Morgunblaðið - 24.09.1959, Page 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmfudagur 24. sept. 1959
forsetahjónin hádegisverðarboð
fyrir sendiherrann.
Reykjavík, 23. sept. 1959.
Þriðja bindi
alfræðibókar
Gyldendals
komið út
Vegagrerðin er nú að láta fullgera
hinn nýja breiða veg yfir Kola-
vatnsmýri, en svo nefnist allvíð-
áttumikið mýrlendi milli Þjórsár
og Ytri Rangár. Þessi mynd er
tekin þar í fyrradag. — Einn af
hinum stóru og þungu Mercedes-
bílum vegagerðarinnar, hefur
farið í gegnum púkklagið. Það
tók nokkurn tíma að ná bilnum
upp aftur og var það jarðýta, scm
bilnum bjargaði. Tippmaðurinn
sagði að mýrin væri mjög blaut
og í svona tið fer allt á kaf. Suður
í Reykjavík, sagði austan bil-
stjóri, myndu verkfræðingarnir
bara heimta að skipt yrði um
jarðveg. — Hvað haldið þið um
það, Reykvíkingar , sagði bílstjór
inn og beindi orðum sínum til
blaðamannanna.
NÝLEGA er komið út þriðja
bindi alfræðibókar Gyldendals,
K—Q, en eins og kunnugt er er
ráðgert að gefa út alls fimm
bindi.
Efni bókarinnar er mjög fjöl-
breytt og veitir margháttaðan
fróðleik. Þar eru margar stuttorð-
ar yfirlitsgreinar, stærst er grein
in um málaralist frá fyrstu tíð
til vorra tíma, qg fylgja henni
margar eftirprentanir af lista-
verkum, bæði litaðar og ölitaðar.
Einnig eru þar æviatriði ýmissa
frægra manna, landfræðileg og
vísindaleg efni og ótal margt ann
að. A. P. Hansen og Anders
Svarre hafa séð um útgáfu bókar
innar og notið þar góðrar að-
stoðar sérmenntaðra manna. —
Bókin er prýdd fjölda mynda og
frágangur allur hinn smekkleg-
I asti.
Sundlaugunum
REYKJANESKJÖRDÆMI
Kosningaskrifstofur Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjaneskjördæmi:
t Keflavík: í Sjálfstæðishús-
inu. Opin daglega frá kl. 10—18.
Sírni 21.
+ Hafnarfjörður: Í Sjálfstæðis-
húsinu. Opin daglega kl. 10—18.
Sími 5-02-28.
t Kópavogur: Melgerði 1. Onin
kl. 10—19. Símar 1-97-08 og
1-10-91.
lokað ...
ENN einu sinni varð að loka
sundlaugunum fyrir sóðaskap
baðgesta. Þetta gerðist á þriðju-
daginn milli klukkan 5—6. Þá
urðu börn í grunnu lauginni
þess vör að sáur var á floti í
lauginni. í snatri voru allir reknir
upp úr lauginni, og opnað fyrir
frárennsli lauganna. Síðan var
laugunum lokað.
HINN nýi sendiherra Ítalíu
herra dr. Guido Colanna di
Paliano, afhenti í dag (miðviku-
daginn 23. september 1959) for-
seta íslands trúnaðarbréf sitt við
hátíðlega athöfn á Bessastöðum,
að viðstöddum utanríkisráðherra.
Að athöfninni lokinni höfða
Tíminn svívirbir Sjálfsfæðis-
flokkinn fyrir stuðnina við
málstað hænda
Fáheyrð brlgslyrði um
mútuboð" í garð þeirra
//
Þ A Ð furðulega fyrirbæri getur nú daglega að líta á síðum Tím-
ans, að Sjálfstæðisflokknrinn er skammaður blóðugum skömmum
fyrir að hafa tryggt það, að bændum verði bætt það tjón,
sem þeir bíða vegna hinna ranglátu bráðabirgðalaga
minnihlutastjórnar Alþýðuflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
með yfirlýsingu sinni tryggt, að sú 3,18% afurðaverðshækkun, sem
þeir hafa beðið eftir í heilt ár vegna kauphækkana verkamanna
haustið 1958 verður greidd þeim, eins og alltaf hefur verið gert
ráð fyrir, og þeir eiga skýlausan rétt á.
