Morgunblaðið - 29.08.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.08.1959, Blaðsíða 13
Laugardagur 29 atrösí 1959 MORCUISBLAÐIÐ 13 Steinunn í Lóni ÞANN lo. maí sl. var til grafar borin frá Hcl..- >, Steinunn Jór....'.: ...r fyrrum há___;yja x Einarslóni. Stei__,nn var fædd 15. maí 188J að Háagerði í Staðarsveit. For- eldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi þar, frá Hólkoti í sömu sveit og kon^i hans Hólmfríður Magnúsdóttir frá Rauðamel. — Fimm ára gömul fluttist húr, með foreldrum sínum að Bakka- búð á —im, jIIu.u og dvaldist með þeim systkinum sinum, sem voru alls sjö. Tvö dóu kornung, en Fau, sem til aiu— somust voru þessi, auk 'Steinunnar: Valdi mar f. 1889, borgils, f. 1883. Björn f. 1886 og Svanborg f. 1891. Faðir hennar sótti fast sjóirn og var elju og atorkumaður sagð ur, hann reri þá jafnan með eldri brscðurna- o, er þeir '. oru ' 1 á legg komnir. Þann 2. janúar 1900, drukknuðu þeir “gar allir þrír í sjóferð í beitufjöru. Stóð Steinunn þá uppi 18 ára stúika sem -- Ifyrirvinna heimilisins. þar sem tvö systkini hennar, sem eftir lifðu voru enn á barnsaldn og r.ióðir hennar heilsut p orð og buguð af harmi eftir ástvina- missinn. Steinunn fluttist þá um vorið með móður sinni og syst- kinu..i ..1 Ólafsvíkur, þar va.,n hún baki brotnu alla vinnu er til féll, jafnt að móskurði sem og eyrarvinnu, eins og það er kallað nú, og er þó mun léttari vinna en var í þá daga. í Ólafsvík er útfiri mikið og langur var xrð- urinn þá við uppskipanir. Og þatta starf féll oft i hlut duglegra kvenna, og var Steinunn ein af þeim, sem gaf t:g í þetta, því ör- lítið hærra kaup var í vöðslu, sem og þeirra er báru á bakinu matvöru og saltsekki, en káup kvenna var almennt 12 aurar á tímann, en karlmenn höfðu 25 tara, a.m.k. í vöðslu. í mógraf- arvinnu hafði Steinunn 2 kr á dag og þótti geypi kaup, en vinnu tíminn var líka frá klukkan 6 að morgni til kl. 10 að kvöldi. Svona voru kjör fólksins, þá voru ekki til opinberir styrkir, né samsKot til bágstaddra. Og ekki hlaut Steinunn það heldur þegar hún varð sjálf ekkja. í Ólafsvík kynntist Steinurtn lífsförunaut sínum Hallbirni Þorvaldssyni, hann var þá um fertugt og enn glæsimenni í sjón, skáldmæltur og gáfaður og ma. gt stórvel gefið. Um Hallbjörn hef ég áðu.' skrifað minningargrein í „Neista“ sveitablað Breiðvík- inga, nóv. bl. 1948. Vorið 1905 fluttist Steinunn með heitmanni sínum að Gröf í Breiðuvík. Mjög reyndi þá þegar á dugnað hinnar ungu húsmóður, því bóndi hennar var bókhneigð- Ur og fróðleiksfús, utan sinna bústarfa og því oft á ferðalögum og öðrum skyldustörfum Barna-v kennari var hann í marga vet- ur, auk þess bæði oddviti og kaupfélagsstjóri, svo nokkuð sé nefnt. í Gröf bjuggu þau í 15 ár góðu búi, þar á eignarjörð sinni. En þá seldi Hallbjörn aft- ur jörðina. Og fluttust þau þá vorið 1920 að Brekkubæ við Hellna og voru þar í eitt ár. Þau Þau voru vellátnir nágrannar, og hafði góður kunningskapur tekizi Og ávallt haldist hér á Hellnum við það fólk síðan, og mér reynd- ust þau ávallt tryggir og ráð- hollir vinir. Vorið 1921, fluttust þau að Syðri-bæ í Einarslóni, þetta voru harðbýl ár með vorkuldum cg gróðurleysi. Mjög gengu þá af þeim efnin á þessum árum. Það var eins og Hallbjörn kvað við hc;—.pinn á himú x. :ðu og grýttu jörð ytra. Engin hræða hjálpar mér, hnjótana að flengja. Sárast þegar sólskin er, ~ "kna ég Grafarengja, Og viðbrigðin voru margþætt, sífelijir erfiðleikar með skepn <- höld og aðdrætti alla, og það fyr? ir hann aldraðan mann þá orð- inn. Sumarið 1930 voru þau .