Morgunblaðið - 11.11.1959, Side 2
2
MORGVNBT AÐ1Ð
Miðvikudagur 11. nóv. 1959
Happdrættið -
hæstu vinningar
BÁÐIR hæstu vinningarnir í 11.
flokki Háskóla-happdrættisins
komu á fjórðungsmiSa. Hæsti
vinningurinn, 100,000 krónur, á
nr. 24938, og eru miðarnir allir
í sama umboði, hjá V. Long í
Hafnarfirði. 50 þúsund króna
vinningurinn kom á miða nr.
13646. Eru tveir miðanna í
Hólmavíkurumboðinu, einn í Ak-
ureyrarumboðinu og sá fjórði í
umboðinu í Bankastræti 11, hér
í bæ.
10.000 kr. : 8743 13329 17866
17991 21835 31192 31703 39930
40447 42528 49545.
5.000 kr.: 10947 16931 20343
20583 21260 24432 24937 24939
26527 47212. 29341 33835 36896 47172
1 þessum flokki eru vinningar
alls 1102 og vinningsupphæðin
samtals kr. 1.405,000,00.
(Birt án ábyrgðar)
Krús/eíf heimsækir Frakk-
land í marz
De Gaulle vill tvo fundi vestrænna
leiðtoga fyrir fund æðstu manna
austurs og vesturs
PARÍS, 10. nóv. (Reuter) — Um
700 fréttamenn, innlendir og er-
lendir sóttu fund þann, er de
Gaulle forseti hélt hér í dag. —
Þar lýsti forsetinn því yfir, að
Krúsjeff, forsætisráöherra Sovét
ríkjanna, myndi koma í 16 daga
heimsókn til Frakklands hinn 15.
marz nk. — Hann kvaðst vænta
mikils og góðs árangurs af fundi
leiðtoga Vesturveldanna, sem
haldinn verður í París 19. des. —
og lét í ljós þá skoðun, að halda
bæri annan slíkan fund í vor, áð-
ur en fundur æðstu manna aust-
urs og vesturs hefjist, sem vænt-
anlega verði seint í apríl eða maí.
— Hann fagnaði ofa væntanlegum
heimsóknum Adenauers, kanslara
Vestur-Þýzkalands, og Selwyns
Lloyds, utanríkisráðherra Bret-
lands, til Parísar.
Minnkandi spenna
í sambandi við komu Krúsjeffs,
lét de Gaulle svo ummælt, að
hann væri þeirrar skoðunar, að
nú mætti sá þess glögg merki, að
Sovétríkin vildu nú draga úr
— Slysið
Framh. af ols. 1.
hafði verið skólastjóri á Hólma-
vík þangað til í vor. Hafsteinn
lætur eftir sig konu, Ester Ing-
varsdóttur frá Þrándarholti í
Gnúpverjahreppi, og eitt barn.
Jón var einhleypur, lætur eftir
sig tvö börn.
Gísli Gíslason var ættaður frá
Akranesi, sonur Gísla Vilhjálms
sonar, forstjóra. Hann fluttist
norður fyrir tveimur árum, og
lætur eftir sig unnustu í Hofsósi
og tvö börn. Þeir Gísli og Haf-
steinn keyptu sitt húsið hvor
í Hofsósi í vor og bjuggu þar.
Frosti vonandi úr hættu
Frosti lá og andæfði framan
við Hofsós allan mánudaginn og
í gær. Var stórhríð og stormur
og foráttubrim, og báturinn því
í talsverðri hættu. Sást ekki til
bátsins í gærmorgu . en báts-
verjar höfðu samu.,.^ við S.-.uð
spennu í alþjóðamálum. Hann
kvaðst ekki miða eingöngu við
orð og yfirlýsingar sovézkra ráða
manna. Afstaðan undanfarið til
ýmissa viðkvæmra deilumála
bæri vott um, að Sovétríkin forð-
uðust nú að „hella olíu á eldinn“.
Minntist forsetinn m. a. á Berlin-
ardeiluna og landamæradeilu
Indlands og Kína í þessu sam-
bandi. — Sovétríkin hafa m. a. s.
ekki tekið fyllilega undir þann
„illyrðakór", sem nú er kyrjaður
yfir Frakklandi í sambandi við j
fyrirhugaðar kjarnavopnatilraun
ir, Alsírmálið o. fl., sagði forset-
inn.