Brígslyrði um „mútuboð"!
Þetta kallar Tíminn í gær
„mútutilboð". Slíkri svívirðingu
leyfir þetta blað, sem vill láta
kalla sig „málgagn þænda“, að
slöngva framan í bændastéttina.
Á máli aðalmálgagns Framsókn-
arflokksins eru það „mútur“ til
bænda ,að þeim sé greitt afurða-
verð, sem Framleiðsluráð hefur
reiknað út að þeim beri, og
Stéttasamband bænda hefur gert
kröfu um fyrir þeirra höndM
Allt sýnir þetta, hversu ósvíf-
inn og ábyrgðarlaus málflutn-
ingur Framsóknarmanna er um
þessar mundir.
Studdi málstað bænda
Sjálfstæðisflokkurinn hikaði
ekki við að styðja málstað bænda
í þessu máli, enda þótt honum
væri Ijóst, að reynt myndi að
gera hann tortryggilegan gagn-
vart launþegum vegna þeirrar
afstöðu hans. Sjálfstæðism. létu
það ráða afstöðu sinni, að bænd-
ur áttu skýlausan rétt til 3,18%
hækkunarinnar vegna þess, að
afurðaverðshækkun þeirra haust-
ið 1958 var miðuð við minni
kaupgjaldshækkun hjá verka-
mönnum en varð rétt á eftir að
afurðaverðið var þá ákveðið.
Bændur tóku á sig hliðstæða
lækkun á afurðaverði sínu og
laimþegar á kaupi sínu með verð-
stöðvunarlögunum á sl. vetri. Þá
var ekki tekið tillit til þess, að
þeir áttu inni 3,18% afurðaverðs-
hækkun frá haustinu 1958. Engu
að síður tók Framsóknarflokk-
urinn sinn þátt i því að auð-
velda samþykkt verðstöðvunar-
laganna. Hann gat hindrað sam-
þykkt þeirra á Alþingi en hann
gerði það ekki.
Engin ný dýrtíðarskriða
Sjálfstæðisflokkurinn er þess
alráðinn að koma í veg fyrir að
hin „nýja verðbólgualda“, sem
vinstri stjómin leiddi yfir þjóð-
ina eyðileggi efnahagsgrund-
völl hennar. En sú afurða-
verðhækkun, sem bændur áttu
rétt á og höfðu beðið eftir í heilt
ár þurfti enga nýja verðbólgu-
skriðu að setja á stað. Hana hefði
mátt greiða niður þar til efna-
hagsvandamálið í heild var tekið
til athugunar og úrlausnar. Það
hefði ekkert munað um þann
smákepp í hinum miklu niður-
greiðslum, sem vinstri stjórnin
hóf og núverandi ríkisstjórn hef-
ur haldið áfram.
Minnihlutastjórn Alþýðuflokks
ins mun vissulega hvorki hafa af
því sóma né heldur uppskera
aukið fylgi fyrir, að hafa fram-
ið ranglæti gagnvart bændastétt-
inni í þessum efnum.
Það sýnir svo óheilindi og
ótrúnað Framsóknarflokksins
við bændur, að hann skuli
nú fyrst og fremst beina hat-
ursáróðri smum gegn Sjáif-
stæðisfiokknum, sem tryggt
hefur bændum leiðréttingu á
því ranglæti, sem framið hef-
ur verið gagnvart þeim.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
rétt hlut bænda. Sú staðreynd
stendur óhögguð, ef Fram-
sóknarmenn ekki svíkja mál-
stað þeirra.
Nýr sendiherra
Ítalíu
Cangið á móti umferðinni
í ÞESSUM mánuði hafa orðið 3
dauðaslys með þeim hætti að
menn hafa gengið á vinstri veg-
arbrún, bifreið komið á eftir
þeim og ekið aftan á þá án þess
að nokkuð væri hægt að gera.
