Morgunblaðið - 27.09.1959, Page 20

Morgunblaðið - 27.09.1959, Page 20
20 MORGVNBLAÐIh Sunnudagur 27. sept. 195§ „Hef ég nokkuð minnzt á gæzlu. Leynilögreglumennirnir voru alveg af tilviljun í hóteli yðar. Alveg af tilviljun". Hann reyndi ekki svo mikið setn að mæla þessi orð í sannfærandi róm. Hann leit upp á Antóníó, sem var nærri tveimur höfðum hærri dg mælti. „Fn meðal ann- arra orða, Antónió — hvernig komuzt þér allt í einu yfir svona mikla peninga?" „Mér hefur tæmst arfur. Eða ég hef rænt gamla konu. Ég ségi yð- ur satt, lögreglustjóri — yður kemur það ákaflega lítið við“. „Eins og yður sýnist. Ég var aðeins að spyrja, af því að ég er ekki óhræddur um að þeir séu tapaðir, tíu þúsund frankarnir, sem þér lögðuð fram til trygg- ingar fyrir Lúlúu. Eða vitið þér ef til vill, hvar Lúlúa er“. Ósjálfrátt fór Anton út úr birt unni frá hinum rauð-græna gler- páfagauk og inn í skuggann við húsið. Hann vildi ekki, að Verne- uil sæi framan í sig. „Ég hef ekki skipt mér af henni“, sagði hann. „Það er nóg, ef hún verður vjð réttarhöldin”. „Auðvitað, það er nóg“, tók KÆLISKÁPURINN Eítirlæti hagsýnna húsmæðra Prýði eldhúsa — stolt húsmæðra • Stærð 8,2 rúm. cubfet KELVINATO • er rúmgóð og örugg matvælageymsla. 9, hefir stærra frysti rúm en nokkur annar kæliskápur af .sömu stærð. 9 er ódýrastur miðið við stærð. Verð kr. 10,994 - Takmarkaðar birgðir væntanlegar — Tökum á móti pöntunum. KmJ ELgm B Austurstræti jnCKlOL lögreglustjórinn upp eftir honum, „það er alveg nóg“. Fyrstu regndroparnir voru að falla og kaldur vindur blés eftir þröngri götunni. Anton ýtti lög- reglustjóranum vægilega til hlið- ar. „Góða nótt, lögreglustjóri" sagði hann, „og góða veiði“. Verneuil vék til hliðar, en þeg ar Anton hafði hönd á hurðar- handfanginu, sagði hann: „Góða veiði — þá dettur mér nokkuð í hug. Vöruð þér ekki um daginn á ljónaveiðum með Dela- porte, bróður yðar og mágkonu?" Anton sneri sér ekki við. „Hvað um það?“ sagði hann. „Þér eruð meistaraskytta, Antónió------“. „Getur verið“. Nú leit hann á Verneuil. „En það er yður að þakka, að ég hef fjarvistarsnön- un“. „Auðvitað, þér hafið fjarvistar sönnun", sagði hinn litli maður. „Ég var nærri því búinn að gleyma því. Góða nótt, Antónió". Hann tifaði að vagninum sínum. Þótt ekki væri orðið framorðið var Perroquet-vínstofan troð- full. Reykskýin héngu í loftinu. Anton sá í gegn um þau með erfiðismunum. Það var ekki rétt að bera Zentu það á brýn, að hún syngi eingöngu gömul lög. Nú var hún einmitt að syngja: „Spiel noch einmal fúr mich, Habanero", nýj asta dægurlagið eftir Caterina Valentes. Hún var í grænum kvöldkjól, sem fór sérlega vel ivið hið rauða hár hennar. Hún hallaði sér upp að afgreiðsluborð inu og söng hásri röddu, eins og hún væri eingöngu að syngja fyr- ir sjálfa sig. Hirðuleysið, sem hún sýndi við sönginn, jók áhrif henn ar og árangur. Anton'settist við lítið hornborð og bað um viský. Honum datt í hug óátekna viskýflaskan í húsi bróður síns. Hann hafði talað við Veru fyrir hálftíma. Hún hafði lofað honum að reyna að sofna. Hann vissi, að hún myndi ekki sofa. Hvers vegna varð hann að skilja hana eina eftir í húsi dauð- ans? Innileg, næstum því ofsa- fengin ástúð kobi að honum, við hugsunina um Veru. Hann sá hana fyrir sér, þar sem hún lá í rúminu og var að reyna að sofna. Hann hafði ekki svo mikið sem spurt hana um fyrirætlanir henn- ar. Hafði Hermann átt peninga? Var hann líftryggðúr? Var séð fyrir Veru og börnunum? Hann varð að brosa. Ævintýramaður- inn Anton Wehr var að hugsa um borgaralegt öryggi, eins og líf- tryggingu. Það var kynlegt, sem hafði gerzt, síðan kvöldið sem hann hitti Hermann aftur í fyrsta sinni hérna í „Perroquet“-vínstof unni. Kongó-sóttin hafði gripið Hermann. Og hann sjálfur, gamli „Afrikumaðurinn" var orðinn hófsamari með hverjum deginum Nú hugsaði hann meira að segja um framtíð ókunnugra barna. — Zenta kom til hans og settist við borð hans án þess að segja orð. Hún hélt á kampavínSglas- inu í hendinni. Slaghörpuleikar- inn spilaði angurblítt lag. „Ég hitti Verneuil", sagði Ant- on. „Setti hann þumalfingur- skrúfurnar á þig?