Morgunblaðið - 21.10.1959, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.10.1959, Qupperneq 22
22 MORcrnvnr. aðið Miðvik'udagur 21. okt. 1959 Tillögur ger&ar um hœín- isþrautir í handknaftleik Svíar um það bil aB hrinda málinu í framkvœmd DANSKA handknattleikssambandið mun á stjórnarfundi sínum 1. nóvember taka til umræðu tillögu um að stofnað verði til hæfms- þrauta innan dansks handknattleiks. Verður samkvæmt fyrirliggj- andi tillögum hægt að vinna til brons-, silfur- og gullmerkis eftir því hversu erfiðar þrautir eru leystar af hendi. A Þrautirnar. Þetta fyrirkomulag er tekið upp til þess að auka getu og tækni handknattleiksmanna. Dan ir eru að hugsa um þetta eftir fyrirmynd frá Svíþóð og Noregi. Svíarnir eru þegar komnir svo langt að þeir hafa gert samþykkt um þrautirnar og sent til ein- stakra félaga. Tillaga Dana er að reynt verði að koma á samvinnu þeirra og Svía og Norðmanna um fram- kvæmd þrautanna. Tillögur Svía um einstakar þrautir, eru þannig: 1. þraut. Knetti er stillt í mark- ið á mismuandi hátt í nálægð markstengur. Þennan knött á að hitta með skoti frá markteig. Krafizt er að hitt sé 8 sinnum tli gullmerkis, 6 sinnum til silfur og 5 sinnum til bronsmerkis af 10 tilraunum. 2. þraut. 20 metra hlaup. Lág- markstími: gull 3,8 sek., silfur 4,1 sek., brons 4,4 sek. 3. þraut. „Svig“-knattleik milii 10 flaggstanga sem settar eru upp með 2 metra millibili. 4. þraut. Markkast frá 20 metra færi. Arsþing F. R. í. AF SÉRSTÖKUM ástæðum hef- ur reynzt nauðsynlegt að fresta Ársþingi Frjálsíþróttasambands íslands, sem ákveðið var 7.—8. nóvember n.k. til 21.—22. nóvem- ber n.k. Frestur til að skila tillögum til ársþingsins framlengist til 10. nóvember. 5. þraut. Knattrek frá 15 metra fjarlægð síðan viðstöðulaust skot í mark frá markteig. Skotið þarf að hitta fjarlægari markstöng og fara í netið. Af 10 tilraunum skulu 6 heppnast til gullmerkis, 4 til silfurmerkis og 3 til bronse- merkis. 6. þraut. „Hoppskot". Knöttur- inn verður að hitta stöng og fara í netið. Skal þetta takast 6 sinn- um af 10 til gullmerkis, 4 sinn- um af 10 til silfurmerkis og 3 til brons merkis. 7. þraut. Nákvæmnisskot. Fjar lægð 5 metrar frá markteig. Skot ið skal fara milli tveggja snúra, sem strengdar eru 50 sm undir þverslá marksins og 60 sm frá gólfi. Af 10 tilraunum skulu 6 heppnast til gullmerkis, 4 til silfurmerkis og 3 til bronsmerkis. Erfiðar beztu handknattleiks mönnum. Þrautirnar 7 gefa til kynna við bragðsflýti, knattleikni og skot- hæfni leikmannsins. Sumar þraut anna— einkum 5. og 6. — eru svo erfiðar, að flestir beztu hand knattleiksmenn mundu eiga erfitt með að leysa þær. Norðmenn hafa gert tillögu um að hafa þrautirnar fleiri og taka upp í þeim mismunandi marx- kastsaðferðir — og auk þess að fá þraut, sem leysa þarf með lak- ari hendi. Norðmenn hafa auk þess stungið upp á að liðin í heild verði reynd í hraðaæf- ingum og nákvæmni t. d. með „sendinga-boðhlaup“. Danir bíða spenntir eftir að sjá hvernig félögin í Svíþjóð taka til lögunum. Væri