Morgunblaðið - 13.11.1959, Blaðsíða 3
Fðstudagur 13. nóv. 1959
j|1 nv rnxnr a n 1 f>
3
>.T-yi?rox><wy:-:
«nv.m-x^-:-MVn,’^rrA' "W'v» «« j >
stöðin
1 < HÁLOFTAATHUGUNAR-
( STÖÐ er rekin á Keflavíkur-
Qugvelli, sameiginlega af Veð
irstofu fslands og varnarlið-
rxu. Annast starfsmenn Veð-
irstofunnar reksturinn að
tólfu, en sá kostnaður er
jreiddur af alþjóðaflugmála-
stofnuninni ICAO. Gefur það
il kynna hversu mikilvæg
1 iessi starfsemi er talin fyrir
Earþegaflug um norðanvert
Mlantshaf.
Við háloftastöðina starfa 7
íslendingar, en þeir lærðu
starfið af bandarískum sér-
fræðingum árið 1954, en nú er
svo komið, að íslendingarnir
ijá um þjálfun starfsmanna
tarnarliðsins í háloftaathug-
íum. Ástæðan fyrir þessu er
Veðurathugunarbelgur settur á loft frá háloftastöðinni.
á Keflavíkurvelli og þotuöldih
fú, að Veðurstofa Bandaríkj-
anna hefir tekið að sér reksl-
ar allra háloftsstöðva þar
, vestra og notar flugherinn því
, tækifæri að þjálfa veðurathug
unarmenn í háloftaathugun-
am á meðan þeir starfa á'
Keflavíkurflugvelli. Venju-\j
.eg vakt í háloftastöðinni eruj
5 menn og er vaktstjórinn ís-,
i [enzkur. t
Háloftaathuganir eru gerð-i
ar fjórum sinnum á sólarhringw
neð sex stunda millibili. Erv
þá sendur upp loftbelgur,'
Eylltur helium-gasi, en neðan,
belgnum hanga hin sjálf-.
1 virku mælitæki, sem sendaj
upplýsingar til jarðar. Mæli-1.
tæki þessi gefa upplýsingar.
um hita, raka og loftþrýsting,
radartæki fylgjast einnigj
með ferðum loftbelgsins o“
1 eftir þeim athugunum er hægt^
að reikna út vindhraða ogti
vindátt. Hver loftbelgur ferv
að fnaði 30—40 km í loft
upp.
þessar upplýsingar gera veð-
urfræðingar sérstök hálofta-
kort fyrir þotuflugmenn. —
Kort þessi eru gerð í 700, 500.
400, 300 og 200 millibara hæð.
Þegar talað er um t. d. yfir-
borðskort, þá er átt við kort
þar sem jafnþrýstilínur eru
1*0*1^.* 0* # * --------------------
dregnar, en hins vegar er 200
mb kort dregið jafnaðarlínum,
sem sýna hæðir og lægðir eins
og þegar yfirborðskort er
dregið með jafnþrýstilínum.
Meðalhæð 200 mb þrýstings,
er um 38000 fet frá jörðu. Því
skemmra, sem er milli jafnað-
arlína, því meiri er vindhrað-
inn.
Háloftaathuganir á fslandi
eru mjög mikiivægar fyrir
veðurspár á norðurhveli jarð-
ar og einnig fyrir Evrópu. —
Vélspár, sem nú er farið að
gera reglulega í Bandaríkj-
unum fyrir norðurhvel, byggj
ast til dæmis eingöngu á há-
loftaathugunum. Veðurspár
þessar, sem eru gerðar fyrir
18, 36, 48 og 72 klukkustundir,
eru sendar frá Washington til
Veðurstofunnar á Keflavíkur-
flugvelli.Veðurfræðingur, sem
tiðindamaður Mbl. ræddi við
um þessi mái, taldi að mjög
aðkallandi þörf væri fyrir
aðra háloftastöð á íslandi og
væri hún staðsett á norðaust-
urlandi og hefði hún þá einnig
mikilvæga þýðingu fyrir inn-
lendar veðurspár og allt inn-
anlandsflug. Einnig væri hún
þýðingarmikil fyrir veðurspár
í Evrópu og hefðu verið gerð-
ar tillögur af Alþjóðaveður-
stofunni um að slíkri stöð væri
komið upp.
Á Veðurstofu íslands á
Keflavikurflugvelil starfa 7
veðurfræðingar og 15 aðstoð-
armenn. Gegna menn þessir
mikilvægu hlutverki og er
ánægjulegt að vita til þess,
að þeir hljóta mikið lof fyrir
störf sín frá þeim flugmönn-
um, sem þjónustu þessarar
njóta á norðurslóðum.