„Gula hættan“
Rússnesku leiðtogarnir virðast
farnir að skilja það, sagði de
Gaulle, að slíkur hernaðarmáttur,
sem Sovétríkin og vesturveldin
ráða nú yfir, getur ekki leitt til
annars en tortímingar, ef honum
er beitt — og, að þegar svo er
komið, er ekki um annað að gera
en að reyna að tryggja friðinn. —
Enn fremur munu Rússar gera
árkrók um talstöðina. I bátnum
eru 4 menn, skipstjórinn Þor-
grímur Hermannsson, Uni. fóst-
ursonur hans, Hjalti Gíslason og
Sigurbjörn Jónasson allir frá
Hofsósi. Voru þeir félagar mat-
arlausir en höfðu eldsneyti.
Seinni hluta dags í gær var hægt
að koma mat fram í bátinn. Þá
hafði veðrið heldur gengið nið-
ur og kvikan var minni. Enn var
þó stórbrim og komst báturinn
ekki upp að. Vonuðust menn til
að hann væri úr hættu.
Bátarnir Svanur og Frosti eru
einu dekkbátarnir, sem gerðir
hafa verið út frá Hofsósi að und
anfömu, en auk þeirra eru gerð-
ar þar út 15—20 trillur. Legan
þar er góð, nema þegar hann er
norðanstæður, en þá leiðir mik-
ið brim inn í höfnina. Hefur
lengi verið ætlunin að fá hafnar
garðinn lengdan, en ekki tekizt
að koma því í framkvæmd. Nú
hefur fengizt loforð fyrir því að
bryggjan verði lengd á næsta
sumn.
sér ljóst, sagði forsetinn, að þeir
eru „hvít þjóð“, sem kann að
vera í hættu fyrir „gula fjöldan-
um“ — þ. e. Kína. Kínverska
kommúnistaveldið verður æ öfl-
ugra — og er farið „að líta í kring
um sig eftir útþenslumöguleik-
um.“
Sanngjörn skilyrði
Forsetinn vék að Alsírtillögum
sínum. Hann sagði m. a. í bví
sambandi, að leiðtogar í Alsír
væru velkomnir til Frakklands,
hvenær sem væri til þess að ræða
möguleika á því að koma á friði
í landinu. Skilyrði Frakka í því
1 efni eru heiðarleg og sanngjörn,
sagði de Gaulle. Hann sagði að
sendiherrar Frakklands í Túnis
og Rabat mundu skipuleggja
ferðir foringja uppreisnarmanrta
til Frakklands, ef til kæmi, og
tryggja öryggi þeirra, svo sem
framast væri unnt.
Aðspurður um fyrirhugað-
ar karnavopnatilraunir Frakka,
sagði forsetinn, að Frakkland
væri að stuðla að betra jafnvægi
í heiminum með því að búast
kjarnavopnum. Ef Sameinuðu
þjóðunum tækist hins vegar að
| koma á „víðtækum afvopnunar-
samningum", þá mundi Frakk-
land gangast undir slík alþjóða-
lög „þegar í stað og hiklaust.“
Viðbrögð
Sovézka fréttastofan Tass stað-
festi það í kvöld, að Krúsjeff
mundi fara í opinbera heimsókn
til Frakklands um miðjan marz
i nk.
Það er almennt álit frétta-
manna í París, að de Gaulle hafi
nú séð svo um, að fundur æðstu
manna austurs og vesturs verði
ekki fyrr en í apríl eða maí í vor.
Nokkurra vonbrigða gætir í Bret-
landi út af þessu, og sagði Mac-
millan, forsætisráðherra, á þingi
í dag, að brezka stjórnin væri em,
þeirrar skoðunar, að flýta bæri
fundi æðstu manna eftir föngum.
Minnt er á það í London, að Sel-
wyn Lloyd, utanríkisráðherra, fer
til Parísar í vikunni — og telja
sumir fréttamenn ekki ólíklegt,
að enn megi takast að fá franska
ráðamenn til þess að fallast á
fund austurs og vesturs upp úr
áramótum.
