Morgunblaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 13. okt. 195V< MORCVVniLAÐÍÐ 17 Jón Bjarnason frá Sandi JÓN er fæddur 5. okt. 1874 að Miðdalskoti í Kjós, býli, sem nú er lagt undir jörðina Miðdal. Voru foreldrar hans hjónin Kristín Guðmundsdóttir og Bjarni Halldórsson. Ekki verður ætt þeirra rakin hér. En bæði 3 börn, einn son, en hann féll frá á bezta aldri, mesti efnis piltur. Önnur dóttir Jóns er Kristín bú- stýra á Vindási, og Guðrún, gift Guðmundi Sigurðssyni á Möðru- völlum í Kjós. Auk þess ólu þau hjónin, Jón og Guðrún upp einn fósturson, Odd Jónsson, sem nú er bóndi á Sandi. Einnig ólst þar upp að mestu Lilja Jónasardótt- ir. Er hún látin fyrir fáum ár- um. Jón var góður og gildur bóndi, og fór vel með allar skepnur sínar. Fyrir fermingu átti Jón kost á meiri fræðslu en sumir aðrir á því reki. í>á starfaði hér bamaskóli, einmitt á þeim árum. Mun sá skóli hafa verið einn með þeím fyrstu hér á landi að ég hygg. Hætti hann svo störfum stuttu síðar. Jón mun hafa búið vel að þeirri fræðslu, sem hann fékk í þessum skóla ,t.d. skrifaði hann ágæta rithönd, sem þá var ekki altítt. Jón var greindur í betra lagi, og hefir enn ótrúlega gott minni. Hann er fróðleiksfús, og hefir les ið allmikið, helzt fræðirit, og ýmiskonar fróðleik. Jón unnir kirkju sinni, og sækir iðulega kirkju þegar heilsa leyfir. Heilsa hans er eftir vonum, mið- að við háan aldur, en sjón hans er nokkuð tekin að daprast. Annars fylgist Jón vel með öllu. sem er að gerast dag hvern. Vildi ég svo í sambandi við þessi tímamót í lífi Jóns óska honum alls góðs, á þeim áfanga, sem enn er ófarinn og þakka gömul og góð kynni. Jón dvelur nú hjá Guðrúnu dóttur sinni og Guðna manni hennar. — St. G. voru þau komin af traustum bændaættum. Árið 1882 fluttu þau að Sandi í Kjós, og bjuggu þar æ síðan. Mun Jón fyrst hafa byrjað að búa með móður sinni, unz hann tók við jörðinni og gerðist þá bóndi á Sandi eftir foreldra sína. Bjó hann þar i hart nær 40 ár ásamt konu sinni, Guð- rúnu Guðnadóttur frá Eyjum í sömu sveit. Er hún látin fyrir allmörgum árum. Eignuðust þau Cóð sala hjá Jóni forseta TÖGARINN Jón forseti fékk gott verð fyrir afla sinn í Cuxhaven í gær. Var hann með um 140 tonn af fiski og seldist aflinn fyrir 105,550 mörk. Er þetta ein allra bezta salan í V-Þýzkalandi á þessu hausti. í þessari viku munu sex tog- arar selja á erlendum markaði en þeir eru þessir: Fylkir, RÖðull, Bjarni Ólafsson, Brimnes, Sur- prise og Harðbakur. Mikil atvinna á Raufarliöfn RAUFARHÖFN, 9. okt. — Hér á Raufarhöfn er stöðugt unnið að því að skipa út síld til Rússlands. Er Arnarfell væntanlegt hingað á næstunni til hleðslu. Mikil vinna hefur verið hér við höfnina, er nú unnið að því að losa danskt skip, sem kom hingað með síld frá Akranesi. Miklar byggingar- framkvæmdir eru í þorpinu. — Verið er að byggja nýtt póst- og símahús, og er það nú komið undir þak. Tíðarfarið hefur verið með afbrigðum gott, sólskin og blíða, 15 stiga hiti daglega. — Göngum og slátrun er nú að verða lokið, hefur heimta verið