Morgunblaðið - 24.09.1959, Síða 8

Morgunblaðið - 24.09.1959, Síða 8
9 MORGVISM 4Ð1Ð Fimmtudagur 24. sépt. Í959 Staldrað við LANDRÝMI er nóg að Laug- ardælum og búið stórt. — Ræktað land er um 80 hekt- arar — og allt land jarðarinn- ar a. m. k. tíu sinnum stærra. Heyfengur í fyrra var hátt á sjötta þúsund hesta, og verð- ur væntanlega enn meiri í ár — allt tekið á ræktuðu landi. Þar eru 90 mjólkandi kýr — og nautgripir eru alls 184. Hestar eru um 50 talsins, svi'n 60—70 og hænsni 400—500. Við búið starfa yfirleitt 9—10 karlmenn og fleiri, meðan heyannir standa yfir — og velta þess er nokkuð á aðra milljón króna á ári (var rúm- lega 1,2 millj. 1957). — ★ — Og hver hefur svo veg og vanda af að stýra þessu stórbúi? Bústjórinn heitir Þórarinn Sig- urjónsson — og honum hefur tek- izt, á þessum tímum hallarekstr- arins, að láta þetta viðamikla bú bera sig, þrátt fyrir alla þá marg- víslegu og kostnaðarsömu til- raunastarfsemi, sem þar er rekin í þágu landbúnaðarins — og þá fyrst og fremst nautgriparæktar. Er það vel af sér vikið, að dómi þeirra, er gerst þekkja. — Þórar- inn hefur aðeins á hendi stjórn og rekstur búsins, enda ærið starf fyrir einn mann, en til- raunastjóri að Laugardælum er ungur maour og ötull, Jóhannes Eiríksson að nafni, er hlaut menntun til slíkra starfa í Dan- mörku. Afkvæmarannsóknir Þegar fréttamaður og ljós- myndari Morgunblaðsins áttu leið austur fyrir Fjall fyrir nokkru, komu þeir m. a. að Laug- ardælum og fengu að hnýsast of- urlítið í starfsemina þar, en fyrst var Hjalti Gestsson, búfjárrækt- arráðunautur á Selfossi sóttur heim, og skýrði hann okkur frá megindráttum þeirra tilrauna og rannsókna, sem unnið er að á Laugardælabúinu, en það er rétt utan við kauptúnið. — Má þar t.d. fyrst nefna afkvæmarannsóknim ar í nautgriparækt, en þær eru í stuttu máli framkvæmdar þann- ig, að árlega eru teknir systra- hópar undan ókveðnum nautum, og eru tvö naut reynd þannig á ári hverju. Þess er gætt að ala kálfana upp við nákvæmlega sömu skilyrði. Kvígurnar bera síðan fyrsta kálfi, þegar þær eru tveggja ára, og rtyt þeirra er mæld nákvæmlega í 43 víkur að fyrsta og öðrum kálfi. Með þessu þykir fást nokkuð örugg vísbend- ing um það, hvaða naut eru bezt til undaneldis. — Samhliða fara svo fram alhliða fóðurtilraunir á mjólkurkúm — og beitartil- raunir. Stórfyrirtæki í þriðja lagi er svo rekin sæð- ingarstöð í Laugardælum (eða Þorleifskoti, sem er gömul hjá- lenda Laugardæla), og tók hún til starfa 1. janúar 1958. Sagði Hjalti Gestsson, að sæðingar- stöðin væri þegar að verða stór- fyrirtæki — og nefndi sem dæmi um það, að í júní og júlí sl. hefðu yfir 1000 kýr verið sæddar frá stöðinni hvorn mánuð. Tuttugu naut eru þar nú. Þegar stöðin tók til starfa voru aðilar að henni 2 hreppar í Ár- nessýslu og 3 í Rangárvallasýslu, en síðan hafa bætzt við átta hreppar (7 í Árnessýslu og 1 í Rangárvallasýslu). I haust verða svo enn færðar út kvíarnar, og munu þá t. d. allir hreppar Ár- nessýslu verða aðilar