Morgunblaðið - 16.09.1959, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.09.1959, Qupperneq 3
Miðvi><udagur 16. sept. 1959 íionr.vmti/AÐiÐ 3 4. Creinargerð niðurjöfnunarnefndar: Framtöl 6268 gjaldenda athuguö til lœkkunar Samanburður á tekjuskatti og útsvari villandi AÐ undanförnu hafa for- svarsmenn SÍS reynt að leiða athygli manna frá útsvars- frelsi auðhringsins með því að halda uppi árásum á nokkra forystumenn Sjálfstæðis- flokksins fyrir, að þeir hafi of lág útsvör. Auðvitað ákveða þessir menn ekki út- svör sín fremur en aðrir borg- arar og um þá gilda engin sérlög eins og um SÍS. Þeir eiga þess og engan kost að bera hönd fyrir höfuð sér, þar sem þá vantar nauðsynleg gögn til samanburðar. Niður- jöfnunarnefnd ákveður út- svörin um þessa menn eins og aðra „eftir efnum og ástæðum“. Sjálf gerir nefndin nú grein fyrir málinu í meðfylgjandi fundargerð, sem Morgunblað- inu barst í gær. Sést af henni að nefndin hefur af þeim ástæðum, sem þar segir, tekið „sérstaklega til athugunar framtöl 6268 gjaldenda og lækkað útsvör þeirra eftir mati í hverju einstöku til- felli“. Að svo vöxnu máli er það fádæma ódrengskapur að ráð- ast á örfáa einstaklinga vegna útsvars þeirra. Einkum þar sem upplýst er, að „framan- rituð útsvör voru ákveðin án nokkurs ágreinings innan nefndarinnar“. Ef beita ætti sömu vinnubrögðum og við- höfð hafa verið í árásum þess- um mætti gera fjölda manna í öllum flokkum og stéttum tortryggilega, án þess að færa nokkur rök að önnur en prenta nöfn þeirra og vitna í ósambærilegar tölur. ★ Öll nefndin sammála Greinargerð niðurjöfnunar- nefndar er svohljóðandi: Ár 1959, þriðjudaginn 15. sept. kl. 10% árdegis, hélt nefndin fund á venjulegum stað. Allir nefndarmenn mættir nema E. A. Fyrir var tekið: frádráttur til skatts er sá sami fyrir hvern ómaga, en til útsvars fer hann stighækkandi eftir fjölda ómaganna. Af þessu sést, að hlutfallið milli tekjuskatts og útsvars er mjög breytilegt eftir tekjuupphæð og persónufrá- drætti. 2. Skv. 36 gr. skattalaganna hefir yfirskattanefnd heimild til að lina eða gefa eftir tekjuskatt, þegar sérstaklega stendur á fyrir skattgreiðandanum. Þessa heim,- ild hefir skattstjóri ekki, og er því tekjuskattur, sem birtur er í skattskrá, reiknaður án tillits til þessa frádráttar. Við ákvörðun útsvars hefur niðurjöfnunarnefnd hins vegar hliðsjón af' öllum að- stæðum gjaldandans. Er því í hin um birtu útsvörum tekið tillit til þess frádráttar, sem veittur kann að vera gjaldandanum frá al- mennum tekjuútsvarsstiga. 3. Skv 35. gr. skattalaganna get ur skattstjóri í ýmsum tilfellum áætlað skattgreiðendum tekju- viðbót eða strikað út gjaldaliði á framtölum þeirra. Er tekjuskatt- urinn síðan reiknaður út skv. framtölunum þannig breyttum. Niðurjöfnunarnefnd metur slíkar áætlanir og bréytingar, tekur stundum ekki tillit til þeirra, stundum aðeins að nokkru leyti. Verður útsvarið þá reiknað af öðrum nettó-tekjum en tekju- skatturinn. Með hliðsjón af framanrituðum reglum tók nefndin sérstaklega til athugunar framtöl 6268 gjald- enda, og lækkaði útsvör þeirra eftir mati í hverju einstöku til- fellk Eftir er að úrskurða kærur, sem nefndinni höfðu borizt að kvöldi hins 11. þ. m. Framanrituð útsvör voru ákveð in án nokkurs ágreinings innan nefndarinnar. Fundi slitið Guttormur Erlendsson Björn Kristmundsson Haraldur Pétursson Sigurbjörn Þorbjörnsson 2. Rætt um blaðaskrif vegna útsvarsálagningar yfirstandandi ár. Samþykkt var með