ekki tilvalið að taka þetta mál til umræðu hér á landi? ENN er verið að fullgera nýtt bílastæði hér í Miðbænum. Hafa bæjaryfirvöldin tekið hið gamla Dillonshús í sína vörzlu, en þar bjó eitt sinn Jónas Hallgrímsson. Verður húsið flutt næsta sumar upp að Árbæ. Jafn- framt hafa bæjaryfirvöldin nú látið rífa grindverkið, sem var í kringum lóðina, og áður en langt um líður verður opnað á lóðinni stæði fyrir 12—14 bíla. Hafa verkamenn írá Reykja- víkurbæ unnið að því undan- farið að gera þetta hílastæði. Úr Austur-Skagafiroi Tékkar léku sér að Dön- um, sem köttur að mús DANIR léku landsleik við Tékkó- slóvakíu á sunnudaginn. Leikur- inn fór frarri í Brno í Tékkóslóva- kíu og sigruðu Tékkar með yfir- burðum 5 mörk gegn 1. Þessi leikur var liður í bikar- keppni landsliða í Evrópu. Er þar leikin tvöföld umferð og höfðu Tékkar og Danir áður mætzt í Kaupmannahöfn. Þá varð jafn- tefli 2:2. Eftir þetta tap er danska landsliðið úr keppninni. Allmikill vindur var er leik- urinn fór fram og léku Danir undan honum í fyrri hálfleik Þeim tókst að skora mark uni miðbik hálfleiksins og olli það mikilli ringulreið í liði Tékkanna, svo að leikur þeirra var nei- Londsliðsmerki í kðrinknattleik SÍÐASTLIÐIÐ miðvikudags- kvöld hélt íþróttasamband ís- lands (ÍSÍ) hóf í Tjarnarcafé uppi. fyrir þá, sem hlotið höfðu verðlaun á Körfuknattleiksmóti íslands 1959. Forseti ÍSÍ, Ben G. Waage, af- henti sigurvegurunum verðlaun sín með ræðu. Minnti hann fyrst á áfanga í sögu körfuknaaleiks- ins, sem náðst hefðu, sérstaklega á þessu ári, bæði með inngöngu ÍSÍ f Alþjóða-körfuknattleiks- sambandið (F.I.B.A.), dómara- námskeið ÍSÍ, þar sem þátttak- endur voru 42; einnig fyrsta míUirikjakappleikinn við Dani s.l. sumar, og loks á hinar nýju leikreglur, sem út komu á árinu og gilda jafnt fyrir konur sem karla. Þá afhenti hann sigurvegurun um verðlaun, en þeir voru þess ir: Meistarflokkur kvenna, Glímufél Ármann, sem fékk körfuknattleikskönnuna, er Jak- ob V. Hafstein hafði gefið til verðlauna. Einnig fengu stúlk- urnar Meistarapening ÍSÍ. IV. flokkur karla Í.R., sem fékk silfurbikar á stalli, sem Landssmiðjan hafði gefið. III. fl. karla, Glímufél. Ár- n»ann, fékk styttu af körfuknatt leiksmanni, sem Sveinn Snæland hafði gefið. H. fl. karla, Í.R., körfuknatt- leiksstyttu, sem gefin var aí Vali Pálssyni & Co, Alla þessa gripi verður að vinna þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Meistaraflokkur karla, íþrótta fél. Stúdenta, fékk Meistarabik- arinn, sem Lockhead flugfélagið gaf á sínum síma, og íþróttafélag Keflavíkurflugvallar hafði áður unnið fjórum sinnum, en ÍR þrisvar sinnum. Þá var þessum átta mönnum afhent Landsdómaraskírteini ÍSÍ: Davíð Helgason (Á), Guð- mundur Aðalsteinsson ÍR), Haukur Hannesson (ÍR), Helgi Rafn Traustason (KFR), Ingi Þorsteinsson (KFR), Kristinn Jó hannsson (ís), Viðar Hjartar- son (ÍS) og Þórir Arinbjarnar- son (ÍS). Loks afhenti Ben. G. Waage Landsliðsmerki ÍSÍ þeim tólf leikmönnum, sem tóku þátt i milliríkjakeppninni við Dani s.l. sumar. í