“ „Hann vildi fá að vita, hvar ég hefði verið, þegar morðið var framið". „Og hvar varst þú?“ ,Hvar skyldi ég hafa verið? Auð- vitað í verzluninni". í vinahópi kallaði hún veitingakrána ekki annað en „verzlunina". Anton virti hana fyrir sér með athygli. Hún hafði farðað sig miklu meir en hún var vön. Samt sem áður, eða einmitt þess vegna var andlitið hrukkótt. Andlits- duftið huldi ekki hrukkurnar. Það settist í hrukkurnar og gerði þær greinilegri. Það var ljómi í hinum grænu augum hennar, en hann átti skylt við hitasótt. Anton vildi hafa samúð með henni, en hann gat það ekki. Þvert á móti fann hann einhverja óskiljan- lega þörf á að gera henni mein. „Þú ert í laglega flegnum kjól, þar sem þú ert ekkja“ ,sagði hann og horfði ósvífnislega á hið flegna hálsmál hennar. „Ég hef andstyggð á þér“, „Elskaðir þú hann ekki?“ ,Þú hataðir hann að minnsta kosti. Mig skyldi ekki furða þótt þú hefðir ráðið hann af dögurn". Anton brosti. „Ég hef fjarvistarsönnun, ó- vefengjanlega“. „Sama er mér. Hann er dauð- ur. Það er sama hver hefir ráðið hann af dögum. „Hvers vegna fórst þú til kon- unnar hans?“ spurði-Anton. „Hefir hún líka sagt þér það? Hefir hún engar aðrar áhyggjur — hin káta ekkja?“ Það er fiðringur 1 hendinni á mér, hugsaði Anton. Hann lang- aði til að slá kvenmanninn í and- litið, en hann sagði aðeins: „Ég var að spyrja þig“. „Þarf ég að standa fyrir máli mínu við þig?“ „Nei. En þú hefir ríka ástæðu. Verneuil fullyrðir, að áttatíu og fjórir af hundraði allra kven- morðingja fremji glæpinn vegna afbrýðissemi". Hann bjó til töl- una. „Ég hef fjarvistarsönnun, ó- vefengjanlega", hermdi hún eftir honum. Hún tæmdi fullt glasið sitt í einum teyg. „Hvers vegna hefir þú ekki gætt apastelpunnar þinnar betur?“ „Ert þú að tala um Lúlúu?" „Ert þú með fleiri apastelpur?“ „Hermann var ómótstæðilegur. Þú veizt það bezt sjálf, Zenta“. Hún stóð upp og gekk aftur að vínstúkunni. Frá nokkrum stöð- um var kallað „I love you, Baby“. Hún hallaði sér að borðinu og fór að syngja Conny-ljóðið hægt og seint. í orðinu „Baby“ lagði hún áherzluna á síðasta 'stafinn, en „Baby“ með áherzla á „y“ hljóm aði eins og fuglsgarg. .......Sparió yður hiaup ö mlUi margra vt.-rzian.a! (1ÖIIUM MttJM! Ausfcurstrset'i a i ú á Þú rt ur. Ha. hingað? i l&kir.n fastur, Ríkharð- hvernig komust þið Jenkins, skógarvörður flaug með okkur hingað i koptan- um, sem hann hefur til umráða, svo við yrðum komnir á undan þér. Eg leit inn um gluggann, Ríkharður um nóttina, þegar ég fór út til að ná í eldiviðinn. Og ég sá þig taka gimsteinana út úr ofnrörinu og fel? þá í sandmum. Anton var að litast um eftir þjóninum, þegar Luvin kom að borði hans. Hann var í dökkblá- um fötum. Buxurnar voru allt of þröngar og vestið rauðdröfnótt. „Bróðir yðar er dáinn — og þér sitjið í vínkránni", sagði Luvin. Hann settist án þess að honum væri boðið. SHÍItvarpiö Sunnudagur 27. september 9.30 Fréttir og morguntónleikar. — (10.10 Veðurfregnir). a) Konsert fyrir fiðlu, celló og hljómsveit 1 A-dúr eftir Joh. Chr. Bach. Walther Schneider- han, fiðla, Nikolaus Húbner, celló og Sinfóníuhljómsveitin i Vínarborg leika; Paul Sacher stjórnar. b) Walter Gieseking leikur pían6 lög eftir Uebussy. c) Else Brems syngur Iðg eftir Schubert og Brahms; Kjall Ols- son leikur undir á píanó. d) „Saudades do Brasil“ eftir Mil- haud. Concert Artshljómsveit- in leikur undir stjóm höfund- arins. 