Morgunblaðið - 07.07.1959, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 7. júlí 1955
2/cr herbergja íbúð
á hæð á hitaveitusvæðinu í austurbænum er til leigu
strax fyrir barnlaust fólk. Uppl. í síma 1.85-85
milli kl. 5—6 e.h.
íbúðir fil sölu
Mjög skemmtilegar 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir í nýbygg-
ingu við Hvassaleiti. Seljast fokheldar með fullgerðri
miðstöðvarlögn. Bílskúrsréttindi geta fylgt. Glæsilegt
útsýni. Lán á 2. veðrétti fylgir til 5 ára. Teikningar til
sýnis á skrifstofunni.
JÓHANNES LARUSSON, hdl.
lögfræðskrifstofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842.
Chevrolet 1959
Hef til sölu nýja Chevrolet.fólksbifreið, model 1959. Hag
kvæmt verð, ef samið er strax. Bifreiðin er til sýnis fyrir
utan skrifstofu mína í Kirkjuhvoli milli kl. 1—7 e.h.
JÓHANNES LARUSSON, hdl.
lögfræðskrifstofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842.
4ra herb. íbúð
Til sölu 4ra herb. rishæð í Hlíðunum. Góðar geymslur.
Hitaveita. Verð kr. 280 þús. Útb. kr. 130 þús. Allar
nánari upplýsingar gefur
EIGNASALAI
• REYNJAVÍK •
Ingólfsstræti 9B sími 19540
opið alla virka daga frá kl. 9—7.
eftir kl. 8 símar 32410 og 36191.
Einbýlishús
við Laugarásveg til sölu. Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðl. Þorlákssonar
og Guðm. Péturssonar,
Aðalstræti 6, (III. h. Morgunblaðshúsinu)
Símar 1 20 02 — 1 32 02 og 1 36 02.
Hœð til sölu
Höfum til sölu nýja fullgerða 5 herbergja hæð í húsi
við Rauðalæk. Sér inngangur. Bilskúrsréttindi. Tvöfallt
gler. Þetta er vönduð og góð íbúð.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4, Símar: 13294 og 14314.
Páll Andrés Arnljótsson
framleiðslumaður
HINN 26. júní sl. andaðist í
Kaupmannahöfn Páll A. Arn-
ljótsson, framreiðslumaður, eftir
stutta en erfiða sjúkdómslegu.
Páll veiktist skyndilega hér
heima og var fluttur flugleiðis 1
sjúkrahús í Danmörku, þar sem
hér voru ekki fyrir hendi nein
tæki er líklegt væri að gætu
bjargað lífi hans. í veikindum
sínum naut hann mikillar fyrir-
greiðslu góðra manna og þó sér-
staklega húsbónda síns, Halldórs
Gröndals veitingamanns í Nausti
Páll var fæddur á Sauðárkróki
4. desember 1927. Foreldrar hans
voru Sigurbjörg . Pálsdóttir og
maður hennar Arnljótur Krist-
jánsson, ráðsmaður sjúkrahússins
á Sauðárkróki. Á öðru aldurs-
ári misti Páll föður sinn og flutt-
ist þá með móður sinni til Akur-
eyrar. Til Reykjavíkur fluttist
Páll árið 1941 og hóf nám í
framreiðslu árið 1943 og lauk
sveinsprófi árið 1946 og hóf þá
framreiðslustörf að Hótel Borg
þar til Veitingahúsið Naust hóf
starf sitt, en þar gerðist hann
yfirframreiðslumaður, síðar tók
hann að sér baðstofuna þar. Páll
var mjög vel látinn í starfi, bæði
af samstarfsmönnum og við-
skiptavinum og í starfi sínu eign
aðist hann fjölda vina.
Hin síðari ár vann Páll tals-
vert að félagsmálum stéttar sinn
ar. Á sl. vetri var hann kjör-
inn formaður Félags framreiðslu
manna og rétt fyrir andlát sitt
var hann kjörinn formaður Sam-
bands matreiðslu- og framreiðslu
manna. Páll reyndist hinn nýtasti
maður í samtökum stéttar sinn-
ar og naut óskiptrar vináttu og
virðingar allra stéttarbræðra
sinna.
Árið 1949 kvæntist Páll eftir-
lifandi konu sinni, Valdísi Er-
lendsdóttur, og eignuðust þau
þrjá drengi. Áttu þau gott og
vistlegt heimili, sem naut forsjár
hins góða heimilisföður. Er mik-
ill harmur kveðinn að eftirlif-
andi konu hans, börnum og ætt-
ingjum.
Við stéttarbræðdr hans send-
um konu hans og börnum samúð
arkveðjur og munum ávallt minn
ast hans sem hins mikla mann-
kostamanns, sem ávallt var stétt
sinni til sóma.
Janus Halldórsson.
