Morgunblaðið - 12.11.1959, Blaðsíða 1
20 stður
46. árgangur
252. tbl. — Fimmtudagur 12. nóvember 1959
Prentsmiðja Morgimblaðsin*
Milliónatjón og fjárskaðar í óveðrinu
Hiargt fé í fonn,
en leitir hafa
borið allgóðan
árangiir
TÍÐINDAMAÐUK blaðsins á
Norðurlandi átti í gær tal við
allmarga staði í Eyjafjarðar-
og Þingeyjarsýslum, og leit-
aði fregna um afleiðingar af
völdum óveðursins, sem þar
gekk yfir um síðustu helgi. —
Sagðist þeim svo frá: •
ÓLAFSFIRÐI, 11. nóv. —
EINS og skýrt var frá í blað-
inu síðastl. þriðjudag, urðu
skemmdir á skjólvegg hafn-
argrarðsins i Ólafsfirði í ó-
veðrinu mikla, sem skall yfir
Norðurland sl. sunnudag. Haf
rótið undanfarna 3 daga hef-
ur verið svo mikið, að ekki
hefiur verið fært út á hafnar-
garðinn fyrr en í dag. Það er
því fyrst nú að hægt hefur
verið að gera sér grein fyrir |
því, hve miklar skemmdirn-
ar eru. Reyndust þær miklu
meiri en menn héidu. Xvö
skörð hafa myndast í skjól-
garðinn, annað 10 metra langt
og hitt um 20 metrar. Bryggj-
an ofan við steinkerin hefur
brotnað undan þunganum,
þegar skjólveggurinn brast á
hana. Ennfremur hefur efra
kerið sigið að ofanverðu, og
skarð þvi myndast á milli
keranna. Olíuleiðslur, sem
liggja fram með hafnargarð-
inum, rifnuðu og upp og slitn
uð*u. Er áætlað að tjónið á
mannvirkjum nemi milljón-
um króna.
Hér hefur kingt niður mikl-
um snjó, og eru allar sam-
göngur innan og utan bæjar-
AKUREYRI. — Hér er urínið
við að ryðja snjó af götum, en
hann var orðinn mjög mikill, og
ófært öllum venjulegum farar-
tækjum. Var þegar í gær lokið
við að hreinsa götur í miðbæn-
um. Enn vax þá rafmagnslaust,
og allt í óvissu, hvenær rafmagn
ið er væntanlegt. Talsvert er gert
af því að breyta upphitunarút-
búnaði í húsum með það fyrir
augum að koma fyrir kolakynd-
ingu. Víða er svo háttað, að olíu
kyndingartæki hafa verið sett í
kolakatla. Það er því mikið að
gera hjá þeim sem sjá um sölu
og dreifingu kola, og mun það
að vera fremur óvenjulegt. Að
öðru leyti er notazt við olíutækí
til eldunar matar og lýsingar
þegar dimma tekur.
SAURBÆR í EYJAFIRÐI. —
Úr fram-Eyjafirði er allt hið
bezta að frétta, enda gætti stór-
hríðarinnar þar ekki. Er aðeins
grátt í rót, og snjór enginn að
kalla. Allir vegir eru færir.
BÆGISÁ 1 ÖXNADAL. —
Svipaða sögu er að segja úr
Öxnadal og Hörgárdal. Þar var
fannkoma nokkur, en stórhríð
engin. Gekk á með éljum af og
til. Færð um dalina er sæmileg,
og talið vel bílfært yfir Öxna-
dalsheiði.
HRÍSEY. — Hér urðu engin
tjón af völdum óveðursins. Trillu
Framh. á bls. 2.
Það þýðir lítið að taka sér far með þessum vörubíl um Akureyrarbæ. Hann kemst varla langt á næstunni. Þá er skárra að ganga.
Ljósm. vig
Eeðið í 3 ár með aftökuna því j 5 a |
jbe/r voru oí ungir £0%™»f «g,faáVemuá
KAUPMANNAHOFN: — 31 ung-
verskir ættjarðarvinir hafa ný-
lega verið teknir af lífi, en þeir
voru handteknir í uppreisninni
1956 og hafa setið í fangelsi síð-
an. Það, sem einkum vekur at-
hygli í sambandi við aftöku þess-
ara manna, er að þeir voru allir
of ungir til af líflátast 1956, og
því var beðið þar til þeir voru
orðnir þremur árum eldri.
