Morgunblaðið - 28.05.1959, Page 2

Morgunblaðið - 28.05.1959, Page 2
2 MORG’fNRT.AÐIQ Fimmtudagur 28. maí 1959 Sveit Hjalfa Elíassonar efst á Bridgemótinu TTRSLIT í 4. umferð sveitakeppni Islandsmótsins er nú stendur yfir í Reykjavík urðu: Sveit Hjalta Elíassonar vann sveit Sigurhjartar Péturs- sonar 51:40 Sveit Stefáns Guðjohnsen vann sveit Óla Kristjáns- sonar 53:30 Sveit Mikaels Jónssonar vann sveit Eggrúnar Arn- órsdóttUr 73:46 Sveit Svavars Jóhannssonar vann sveit Ragnars Þor- steinssonar 68:44 Sveit Ásbjörns Jónssonar jafnt sveit Vigdísar Guð- ' jónsdóttur 50:46 Sveit Halls Símonarsonar jafnt sveit Sophusar Guð- mundssonar 40:35 Það, sem einkum vakti at- hygli í 4. umferð var, að sveit Hjalta skyldi takast að sigra sveit Sigurhjartar, en sveit Sig- urhjartar er núverandi Reykja- víkurmeistari. Einnig vakti at- hygli góður árangur sveitar Vig- dísar er gerði jafntefli við sveit Ásbjarnar. Sveit Ásbjarnar hef- ur elcki náð þeim góða árangri, er við var búist eftir að það fréttist, að þeir Lárus Karlsson, Stefán Stefánsson og Benedikt Jóhannsson myndu spiia með sveitinni. ingar. Félagar eru 136 og er TBK nú fjölmennasta bridgefélagið. — Auk venjulegra aðalfundarstarfa fór fram verðlaunaafhending fyr- ir keppnir félagsins í vetur. — Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa Sóphus Guðmunds- son, formaður, en meðstjórnend- ur eru Ragnar Þorsteinsson, Björn Benediktsson, Þórður Elías son og Þórður H. Jónsson. 1 vara- stjóm: Friðrik Karlsson og Tryggvi Gíslason. Gerpir landaði rúmlega 400 lestum aí karfa NESKAUPSTAÐ, 27. maí. — Tog arinn Gerpir kom hingað á mánu dagskvöld eftir 16 daga útivist á Nýfundnalandsmiðum. Var hann með fullfermi af karfa, og voru 45 lestir á þilfari. Landað var úr togaranum í gær og dag, og komu upp úr honum rúm- lega 400 lestir. Mestallt af aflan- um fór til vinnslu í frystihúsin hér, en 71 lest af karfa var ekið á bílum til Eskifjarðar, í hrað- frystihús staðarins. — Fréttarit. Á morgun opnar Samúel Jónsson sýningu í bogasal Þjóðminja- safnsins. Á sýningunni verða tuttugu máiverk og altaristafla, útskorin. Sýningin er opin frá kl. 1 til 10 daglega til sunnu- dagskvölds. Myndin er af altaristöflunni. Eins og áður hefur verið getið. verða spilaðar 7 umferðir í keppni þessari. 5. umferð var spiluð í gærkvöldi, en sjötta um- ferð í kvöld og sjöunda og síð- asta umferðin fer fram annað kvöld. Spilað er í Tjamarcafé og hefst keppnin ávallt kl. 8. Að fjórum umferðum loknum er röð sveitanna þessi: 1. Sv. Hjalta Elíassonar .. 7 st. 2. Sv. Stefáns Guðjohnsen 7 — 3. Sv. Sigurhj. Péturss. ..6 — 4. Sv. Asbjörns Jónssonar 5 — 5. Sv. Óla Kristjánssonar . 4 — 6. Sv. Vigdísar Guðjónsd. . 4 — 7. Sv. Mikaels Jónssonar . 4 — 8. Sv. Svavars Jóhannss. . 4 — 9. Sv. Zophusar Guðm.ss. 3 — 10. Sv. Halls Símonarsonar 3 — 11. Sv. Eggrúnar Amórsd. . 1 — 12. Sv. Ragnars Þorsteinss. 