samhljóða atkvæðum að óska birtingar í blöðum bæjarins á eftirfarandi greinargerð: Vegna blaðaskrifa undanfarið um útsvarsálagningu hér í bæn- um á yfirstandandi ári, þykir nið - urjöfnunarnefnd rétt að birta eftirfarandi skýringar: Samanburður á tekjuskatti og útsvari einstaklinga eins og gjöld þessi eru birt í skatt- og útsvars- skrá er villandi, sérstaklega af þrem ástæðum: 1. Skattstigar og útsvarsstigar eru ekki byggir upp á sama hátt. Sama gildir um persónufrádrátt til skatts og útsvars. Þannig er tekjuskattur allt frá 1% af kr. 3.500,00 og upp í 40% af skatt- skyldum takjum yfir kr. 155 þús., en tekjuútsvar af kr. 25 þús. eða þar yfir frá 19% og upp í 30% af tekjum yfir kr. 100 þús. Persónu- Á þessari mynd sést flugskýli það, sem um er rætt í viðtalinu við hershöfðingj'ann. Einnig sjást undirstöður vatnslanks flugvallarins og fyrir framan þær aðvörunarskiltið. (Ljósm. vig.) A/ Hér þarf ýmislegt oð lag- færa" Yfirmaður varnar- liðsins á Reflavíkur- flugvelli svarar spurningum Mbl. UNDANFARIÐ hefur meira ver- ið rætt og ritað um Keflavíkur- flugvöll, bæði hér á landi og erlendis en oft áður. Ástæðan eru atburðir þeir, sem þar hafa átt sér stað og ekki er nauðsyn legt að rifja upp, því þeir munu öllum kunnir. Atburðir þessir hafa ekki hvað sízt vakið mikla athygli í Bandaríkjunum, þar sem blöð hafa mikið um þá skrif- að. 1 ritstjórnargrein í New York Herald Tribune á laugardaginn s.l. er t.d. á þessi mál minnzt og sagt, að atburður eins og sá sem gerðist fyrir framan flugskýlið á Keflavíkurflugvelli, þegar bandarísk herlögregla neyddi ís- lenzka flugþjónustumenn til að leggjast á jörðina, geti alltaf átt sér stað, þar sem bandarískt herlið er í vinaríki, en blaðið bætir við, að íslendingar séu- viðkvæmir og stoltir og þess vegna hafi þetta mál orðið mik Pritchard hershöfðingi svarar spurningum fréttamanns Mbl. ilvægara í þeirra augum en ann- arsstaðar hefði orðið. Síðan segir blaðið, að harma beri þessa at- burði og bætir við: „ísland er hernaðarlega mikilvægt £ NATO samtökunum og þó við treystum því, að íslendingar muni líta á þennan atburð réttum augum, ættum við ekki að missa af tæki- færinu til þess að leggja áherzlu á vináttu og sameiginleg áhuga- mál ríkjanna beggja.** íslenzkir starfsmenn á Kefla- víkurflugvelli og yfirmenn banda ríska varnarliðsins þar hafa ver- ið gagnrýndir í blöðum undan- farið, eins og kunnugt er. Morg- unblaðið hefur birt yfirlýsingar utanríkisráðuneytisins um málið og í gær var skýrsla lögreglu- stjórans á Keflavíkurflugvelli um atburðinn fyrir framan flugskýl- ið birt í blaðinu. Skömmu eftir að atburður þessi átti sér stað fór Pritchard, hershöfðingi, yfir- maður varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli, til Bretlands. Hann er nú kominn heim og þótti Morgunblaðinu fróðlegt að spyrja hann nokkurra spurninga um at- burðinn á Keflavíkurflugvelli og ástandið þar, eins og það kem- ur honum fyrir sjónir. Samtalið fer hér á eftir. Fréttamaður Mbl.: — Þér vor- uð í Bretlandi, þegar bandarískur herlögregiumaður lét starfsmenn íslenzku fíugmálastjórnarinnar leggjast á jörðina fyrir framan flugskýlið og miðaði á þá byssu sinni. Pritchard hershöfðingi: — Nei, ég fór til Lundúna síðdegis á mánudag eftir atburðinn. Fréttamaður Mbl.: — Hvað vilduð þér segja um þennan at- burð? Pritchard hershöfðingi: — Ég vil fyrst og fremst segja, að blöð- in gerðu meira úr þessu máli en efni stóðu til og í frásögn þeirra gætti