstokk, en meiðsl urðu engin á mönnum.“ Buröi Friðriksson í kjöri fyrir Sjúlfstæðisilokkinn í Norður- Þingeyjursýslu Á HVÍTASUNNUDAG var haldinn að Lundi í Öxarfirði fundur í héraðsnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norður-Þingeyjarsýslu. Var þar einróma samþykkt að skora á Barða Friðriksson, skrifstofu- stjóra, að vera í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í sýslunni i ihönd farandi kosningum. Hefur Barði orðið við þeirri áskorun og er framboð hans því ákveðið. Barði Friðriksson er fæddur og uppalinn í Norður-Þingeyjar- sýslu, sonur Friðriks Sæmunds- sonar bónda á Efri-Hólum í Núpa sveit og konu hans Guðrúnar Halldórsdóttur, ljósmóður. Hann varð stúdent frá Menntaskólan- um á Akureyri 1943 og lögfræð- ingur frá Háskóla íslands árið 1949 og lauk héraðsdómslög- mannsprófi ári síðar. Hann er nú Þrjú lögbrota- svæði EINS og að undanförnu verja brezku herskipin hér við land 3 svæði til ólöglegra fiskveiða brezkra togara. Eitt þeirra er út af Vestfjörðum, annað út af Húnaflóa og hið þriðja út af Papey. Fáir togarar hafa verið að viðum á þessum svæðum und anfarið og í dag voru þar alls 10 togarar. Vitað er'þó um 40 brezka togara, að veiðum utan fiskveiðitakmarkanna. skrifstofustjóri hjá Vinnuveit- endasambandi íslands. Bæði á háskólaárunum og síð- ar hefur Barði Friðriksson tekið virkan þátt í fé'lagsmálum og verið falin fjölmörg trúnaðar- störf. Á árunum 1947 til 1948 var hann formaður Stúdentaráðs há- skólans, en formaður Stúdenta- félags Reykjavíkur 1956 til 1957. Frá 1950 hefur hann átt sæti I stjórn Ráðningarstofu Reykjavík urbæjar og á nú einnig sæti i stjórn Lífeyrirsjóðs verzlunar- manna. Þá hefur Barði verið for- maður Félags Þingeyinga í Reykjavík frá 1951 að tveimur árum undanskildum. Hann hefur einnig tekið virkan þátt í starf- semi Sjálfstæðisflokksins og m.a. verið í stjórn Varðar. Barði Friðriksson hefur verið í framboði fyrir Sjálfstæðisflokk- inn í Norður-Þingeyjarsýslu í kosningunum 1953 og 1956. Hef- ur flokknum aukizt fylgi í sýsl- unni í báðum þessum kosningum. Sjálfstæðismenn í Norður-Þyng- eyjarsýslu fagna framboði Barða Friðrikssonar og eru ráðnir í að efla enn fylgi hans í kosningum Dalai Lama sagði i gær: Biðjum, að ófrelsið í Tíbet taki enda eins og sólmyrkvinn NÝJU DELHÍ, 22. maí. — t dag hvatti Dalai Lama alla Búdda- trúarmenn til að biðja um það í bænum sínum, að erfiðleikum Tíbetbúa linni sem fyrst. Biðjið um, sagði hann, að ófrelsið í Tíbet taki enda, eins og sólmyrkvi. Dalai Lama flutti í dag ávarp, til Búddatrúarmanna í tilefni af afmælisdegi Búdda. Hann sagði auk þess sem að framan er getið, að kenningar Búdda hefðu skot- ið djúpum rótum í Tíbet, en nú hefðu fylgjendur hans þar orðið að þola miklar raunir og þján- ingar fyrir trú sína. Indverjum nóg boðið Brezka blaðið Daily Telegraph skýrir frá því, að indverska stjórnin hafi í hyggju að senda bæklinga inn í Tíbet til þess að vega upp á móti þeim óróðri kínverskra kommúnista, að Ind- verjar hafi ætlað að „gleypa“ Tíbet. I bæklingum þessum verða m. a. þýðingar á ræðum Nehrús. Þá segir blaðið ennfremur, að birtar verði myndir af Dalai Lama í Indlandi, en hann býr, eins og kunnugt er, í Mussoorie og hefur verið þar í útlegð frá því hann slapp nauðuglega til Indlands eftir frelsisbyltinguna í Tíbet. Eiga myndirnar að sýna, að hann er ekki fangi, eins og kínverskir kommúnistar hafa reynt að telja mönnum trú um. Laugardagur 23. ma„ Efni blaðsins er m.a.: Bls. 3: Hugvísindasjóður úthlutar styrkjum. — 6: Vinnuskipting fyrir vörubíl- stjóra (Ræða Magnúsar Jóhann essonar í bæjarstjórn). — 8: Forystugreinin: Eiga kjósendur að gleyma þessu öllu. — Sjó- flugvélin að verða úr sögunni (Utan úr heimi). — 9: Við túngarðinn. — Vor um velli (Rogalandsbréf Á.G.E.). — 14: íþróttafréttir. L E S B ó K fylgir blaðinu í dag. Efni hennar er m.a. Hann skyldi gjalda góðsem- innar. — Veðrabrigði (smásaga) — Einar Jónsson myndhöggv- ari, Listaverk um list. — Sam- hjálp í ríki náttúrunnar. — Tíðarvísur séra Jóns Hjaltalíns, ljóð, bridge o. fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.