Morgunblaðið - 27.09.1959, Blaðsíða 14
14
MORCVNBL4Ð1Ð
Sunnudagur 27. sept. 1959
l.
1 og 2ja MANNA
svefnsófar
%
Sófasett, Stakir stólar, Kommóður, Skrifborð,
Sófaborð og Innskotsborð.
Husgagnaverzl. Dagstofan
Vitastíg 10 — Sími 18611.
Höfum flutt
útibúið af Langholtsveg 14 á Langholtsveg 35
(áður rakarastofa).
Efnalaugín Gyllir
Langholtsveg 136.
Atvinna
Fjölskyldumaður óskar eftir atvinnu úti á landi.
Hefur meira vélstjórapróf og meira bílstjórapróf.
Húsnæði þarf að fylgja. Tilboð merkt: „Úti á landi
— 9254“, sendist afgr. Mbl. fyrir 10. október.
Sfúlkur
helzt varnar prjóni og saumaskap, óskast um næstu
mánaðamót. Upplýsingar á skrifstofunni, Frakka-
stíg 8, kl. 4—6 á morgun (ekki í síma).
Ullarverksmiðjan FRAMTÍÐIN.
Raðhús fil sölu
Álfhólsvegur 30 í Kópávogi er til sölu. Á 1. hæð eru
2 stofur og eldhús.'Á 2. hæð eru 3 svefnherb., bað og
geymsla. Einnig er þvottahús, kynding og geymsla
í sameiginlegri viðbyggingu fyrir húsasamstæðuna.
Húsnæðið er til sýnis kl. 3—7 í dag og kl. 7—9 næstu
kvöld.
F ASTEIGN ASKRIFSTOFAN
Laugavegi 28 — Sími 19545.
Sölum. Guðm. Þorsteinsson.
2/o herbergia
kjallaraíbúð
til sölu á Melunum. Ibúðin er 70 ferm. Útborgun
100 þús. Eftirstöðvar lánaðar til 12 ára.
Einar Sigurbsson hdl.
Ingólfsstræti 4 — Sími 16767 og 16768.
íbúðir til sölu
Tveggja herbergja kjallaraíbúð og þriggja herbergja
íbúð á L hæð í steinhúsi á hitaveitusvæðinu eru til
sölu.
Upplýsingar hjá undirrituðum.
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON,
hæstaréttarlögmaður
Aðalstræti 8 — Sími 1-10-43.
ÞORVALDUR LÚÐVÍKSSON
héraðsdómsiögmaður.
Austurstræti 14 — Sími 1-55-35
íbúðir óskast
2 íbúðir 2ja og 3—4ra herb. óskast tli leigu nú þeg-
ar. — Upplýsingar í símum 12401 og 17685.
Iðnnám
Laghentur og lipur piltur um tvítugt, getur komist
að sem nemi í bifreiðasmíði. Upplýsingar í síma
33507.
Dönsk borðsfofuhúsgögn
úr póleruðu birki, vel meðfarin, borð, 8 stólar og
2 skápar, einnig sófaborð, til sölu. Uppl. í síma 12388.
FramtíSaratvinna
Viljum ráða nokkrar stúlkur, karlmenn og unglinga
frá 15 ára til starfa í verksmiðju vorri. Yngri en
15 ára koma ekki til greina.
Hampiðjan hf.
Stakkholti 4.
DUGLEG og VÖNDUÐ
afgreiðslustúlka
óskast í vefnaðarvöruverzlun strax eða frá 1. okt.
Umsóknir sendist afgr. blaðsins fyrir mánudags-
kvöld merkt: „Afgreiðslustúlka — 9250“.
Útboð
Tilboð óskast í að byggja ketil- og vinnustofuhús
að Kleppi. Uppdrátta má vitja í teiknistofu húsa-
meistara ríkisins gegn 200 króna skilatryggingu.
HÚSAMEISTARI RlKISINS.
Skrifstofumaður Sölumaður
Þekkt bifreiða-innflutningsfyrirtæki vantar nú
þegar ungan reglusaman mann með verzlunarmennt-
un til að annast sölu nýrra bifreiða. Ensku- og vél-
ritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir sem greini
aldur, menntun og fyrri störf leggist á afgreiðslu
blaðsins merkt: „Skrifstofumaður — 9246“.
Höfum til sölu
hús og íbúðir víðsvegar um bæinn og nágrenni hans.
Ennfremur höfum við kaupendur að íbúðar, iðnaðar og
verzlunarhúsnæði. Miklar útborganir.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala
S Laufásvegi 2 — Sími 19960.