prýði- leg, og fé fallegt af fjalli. — Slátrun lokið á ísa- firði og Vatnsfirði ÞÚFUM, 10. okt. — I gær var aðalfjárflutningum sláturfjár lokið og aðalslátrun því lokið í dag bæði á ísafirði og í Vatns- Æirði. Mun hafa verið slátrað um 10 þús. fjár á ísafirði í tveim ur sláturhúsum, hjá Kaupfélagi ísfirðinga og Ágúst Péturssyni. í Vatnsfirði lauk slátrun í gser. Þar mun hafa verið slátrað um 1400 fjár. Tíðarfar var hagstætt meðan slátrun stóð yfir. Eink- um kom sér vel að hægviðri og góðviðri voru meðan á sjóflutn- ingum fjárins stóð, enda gengu þeir afbragðsvel. — PP. Ljósmæðrafélag Reykjavíkur hefur B AZ AR í G.T.-húsinu upp í dag. Opnað kl. 2 e.h. Mjög góðir munir. Mikið af prjónavörum. Stjórnin. ViSarveggfóður Ný sending komin (ahom, mahogny og hnota) Ennfremur fyrirliggjandi EINANGRUNARKORK og finnskt T R É T E X. Páll Þorgeirsson Laugavegi 22 — Sími 1-64-12. 1REYKJAVÍK Freyjugötu 41 (Inngangur frá Mímisvegi). Bamadeildar hef jast 15. þessa inánaðar. Innritun á morgun kl. 6—7 eftir hádegi. - 4Vú jVfftvy-U‘yJS' * .......... HlljSEIGEIVIDUR Það er í yðar valdi að sjá svo um að eldur komi ekki upp í húsi yðar. Líf f jölskyldunnar og eigur eru í yðar höndum. Farið nákvæmlega eftir ráðleggingum Hús- eigendafélags Reykjavíkur um eldvarnir. Allar uppl. veittar ókeypis í skrifstofu félagsins Austurstræti 14 n. hæð kl. 5—7 sími 15659. Verkamenn Nokkrir verkamenn óskast strax. Goði hf. Laugavegi 10 — Sími 22296. Dömuklœðskeri óskar eftir vinnu. Tilboð leggist vinsamlega inn á afgr. blaðsins merkt: „Klæðskeri — 8889“, IðnaSarhúsnœði Til leigu er 40 ferm. iðnaðarhúsnæði bjart og vel upp- hitað í Austurbænum. Húsnæðið mætti einnig nota fyrir verzlun. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Hitaveita — 8890“. Húseignin Fjölnisvegur 11 er til sölu. Semja ber við VAGN E. JÓNSSON Austurstræti 9. Sími 14400. Félög fyrirtœki og einsfaklingar Lánum út sal sem tekur 150 manns í sæti fyrir hvers konar skemmtanir, veizlur, áj'shátiðir, spilakvöld og fundi og fl. Upplýsingar í síma 19611 og 11378 alia daga og öll kvöld. SILFURTUNGLIÐ. íbúðir til sölu Við Stóragerði í Háaleitishverfi höfum við tii sölu mjög skemmtilegar 3ja og 4ra herb. íbúðir á hæðum. Hverri íbúð fylgir að auki 1 íbúðarherbergi í kjallara sér geymsla og eignarhluti í sameign. Ibúðirnar eru seldar fokheldar með fullgerðri miðstöð, húsið fullgert að utan, öil sam- eign inni í húsinu múrhúðuð, með handriði á stiga í ytri forstofu, allar útidyrahurðir fylgja. Bílskúrsréttur. Sér- staklega fagurt útsýni. Lán kr. 50 þúsund á 2. veðrétti. Fyrsti veðréttur laus. Hagstætt verð. FASTEIGNA & VERÐBRÉFAS ALAN, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. — Símar: 13294 og 14314. til leigu 45 tonna nýlegur vélbátur í 1. flokks standi til leigu nú þegar. Bátaurinn er tilbúinn á reknet, veiðarfærí og skipshöfn geta fylgt ef óskað er. Nánari upplýsingar gefur Málflutningsskrifstofa SVEINBJÖRNS DAGFINNSONAR og EINARS VIDARS Hafnarstræti 11 — Sími 19406.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.