Morgunblaðið - 21.10.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 21.10.1959, Síða 6
6 MOnVZJWBT.AMÐ MiðviKudaerur 21. okt. 1959 Sftefna Sjálfstæðisflokksins og sjávarút- vegurinn Rætt við Jónas Jónsson, frkvst., sem segir m.a.: Stöðva ber flótfta fqlks og fjór frú útveginum 1 STEFNUSKRÁ Sjálfstseðis- flokksins er lögð áherzla á, að framleiðslunni verði skap- aður starfsgrundvöllur, er geri fært að draga úr og síð- an afnema uppbætur og nið- urgreiðslur, svo að atvinnu- rekendur beri sjálfir ábyrgð á rekstri sínum. Einnig að stefnt verði að raunhæfri gengis- skráningu og stöðugu gengi. 1 gær átti tíðindamaður blaðsins tal við Jónas Jóns- son, framkvæmdastjóra síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar á Kletti og lagði fyrir hann ýmsar spurningar um afkomu sjávarútvegsins um þessar mundir og hverra úrbóta þar væri helzt þörf. Fórust Jónasi m. a. orð á þessa leið. — Ég vil byrja á því að minna á þá staðreynd, að sjáv- arútvegurinn er undirstöðu- atvinnuvegur okkar og skapar yfir 90% af gjaldeyristekjunum. Án út- gerðar verður ekki lifað í þessu landi og er því höfuð- nauðsyn að við kunnum að meta þennan atvinnuveg og búa vel að honum. — Fer sjómönnum fækk- andi? — Já, það er flótti frá sjáv- arútveginum. Sjómennirnir okkar leita í land-til annarra starfa. Við höfum neyðzt til að ráða hundruð erlendra manna á skipin, en alhr sja að slíkt er öfugþróún? — Hvað telur þú að hægt sé að gera til úrbóta? — Það verður að gera þessi störf á einhvern hátt eftir- sóknarverð. Sjómaðurinn býr við mikla vosbúð og er lang- dvölum fjarri heimili sínu. Það verður því að skapa þeim betri kjör en þeim sem vinna í landi. En til þess að það sé hægt verður að skapa sjáv- arútvegiiíum öruggan og heil- brigðan rekstrargrundvöll. — Hvernig telur þú að það verði bezt gert? — Ég álít, að það eigi að láta þennan atvinnuveg hafa það sem honum ber. Það sem ég á við er að hér hefur verið röng gengisskráning í langan tíma, en að mínu áliti á að koma á raunhæfu gengi is- lenzkrar krónu. Jónas heldur áfram: i — Ég minntist áðan á fólks- I flóttann frá sjávarútveginum, en nú langar mig til að mina- ast á annað atriði og það er fjármagnsflóttinn. Það hlýtur að vera eitthvað bogið við það ástand, er menn hika við að leggja fé sitt í að kaupa ný skip, vegna þess að þau geti ekki borið sig. Má minna á, að nýr togari í dag kostar 26—27 millj. krónur, ef hann er tekinn af þeirri stærð og gerð sem telst æskilegt. Efna- menn, sem kunna að vera hér á landi, leggja nú fé sitt í annað en útgerð, vegna þess að þeir telja mikla tvísýnu á að þeir fái það aftur úr út- gerðinni. Hér er um mikið og alvarlegt vandamál að ræða, því þess er enginn kostur að við getum til lengdar veitt á okkar gömlu skipum. Út- vegurinn verður því að geta keypt ný og æskilega útbúin skip. Þróunin er því miður orðin sú, að fjármagnið leit- ar ekki í okkar undirstöðuat- vinnuveg heldur frá honum. — Hvernig er hægt að breyta þessu til batnaðar. — Ef okkur tækist að stöðva flótta vinnuaflsins frá fiski- veiðunum og fjárflóttann frá útgerðinni, en gætum fengið vinnuaflið til að leita til þessa atvinnuvegar og fjármagmð til að sækja þangað vegna þess að þar væri talið æskilegt að starfa og ávaxta sitt fé, þá mundi margt breytast í þessu landi. Þá mundu mörg hinna erfiðu viðfangsefna í efna- hagslífinu, sem við eigum í stöðugu stríði við, leysast af sjálfu sér. Þá þyrfti ekki alltaf að vera að gera þessar og hinar „ráðstafanir“. Ráðstaf- anir, sem alltaf kalla á nýiar ráðstafanir. Þá mundi ekki skapast nein fölsk kaupgeía en menn gætu fengið það sem þeir hefðu unnið fyrir með starfi sínu. — Ertu bjartsýnn um að þessu verði kippt í lag á næst- unni? — Ég ber bezt traust til Sjálfstæðisflokksins, að hann kippi í lag þessum málum sjávarútvegsins. Ef Sjálfstæð- isflokkurinn verður við völd eftir kosningarnar, verður það gert, annars ekki. Dr. Jóhannes Nordal: í átt til frjálsari viðskipta