4-
t
PÁLL Arnljótsson var fæddur 4.
des. 1927. Foreldrar hans voru
hjónin Sigurbjörg Pálsdóttir og
Arnljótur Kristjánsson.
Ungur fór hann til náms í
Reykjavík. Hann stundaði nám
sitt af alúð, bæði hér heima og
erlendis, enda varð hann mjög
vel fær í sinni starfsgrein.
Páll andaðist í spítala í Kaup-
mannahöfn þann 26. júní, eftir
stutta en þunga sjúkdómslegu.
Ódýrt Ódýrt
Poplinkápur verð kr. 495.00
Sportjakkar verð kr. 235.00
Blússur verð frá kr. 39.00
Barnagallar verð kr. 125.00
Dömu & herrabuðifi
Laugavegi 55 — Sími 18890.
Fíat 1100
(Station) model 1957, mjög glæsilegur. Tilboð (ekki
verðtilboð) sendist afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöid
merkt: „Milliliðalaust — 4463“.
Hann bar sjúkdóm sinn með æðru
leysi, til síðustu stundar. Það er
alltaf sviplegt, þegar menn á
bezta aldri, eru burt kallaðir úr
þessum heimi. Á okkur sem eftir
lifum, sækir þá harmur og sökn-
uður sem vonlegt er. Við stéttar-
bræður og vinir Páls, er þekkt-
um hann bezt, söknum úr okkar
hópi, hins prúða og góða drengs.
Eg, sem þessar línur rita, kynnt-
ist honum fyrir mörgum árum,
er leiðir okkar lágu saman við
vinnu og síðar við félagsstörf.
Ég get vart hugsað mér dag-
farsprúðari mann en Páll var,
enda óhætt að fullyrða, að óvini
átti hann enga. Aftur á móti
eignaðist hann marga vini vegna
ljúfmennsku sinnar og mann-
kosta.
Við Páll vorum nágrannar hin
síðustu árin, og var ætíð vinátta
á milli heimila okkar, enda var
hin ágæta kona hans, honum
samhent í gestrisni og góðvild.
Með þessum fátæklegu orðum,
vil ég nú þakka hin ljúfu kynni,
frá því fyrsta til hins síðasta.
Páll Arnljótsson var kvæntur
Valdísi Erlendsdóttur og lifir
hún mann sinn ásamt þremur
ungum sonum. Sár harmur er nú
að þeim kveðinn. Þss er þá gott
að minnast að Guð gefur oss
mönnunum líkn í hverri þraut.
Þess vil ég biðja, að góður Guð
styrki þau og styðji, í þeirra
mikla missi og sorg.
Farðu vel vinur til æðri og
betri heima.
Blessuð sé minning þín.
Theodór Ólafsson.
t
ÞEGAR við, starfsystkini þín í
Naustinu kveðjum þig með sár-
um trega í hinzta sinn, þá vilj-
um við þakka þér alla þá góðu
samfylgd, sem við urðum að-
njótandi á þinni allt of stuttu en
farsælu ævi. Við munum minnast
þín sem góðs félaga með trygga
lund og gott hjarta, höfðingja
með greinda hugsun og trausta
skapfestu, vinar, sem ávallt var
reiðubúinn að veita hjálp, ef með
þurfti. Við þekktum þitt góða
glaða geð. Við munum þig kát-
an og hressan eftir sjúkrahús-
legu þína fyrir tveim árum, svo
þjáður sem þú varst fyrr. Þess
vegna eigum við bágt með að
skilja, hvers vegna þú aftur varst
tekinn frá okkur svo snögglega
fyrir fullt og allt, svo fullur
lífsþróttar og trúaður á framtíð
ina, sem þú varst. Við vissum þig
reglusaman, velvirtan og vinsæl-
an þjón, sem varst starfinu vax-
inn og viturn að það skarð, sem
höggvið hefur verið í stéttina
með fráfalli þínu, verður vand
fyllt. Þú varst sannur fulltrúi
þeirrar kynslóðar, sem nú yrkir
land vort. Þér mun oft bregða
fyrir í huga okkar. Við færum
konu þinni og drengjunum þrem-
ur, sem nú sjá af ástríkum eigin-
manni og föður, okkar alúðar-
fyllstu samúðarkveðjur og biðj-
um Guð um náð og blessun þeim
til handa. Við kveðjum þig með
söknuði. Hvíl þú í friði. Vertu
sæll Palli minn.
Þín einlægu starfsystkini
í Naustinu.
K.S.Í. Landsleikurinn <-S.f.
Olympíu-keppnin
ÍSLAND - NOREGUR
fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld þriðjudag 7. júlí kl. 8,30.
Forsala aðgöngumiða á Melavellinum og í Austurstræti við Út-
vegbankann.
Dómari: J.P. Barkley
Línuverðir: Guðbjöm Jónsson — Magnús Pétursson.
Forðist þrengsli — Kaupð miða strax.
Aðeins þessi eini leikur
K.S.I.