sama hófi afhenti Sigurgeir Guðmannsson, framkv.stj. ÍBR, Svavari Markússyni, (KR), For- setabikarinn fyrir bezta afrekið á 17. júní-mótinu 1959, sem var í 1500 m. hl. á 3:57,4 mín., sem er 952 stig, skv. stigatöflunni. Að síðustu afhenti formaður Körfuknattleiksráðs Reykjavík- ur,Ingólfur Örnólfsson ÍSÍ að gjöf stóra ljósmynd í ramma af leikmönnum, þjálfara og farar- stjórum fyrsta landsliðs íslend- ings í körfuknattleik. kvæður það sem eftir var til hlés. Eftir hlé komu Tékkar til leiks sem nýir menn. Og eftir 1 / mín- útur stóð 4:1 þeim í vil. Höfðu þeir þessar 17 mín. gersamlega leikið Danina sundur og sarnan svo leikurinn minnti á leik katt- ar að mús. Danir á áhorfenda- bekkjunum bjuggust við öllu hinu versta. — En Tékkar linuðu tök sín á leiknum og drógu úr sókninni en léku sér eftir sem áður að Dönunum. Fyrir leiks- lok bættu þeir 5. markinu við. Þetta er einn af stærstu ósigr- um Dana á knattspyrnuvelli og þykir þeim sigur Tékka helzt til mikill — og láta reiði sína óspart bitna á einstökum leikmönnum. Þannig fær fyrirliði danska liðs- ins Poul Petersen illa útreið og er þess víðast krafizt að hann víki úr liðinu um sinn. HOFÐASTRÖND, 1. október. — Eins og víðast hvar annarsstaðar var ágúst og september fram að göngum mjög óþjáll til fanga til sjós og lands, rigningar, stormar og jafnvel snjóaði í fjöll, en nú hefir brugðið til hins betra. Suð- austan áttin, sem alltaf er mjög hagfeld hér í Skagafirði, hefir verið ríkjandi nú um tíma svo að menn til lands og sjávar hafa að miklum mun getað lagað fyrir sér um margt. Haustgöngur eru að mestu af staðnar, en þó að sæmilegt skyggni og gangnaveður hafifeng izt víðast hvar þá eru heimtur ekki vel góðar, og telja margir að þar ' eigi hlut að vorhretin tvö, sem yfir gengu. Dilkar, sem nú er verið að lóga, eru líka mjög misjafnir, en eins og venju- lega skera sig úr heimili, sem alltaf eru með rigvænt fé eða um 16 kg. meðalvigt. Sláturtíð stend- ur enn yfir og er því ekki vitað hvernig heildin verður. Allir eru búnir að hirða hey sín að ég veit til. Þau seinustu, er náðust voru léleg en mikil að vöxtum svo að líklega hafa þau sjaldan verið meiri. Uppskera úr görðum er talin misjöfn, mjög víða er þó tíföld uppskera miðað við útsæðisstærð og stærra. Teljum við það mjög sæmilega uppskeru. Rófur hafa sprottið vel en eru bara svo Iranskeisari hyggur á hjónaband TEHERAN, 20. október. — Það * er haft fyrir satt, að íraiiskeisari muni innan fárra daga opinbera trúlofun sína með 21 árs íranskri stúlku, Frah Diba, sem leggur stund á byggingalist í París. en dvelst um þessar mund- ir í Teheran. Engin staðfesting hefur fengizt á fregninni hjá hirðinni, en trúlofunarfréttin er heldur ekki borin til baka. Fullvíst er talið, að keisarinn gera ráðahaginn opinberan á 40 ára afmæli sínu þann 27. októ- ber, eða þegar hann kemur heim úr hinni opinberu heimsókn til Jórdaníu i byrjun nóvember. Keisarinn hefur tvisvar verið giftur, en skildi í bæði skiptin vegna þess að konur hans gátu ekki alið honum erfingja. Fyrri kona hans var Fawiza prisessa, systir Farouks fyrrum Egypta- landskonungs, en Soraya var síð- ari kona hans. Soraya dvelst nú með foreldrum sínum í Þýzka- landi. Skák Friðriks Benkös Hvítt: Pal Benkö Svar: Friðrik Ólafsson 1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4. Da4f c6 5. dxc4 Bg4 6. Rbd2 g6 7. g3 Bg7 8. Bg2 0-0 9. 