MIKIL umskipti hafa orðið í gjaldeyris- og viðskiptamálum heimsins undanfarið ár. Um síð- ustu áramót var komið á skipti- frelsi í alþjóðaviðskiptum milli flestra gjaldeyristegunda Vestur- Evrópu og Norður-Ameríku. Hafa þessar ráðstafanir reynzt fyllilega réttlætanlegar, því að nú er óhætt að segja, að dollara- skorturinn sé úr sögunni, og alxt útlit fyrir, að þess sé mjög skammt að bíða, að algert skipti- frelsi verði tekið upp milli gjald- eyris helztu Evrópulanda og doll- ars og jafnframt verði afnumin flest þau höft, sem enn eru á við- skiptum milli þessara landa. Samhliða þessari þróun hafa á þessu ári verið tekin mikilvæg skref í átt til myndunar toll- frjálsra viðskiptaheilda innan Evrópu. 1 ársbyrjun kom tolla- bandalag sex ríkja Evrópu til framkvæmda, og myndun sjö ríkja fríverzlunarsvæðis er í upp- siglingu. Allt verður þetta að te'j ast árangur markvissrar stefnu, sem rekin hefur verið áf ríkjum Vestur-Evrópu og Norður-Amer- íku undanfarinn áratug. Hafa þar haldizt í hendur barátta gegn verðþenslu og jafnvægisleysi innan lands og alþjóðleg sam- vinna um aukið viðskiptafrelsi og gagnkvæma aðstoð. Það er uggvænlegt fyrir ls- lendinga, að þeir hafa einir þátt- tökuríkja Efnahagssamvinnu- stofnunar Evrópu orðið viðskila við aðrar þjóðir í þessari þróun og þá ekki sízt undanfarin fjögur ár. Það er fróðlegt til samanburð- ar að líta tíu ár aftur í tímann. Þá þjakaði dollaraskorturinn öll alþjóðaviðskipti, og haftastefnan var enn í algleymingi. Þótt ástandið væri þá erfitt á íslandi, var varla hægt að segja, að þuð skæri sig úr í þessum efnum. Næstu árin, einkum 1950—1953, gerðu íslendingar alvarlega til- raun til þess að halda hópinn með öðrum þjóðum í átt til frjálsari viðskipta. En svo fór að lokum, að það mistókst, og síðustu árin hefur dregið mjög í sundur, svo að yfir vofir, að íslendingar ein- angrist æ meir frá hinum frjálsu Dr. Jóhannes Nordal mörkuðum heimsins, ef ekki verður að gert. Það er ekki sízt uggvænlegt, hve margir íslendingar virðast telja núverandi ástand eðlilegt og halda því fram, að höft og gjald- eyrisskortur sé óumbreytanlegt ástand vegna smæðar þjóðfélags- ins og einhæfni útflutningsat- vinnuveganna. Hér er um alger- an misskilning að ræða, og ætti dæmi annarra þjóða í Evrópu að geta orðið til þess að opna augu manna í þessum efnum. Fyrir tíu árum var það líka algeng skoðun um alla Vestur-Evrópu, að doll- araskorturinn væri nokkurs kon- ar náttúrulögmál, sem aldrei yrði ráðin bót á. Sömuleiðis töldu margir höft vera nauðsyn- leg, ef takast ætti að halda jafn- vægi í utanríkisviðskiptum sam- fara nægri atvinnu. Sem betur fer náðu þessar kenningar ekki yfirhöndinni, og reynslan hefur nú sýnt mönnum, að þær voru ekki á réttum rökum reistar. Sú stefna, sem rekin hefur verið í Evrópu síðastliðin tíu ár, hefur einmitt fært þjóðum álfunnar eitt mesta framfaraskeið í sögu þeirra. Þau verkefni, sem leysa þarf í efnahagsmálum íslendinga, til þess að þeir geti orðið hlutgengir þátttakendur í frjálsum viðskipt- um á heimsmarkaði, eru mörg og erfið viðfangs. Hins vegar verður þeim ekki öllu lengur skotið á frest, ef Islendingar vilja halda sambærilegum lífskjörum við aðrar þjóðir. Það hefur fyrir löngu sýnt sig, að þjóðir, sem eru reyrðar í fjötra hafta og búa við óraunhæft gengi og rangsnúið verðmyndunarkerfi, verða aldrei fyllilegá samkeppnishæfar á frjálsum mörkuðum um vöruverð og gæði. Við þetta bætist svo það, að með myndun tollabanda- laga og fríverzlunarsvæða meðal helztu markaðslanda Islendinga frá fornu fari rýrnar aðstaða þeirra til samkeppni verulega, ef þeir treysta sér ekki til þátttöku. Enn er margt í óvissu um starf- semi þeirra markaðsbandalaga, sem í uppsiglingu eru, ekki sízt að því er varðar þau atriði, sem skipta íslendinga meginmáli. Ekki verður því að svo komnu máli tekin ákvörðun um það, hvort eða á hvern hátt íslending- ar geti orðið þátttakendur. Það, sem mest á ríður nú, er, að allur