Morgunblaðið - 21.10.1959, Page 11

Morgunblaðið - 21.10.1959, Page 11
Miðvik'udagur 21. okt 1959 Mnnnvxnr 4fílÐ 11 Boris Pasternak: Sívagó læknir. Skúli Bjarkan ís- lenzkaði söguna, Sigurður A. Magnússon Ijóðin. Al- menna bókafélagið, Keykja- vík 1959. HÉR liggur á borði mínu skáld- saga Boris Pasternaks: Sívagó læknir, í íslenzkri þýðingu Skúla Bjarkans, 554 blaðsíður fremur þétt prentaðar, — þetta er stór bók. Það er sjaldgæft eða kannski einsdæmi að skáldsaga veki slíka athygli sem þessi bók hefur gert, um hálfa heimsbyggðina eða meira, allt vesturhvel jarð ar, og það á skammri stund. Því miður er orsökin ekki eðlileg, heldur af sjúklegum toga spunn in og hörmuleg: Aldurhnigið Ijóðskáld situr langt austur á sléttum Rússlands og setur sam- an bók um sjálfan sig og sam- ferðafólk sitt á lífsleiðinni í stríði og friði, og kostar til öllu mann- viti sínu, einlægni sinni og þreki. Eftir margra ára vinnu lýkur hann verki sínu og sendir frá sér tvö samhljóða handrit, annað til bókmenntaráðs ríkisins, hitt til útgefanda á Ítalíu. Bókmennta ráðinu líkar ekki bókin, finnst hún nokkurs konar guðlast, ekki skrifuð í jesúnafni, það er að segja: hún verkar á móti hinni lögvernduðu ríkistrú, bolsivis- manum, þess vegna skal hún ekki koma á prent. ítalska út- gefandanum er bent á þetta og hann beðinn að gefa þessa bók ekki út. En nú fyrst fann signor Feltrin elli verulega peningalykt af Sí- vagó lækni og flýtti sér að prenta bókina og auglýsa þá deilu sem þegar var risin út af henni. Aldrei hefur forleggjari dottið í annan eins „lukkupott“: Það er sagt að langar biðraðir hafi staðið við dyr bókabúðar í Mílanó og öðr- um stórum borgum á Ítalíu þann morgun sem auglýst hafði verið að bókin kæmi á markaðinn. Blaðamenn og ritdómarar höm- uðust við að skrifa ym höfund- inn og verk hans, gerðu hann á svipstundu heimsfrægan. Þó var þetta aðeins lítill and- blær í samanburði við það storm viðri sem síðar brast á, þegar Pasternak höfðu í fyrrahaust verið veitt Nóbelsverðlaunin og hann síðan kúgaður til að hafna þeim og sitja heima. Enginn veit nú lengur hvað mikið er búið að selja af Sívagó lækni í Vestur-Evrópu og Ame- ríku, en bókin hefur jafnan síðan hún kom út verið á metsölulist- anum víða um lönd. Mjög er þó hæpið að hún verði það nokkru sinni hér á landi: Pasternak- hneykslið er þegar tekið að fyrn- ast, áhugasömustu lesendurnir eru að sjálfsögðu búnir að kaupa og lesa bókina á ensku eða ein- hverju Norðurlandamálanna, og í þriðja lagi fer því fjarri að allir séu sammála um að hún sé slíkt listaverk sem almennt var álitið fyrst í stað. Sannleikurinn mun sá að þessi bók hefur enn í dag varla verið litin réttu auga: ýmist ofmetin eða vanmetin, að minnsta kosti ekki metin alsgaðu óhlutdrægu mati, þar sem bók- menntagildi hennar eitt sé lagt til grundvallar. Mér er ekki grun laust um að ýmsir áköfustu að- dáendur hennar hafi mest gam- an af að lðsa pósta á borð við þennan hérna, sem lagður er í munn Sívagós læknis: „Mergurinn málsins er sá, Larissa Fjodorofna, að hvað eina hefur sín takmörk. Á öllum þess- um tíma hefði eitthvað ákveðið átt að ávinnast. En þá kemur í ljós, að þeir sem blésu anda í byltinguna erú ekki heima í neinu öðru en breytingum og "auragangi: þeir eru ekki í ess- Boris Pasternak. inu sínu, ekki ánægðir með neitt minna en á heimsmælikvarða. Að þeirra dómi eru breytingatím- ar, veraldir í sköpun, takmark í sjálfu sér. Þeir hafa ekki fengið þjálfun til neins annars, kuona ekki skil á neinu öðru. Og vitið þér af hverju þessi látlausa hring- iða endalauss undirbúnings stafar Hún stafar af því, að þeir hafa enga raunverulega hæfileka, þeir eru illa gefnir. Menn eru fæddir til að lifa, ekki til að búa sig undir lífið. Lífið sjálft — náðar- gjöf lífsins — er svo geysilega alvarlegur hlutur! Hvers vegna þá að bæta sér það upp með þess- um barnalega loddaraskap ung- æðislegra hugaróra, þessum skóla drengj astrákapörum? “ Þetta er pólitík finnst mönnum líklega, og á móti kommúnism- anum, og þó annað eins hafi nú heyrzt, þá er bara svo gaman að heyra sovétborgara segja það. Það er þetta sem sumum finnst svo spennandi við bókina, — og öðrum