Morgunblaðið - 24.09.1959, Síða 3

Morgunblaðið - 24.09.1959, Síða 3
Fimmtudagur 24. sept. 1959 MORCUIS BL AÐIÐ 3 Þessi mynd er tekin í botni jökulsigsins í Kverkfjöllum og má greina fólkið sem örsmáa díla þar sem það ber við jökulhamrana á miðri myndinni. — Myndirnar tók Magnús Jóhannsson. Stórt jökulsig í Kverkfjöllum Frá haustferð Jöklarannsóknarfélagsins í GÆR náði blaðið tali af þeim dr. Sigurði Þórarins- syni jarðfræðingi og Magnúsi Jóhannssyni útvarpsvirkja og spurði þá um haustferð Jökla- rannsóknafélagsins. Nú fyrir skömmu var farinn leiðangur á vegum þess inn á Vatna- jökul, bæði til Grímsvatna og Kverkfjalla. í Kverkfjöll- um var gerð athugun á mjög stóru jökulsigi, sem hefir myndazt nú á þessu ári og er það stærsta jökulsig, sem menn vita til að þar hafi myndazt. Magnús Jóhannsson stóð fyrir leiðangrinum að þessu sinni, því dr. Sigurður dvaldist um þær mundir er- lendis. Jökulhlaupið. Laugardaginn 12. september hélt 11 manna hópur í fjallabíl Guðmundar Jónasonar inn í Jök- ulheima í Tungnaárbotnum, en þar voru geymdir tveir snjóbíl- ar frá því í ferð félagsins í vor. í Jökulheimum var dvalið yfir helgina við ýmis konar lagfær- ingar m. a. á snjóbílunum. Upp á Vatnajökul var svo haldið á mánudagsmorgun og gekk ferðin mjög greiðlega til Grímsvatna og gist var þar um nóttina. Þar var ekki höfð nema skömm viðdvöl næsta dag, heldur þegar haidið til Kverkfjalla, enda veður gott og bjart. Komið var til Kverk- fjalla kl. 8 um kvöldið. Ætlunin var að hafa þar skamma viðdvöí, en þá sá leiðangursfólkið að stó :t og mikið jökulsig hafði myndazt og var því ákveðið að gista og athuga það nánar næsta dag. Var svo dvalið í Kverkfjöllum til mið vikudagskvölds. Botn jarðsigsins reyndist vera um 200 m í þvermál og nálægt þvi hringlaga, en íshamrarnir um hverfis um 100 m háir. Það má því gera ráð fyrir að þarna hafi að minnsta kosti hlaupið fram um hálf milljón teningsmetra af vatni og hefur það runnið í Jök- ulsá á Fjöllum. Hlaup þetta hefur trúlega átt sér stað á þessu ári og að öllum líkindum í vor. Eitt stærsta jarðhitasvæði landsins. Dr. Sigurður Þórarinsson sagði að þarna væri um að ræða stöð- ugt hverasvæði undir jöklinum og eitt með þeim mestu hér á landi. Jökulrask hefði átt sér þarna stað áður og mætti greini- Framh. á bls. 15. Skálinn á Grímsfjalli og snjóbílarnir. Skálinn er i og geta gist þar um 20 manns. Þegar fleiri eru í oft er, gista þeir í tjöldum eða snjóhúsum. 1720 m. förinni, smsniMR Ofsókn í,egn S j álf stæðismönnum Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær, ræddi „Islending- ur“ á Akureyri hið einstæða of- stæki Framsóknarblaðsins „Dags“ i í grein í blaðinu sl. föstudag. Vekur islendingur þar athygli á að Dagur jafni Sjálfstæðismönn- um innan samvinnufélaganna við „skemmdarverkamenn og þjóð- svikara“. Beri að svifta þá öllum trúnaði innan félaga sinna. Kemst íslendingur síðan að orði uut þetta á þessa Ieið: „Verður ekki annað séð en hér sé beinlínis að því stefnt að hrekja fylgismenn annarra flokka en Framsóknar — svo og utan- flokkamenn — úr samvinnufélög- unum — og geta menn hugleitt hvort það mnrni veikja þau eða styrkja, svo sem nánara er að vik- ið í leiðara biaðsins. Ólíklegt er að ritstjóri Dags skrifi þessi orð án þess að hafa að bakhjarli valda menn Framsóknarflokksins, en skýrara þarf ekki að tala“. Stefnt gegn Bjartmari bónda á .Sandi „fslendingur“ heldur síðan á- fram í þessari sömu grein: „Ofsóknarherferð skal hafin innan samvinnufélaganna gegn öllum þeim þúsundum Sjálfstæð- ismanna, sem þar eru meðlimir eða starfsmenn. Þeir skulu sviftir öllum trúnaði og stimplaðir sem skemmdarverkamenn og svikar- ar. Þessi ummæli verða enn eftir- tektarverðari nú, þegar þess er gætt, að Bjartmar Guðmundsson, þingeyski bóndinn, sem skipar baráttusætið á lista Sjálfstæðis- manna í Norðurlandskjördæmi eystra, hefur haft mikinn trúnað þingeyskra samvinnumanna og er nú stjórnarmeðlinuur Kaup- félags Þingeyinga. Nú kemur „Dag“-skipunin frá Framsóknar- foringjunum á Akureyri til Þing- eyinga: Sviftið Bjartmar Guð- mundsson öllum trúnaði innan K. Þ., af því að hann hefur gerzt svo djarfoir að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Þessi furðulegu ofstækisskrif munu raunar hafa þveröfug áhrif við það, sem til er ætlazt. og þingeyskir samvinnumenn, sem gert hafa Bjartmar Guðmtunds- son að trúnaðarmanni sínum vegna mannkosta hans og góðra starfa innan samvinnuhreyfing- arinnar, munu kunna að svara fyrir sig ,enda berast nú þær fréttir, að hann muni verulega efla fylgi Sjálfstæðisflokksins í Þingeyjarsýslu, svo að sókn flokksins þar verður ekki minni en í öðrum hlutum Norðurlands- kjördæmis eystra“. Hér sést norðvesturbrún sigsins og hinar risastóru jökulsprungur. Út um þær gusu gufu- strókar annað slagið. Hið glórulausa ofstæki Ummæli Framsóknarmálgagns- ins á Akureyri sýna vissulega hið glórulausa ofstæki, sem Fram- sóknarmenn beita nú í stjórn- málabaráttu sinni. Þeir svífast þar einskis. Þetta kemur einnig fram í sam bandi við árásir þeirra á Sjálf- stæðisflokkinn, sem lýst hefiur yfir stuðningi við málstað bænda í deilunni um verðlagningu land- búnaðarafurða. Þar lýsa Fram- sóknarmenn því annan daginn yfir, að meirihluti Alþingis sé mótfallinn bráðabirgðalögunum. Hinn daginn lýsir miðstjórn Fram sóknarflokksins því blákalt yf- ir, að ríkisstjórnin hafi fyrirfram tryggt sér meirihlutafylgi á Al- þingi við lögin! Þannig fara Framsóknarmenn með vísvitandi blekkingar og ó- sannindi. Ekkert vopn er of ódrengilegt eða lágkúmlegt til þess að Tíminn og lið hans telji l sig ekki geta beitt því.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.