Morgunblaðið - 21.10.1959, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 21.10.1959, Qupperneq 15
Miðvikudagur 21. okt. 1959 MOHC7rNr>r 4 fíiB 15 i hilltfúaróði S iélaganno i Re Eysfeinn nofar varaskaft- . stjérann fyrir snúningadreng í Tímanum á sunnudaginn tii- kynnti Tíminn með sínu fyrir- feerðarmesta brambolti, að út- svar Eysteins Jónssonar hafi verið lækkað um 5400,00 krónur „án kæru“. Sama dag uppgötvaði I>órarinn Þórarinsson, að hann hefði nú eiginlega alls ekki kært sitt út- svar heldur einungis „óskað eftir þvi við einn niðurjöfnunarnefnd- armanninn, að hann athugaði, hvort úsvarið væri í samræmi víð útsvarsstigann“. Lítilmennska Þórarlns. Af þessu tilefni var þetta bók- að hjá niðurjöfnunarnefnd í fyrra dag: „í tilefni þessa, tekur Haraldur Pétursson fram, að Þórarinn Þór- arinsson hafi persónulega til hans leitað í hinum auglýsta viðtals- tíma nefndarinnar og spurzt fyrir hvort hann gæti fengið lækkað útsvar sitt“. Þórarinn reynir nú að færa sér það til afsökunar, að hann hafi „af tilviljun“ hitt nefndarmann þann, sem hann sneri sér til, Harald Pétursson--------- „-----— á Hverfisgötu fyrir framan Safnhúsið, þar sem hann er dyravörður, en þar liggja leið- ir okkar oft saman. Við ræddum þar góða stund um blaðaskrif þau, sem þá voru byrjuð um út- svarsmálin“. Smekkvísi Þórarins lýsir sér svo í því, að hann segir í beinu framhaldi þessa hafa farið að tala um, að sér „fyndist útsvarið" á sjálfum honum nokkuð hátt. Um það, hvað þeim Haraldi Pét urssyni hafi að öðru leyti farið á milli, stendur fullyrðing gegn fullyrðingu. Haraldur hefur ætíð verið þekktur sem trúverðugur maður, en Þórarinn hefur með réttu það orð sem hæfir ritstjóra Tímans. Eysteinn gerir enn minna úr sér. Ekki verður hlutur Eysteins betri. Hann lætur fyrst neita því, að hann hafi kært. Við þeirri neitun fær hann þetta svar nið- ur j öf nunarnef ndar: „Nefndarmaður getur þess í sambandi við lækkun á útsvari Eysteins Jónssonar, að til sín hafi komið í hinum auglýsta viðtals- tíma nefndarinnar Ragnar Ólafs- son, deildarstjóri á Skattstofunni, og farið fram á lækkun úttsvars Eysteins, vegna breyttra að- stæðna hans. Var Ragnar mættur á fundinum og viðurkenndi frá- sögn þessa rétta“. Eysteinn þorir nú ekki að neita því, að hann hafi beðið sjálfan varaskattstjórann, sérstakan skjólstæðing sinn, Ragnar Ólafs- son, að kæra fyrir sína hönd. Eru það áreiðanlega ekki allir, sem hafa slíkan réttargæzlumnn. Von er að Eysteinn kvarti ekki undan tekjuskattinum á meðan svo er. Þegar Tíminn byrjaði brigsl- yrði sín til annarra, þótti Eysteini hins vegar hyggilegra að hverfa frá kærunni og segist hafa sagt vraskattstjóranum það. Hvað þeim hefur farið á milli veit enginn. En Ragnar Ólafsson afturkallaði aldrei kæruna, þó að Eysteinn játi, að Ragnar hafi tjáð honum, að formaður niðurjöfn- unarnefndar taldi sanngjarnt að útsvarið „væri lækkað eitthvað“. En Eysteinn segir: „Þegar svo auglýst var sem fastast eftir útsvarsgreiðslum um daginn, borgaði ég útsvarið að fullu“. Hver trúir þvi, að Eysteinn hafi allt í einu verið orðinn svo umhyggjusamur um hag bæjar- sjóðs, að hann hafi þess vegna tekið sig til og borgað útsvarið að fuilu fyrir gjalddaga? Auðvitað áttu þetta að vera hyggindi. Eysteinn sá eftir að hafa kært. Taldi að kæran mundi gera Tímanum erfiðara fyrir um rógburðinn um aðra. Þar af kem- ur greiðsluákafinn og tvísöglin OPNAÐAR hafa verið á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé- laganna hverfaskrifstofur á eftirtöldum stöðum í ReykjavíK: VESTURBÆJARHVERFI, Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinuj, sími 23113. NES- OG MELAHVERFI, KR-húsið, Kaplaskjólsvegi, sími 24178. MIÐBÆJARHVERFI, sími 24176. AU STURBÆ J ARH VERFI. Breiðfirðingabúð (uppi), Skólavörðustíg 22 A, sími 24175. NORÐURMÝRARHVERFI, Skátaheimilið við Snorrabraut, sími 24177. HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI, Skipholti 15, sími 10628. L AU G ARNESHVERFI, Sigtúni 23, sími 35240. LANGHOLTS- OG