0 — ★ Aðalfundur Tafl- og bridge- klúbbsins var haldinn fimmtu- daginn 21. maí. Formaður flutti ekýrslu stjórnarinnar og lagðir voru fram endurskoðaðir reikn- HAFNARFJÖRÐUR KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Sjálf- stæðishúsinu er opin frá kl. 1—10. Þar getur fólk fengið upplýsingar um hvort það er á kjörskrá. — Hafið samband við skrifstofluna, simi 50228. KEFLAVÍK Kosnlngaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins i Keflavík er í Sjálf- stæðishúsinu, uppi. Sími 21. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn frá kl. 10—6. Sjálfstæðisfólk, hafið samband viff skrifstofuna og athugið hvort þið eruð á kjörskrá. Kærufrest- ur er útrunninn 6. júní. Veitið skrifstofunni upplýsing ar um fólk, sem verður fjarver- andi á kjördag. KÓPAVOGUR! Kocningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi er að Met- gerði 1, sími 19708. ÁRNESSÝSLA KOSNIN G ASKRIFSTOF A Sjálf stæðisflokksins í Árnessýsku er við Tryggvatorg á Selfossi simi 119. Skrifstofan er opin daglega kl. 1—10 e.h. Upp kemst víðfœk njósnastarfsemi kommúnista í Vestur-Þýzkalandi Getur haft áhrif á Genfarfundinn BERLINGUR hefur skýrt frá því, að komizt hafi upp um mestu njósnastarfsemi í Vest- ur-Berlín og Vestur-Þýzka- landi, sem sögur fara af eftir styrjöldina. Opinberlega hef- ur verið tilkynnt, að 18 menn hafi verið teknir höndum, grunaðir um að hafa rekið njósnir í þágu kommúnista. Flokksmenn Adenauers Flestir þeirra, sem handteknir hafa verið, hafa haft stöður í flokki Adenauers kanslara og starf þeirra virðist einkum hafa verið í því fólgið að veita komm- únistum í Austur-Þýzkalandi og Sovétríkjunum upplýsingar um ýmis leyndarmál flokks Kristi- Hljómleikar Davíd Lloyd BANDARÍSKI tenórsöngvarinn, David Lloyd er mjög hátt skrif- aður vestan hafs, einkum fyrir meðferð sina á Mozart, og það var fyrir Mozartsöng sinn, sem hann fékk svo frábæra dóma á Edinborgarhátíðinni. David, Lloyd hefir mjög vel skólaða rödd, textaframburður hans á hinum ýmsu málum, ensku, þýzku, frönsku sænsku og ítölsku var frábær. Einkum er miðsvið raddar hans mjög fallegt. En það þarf meira til að hrífa íslenzka hlustendur, og tónleikar Lloyds verða nokkur vonbrigði þeim, sem komu tii að heyra glæsilegan belcanto söng, rödd Lloyds er nokkuð hörð á háu tónunum og meðferð hans á söngvum Scbuberts var ekki al- veg sannfærandi, það vantaði aðeins herzlumuninn. Þetta er ágætur söngvari, en ekki fram- úrskarandi, eins og meðlimir Tónlistarfélagsins yfirleitt gera kröfu til, þó slíkt sé varla alveg sanngjarnt. Undirleikarinn Wol- fgang Schauzer, sem einnig lék nokkur Chopin lög var mjög góður. Vikar. legra demókrata. Sjö hinna hand teknu voru gripnir í Vestur- Berlín, en þangað hafa þeir allir flúið frá austurhlutanum. Hinir hafa verið handteknir í Bonn og öðrum borgum í Vestur-Þýzka- landi. Það var fyrrum starfsmaður í leyniþjónustu Austur-Þýzkalands sem flúði til Vestur-Berlínar á hvítasunnudag, sem kom upp um njósnir Þjóðverjanna. Hann hafði með sér fullkominn lista yfir njósnarana. Var mútað Njósnararnir hafa allir verið yfirheyrðir og þegar siðast var vitað, höfðu tíu þeirra, játað á sig njósnir í þágu kommúnista. Gúnther Stöckel, sem var í all- miklum