almenningur geri sér grein fyrir því, að i viðskiptamálum heims- ins eru að gerast þeir hlutir, sem eru mikilvægari fyrir framtíðar- hag þjóðarinnar en flest annað. Leiðin til jafnvægis og frjálsra viðskipta er að vísu torsótt, en til mikils er að vinna, því að vegna aukins frjálsræðis á er- lendum mörkuðum getur nún opnað íslendingum stórkostlega möguleika til að bæta afkomu sína með hagkvæmari viðskipt- um og uppbyggingu nýrra og gamalla útflutningsatvinnuvega á traustari grunni en nokkru sinni fyrr. Ef menn eru hins veg- ar ekki reiðubúnir til að fórna stundarhagsmunum fyrir lausn þessara mála, virðist ekkert lík- legra en að íslendinga bíði inn xn skamms viðskiptaleg einangrun og efnahagsleg stöðnun. Y'- Orðsending írá fjáröiiunar- neind Sjálfstæðisflokksins Þeir, sem fengið hafa söfnunarlista og merki Sjálfstæðis- flokksins, eru hvattir til að vinna vel og ötullega að söfnun- unni og gera skil svo fljótt, sem auðið er. Einnig er tekið við framlögum í kosningasjóðinn á skrif- stofu fjáröflunarnefndarinnar í Morgunblaðshúsinu á II. hæð. Símar 24059 og 10179. — skrifar úr daqleqa lifinu , Leiða hjá sér allar ábendingar MFERÐARMÁL eru mjög á dagskrá um þessar mundir, og er það vel að svo mikill áhugi skuli ríkja um það efni. „Öku- maður ofan úr sveit“ leggur eftir- farandi til málanna: Oft lesum við bílaeigendur og ökumenn um það í blöðunum að nú muni þetta og hitt verða gert til þess að auka umferðaröryggið. Það á að herða á eftirlitinu með okkur, eins og þessar þúsundir manna, sem bílum aka og eiga í þessum bæ, séu gjörsamlega á- byrgðarlaus hjörð. Vissulega við- urkenni ég að innan um og saman við má finna hreina vandræða- gripi. En í öllu þessu umferðar- öryggistali finnst mér að lögregl- an og bílaeftirlitið ættu á ýmsum sviðum að líta í eigin barm. Hér í dálkunum þínum hefur verið bent á ýmis atriði þar að lútandi. Þar er oft vel á penna haldið, og gagnrýni á rökum reist, en þeir sem deilt er á virðast láta allt slíkt sem vind um eyrun þjóta. Er það vissulega miður far ið. En skýringin mun sú, að em- bættismenn okkar munu hafa til- hneigingu til að álykta sem svo, að enginn utan starfshrings þeirra hafi vit á málunum. Þar af leið- andi sé óhætt að leiða alla gagn- rýni og ábendingar hjá sér. Aurbretti við afturhjól vörubifreiða N ég mun nú koma að kjarna málsins. Aukið umferða- öryggið! Hví leyfist það að vöru- bílar séu ekki með aurbretti aft- an við afturhjólin og því eru ekki allir skyldaðir til að hafa svo- kallaða „drullusokka" á bílum sínum? Hér hjá okkur, þar sem fæstir vegir eru malbikaðir, er nauðsynlegt að skylda vörubíla til að hafa aurbretti við aftur- hjólin. Þetta hafa Norðmenn tal- ið óhjákvæmilegt og hjá þeim eru aurbrettalausir vörubílar teknir úr umferð vegna þess hve hættúlegir þeir eru. Bílaeftirlits- menn og lögregluyfirmenn geta sannfærzt um nauðsyn þessa, ef þeir aka á eftir vörubíl nú í rign- ingunni t. d. austur fyrir Fjall. í bílaverzlunum fást að vísu tæki til að sprauta á framrúðumat, þegar ekki sést nægilega vel út. Það væri kannski lausn að skylda menn til að hafa slikan útbúnað. Eitthvað verður að gera í þessum málum, annars hættir maður að taka alvarlega öll blaðaskrifin um umferðaröryggisbaráttu lög- reglunnar og eftirlitsins, þar eð ekki virðist gert nægilega mikið til að kanna hvert smáatriði sem til öryggis má verða í umferðar- málunum". Meiri nákvæmni um tímatilkynningar ONA nokkur kom að máli við Velvakanda. Vakti hún at- hygli á því að komið hefði fyrir að þulurinn í útvarpinu segði ekki rétt til sín um tímann. T. d. hafði einn sagt að klukkuna vant aði 17 mín í eitt og andartaki síðar að hana vantaði 7 mín. í eitt, en hvorutveggja verið skakkt. Þetta hefði ekki gert sér neitt til, því hún hefði farið eftia sinni klukku. En það gæti komið sér illa, ef fólk ætlaði t. d. að taka strætisvagn úr mat, og treysti á þessar tilkynningar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.