11.00 Messa í Laugarneskirkju (Prest- ur: Séra Garðar Svavarsson. Org- anleikari: Kristinn Ingvarsson). 12.15—13.15 Hádegisútvarp. 15.00 Miðdegistónleikar: a) Atta þættlr úr ,,MikrokosmosM eftir Béla Bartók. Julius Katch« en leikur á píanó. b) Victoria de los Angeles syngur. c; Fiðlukonsert eftir H. Henke- mans. Fiðluleikarinn Theo Olof og Concertgebouw-hljómsveit- in í Amsterdam leika. Eduard van Beinum stjórnar. 16.00 Kaffitíminn: Carlo Loube og hljómsveit leika Vínarlög. 16.30 Veðurfregnir. Færeysk guðsþjónusta. (Hljóðrlt- uð í Þórshöfn). 17.00 Sunnudagslögln. 18.30 Barnatími (Anna Snorradóttfr) f a) Kalla-saga (Steindór Hjörleifs- son leikari). b) Rauðgrani — ævintýrl i leik- formi, II. hluti. c) Framhaldssagan: Gullhellirinn, XI. lestur. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleikar: Marcel Mule leikur A saxófón. 19.45 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.20 Raddir skálda: Smásaga eftir Einar Kristjánsson og smásaga og ljóð eftir Rósberg G. Snædal. (Höfundarnir lesa). 21.00 Tónleikar frá. austur-þýzka út- varpinu: Austur-þýzkar útvarps- hljómsveitir leika lög úr óperett- um eftir ýmsa höfunda. 21.30 Ur ýmsum áttum (Sveinn Skorri Höskuldsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög. — 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 28. september 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — 8.05 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 10.10 Veðurfr.). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Frettir og tilkynningar). 15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og tilk.). — 16.30 VeðurCregnir. 19.00 Tónleikar. 19.25 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Frá tónleikum útvarpsins í Þjoð- leikhúsinu (fyrri hluti): Austur- ríski píanóleikarinn Friedrich Gulda og hljómsveit Ríkisútvarps ins leika. Róbert A. Ottósson stjórnar. a) Egmont-forleikurinn eítir Beet hoven. b) Píanókonsert nr. 5 í Es-dúr eftir Beethoven. 21.30 Utvarpssagan: Garman og Worse eftir Alexander Kielland; XIII. lestur. (Séra Sigurður Einarsson), 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Búnaðarþáttur: Frá nautgripa- sýningunum í sumar. (Olafur Stefánsson ráðunautur). 22.25 Kammertónleikar: Sextett nr. 1 í B-dúr fyrir strengi op. 18. eftir Brahms. Isaac Stern og Alexand- er Schneider, fiðlur, Milton Kat- ims og Milton Thomas, víólur, og Pablo Casals og Madeline Foley, knéfiðlur, leika. 23.00 Dagskrárlok. Þriðjudagur 29. september 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — 8.05 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 10.1-0 Veðurfregnir). 12.00—13.15 Hádegisútvarp. — 12.25 Fréttir og tilkynningar). 15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og tilk.). — 16.30 Veðurfregnir, 19.00 Tónleikar. — (19.25 Veðurfregnir), 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Frá Grimsby (Hendrik Ottósson fréttamaður). 20.55 Tónleikar: Svíta op. 43 eftir Vi- euxtemps. Sitkowetski og Davido* vitsch leika á fiðlu og píanó. 21.10 Upplestur: Ljóð eftir Jón Bjarna son. (Jóhannes Helgi les). 21.20 Tónleikar: Coppelia — ballett- svíta eftir Delibes. Hljómsveit tón listarháskólans í París leikur, Roger Desormiére stjórnar. 21.45 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög unga fólksins (Kristrún Ey- mundsdóttir og Guðrún Svavars- dóttir). 23.05 Dagskrárlok. ✓

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.