metum í flokki Adenau- ers í Berlín, hefur játað að hafa tekið á móti peningum fyrir njósnir. Óþægilegt fyrir Rússa Lipschitz, þingmaður í Vestur- Berlín sagði, þegar upp komst um njósnirnar: — Það hlýtur að vera óþægilegt fyrir Grómykó að heyra um þetta, einmitt nú þegar hann situr á ráðstefnu og básún- ar það út um allar jarðir, að Fréttir í stuttu mál' Á mánudag hefst í Stokkhólmi ráðstefna Svía, Dana, Norð- manna, Breta, Austurríkismanna, Svisslendinga og Portúgala um möguleika á að setja á stofn frí- verzlunarsvæði þessara sjö ríkja. Markmiðið er að draga úr inn- flutningshöftum og verndartoll- um og auðvelda viðskipti milli ríkjanna. Síðan er ráðgert að gera bandalag við markaðsbanda lagsríkin í Vestur-Evrópu. — Það voru Svíar sem buðu til ráð- stefnu þessarar. LUNDÚNUM, 27. maí. — f dag flúði tékkneskur svifflugmaður til Austurríkis og bað um hæli þar í landi sem pólitískur flótta maður. — Fjórar fyrstu klukku stundirnar, sem flugmaðurinn var á lofti, var vindur óhagstæð- ur, en svo komu góð skilyrði og bar vindurinn fluguna alla leið til Vínar. vesturveldin reki njósnamiðstöð í Berlín. — Austur-þýzk blöð hafa sagt, að handtökurnar séu liður í þeirri áætlun Adenauers- stjórnarinnar að eyðileggja samn ingaviðræðurnar í Genf. Fréttamenn segja, að ekki séu öll kurl komin til grafar og bú- ast megi við fleiri handtökum eftir því sem mieri vRneskja fæst um þessa starfsemi komm- únista við nánari yfirheyrslur. Þeir segja einnig, að yfirstjórn njósnanna i Vestur-Þýzkalandi hafi verið í Karlsruhe. Þýzkt skip reynir mælitæki í Islands sigimgu FYRIR nokkrum dögum kom hingað til Reykjavikur 270 tonna austur-þýzkt skip, Meteor. í gær var blaðamönnum boðið að koma um borð til skrafs við yfirmenn skipsins. Var sezt að þýzku konjaki og kaffi í íbúð skipstjóra, og reykingarmenn svældu sígar- ettur austan frá Kína. Yfirmenn skipsins skýrðu frá því að þetta skip væri nokkur skonar fljótandi tilraunastofa. Þeir væru þar innanborðs með ýmiskonar mælitæki, sem verið væri að prófa. Meðal þeirra var fiskileitartæki. Það hafði verið reynt hér úti í Flóanum í fyrri- nótt, að við stöddum nokkrum íslendingum, og hafði tækið mælt á verulegt magn síldar. — Önn- ur tæki, sem þeir voru að reyna í þessum leiðangri, voru tæki til að mæla áhrif veltu á ýmis sigl- ingatæki og annað tæki, sem mæl ir áhrif sjávarlofts og seltu á ýmis siglingartæki. Var þessu öllu lýst mjög ná- kvæmlega og faglega af hinum þýzku sérfræðingum. Á skipinu eru yfir 20 menn, áhöfn og sér- fræðingar, sem rannsóknum stjórna. Hér á landi hafði hluta- félagið Desa annast ýmsa fyrir- greiðslu fyrir verksmiðjur þess- ara siglingartækja, en þær eru í hafnarbænum Stralsund. — Pasternak Framhald af Dls. 1. heldur líka aðra rithöfunda, sem hafa lýst lífinu í þjóðfélagi okk- ar frá sínum eigin sjónarhólL Augljóslega hefur líka vakað fyr ir þeim að hjálpa flokknum og þjóðinni til að losna við neikvæð fyrirbæri úr þjóðlífinu. En með skrifum sínum gáfu þeir hins vegar ranga mynd af ástandinu. — Þessar lýsingar vöktu