ð byggja upp bæinn í Lóni, veikt- ist H jjörn þá snögglega, áð- ur en því verki var lokið og lézt eftir stutta legu 69 ára gamall. 1 annað sinn stóð Steinunn nú uppi, sem aðalfyrirvinna, að þessu sinni eigin barna, sem suín voru enn mjög ung. Eignalaus og allslaus, nema vöggugjöf sinni, góðri heilsu, ásamt óbilandi kjarki og bjartsýni, lagði hún til atlögu við örðugleikana. Á bæn- um, sem ekki var enn fokheldur að kalla', hvíldi nú þegar nokkur skuld, svo og á bústofninum, sem nú var aðeins orðin 16 ær og 2 hross. En Steinunn gerði alltaf hærri kröfur til sjálfrar sín en annarra. Nágrannar hennar og fleiri munu þó hafa metið mann- kosti hennar og dugnað og sýnt henni vinarþel sitt í fyrirgreiðslu á ýmsan hátt. En af sveitungum hennar má vel geta þess, að Guðlaugur Halldórsson, kaup- maður á Stapa, var þó sá, sem veitti henni virkasta aðstoð þeg- ar hún átti erfiðast og æ síðan meðan hans naut við. Enda þótt Steinunn og börn hennar gætu greitt það lán upp að fullu, minnt ist hún Guðlaugs ávallt sem vel- gerðarmanns. „Fleira er hót en gjafir“, segir máltækið, og Stein- unn var minnug á það sem henni var vel gert, eins og góðs fólks er vandi. Og hún kom börnum sín- um á legg og sum fluttust burt eins og gengur. En Steinunn bjó áfram í Lóni með Valdimar, eldra syni sínum, og Bergþóru, yngri dótturinni. Eins og segir í þessari stöku: Tvö voru börn svo trygg þér hjá, er tímar liðu og stundir. Að áratugi því nær þrjá, þarna sælust undir. Og Steinunn tók tryggð við Lón. Hún unni þar öllu lífi. Hverjum hól, hverjum steini, hrauninu, hrikalegri ströndinni og jöklinum himinháum, sem veitti skjól í norðan næðingun- Um. Svo að margan dag var logn og sól í Lóni, þótt stormurinn og hríðarkófið æddi allt um kring. Náttúran var þar stórbrotvn, bæði í sjón og í reynd. Hún unni þessari byggð. Og líkt og skáldið kvað um ekkjuna við ána: Hún elskaði ekki allt landið, en aðeins lítinn blett, af ánni nokkra faðma og hraunið svart og grett. — Steinunn bar mikinn hlýhug til síns frændfólks og sýstkinanna beggja. Jafnvel þó hún hitti þau ekki árum saman. En alveg sér- stakt ástriki mun hún hafa haft af föður sínum og bræðrunum, sem hún missti í sjóinn í æsku. Eftir hennar lýsingu hefur faðir hennar verið sérstakt valmenni, pg eins bræður hennar, einkum hafði sá eldri, Valdimar, verið henni hjartfólginn, bróðir og fé- lagi, enda bæði á sama aldri. Og fyrsta soninn, sem hún átti, lát hún bera nafn hans. Og þessi sonur varð henni líka trygg fyrir vinna og ellistoð. En aldrei gat hún þó gleymt ástvinamissi sín- um ævilangt, og aldrei var henni gefið um sjóinn eftir það. Þótt Steinunn ætti fáar frí- stundir til lesturs, unni hún bæði sagna- og ljóðagerð og einkum ferskeytlunni. Þetta kunni Hall- björn bóndi hennar vel að meta, og sendi henni oft ljóðabréf, þeg- ar hann var fjarvistum, bæði í Vestmannaeyjum og víðar, í at- vinnu að heiman. Það varð hann að leggja á sig, nú á efri árum, sökum hins þrönga efnahags og búsmæðar. Lengsta bréfið skrif- aði hann henni frá Raufarhöfn, alls hundrað vísur. Síðasta vísanj er þannig: Áform mitt er uppfyllt nú, eigðu bréfin, „kæra“. Hundrað vísur verður þú, vikutíma að læra. Og í öðru bréfi, einnig frá Raufarhöfn, er þessi vísa m. a., sem lýsir glöggt heimþrá hans: Hérna aldrei sé ég sól, svo að lundin hlýni. Finnst mér sem á Fagurhól, fleiri geislar skíni. (Fagurhóll þessi var við túnfót- inn í Lóni). Það mætti margt segja um dugnað og afrek þessarar þrótt- miklu og glaðlyndu greindar- konu, sem þó naut þess í svo rík- um mæli að geta hjálpað og hjúkrað því sem veikt var og vanmáttugt. Það var henni hálft lífið eða