VOGAHVERFI, Langholtsvegi 165, sími 35241. SMÁÍBÚÐA-, BÚSTAÐAVEGS- OG BLESUGRÓFARHVERFI, Breiðagerði 13, sími 35242. Allar skrifstofurnar eru opnar daglega kl. 16—22 og veita ailar venjulegar upplýsingar um kosningarnar. Van Doren glímir við erfiðar sp urniugar. Svikamylla i sjónvarpi ísaf jörður Næsta ferð til ísafjarðar, Þingeyrar, Flateyrar og Súg- andafjarðar verður á föstudaginn kemur. — Vörumót- taka til þess tíma er á Sendibílastöðinni Þresti, Borgar- túni 11 — Sími 22175. ÞÓRÐUR og GUÐJÓN. Aða If u n d u r Iþróttafélags Reykjavíkur verður lialdinn fimmtu- daginn 12. nóvember. D a g s k r á : Venjuleg aðalfundarstörf STJÓRNIN Van Doren undir smásjánni GETRAUNAÞÆTTIR hafa á undanförnum árum verið eitt vinsælasta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum. Margfróðir menn hafa unnið himinháar fjárhæðir fyrir góða frammi- stöðu. Peter Freuchen stóð sig t. d. eitt sinn mjög vel — og eitt sinn kom fram í slíkum þætti undrabarn, lítill snáði, sem virtist kunna skil á öllu milli himins og jarðar. En sá, sem frægastur varð, var Van Doren, enskukennari við Col- umbía-háskólann, sonur Pul- itzer verðlaunahafans, Mark Van Doren. Á árunum 1956 og ’57 vann Van Dorem 129.000 dollara fyr ir frábæra frammistöðu í spurningaþætti bandarískrar sjónvarpsstöðvar. Eikki var um annan meira rætt í Bandaríkjunum en Van Dor- en. Hann þótti lifandi tákn hinnar uppvaxandi kynslóðar, gáfaður og vel menntaður — auk þess sem hann var mik- ill grúskari og kunni deili á flestum hlutum. Hann var þá um þrítugt og kennaralaun hans voru 4,300 dollarar á ári. En frægðin olli miklum breyt- ingum á lífi hans. Bandarískra sjónvarpsstöðin NBC réði hann sem ráðgjafa og fyrir- lesara fyrir 50,000 dollara á ári. En fyrir skemmstu komst sá kvittur á kreik, að getrauna þættir sjónvarpsstöðvanna væru ein svikamylla frá upp- hafi til enda. Sjónvarpsstöðv- arnar sjálfar eiga að vísu sjaldnast þátt í framkvæmd þessara þátta. Heldur er það ýmis fyrirtæki, sem kaupa tíma í sjónvarpinu í auglýs- ingaskyni og í flestum tilfell- um standa þau straum af öll- um kostnaði. Fyrirtækin ráða þá „spurningameistara", sem sjá um alla framkvæmd og bera ábyrgð á öllu. Og nú komst upp um einn „spurn- ingameistarann". Maður nokk ur, sem unnið hafði álitlega fjárhæð, hafði reiðzt „meistar- anum“, þegar vinningurinn var til þurrðar genginn og eng in von á meiru. Sagði sá, að þeir, sem kæmust eitthvað álexðis í getraunaþáttunum fengju yfirleitt að vita svörin við spurningunum áður en þátturinn hæfist — og svo væri þeim sagt að leika af lífs og sálar kröftum, þegar þeir væru að rembast við að mun svörin — og halda áhorf- endum í eftirvæntingu eins lengi og hægt væri. Fréttirnar þóttu ekki góðar. Bandaríkjaþing tók síðan til sinna ráða. Viðkomandi þing- nefnd hóf yfirheyrslur og margir voru afhjúpaðir. — „Spurninga-meistararnir" ját- uðu í einlægni, að aðeins hefði vakað fyrir þeim, að setja á svið skemmtilegan og spenn- andi spurningaþátt — og einn sagði, að 75% af hans spurn- ingaþáttum hefðu verið svik. Flekklausir menn hefðu látið freistast til samvinnu vegaa frægðar og fjármuna sem i vændum voru. Við eina yfirheyrzlu kom það m. a. fram, að sjálfur Van Doren hafði tekið út fyrir- fram 5,000 dollara „fyrir jóla- gjöfum", enda þótt að sam- kvæmt reglunum hefði hann getað tapað öllu því, er hann hafði þá unnið (20,000 doll- ara). Enginn hafði grunað Van Doren, mönnum hafði sízt dottið það í hug. Hann var boð aður á fund þingnefndarinn- ar, en hann kom ekki. Van Doren var horfinn. En núna fyrir helgina kom hann loks fram — og mætti fyrir nefndina. NBC sjónvarps stöðin hafði þá sagt honum upp vegna grunsemdanna, sem vaknað höfðu þegar hann birt ist ekki í nefndinni á tilsett- um tíma. Van Doren sór, að hann hefði ekkert óhreint i pokahorninu. En ekki eru öll kurl komin enn til grafar. Van Doren er enn undir smásjánni og aðdáendum hans er nú hætt að litast á blikuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.