strax athygli óvina okkar, en ekki vina okkar.... Af þessu varð svo feiknarlegur ódaunn, að heil- brigður líkami gat ekki losnað við hann án þess að taka lyktar- salt. ★ Krúsjeff veik einnig að barátt- unni gegn „endurskoðunarsinn- um“ og sagði, og sagði, að nú væri henni lokið. Englar sætt- anna eru þegar önnum kafnir, og sem stendur er verið að bera smyrsl á sárin, sagði hann. — Þeir rithöfundar, sem einu sinni höfðu tilhneigingu til að líta á rússneskt þjóðfélag af eigin sjónarhóli, reyna nú að gleyma því, að þeir hafa gert sig seka um alvarleg afglöp. — Það er mín skoðun, að nauð- synlegt sé að hjálpa þessum fé- lögum okkar til að breyta um skoðanir og komast frá villu til réttrar hyggju. Við eigum ekki að grafa upp hin illu orð þeirra og einblína á fyrri yfirsjónir þeirra, og við eigum ekki sífellt að benda á þá með fordæmingu. Við eigum ekki að horfa um öxl, en við megum ekki heldur gleyma. Engin málamiðlun Krúsjeff vitnaði í Maxim Gorkl þess efnis, að „láti óvinurinn ekki undan, verður að ganga milli bols og höfuðs á honum". Þetta er mikill sannleikur. Þetta er sjón- armið stéttabaráttunnar. Við höf- um stutt það, og við styðjum það í skilgreiningu okkar á hinni pólitísku baráttu og á stéttabar- áttunni. — Þegar um er að ræða hags- muni verkalýðsins og baráttu hans við arðræningja, þá getum við ekki gert neina málamiðlun. I slíkum tilvikum er málamiðiun sama og uppgjöf. Það er ekki stefna okkar. Það er hvorki stefna kommúnismans né bolsé- vismans. — En það er til góður málshátt- ur: Maður lemur ekki hund, þegar hann liggur. Ef einhver óvinur lætur undan í hugsjóna- baráttunni og viðurkennir, að hann sé sigraður, og ef hann læt- ur í ljós vilja til að gera það, sem rétt er, þá eigum við ekki að hegna honum. Við verðum í stað þess að skilja hann, rétta honum bróðurhönd, svo hann geti staðið upp og unnið með okkur. Það er skoðun stjórnmála- fréttaritara í Moskvu, að ræða Krúsjeffs muni hafa uppörvandi áhrif á rússneska rithöfunda, en margir þeirra hafa velt því fyrir sér, hvort „óveðrið“ í menning- arlífinu sé liðið hjá með fordæm- ingunni á Dudintsev og Paster- nak. Enda þótt Krúsjeff legði enn áherzlu á hlutverk sósíalismans í öllum listum og að það væri skylda rithöfundarins að hjáipa til við uppbyggingu kommúnism- ans, þá gaf ræða hans til kynna, að almenn túlkun á veruleikan- um í rússnesku þjóðlífi yrði ekki fordæmd, en það hefur ekki hing- að til talizt leyfilegt. 1 anda kommúnismans í ályktun, sem rithöfundasam- tökin samþykktu á laugardaginn, var skorað á rússneska rithöf- unda að berjast gegn „endurskoð- unarstefnunni", heimsvaldastefn- unni, borgaralegri þjóðernis- stefnu og kúgun einstaklingsins. Jafnframt var skorað á þá að berjast fyrir friði og bræðralagi verkalýðsins. Þá sendi þingið einnig orðsendingu til miðstjórn- ar kommúnistaflokksins, þar sem rithöfundarnir lýstu yfir hollustu sinni við flokkinn og tjáðu sig feiðubúna til að ala rússnesku þjóðina upp í anda kommúnism- l ans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.