að sæðing- arstöðinni. Kvað Hjalti líklegt, að bráðlega yrði komið á fót „úti- búi“ annaðhvort á Hellu eða Hvolsvelli. Mun ekki vanþörf á því, þar sem „urndæmi" stöðvar- innar er bæði stórt og fjölbýlt. Merkilegur árangur beitartilrauna Hjalti Gestsson ræddi sérstak- esg»?x$Rwwfívíl hafa þar fóðursalt, sem þeir geta gengið að. — ★ — Allmikill hluti bænda um land allt mun nú hafa tekið upp tún- a stórbúi lega um beitartilraunir þær, sem gerðar hafa verið í Laugardælum frá því 1952. Taldi hann þær hafa borið góðan árangur — og fulln- aðarniðurstöður fengnar í nokkr- um atriðum. T. d. væri nú úr því skorið, að það borgaði sig að beita kúm á ræktað land, og enn- fremur væri fullsannað, að kjarn- fóðurgjöf samhliða beit á góðu túni væri gagnslaus. — Túmð verður að vera gott, sagði Hjalti, og vel verður að bera á það — jafnvel allt að helmingi meira en ella er gert — til þess að borgi sig að beita það. En þá næst líka góður árangur, ef skynsamlega er að farið að öðru leyti. — Þess- ar beitartilraunir hefur Kristinn Jónsson ráðunautur annazt. Bezt er að skipta beitilandinu niður í hólf, a. m. k. 3—6 eftir því, hve margar kýrnar eru, og skipta oft um — láta gripina helzt ekki ganga nema tvo daga í einu í sama hólfi. Yegna hins mikla áburðar, verður vaxtar- hraði mikill, og má segja, að kýrnar séu alltaf að bíta „nýtt“ gras — og þrátt fyrir beitina fæst síbreiðugras í slætti, svo að engu er að tapa, en allt að vinna. En það er einmitt nauðsynlegt að „hvíla“ túnið með því að slá það. Má t. d. hafa þann háttinn á að slá einn þriðja landsins, áður en byrjað er að beita þar, og hitt síðar. — Talið er hæfilegt að ætla kúnni 0,4 hektara til beitar. Nauðsynlegt er að gripirnir hafi frjálsan aðgang að vatni í beitar- hólfunum, og sömuleiðis þarf að beit með slíkum hætti, og er reynsla margra sú, að túnin hafa batnað — komizt í betri rækt en áður. Flestir nota enn veniuleear stöðina nýju, sem nú má heita fullbyggð og væntanlega verður flutt í innan skamms. Er þetta hið myndarlegasta hús, rúmgott og vel búið í alla staði. í fjósinu verða um 20 fullvaxnir tarfar. — Þóttu okkur Markúsi Ijósmynd- ara básar þessir býsna tunustlega búnir, gerðir úr sverum járnpíp- um, en þar duga víst engar spila- borgir, sem slíkur „söfnuður" er saman kominn. — Auk þess eru þarna sérstök hólf, enn ramm- byggðari en básarnir, þar sem bolarnir geta fengið ofurlitla hreyfingu öðru hverju. — Það er þreytandi að vera alltaf bundinn á bás. — Inn af fjósinu er svo — .... j Þarna er Jóhannes Eiríksson með stærsta nautið í Laug- ardælum, sómatarfinn Sóma, er hlaut fyrstu verðlaun á nautgripasýningu sl. vor. (Ljósm. Mbl.: M. Ö. Ant.) ★ Jóhannes tíiríks- son, tilraunastj. i Laugardælum (t. v.), Og bú- stjórinn, Þórar- inn Sigurjónsson (t. h.) Hann er aðeins tveggja daga gamall þessi Iitli grís — en óskóp sætur, eins og þið sjáið. „fastar" girðingar til að afmarka beitarhólfin, en sumir hafa komið sér upp færanlegum girðingum, sem rafmagni með lágri