svo fráleitt. En burt séð frá þessu er bókin að mínu viti góð, mikið afrek, jafnvel sambærileg við Stríð og frið Tolstojs, Lygn streymir Don Sjolochoffs, með sama rússneska markinu brennd sem þær, skil- getið afkvæmi óendanlegrar víð- áttu þessa lands og hinna miklu fljóta: djúp og breið og lygn. En bygging þessarar sögu er afar laus, orðin mun fleiri en nauðsyn legt virðist. Þráðurinn í henni er ævi Júrí Andréjvits Sívagós læknis frá vöggu til grafar, en hann er alltaf öðru hvoru og stundum langtímum saman á kafi undir öðru efni. Mergð fólks með hartnær ólesanlegum nöfnum kemur og fer og þó nokkur deili séu sögð af því flestu og örlög margra dramatísk, reynir mjög á lesandann að halda réttum átt- um í þessu mannlífsmyrkviði. Þetta er saga um mannlíf á bylt- ingatímum og á slíkum tímum kemur fleirra í ljós en endranær, bæði ljótleiki og fegurð. Paster- nak lýsir horu tveggja, hann tek- ur allt með, en af því hann er sjálfur fegurðardýrkandi og frið- arsinni, þá fær byltingin nei- kvæðan hljóm í frásögn hans, enda þótt hann kunni að meta hugsjónir hennar sumar hverjar. Það er þetta sem veldur því að skáldsagan Sívagó læknir hefur verið dregin inn í pólitísk heims- átök og höfundurinn króaður inni milli tveggja elda og meira þjarmað að honum andlega en dæini eru til Um nokkurt annað skáld í okkar tíð. Andúð Rússa Kos/ð í hverfhkjörstjórn- ir á bœjarstjórnarfundi læknir Á FUNDI bæjarstjórnar í gær fór fram kosning 21 manns i 7 hverfiskjörstjórnir, en 3 mc.m eru í hverri kjörstjórn. — Þessir menn voru kosnir af sameigin- legum lista: Guttormur Erlendsson, Bjarni H. Bjarnason, Hafsteinn Baldvinsson, Björn L. Halldórsson, Magnús Þórðarson, Þorvaldur Lúðvíksson, Axel Krístjánsson, Kristinn O. Guðmundsson, Guðrún Erlendsdóttir, Gísli Einarsson, Hilmar Garðars, Hjörtur Torfason, Ólafur Egilsson, Steinþór Guðmundsson, ísleifur Högnason, Magnús Torfi Ölafsson, Ingólfur Geirdal, Haraldur Jóhannsson, Kristinn Guðmundsson, Lúðvík Gizurarson og Björn Guðmundsson. Sívagó á sögunni er vel skiljanleg, því hún brýtur algerlega í bága við pólitíska trúarjátningu þeirra. Þó mundi sagan ekki hafa valdið þeim neinum álitshnekki í aug- um vesturlandabúa ef þeir hefðu ekki brugðist við henni eins og þeir gerðu. Þeir sönnuðu það með viðbrögðum sínum að and- legt frelsi er meiri takmörkunum háð í Rússlandi en hér hjá okkur og leiddu það jafnframt í Ijós að Boris Pasternak er hugrakkari maður og meiri hetja en flestir aðrir. Það kann að vera að bókin hans varpi skugga á sovétskipu- lagið, en sjálfur varpar hann í staðinn ljóma á Rússland. Aftan við söguna eru prentuð 23 ljóð sem lögð eru í munn aðal- persónunnar, Júrí Andréjvits Sívagós læknis. Sigurður A. Magnússon blaðamaður hefur snúið þeim á íslenzku í prósa- ljóð, framúrskarandi skáldleg og fögur, þó þau hafi að líkindum tapað einhverju af sinni uppruna legu snilld við búningsskiptin. Einkennilega er það til orða tek- ið af útgefendum bókarinnar, þeir segja að Signrður hafi snúið ljóðunum í óbundið mál, slíkt nær engri átt, þau eru að vísu ekki rímuð, en í sérhverri setn- ingu þeirra er ósvikin hrynjandi ljóðs og vendilega bundin. Guðmiundur Daníelsson „Fíiðun niða — frelsi Innds" FRAMKVÆMDANEFND merkis- ins, Friðun miða — Framtíð lands, mun senda til hinna ýmsu hreppa og sýslna nálega 60.000 merki. Unnið er af kappi að gera merki fyrir Reykjavík. AUs hafa til þessa verið prentuð eitthundr- að og tvö þúsund merki, en kjós- endur landsins eru um 96.000. —. Verið er að senda merki til aljra íslenzku sendiráðanna erlendis. Hér í Reykjavík er þegar hafin sala merkja til þeirra, sem vilja senda íslendingum erlendis merk in. Sala þessara merkja fer fram í bókabúð Lárusar Blöndal. Laus staÖa Staða fulltrúa við póstmálaskrifstofuna er laus til umsóknar. Starf þetta er aðallega fólgið í viðskiptaskýrslugerð- um og eftirlitsferðum utan Reykjavikur. Laun samkvæmt VIII. fl. launalaga. Umsóknir skulu hafa borizt póst- og símamálastjórn- inni fyrir 1. desember 1959. PÓST- OG SlMAMÁLASTJÓRNIN 19. okt 1959. Jl JJt vnurinn er indœii — wí Irac^ÁiÉ ejtir JyA iYi ÆEBfil

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.