Atvinna
Nokkrar duglegar stúlkur geta fengið atvinnu nú
þegar (ákvæðis vinna). Upplýsingar í verksmiðj-
unni, Þverholti 17.
Vinnufatagerb íslands h.f.
— Reykjavíkurbréf
Frh. af bls. 13
meirihluta fyrir þessari stefnu á
Alþingi sl. vetur. Þá var ekki
um annað að ræða, en annað
hvort utanþingsstjórn eða minni-
hlutastjórn eins flokks. Sjálf-
stæðismenn eru andvígir utan-
þingsstjórnum, enda varð reynsl-
an af hinni einu, sem hér hefur
setið, árin 1942—44, ekki slík, að
hún hvetti til endurtekningar.
Það varð því úr, að mynduð
var minnihlutastjórn Alþýðu-
flokksins. Tengsl Sjálfstæðis-
manna við hana hafa aldrei ver-
ið önnur en þau, að Tofað var
að verja hana vantrausti, gegn
því að hún beitti sér fyrir fram-
gangi ákveðinna mála, sem í
upphafi var skýrt frá. Öll þau
mál hafa nú verið samþykkt með
atbeina flokkanna á víxl, þó
þannig að Sjálfstæðismenn og
Aiþýðuflokkur hafa staðið að
framgangi þeirra allra, en Fram-
sókn og kommúnistar hlaupið ut
undan sér, þegar þeim þótti það
henta.
,3tuðningsflokkar
stjórnarinnar46
Framsóknarmenn hafa ætið
reynt að telja Sjálfstæðismenn
beinan stuðningsflokk stjórnar-
innar. Þetta er rangt. Á milli Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðismanna
hafa engir aðrir samningar ver-
ið gerðir en þeir, sem jafnóðum
hefur verið skýrt frá. Framsókn
er að vísu tamt að grípa til
ósanninda, en vera kann þó, að
í þessu skrökvi hún ekki eins
berlega vísvitandi og oftast ella.
Framsóknarmönnum er sem sagt
með öllu óskiljanlegt, að íiokk-
ur skuli eira stjórn annars án
þess að áskilja sjálfum sér nokk-
ur hlunnindi í því sambandi.
Sjálfstæðismenn vissu, að neyð-
arástand blasti við, ef landinu
væri ekki séð fyrir lögformlegri
stjórn en þeim var fjarri skapi
að nota sér aðstöðu sina gegn
Alþýðuflokknum til að hafa
önnur áhrif á stjórn hans, en í
allra augsýn var samið um.
Það er stjórn Alþýðuflokksins,
ekki Sjálfstæðismanna, sem við
völd er.
r
Agreiningur um
verð landbúnaðar-
afurða
Fyrir skemmstu varð alvarleg-
ur ágreiningur milli Sjálfstæðis-
manna og Alþýðuflokks um beit-
ingu stjórnvaldsins. Það var út
af ákvörðun á verðlagi landbún-
aðarafurða. —• Sjálfstæðismenn
höfðu þar ákveðna skoðun, sem
Alþýðuflokkurinn vildi ekki fall-
ast á. Sjálfstæðismenn gátu ekki
ráðið gerðum stjórnarinnar að
öðru en því, að þeir hefðu get-
að knúið hana til þess að segja
af sér. Af því hefði leitt ný
vandræði og stjórnarkreppu, sem
engum hefði orðið til góðs. Aðal-
atriðið var, að Sjálfstæðismenn
héldu fast við sína skoðun á
deiluefninu og tilkynntu þegar í
stað, að þeir myndu leggja fram
tillögur á næsta Alþingi til að
tryggja hag bænda. Ef Fram-
sóknarflokkurinn bregst bændum
ekki, þá er málefnið sjálft tryggt.
í því sambandi skiptir seta nú-
verandi stjórnar fram yfir kosn-
ingar engu máli. Ætla hefði mátt
að Framsókn fagnaði þessari af-
stöðu Sjálfstæiðsmanna, ef hún
hefði haft hag bænda fyrir aug-
um, svo sem hún ætíð lætur. En
innrætið sagði til sín, Framsókn
mat hagsmuni bænda harla lítils.
Áhugaefni hennar var það eitt
að reyna að skrökva svívirðing-
um á Sjálfstæðismenn og enn
einu sinni að efna til stjórnar-
kreppu og öngþveitis í landinu.
Hermann Jónassön og félagar
hans voru þó búnir að verða sér
nóg til skammar með uppgjöf-
inni 4. desember, svo að sann-
arlega var ekki á bætandi.