meira til. Og við bú- skapinn gáfust mörg tækifæri að hlynna að einhverju á afskekktu býli. Gestrisin þótti Steinunn og gott til hennar að koma, og var oft gestkvæmt hjá henni í Lóni. Einkum er þau mæðgin bjuggu þar ein síðustu árin. Ýmsir kunna að hafa láð henni að búa þarna svo lengi á afskekktum bæ, og eftir að yngri börnin voru þá, sem uppkomin. En nokkuð dreg- ur til alls, og má hér hiklaust segja, að það yrði til að bjarga mannslífum að Lón var enn í byggð, þegar tvö skipströnd urðu þarna skammt frá bænum sama veturinn og síðasta búskaparár Steinunnar þar í Lóni. Og þykir mér hlýða, að drepa hér á annað strandið og það er meira kom við sögu Steinunnar. — Fyrra strandið varð 27. okt. 1947. Það var hollenzka skipið Mildred er strandaði við svonefndan Járn- barða, vestan og norðan við Drit- vík, og varð mannbjörg af því skipi. En hinn 16. marz 1948 strandaði brezki togarinn Epine frá Grimsby á skeri við vestan- verðan Djúpalónssand, myrkt var af nótt, álandsvindur og stór- brim, sem fór vaxandi. Um nótt- ina varð engu bjargað, þótt brot- izt væri áfram um kletta og klungur í myrkrinu á strand- staðinn; línubyssan dró alls ekki sökum fjarlægðar og storms, um morguninn var komið hafrót og færðist skipið nær landinu. Björgunarsveitum frá Hellissandi og héðan úr hreppnum, tókst á síðustu stundu við mikla mann- hættu, að ná fjórum mönnum, sem dregnir voru í land í björg- unarstól og fluttir nær dauða en lífi heim í Lón til Steinunnar, sem hjúkraði þeim svo vel, að mæður þeirra hefðu ekki betur gert við sömu aðstæður og víst sópaði þá að Steinunni, þótt kom- in væri nær sjötugu. Þetta var henni hjartfólgið starf, ein henn- ar stærsta stund á ævinni, að geta þannig hjálpað til að hrífa þessi mannslíf úr dauðans greip- um; það var eins og dálítil upp- reisn frá æskuárunum, þegar Ægir tók hennar ástvini í kaldan faðm sinn og sleppti þeim aldrei aftur. Það var átakanleg sjón að horfa upp á mennina smátínast og slitna af flakinu, bæði dána og lifandi, því sumir höfðjx bund- ið sig við skipið og létu þannig líf sitt, án þess að geta nokkra björg sér veitt; sumir hröktust í brimgarðinum og náðust fjórir þannig og lögðu björgunarmenn sig sumir í bráða lífshættu að halda þeim í útsoginu, en aðeins einn af þessum mönnum reynd- ist vera með lífsmarki og var fluttur heim í Lón að ráði héraðs læknis, sem þarna var viðstadd- ur, og seinna um daginn raknaði maðurinn þar við, með óráði og æði. En það heyrðist helzt á Steinunni, við allt hennar erfiði, hvað hún kenndi í brjósti um mennina fjóra, úr björgunarstóln um, hve þeim brá þegar þeirvökn uðu loks til fullrar rænu og sáu þennan fimmta félaga sinn í þeirra hópi bráðlifandi, hann, sem þeir höfðu allir séð með eigin augum, slitna af flakinu og hverfa í öskrandi brimrótið, hver þeirra hélt sig sturlaðan orðinn eða kominn í aðra veröld. En Steinunn rétti þá brosandi fram fötin þeirra og sýndi þeim það af farangrinum er náðst hafði og hún hamaðist nú við að þurrka og hagnýta og þeir virtust fljótir að skilja hana þótt ekki kynni hún neitt í máli þeirra. Ég var þarna ásamt fleirum að vakta strandstaðinn, ef lík eða annað markvert kynni að skola á land, svo og við að flytja líkin þrjú og mennina fimm að tölu á hestum út fyrir Beruvíkurhraun, þar sem bíll frá Sandi beið eftir þeim öllum. 