verulegs , misskilnings. Á flugvellinum eru sjö svo- nefnd bannsvæði, þar sem eng- ir mega koma inn í nema þeir, sem hafa til þess sérstök vega- bréf. Það er nauðsynlegt örygg- isins vegna að hafa þessi bann- svæði. Fyrst ég nefndi bann- svæði, má geta þess, að þau eru t.d. í sambandi við olíu, flug og samgöngur. Við þessi bannsvæði hefur verið komið upp spjöldum, þar sem tekið er sérstaklega fram að þeirra sé gætt af vopnuðum vörðum og óviðkomandi sé bann- aður aðgangur. Fréttamaður Mbl.: — Bann- svæðin eru sögð illa merkt. Pritchard hershöfðingi: — Nei, Framh. á bls. 19. „í varnarmálunum er Tíminn pólitísk skopparakringla“ Undir þessari fyrirsögn skrif- ar Alþýðublaðið sl. laugardag uxn „Keflavikurmálið" og segir: .Tíminn gengur nú mjög fram fyrir skjöldu í Keflavíkurmálinu, en sýnir meiri áhuga á að gera það að pólitísku árásarefni inn- anlands, en komast að kjarna málsins og leita lausnar á því. Þetta er ómerkileg framkoma með eindæmum. Öll þjóðin veit nú, að stefna Framsóknarflokks- ins er þessi: Þegar Framsókn er f stjórnarandstöðu, þá er hún á móti vörnum íslands. Þegar Fram sókn er í stjórn, þá er hún fylgj- andi vörnum landsins. Þegar utan ríkisráðherra er Framsóknarmað ur, þá getur enginn flokkur stjórnað hér í landi með slíkum ágætum sem Framsókn". Tíminn ber sig í gær illa und- an þessum dómi síns gamla fóst- bróður en hann er vissulega sann mæli. Alþýðublaðið heldur áfram: „Hitta sjálfa sig Árásir Tímans vegna atburð- anna á Keflavíkurflugvelli hitta meðal íslendinga Framsóknar- menn fyrst og fremst. — Það hefur engum bókstaf af lögum, reglum eða fyrirskipunum um þessi mál verið breytt í tíð nú- verandi utanríkisráherra. Þess vegna hlýtur gagnrýni á íslenzka aðila að falla á þá, sem annast lagalega stjórn og framkvæmd þessara mála. Og það eru mest- allt framsóknarmenn. Varnarmáladeild utanríkisráðu neytisins var sett á laggirnar í ráðherratíð dr. Kristins Guð- mundssonar og hann skipaði (eins og framsóknarráðherrar venju- lega gera) — EINGÖNGU FRAM SÓKNARMENN til starfa í deild inni. Þeir sitja þar enn — og fá nú kaldar kveður frá flokks- blaði sínu. í varnarmálanefnd eru 50% FRAMSÓKNARMENN, eða tveir menn af fjórum. Þannig má rekja áfram, um lögreglu- stjórann á Keflavíkurflugvelli og fleiri starfsmenn. Af þessu verður sanngjörnum mönnum Ijóst, hversu ómerkileg framkoma Tímans er í þessu máli“. Hér er bent á hið sama, sem Morgunblaðið gerði á laugardag- inn: Hvernig áhugi Framsóknar snýst fyrst og fremst að því að raða Framsóknargæðingum á rík isjötuna og er þó engan veginn fulltalið. Sjálfslýsing logr eglust j órans Tíminn sl. sunnudag hneyksl- ast mjög á því, að Morgunblaðið benti á þau sannindi, að flokks- fylgi og tengdir skyldu hafa ráðið meira um mannaval í hina ís- lenzu yfirstjórn varnarmálanná en hæfileikar. í því sambandi segir Tíminn: „Hið helzta, sem Mhl. færir fram til áfellis er það, að lög- reglustjórinn á Keflavíkurflug- velli sé „tengdasonur" manns, sem sé „höfuðstoð Eysteins á Austurlandi". — Það á víst að sanna, að augljóst sé að slíkur maður sé alveg ófær til embætt- isstarfa. Þó er viðurkennt að lög- reglustjórn Björns Ingvarssonar er með miklum ágætum“. Sama dag sendi lögreglustjór- inn út tilkynningu sína, sem sannar hina ótrúlegustu óstjórn á Keflavíkurflugvelli, þ. á. m. fullkomið andvaraleysi hans sjálfs. Betri sönnun fyrir orðum Morgunblaðsins varð ekki fengin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.