spennu er hleypt í. Mun það væntanlega 'verða almennt upp tekið, er fram líða stundir, því að hægt er að •nýta landið mun betur þannig. Er Hjalti Gestsson hafði skýrt okkur frá helztu dráttum starf- seminnar í Laugardælum, fól hann okkur „umsjá“ Jóhannesar Eiríkssonar, tilraunastjóra, er gekk með okkur um staðinn og sýndi okkur það markverðasta. Sagði hann okkur margt fróðlegt í framhaldi af því, er Hjalti hafði þegar frá skýrt, og gæti það hæg- lega orðið efni í a. m. k. tvær langar greinar. — En hvort- tveggja er, að undirritaður er harla lítill búfræðingur og hættir sér því ekki of langt út í þau vísindi, og eins er rúmið tak- markað, og mun því farið frem- ur fljótt yfir sögu.. Sæðingarstöðin Við komum fyrst í sæðingar- ,herbergið“, þar' sem sæðið er tekið. Þegar komið er með tarf þangað inn, er leidd fram ung og fönguleg kvíga — til þess að ,kveikja í“ tudda. Hana nefna fagmennirnir réttilega „tálbeit- ið, sem fyrr segir. Er hún að mestu byggð eftir danskri fyrir- mynd. Stærsti tarfurlnn — og rauðhærður blaðamaður Markús vildi nú óður og upp- vægur fá að taka mynd af stærsta tarfinum í stöðinni — og bauð Jóhannes okkur þá að ganga inn í gamla fjósið, sem er þarna fast hjá. Er við birtumst í dyrunum, mætti okkur heldur óblítt augna- tillit einna tíu eða tólf tarfa í ýmsum „þyngdarflokkum“. — Við rákum strax augun í það, að básarnir þarna virtust engan veginn eins „traustvekjandi“ og í nýja fjósinu — bara úr tré. Við hættum okkur þó inn fyrir — og ég sá meira að segja ekki betur en Markús gerðist svo djarfur að klappa einum föngu- legasta tarfinum. En sá svaraði með kröftugu „blótsyrði“ — og hristi þungan hausinn vonzku- lega. Jóhannes leysti nú stærsta’ tuddann í fjósinu og leiddi hann út í mestu rólegheitum — rétt eins og fínu frúrnar leiða kjöltu- rakka sína á götum Reykjavíkur. — Svona nú, Sómi minn, sagði Jóhannes og klappaði „risanum'* mjúklega, stilltu þér nú fallega upp — það á að taka mynd af þér. — Og Sómi lét það gott heita. En um leið og Markús mundaði myndavélina, rumdi tuddi lágt og gaut fólskulegu hornauga til blaðamannsins sem minntist þess nú skyndilega sér til skelfingar, að hann er rauð- hærður — og hopaði ofurlítið frá, svo lítið bar á. — Innan úr fjós- inu bárust ferleg hljóð. Þar stóðu allir „kollegar" Sóma á orginu, svo að ekki heyrðist mannsins mál — hafa sennilega haldið, að eitthvað skemmtilegt biði Sóma ▲A V • M Sagt frá heimsokn að Laugar- dælum, tilraunabúi Búnaðar- sambands Suðurlands una“ — sem sagt, sýnd veiði, en ekki gefin.... Inn af sæðistökuherberginu er rannsóknarstofa og annað nauðsynlegt húsnæði í sambandi við rekstur stöðvarinnar. — Bygging þessarar nýju sæðingar- stöðvar hófst fyrir um það bil tveim árum — og er nú nær lok- fyrir dyrum úti. Linntu þeir ekki látum fyrr en hann var aftur kominn á básinn sinn. Næst sýndi Jóhannes okkur kálfana, sem nú eru í afkvæma- . rannsókn. Eins og fyrr segir, eru Framh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.