Voru þessar upplýsingar hafð-
Thorez kom með
nýja línu ab austan
PARÍS, 11. nóv. Franski komm-
únistaflokkurinn játaði í dag al-
varleg mistök. Málgögn flokksins
höfðu fordæmt mjög Alsír-áætl-
un de Gaulle og einnig hvatt
menn til þess að virða að vett-
ugi boð um að vera viðstaddir
móttöku Eisenhowers í ráðhúsi
borgarinnar. Áttu menn þannig
að láta í Ijós andúð sína á Banda-
ríkjunum.
Thorez, foringi franskra komm
únista, sagði hins vegar í ræðu í
gær, að hér væri um mistök að
ræða. Menn skyldu taka á móti
Eisenhower og ekkert væri við
Alsír-áætlun de Gaulle að athuga.
Foringjum kommúnista hefði orð
ið skyssa á, þegar stefnan var
mörkuð í þessum málum.
Þess skal getið, að Thorez var
að koma frá Moskvu og í ræðu,
sem Krúsjeff flutti 31. október
hældi hann de Gaulle á hvert
reypi fyrir Alsír-áætlunina.
hefir í stuttri heimsókn í Kaup-
mannahöfn. Er hann ritstjóri
tímaritsins Nemzetör, sem land-
flótta Ungverjar gefa út. í rit-
inu er greint frá nöfnum þessara
ungversku frelsirvina og að þeir
hafi verið líflátnir á tímabilinu
15. júní til 1. sept.
Ungverskir verkamenn og
námsmenn
Hinir líflátnu voru ýmist verka
menn eða stúdentar og allir inn-
an við þrítugsaldur. Sá yngsti var
17 ára en margir þeirra á aldrin-
um 20—22 ára.
— Hefnarþorsti hinna ung-
versku leppa heldur þannig á-
fram þremur árum eftir að þeir
lýstu yfir friðarvilja sínum. Hin-
ir líflátnu dóu i anda frelsisins,
segir hið ungverska tímarit m.a.
MANCHESTER, 11. nóv. —
rVísindamenn á Jodrell Bank
l stjörnua thugunarstöðinni i
, Bretlandi skýrðu í dag frá
í merkum áfanga. Þeim hafði
\ tekizt að senda radio-bylgjur
til Venusar og taka við þeim
? aftur. Vegalengdin er um
[30.000.000 mílur — og líðu 5
Ímínútur frá því að bylgjurn-i
|ar voru sendar — þar til þær1
Ibárust aftur til jarðar.
ISegja vísindamennirnir, aff
/endurvarp Venusar hafi orðið
[minna en reiknað hafi verið
imeð. — Bandarískin vísinda-
ímenn höfðu áður náð „sam-
íbandi“ við Venus með ratsjá.
Eisenhower heimsækir Franco
— og d fund með Bourguiba
EISENHOWER Bandaríkjafor-
seti mun sækja Franco heim að
loknum Parisarfundi hans við
Macmillan, Adenauer og de
Gamlle, en hinn venjulegi ráð-
herrafundur NATO verður og
samtímis haldinn i París.
í tilkynningu, sem gefin var út
í dag í Washington og Madrid
um þessa fyrirhuguðu heimsókn,
sagði, að Eisenhow'er mundi
koma til Madrid síðari. hluta
dags 21 .des. og fara daginn eftir.
Þetta verður opinber heimsókn
og sú fyrsta, sem bandarískur
forseti fer til Spánar. Að sjálf-
sögðu mun forsetinn verja mest
um tíma til viðræðna við Franco,
en ekki hefur verið greint neitt
frá því hver helztu umræðuefni
verða. Sennilegt er þó talið, að
á góma beri m.a. hugsanleg að-
ild Spánar að NATO.
Þá var og tilkynnt, að Eisen-
hower mundi í þessari ferð
eiga til við Bourguiba. — Mun
forseti Tunis koma um borð í
herskip það, sem flytur Eisen-
hower frá austanverðu Miðjarð-
arhafi til Frakklands eftir förína
til Asíu. Fundur þeirra verður
17. desember.
Lönd þau, auk Frakklands, sem
Eisenhower heimsækir í förinni,
eru: Italía, Tyrkland, Indland,
’ Pakistan Afganistan, íran, Grikk
j land og siðast Marokko að Spán-
arheimsókninni lokinni.