Fréttir frá Washington herma,
að þar sé talið, að ekki geti orðið1
af fundi vestrænna leiðtoga með
I Krúsjeff fyrr en að vori úr þessu.
H É R sjást nokkrar af
þeim mörgu, fögru meyj-
um sem tóku þátt í „Miss
World“ fegurðarkeppn-
inni í Lundúnum — talið
frá vinstri eru þær full-
trúar: Finnlands, Sví-
þjóðar, Islands — Sigur-
björg Sveinsdóttir — V-
Þýzkalands, Danmerkur,
Austurríkis, Brazilíu og
S-Afríku. — Sjá frétt
um úrslit keppninnar á
blaðsíðu 19.
Spilakvöld
HAFNARFIBÐI. — Félagsvist
Sjálfstæðisfélaganna er í Sjálf
stæðishúsinu í kvöld og hefst
kl. 8,30. VerSlaun verða veitt.
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIÐ Sókn í Keflavík heldur
fund í Sjálfstæðishúsinu í Kefla-
vík í kvöld 11. nóv. kl. 9 sd.
Áríðandi mál á dagskrá. Sjálf-
stæðiskonur eru beðnar að fjöl-
menna á fundinum.
Ömurlegt ástand í höf-
uðstað Norðurlands
AKUREYRl, 10. nóv.
H É R er mikið vetrarríki,
kuldi og myrkur á heimilun-
um og bærinn sjálfur er ein-
angraður, á landi og í lofti. í
kvöld veit enginn hvenær
vænta má að úr rætist.
1 nokkrum stórfyrirtækjum,
svo sem verksmiðjum SÍS og
KEA, blika Ijósin, svo og í bönk-
unum, og gamla Glerárstöðin sér
spítalanum fyrir rafmagni.
Skólarnir eru lokaðir að und-
anskyldum Menntaskólanum sem
starfar meðan lesbjart er.
Fyrir heimilin er kuldinn einna
alvarlegasta málið, enda hefur
lögreglan haft um það forgöngu
í dag, að koma fólki úr köldum
húsum, til skammrar dvalar í
upphituðum húsum. Hér eru all-
ir vitafréttalausir af því sem er
að gerast, því flugvélarnar munu
ekki hefja flug hingað fyrr en
rafmagnið er komið í lag. Örygg-
istæki flugvallarins eru öll raf-
knúin, svo sem ratsjá og vitar.
Skiptir engu máli þó bjart sé, að
flugvélarnar munu ekki koma
hingað fyrr en þessi öryggistæki
eru komin í samband á ný.
Umferð í bænum er lítil, og
fara menn ekki annað en brýn-
ustu erinda, sjást menn helzt í
ófærðinni á ferð með olíubrúsa
eða mjólkurflöskur. Er ástandið
í höfuðstað Norðurlands santiar-
LONDON, 9. nóv. — Tveir flóttamenn
frá Ungverjalandi voru í dag dæmdir
liér fyrir innbrot. — Þeir hafa dvali/.t
í Englandi síðan í uppreisninni 1956,
en vegna afbrota þeirra, kann heim
nú að verða vísað úr landi.
---•-----
AMMAN, 9. nóv. — Hussein Jórdaníu-
konungur fer á morgun tii Evrópu og
mun dveljast þar sér til hvíldar og
hressingar um mánaðarskeið.
lega ömurlegt, en vissulega bæt-
ir það úr skák, að frost er ekki
mikið. — vig.
Árni Grétar Finns-
son formaður
stúdentaráðs
Svo sem kunnugt er, fóru
kosningar til stúdentaráðs fram
laugardaginn 31. október s.l. Hið
nýkjörna stúdentaráð kom í
gær saman til fyrsta fundar. Fór
þar fram kosning stjórnar, og
var Árni Grétar Finnsson stud.
jur. efsti maður á lista Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta, kosinn formaður stúdenta-
ráðs. Gjaldkeri var kosinn Jón-
atan Sveinsson stud. jur. fulltrúi
Stúdentafélags jafnaðarmanna og
ritari Jóhann Gunnarsson stud.
philol. fulltrúi Þjóðvarnarfélags
stúden^a.