B. Þ.
Rauðir belgir
Þjóðviljinn hefur undanfarn*
daga verið náma af furðulegum
hlutum, sem varpa skýru ljósi á
þá örvæntingu, sem gripið hefur
um sig i röðum kommúnista. f
heldur barnalegri afmælisgreia
um Jóhannes úr Kötlum, segir
Hannes Sigfússon t. d. miðviku-
daginn 4. nóv. sl.:
„Já, nú er svo komið, að mál-
gagn auðstéttanna hlakkar ' yfir
því, að sósíalisminn eigi ekkl
framar nein skáld á fslandi, að
fjárplógsmenn hafi dregið þau öll
í dilk sinn!“
Og Hannes heldur áfram:
„Sem betur fer er einmitt kom-
ið fast að þáttaskilum í íslenzk-
um ljóðskáldskap. Formbyltingin
verður ekki miklu lengur nafnið
tómt og nýtt vín mun streyma á
nýja belgi. Og það verður áreið-
anlega ekki kjörvín peninga-
fursta og preláta“.
Nei, nú á bara að hella á belg-
ina þeirra Kristins E. Andrés-
sonar og Krúsjeffs og annarra
„preláta“ kommúnista. En þeim
skáldum íslenzkum fækkar með
ári hverju, sem vilja líta við
þessum rauðu belgjum. Þau eru
farin að þekkja mismuninn á
orðum kommúnista og athöfnum.
Þau muna eftir Ungverjalandi,
Tibet og Pasternak.
Vinnulaun eru 69% bygg-
ingarkostnaöar
Við komu farþegaþotunnar,
hefur gildi háloftaathugana
aukizt mjög mikið. Til dæmis,.
er vindstyrkur í 30—40 þús-
und feta hæð, eða í flughæð-
im þotanna, um það bil 30
-50% meiri, heldur en í þeim
læðum sem skrúfuknúnar véi-
»r fljúga. Er því mikilvægt
Eyrir flugmenn þotanna að
vita hvort þeir geta vænzt
tneðvinds eða mótvinds á leið
Til að veita flugmönnum'.
BLAÐINU hefur borizt grein
um byggingarmál hér á landi,
ásamt töflum yfir sundurlið-
un byggingarkostnaðar og
lánveitingar hins opinbera.
Er greinin tekin saman af
Halldóri Halldórssyni, arki-
tekt, sem er starfsmaður hús-
næðismálast j órnarinnar.
1 upphafi máls síns ræðir
greinarhöfundur um fjölgun
þjóðarinnar og telur að árlega
þurfi íbúðum í landinu að fjölga
um 3%, en íbúðir í landinu munu
nú vera yfir 40 þúsund. Meðal-
stærð íbúða munu vera 350
rúmmetrar og einingarverð 1000
krónur á rúmmeter. Árleg fjár-
festing til að fullnægja eðlilegri
byggingarþörf mun því vera
rúmlega 400 milljónir.
Lánveitingar hins opinbera
Þá ræðir greinarhöfundur um
lánveitingu hins opinbera, er
nái vart til meira en % þess
íbúðafjölda, sem árlega sé byggð-
ur, en greinir einnig frá þeim
tölum, er lagðar eru á bygging-
arframkvæmdir í mynd inn-
flutningstolla á byggingarefni og
söluskatt á efni og vinnu. Með-
fylgjanúi tafla sýnir sundurliðun
á reikningum vísitöluhúss bygg-
ingarkostnaðar, miðað við verð-
lag í október 1958. Til skýringar
á töflunni segir svo ennfremur
í greininni:
„Með innflutningsgjöldum er
meðtalið hið svonefnda 55% yf-
irfærslugjald. Söluskattur, í töfl-
unni 7% heildarkostnaður, er
marglagður á sumar vörur. Þeir,
sem sjálfir byggja hús sín, geta
komizt hjá nokkrum hluta sölu-
skattsins, þó vart meira en að
hálfu leyti.
I kostnaðarliðnum — ýmislegt
— eru einkum farmgjöld, trygg-
ipgagjöld og fjármagnskostnaður
í sementsverðinu. Vinnulaun eru
langstærsti kostnaðarliður bygg-
ingarinnar, 69% heildarhúsverðs.
Þennan kostnaðarlið hefði mátt
sundurliða frekar, en mörkin
voru víða óljós. Hér er verzl-
unarálagning talin. Hún er þó
vart meiri en 6—7% heildar-
verðs, nálægt 30 þúsund kr. á
aðra aðalíbúðina, þar af álagn-
,Þegar allir þegja
«
ing á innflutningstollana 12 þús.
kr. Meistaralaun eru talin í þess-
um lið, svo og flutningskostn-
aður með bílum“.
Síðar í greininni segir:
„Samanburður á þeirri aðstoð,
sem ríkisvaldið leggur nýbygg-
ingu íbúðarhúsa og sköttum
þeim, sem jafnframt eru á hana
lagðir, sýnir, að það er í flestum
tilfellum tekið með annari hend-
inni ,sem veitt er með hinni.
Skattar á meðalstóra íbúð mun
vera á bilinu 50—80 þúsund krón-
ur. Þessa skatta er búið að greiða
að meira eða minna leyti áður en
lánsféð fæst greitt".
Lítið fé handbært
Þá er bent á, að sívaxandi
verðrýrnun gjaldmiðilsins hafi
ekki aðeins eytt sparifé manna,
heldur einnig viljanum til spari-
fjársöfnunar, og séu flestir því
félitlir ,er byggingarframkvæmd-
ir hefja. Tafla yfir umsækjendur
og handbært fé þeirra, er bygg-
ingarframkvæmdir hefja, sýnir,
að handbært fé hefur verið frá
10 til 120 þúsund kr. Meirihluti
umsækjenda hefur þá haft hand-
bærar yfir 50 þúsund krónur, er
bygging hófst.