0-0 Ra6 10. b3 c5 11. Bb2 Rd5 12. Hadl cxd4 13. Rxd4 Rb6 14. Dd3 e5 Hér átti Benkö 10 mín. eit- ir, en Friðrik 20 mínútur. 15. h3 Bd7 16. Rc2 e4 17. Dxe4 Bxb2 18. Dxb7 Rc5 19. Df3 Hc8 20. Rb4 Df6 Benkö átti eftir 3 mínútur, Friðrik 10 minútur. 21. Dxf6 Bxf6 22. Kh2 Hfe8 23. e3 Bb5 24. Hfel Bc3 25. Rd5 Rxd5 26. Bxd5 Rd3 27. Hgl Rxf2 Benkö hafði ekki tíma til að gefast upp — átti aðeins sekúndur eftir. 28. Rc4 Bxc4 29. bxc4 Rxdl 30. Hxdl Hxe3 og Benkö féll á tíma með glataða stöðu. óvíða ræktaðar að skömm er að, en undanfarin ár hefir maðkur herjað svo mikið á þennan jarð- ávöxt að menn hafa trénast upp við að rækta rófurnar. Ennþá er unnið á vegarlagn- ingu á Siglufjarðarvegi frá Hofs ósi og mun nú vera að mestu búið að undirbyggja út að Sandósi rétt innan við Haganesvík. Á næsta ári vonar maður að þessi lang- þráði vegarspotti komist í ak- vegasamband. Tel ég þetta vera einn þarfasta veg, sem gerður hefir verið hér í Skagafirði nú um margra ára bil. Byrjað var á sprengingum í Strákum í s-um- ar og er mér sagt að þar líti vel út með áframhald. Á Almenningi utan við Hraun var byrjað á vegarlagningu, en aðallega held ég að þar sé um bráðabirgðaveg að ræða svo að hægt sé að ílytja stærri vinnuvélar lengra út. Ennþá er unnið af fullum krafti eða það sem vinnuvélar Búnaðarsambands geta gert og nú eftir réttir eru bændur að byrja á jarðræktarvinnu og öðru þv£ er þeir geta orkað með sín- um eigin vélum. Sjósókn var mjög stopul í ágúst og fyrri hluta september,' en nú hafa verið stillur um tíma og fiskur mjög sæmilegur. Und- anfarið hefir aflast töluvert af kolbrabba (smokkfiski) hér inni á firðinum og virðist þá skipta nokkuð um til hins betra er hon- um var beitt. Allir eru nú önnum kafnir bæði til sjós og lands. Menn þrá að tíðarfarið haldist ennþá við þetta sama, svo áð ekki þurfi að svo stöddu að taka kýr og lömb á fulla gjöf. Heilsufar íólksims er að ég held mjög sæmilegt. Læknirinn er líka að stimpla og skoða kjöt- ið okkar og hefir því nóg verk- efni á því sviði, enda má eng- inn vera að því nú í sláturtið- inni að verða neitt alvarlega las- inn. — B. Afli Ólafsvíkui- bóta ÓLAFSVÍK, 19. október. — Um miðjan mánuðinn voru 7 bátar byrjaðir hér á línu, og aflinn í fyrri hluta mánaðarins var sem hér segir: Skallarif 43 tonn í 10 róðrum, Brynjar 28 tonn í 8 róðr- um, Týr 24 tonn í 6 róðrum, Jón Jónsson 20 tonn í 5 róðrum, Fróði 12 tonn í tveimur róðrum, Bjarni Ólafsson 11 tonn í þremur róðr- um og Hrönn 5 tonn í einum róðri. Ennfremur leggja hérna upp 5 bátar, sem eru á handfæraveið- um og hefur afli þeirra verið 1—2 lestir á bát, þegar gefið hefur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.