1 Einarslóni hafði alltaf verið stakri gestrisni að mæta, en það veit ég fyrir víst að aldrei hafa þakklátari gestir kvatt þennan stað en þessir fimm menn af Epine, þegar þeir kvöddu með kossi „mömmu í Lóni“, eins og þeir kölluðu hana og þökkuðu i henni fyrir sig. Flestir voru mennirnir furðu hressir þótt þeir væru allir meir og minna marðir og lemstraðir. Þeir sögðu að skiln aði við Steinunni og þau mæðg- in, að þessar skrámur á þeim myndu fljótt jafna sig, er þeir væru komnir heim til síns fólks úti í Englandi. Þetta var lokaþátturinn á byggðinni í Einarslóni, a. m. k. nú um sinn. Á næsta vori, 1949, flutti Steinunn ásamt syni sín- um og dóttur að Skjaldartröð á Hellnum. Þar dvaldist hún hjá Valdimar syni sínum í níu ár og í sambýli við mig, er þessar lín- ur rita og kynntist ég og kona mín þá til fulls þessari mætu konu og betra sambýlisfólk en þau mæðgin voru okkur, hygg ég að sé vandfundið. Ég leyfi mér að setja hér í þessa grein nokkr- ar af þeim stökum, sem ég gerði í kveðju- og minningarskyni um Steinunni sál.: Þér var aldrei víl og vpl, vel í skapgerð lagið. Innri gleði, orku og þol, áttir af bezta tagi. Um ævi þína og eins varst nú, alltaf laus við þvargið. En vinum þínum trygg og trú, og traust sem stuðlabjargið. Þú lagin varst með bros á brá, barnalund að kæta. Aumt svo máttir ekkert sjá, að úr ei vildir bæta. Tvö síðustu árin sem Steinunn dvaldi í Skjaldartröð, var heilsa hennar og þrek svo á förum, að hún hvarf að því eftir læknis- ráði, að flytjast til barna sinna, sem búsett voru suður með sjó, þar sem hægara yrði um vik með læknishjálp þar syðra. Vorið 1958 fluttist hún að Kirkjubóli í Miðneshreppi til barna sinna og tengdabarna, sem þar bjuggu. Um sumartímann hresst- ist Steinunn nokkuð og hafði jafnan fótavist, þar til í febrúar, að hún varð fyrir byltu og var rúmföst í spítala eftir það, unz hún lézt 9. maí sl. Þann 15. s. m. á 78. afmælisdegi sínum var hún svo flutt vestur aftur til hinztu hvíldar í kirkjugarðinum á Hellnum. Báðar dætur hennar og sonur, sem búsett eru þar syðra, sáu um flutninginn og fylgdu með vestur, einnig annar tengda- sonurinn og sá er henni reyndist ekki sízt eftir að hún fluttist suður. Margt af frændfólki og vinum var viðstatt jarðarförina. Sókn- arpresturinn, sr. Þorgr. Sigurðs- son á Staðarstað, annaðist yfir- sönginn og minntist hinnar látnu með hlýlegum orðum og sagðist vel frá að vanda, en frændi hennar, Alexander Stef- ánsson í Ólafsvík, söng einsöng, sálminn „Lýs milda ljós“. Meðal þeirra mörgu, sem viðstaddir voru útförina var systir hennar, Svanborg, kona Stefáns Krist- jánssonar, verkstjóra í Ólafsvík. Svanborg er nú ein eftir á lífi af þeim systkinum; Björn bróðir þeirra dó í Ólafsvík 1937, en kona hans, Kristín Bjarnadóttir, er enn á lífi og 7 börn þeirra. Steinunn átti á lífi er hún lézt, auk barna sinna fjögurra, sjö barnabörn og eitt langömmu- barn. En börn þeirra Steinunnar og Hallbjörns eru þessi: Sigríður, f. 9. des. 1907; Valdi- mar, f. 10. sept. 1912; Gestur, f. 15. ágúst 1920, og Bergþóra, f. 6. ágúst 1923. Valdimar Kristófersson. Til Ieigu er « ‘ . verzlunarhúsnœði sem gæti verið 2—3 verzlanir. Rúmgott lagerpláss. Tilboð merkt: Verzlanir-—4781, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 1. sept. n.k. Úrugg og fljótleg skrúfufesting w Notið Rawlplugs skrúfufestingar í harðan málm — það er eina leiðin til að forðast skemmdir. Borið gat með Rawltool eða Durium Drill og skrúfið í Rawlplug, sem spennist fast { gatið. pá er fengin örugg og endanleg festing. Rawlplug fæst í stærðunum nr. 3 (1/8 þuml.) til nr. 30 (1 þuml.). Heimsins stærstu framleiiendur festinga. THE RAWLPLUG COMPANY, CROMWELL ROAD, LONDON, S.W.Z Upplýsingar og sýnishorn hjá umboðmanni fyrir ísland John Lindsay, Austurstræti 14 — Reykjavík Pósthólf 724 Sími 15789

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.