Slysavarnafélagið viU hvetja alla
gangandi vegfarendur til að fara
eftir umferðarlögunum og ganga
á hægri vegarbrún, þar sem
gangstéttir eru ekki og koma
þanni g á móti farartækjunum,
getur þá hinn gangandi vegfar-
andi fylgzt betur með umferð-
inni. ,
Ökumenn, munið að í rigningu
og dimmviðri þarf að sýna
meiri gætni en í björtu.
Vegfarendur, sýnið gætni,
varúð og lipurð í umferðinni,
vinnum öll að bættri umferðar-
menningu og forðumst slysin.
Bœrinn að Hamri í
Svínavatnshr. brennur
BLÖNDUÓSI, 3. sept. — í nótt
varð bæjarbruni að Hamri í
Svínavatnshreppi, en það er
næsti bær við Ása. Brann bæjar-
húsið og allt sem í því var. Kona,
12 ára drengur og barn, bjargað-
ist út, fáklædd.
Á Hamri býr Þorsteinn Sigur-
jónsson. Hann var ekki heima, er
þetta gerðist, var hér á Blöndu-
ósi að vinna við haustslátrunina
í sláturhúsinu.
Ráðskonan, Ester Guðmunds-
dóttir, var ein heima á bænum
með 12 ára dreng og tveggja ára
barn. Vaknaði hún um klukkan
2 í fyrrinótt og var þá eldur kom
inn upp í bænum. Hún mun ekki
hafa komizt út úr bænum á ann
' an hátt en að brjóta rúður í glugg
anum á herbergi því, er hún svaf
i. Við það skarst hún allmikið á
hendi. Drengurinn, sem var fá-
klæddur er hann kom út, hljóp
þegar berfættur á nærbuxunum,
á einni skyrtu að Ásum en það
er alllöng leið. Þar vakti hann
upp fólkið, og bað um hjálp. En
þegar hér var komið, var svo mik
ill eldur í bænum, að allar til-
raunir tif þess að ráða niðurlög-
um hans voru tilgangslausar.
Nokkur hluti hússins var úr
steinsteypu. Er tjónið mjög til-
finnanlegt og óvíst hvernig Þor-
steinn Sigurjónsson muni bregð-
ast við þeim vanda, sem honum
er nú á höndum varðandi bú-
reksturinn á Hamri.
— Fréttaritari.
Albert Sehweitzer
í Kaupmannahöfn
KAUPMANNAHÖFN, 21. sept. —
(NTB) — Mannvinurinn og Nó-
belsverðlaunahafinn Albert
Schweitzer mun þriðjudaginn 29.
þ. m. veita móttöku nýjum dönsk
um verðlaunum að upphæð 100
þúsund d. kr. — Verðlaunaaf-
hendingin fer fram við hátíðlega
athöfn í Kaupmannahafnarná-
skóla, er hér um að ræða heið-
ursverðlaun, sem ekkja Sonnmg
ritstjóra hefur heitið í minningu
um eiginmann sinn, en hann starf
aði hjá „Berlingske Tidende" —
Þetta er í fyrsta skipti, sem verð-
launin eru veitt.
Við siðdegisverð í Kristjáns-
borgarhöll sama kvöld, mun H. C.
Hansen, forsætisáðherra, afhenda
Schweitzer 50 þúsund d. kr., sem
ákveðið hefur verið að til hans
skuli renna sem hluti af kvik-
myndaskatti þeim, sem komið
hefur í ríkissjóð, fyrir sýningar á
kvikmyndinni um sjúkrahús
'Schweitzers í Lambarrene í
Afríku.
KOSNIN G ASKFIF -
STOFA SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS
í REYKJAVÍK
er í Morgunblaðshús-
inu, Aðalstræti 6, II.
hæð. — Skrifstofan er
opin alla daga frá kL
10—18. —
★ 'k
Stuðningsfólk flokksins
er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna
og gefa henni upplýs-
ingar varðandi kosn-
ingarnar.
k ★ k
Athugið hvort þér séuð
á kjörskrá í síma
12757.
k ★ k
Gefið skrifstofunni upp-
lýsingar um fólk sem
verður fjarverandi á
kjördag, innanlands og
utan.
kr ★ 'k
Símar skrifstofunnar eru
13560 og 10450.