í lok greinarinnar bendir höf-
undur á nokkur atriði til úr-
Framh. á bls. 19.
Tafla II.
Greining
á byggingarkostnaði vísitöluhússins miðað við verðlagsútreikninga í októberlok 1958
-7!
E
£
«1
ai a
>> K>
a> a
2 B
a i/i
'5 S
C
•§ a
2 °
5 to
C W)
aa
3 2-S S
g .55 >
•S *
> S © ^3
— ci
:© bfí
búo .S
SM mi
5 * .
Þ. *3 ©
a g
x3 a
53 £
© O
B3 *
Ss
3 © :
C v •
fl bts
aa
2 5 =
«22
«5 c wj
3aa
i m 3 *S 5 .
ö eð £ C 3 d
3 a beC 5
S o x a c o
Í3 '73 c to
fl M)5 bfí
S.9:S .5
m3 % Kr. Kr. Kr. Kr. Kr. Kr. Kr. Kr. Kr.
í kjallara Á I .hæð Á. 2. hæð í rishæð 2 190 4 375 4 375 4 260 16,0 31.3 31.3 21.4 21.700,00 42.400,00 42.400,00 29.124,00 21.400,00 41.900,00 41.900,00 28.699,4 16.900,00 33.000,00 33.000,00 22.698,5 166.500,00 326.000,00 326.000,00 271.929,5 14.600,00 28.500,00 28.500,00 19.571,42 241.000,00 471.000,00 471.000,00 323.722,83 38.300,00 74.900,00 74.900,00 51.397,9 6.900,00 12.000,00 12.000,00 8.156,00 45.200,00 86.900,00 86.900,00 59.553,9
1200 100 135.624,00 133.899,4 105.598,5 1.090.429.5 91.171,42 1.506.722,83 239.497,9 39.056,00 278.553,9
Hlutfall heildar- kostnaður % Kostnaður pr. m3 9,0% 113% 8,9% 112% 7,0% 88% 69,0% 868% 6,1% 75% 100,0% 1.256,00 15,9% 200% 2,5% 31% 18,4% 231%
Sl. miðvikudag varð Þorvaldur
Þórarinsson fimmtugur. Kristinn
E. Andrésson var meðal þeirra,
sem um afmælisbarnið fjölluðu
í Þjóðviljanum:
„Og eftir það gengum við í
hvítasunnusöfnuð Kiijans, sem
Þórbergur kallar svo heitur af
afbrýðisemi, vitandi ekki sjálfur
að hann er okkar eini guð, en
Halldór bara skáldið, í hæsta lagi
skáld guðs“.
Þá getur hann þess, að þeír
Þorvaldur hafi sveitzt við það á
undanförnum árum að mennta
íslenzku þjóðina „og reyna að
koma viti fyrir hana“. Minnist
loks á Flokkinn:
„Enginn er bundnari Flokkn-
um, en þó finnst mér þú (þ. e.
Þorvaldur) alltaf standa einn í
flokki. Einu sinni afneitaði Brynj
ólfur þér á sjálfu Alþingi, það
var í eina skiptið sem þú vildir
fara að með lagi, og það var við
Danakonung. En þú tókst ekk-
ert mark á þessari afneitun, hvað
oft sem þér kynni að verða afneit
að, yrðir þú eftir sem áðurinnstur
í Flokknum. Og eitt hef ég aldrei
skilið: Hvað þú ert gefinn fyrir
að þrátta á fundum. Mér finnst
fundir beztir, þegar allir þegja
nema Einar“.
í niðurlagi þessarar klausu
birtist draumsýn kommúnista um
„málfrelsið“ í „Sovét-íslandinu“.
„O — láttu það vaða“
Loks er í Þjóðviljamim í gær
grein um íslenzka verkamenn og
eru þeim ekki vandaðar kveðj-
urnar, því þar er beinlínis sagt,
að þeir stundi vinnusvik. — I
greininni segir m. a.:
„Og skipulagið heimtar meira
að segja að þú hlífir þér, vinnir
lítið til að geta bætt við eðli-
legan 8 stunda vinnudag, 2—3
eftirvinnutímum, því annars
verða daglaunin ekki sæmileg.
Allir vita, hver áhrif þetta
hefur á sálarheill þeirra, sem við
búa, enda er hin brennandi, sí-
gilda spurning: Hvað er klukk-
an? Er ekki kominn matur, strák
ar? Og viðkvæðið þegar verið er
að ganga frá: O — láttu það vaða.
Þetta er andskotans nógu gott“.
Mönnum kemur spánskt fyrir
sjónir að sjá slíkar kveðjur iil
íslenzkra verkamanna í íslenzku
blaði. En allt stendur þetta nú
samt í Þjóðviljanum í gær í grein
sem nefnist „O — láttu það
vaða“! í þeim orðum speglast af-
staða kommúnista til íslenzks
þjóðfélags i dag.