Morgunblaðið - 20.11.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.11.1959, Blaðsíða 1
24 siður Ný ríkisstjórn tekur viö í dag Ólafur Thors Bjarni Benediktsson Gunnar Thoroddsen Ingólfur Jónsson Emil Jónsson s tœðisfl okksins og Alþýðuflokks búnaðar- og samgöngumálaráð- herra. Hann hefir átt sæti á Al- þingi síðan 1942. Emil Jónsson verður félags- málaráðherra. Hann hefir átt sæti á Alþingi síðan 1934. Guðmundur í. Guðmundsson Samsteypustjórn Sjálf- Ólafur Thors forsætisráðherra MINNIHLUTASTJÓRN Alþýðuflokksins, sem farið hefir með völd síðan 23. des. sl. sagði af sér í gær, og féllst forseti íslands á lausnarbeiðnina. í gær ræddi forsetinn við for- menn allra stjórnmálaflokkanna og fól að þeim umræðum loknum Ólafi Thors, formanni Sjálfstæðisflokksins, stjórn- armyndun. Varð hann við beiðni forsetans, og mun stjórn- armyndun hans verða lokið í dag. Eins og áður hefir verið skýrt frá, hefir samkomulag tekizt milli Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins um stjórnarsamstarf. Mun ríkisstjórn þessara flokka verða skipuð á ríkisráðsfundi, sem haldinn verður kl. 10 árd. í dag. — Þegar Alþingi hefir verið sett, mun forsætisráðherra hinnar nýju stjórnar gera þingi og þjóð grein fyrir stefnu hennar. verður utanríkisráðherra. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1942, og hefir setið þar síðan. Gylfi Þ. Gíslason verður menntamála- og viðskiptamála- ráðherra. Hann var fyrst kjör- inn á þing árið 1946 og hefir átt þar sæti síðan. Guðmundur í. Guðmundsson Gylfi Þ. Gíslason Útsvör í Reykjavík og gjöld bæjarins lækka á næsta ári Frumvarp að fjárhagsáætlun lagt fram á bæjarstjórnarfundi i gær Hin nýja ríkisstjórn Ólafur Thors verður eins og áð- ur er sagt forsætisráðherra hinn- ar nýju ríkisstjórnar. Er þetta fimmta ráðuneytið sem hann veitir forystu. Hann hefir átt sæti á Alþingi síðan árið 1923. Bjarni Benediktsson verður dóms- og iðnaðarmálaráðherra. Hann hefir átt sæti á Alþingi síð- an 1942u Gunnar Thoroddsen verður Tre«ar fregnir frá Ladak NÝJA DELHI 19. nóv. (Reuter) — Nehru forsætisráðherra Ind- lands sagði í dag á Indlandsþingi, að hann vissi ekki hvort Rússar hefðu komið sér upp flugvelli í indverska héraðinu Ladak, austaa til í Kasmír. Þingmenn höfðu stefnt fjölda fyrirspurna um það til Nehrus, hvort það væri rétt, að Kínverj- ar hefðu gert flugvöll á svo nefndri Aksai Chin hásléttu, sem er í nærri 7000 metra hæð. Landsvæði það í Ladak, sem Kín verjar og Indverjar deila nú um er svo ógreitt yfirferðar, að ind- verskt herlið getur ekki fylgzt með öllu því, sem þar er gerast og vel má vera, að langur tími líði, þar til óyggjandi upplýsing- ar fást um þetta. fjármálaráðherra. Hann var fyrst kosinn á þing sem landskjörinn þingmaður árið 1934 og átti þar sæti til ársins 1937. Árið 1942 var hann aftur kosinn á þing og hefir átt þar sæti síðan. Ingólfur Jónsson verður land- I DAG kemur í bókaverzlanir þriðja bókin með viðtölum og endurminningum Valtýs Stefáns- sonar ritstjóra. Hann nefnir þessa Valtýr Stefánssou Á BÆJARSTJÓRNAR- FUNDINUM í gær var lagt bók sína „Menn og minningar“, en tvær fyrri bækur hans þess- arar tegundar voru „Þau gerðu garðinn frægan“, sem út kom 1956 og „Myndir úr þjóðlífinu", sem út kom 1958. Allar hafa þess- ar bækur komið út á forlagi Bók- fellsútgáfunnar. Þessi nýja bók Valtýs Stefáns- sonar er 388 bls. að stærð og aft- ast í henni er nafnaskrá við öll þrjú bindin og ennfremur efnis- skrá. Eru þar nefnd nöfn fjölda innlendra og útlendra manna. — f þessari nýju bók eru margar myndir. 50 þættir f „Mönnum og minningum" eru auk fjölmargra viðtala töluvert af sérstæðum endurminninga- þáttum, þar sem Valtýr segir frá ýmsum þeim atburðum, sem hann hefur lifað og öðru efni, sem hon- um hefur verið hugstætt. í bók- Frh. á bls. 23 fram frumvarp að fjárhags- áætlun Reykjavíkur fyrir ár- ið 1959. Vekur það sérstaka athygli við fjárhagsáætlun- ina, að heildarútgjöld eru áætluð 7,4 milljónum lægri en í ár, heildarupphæð út- svara lækkar um 10,2 milljón- ir og má gera ráð fyrir, að útsvarsstiginn lækki um 15%. — Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri fylgdi frumvarpinu að fjár hagsáætluninni úr hlaði. Kvað hann frumvarpið undanfarin ár hafa verið lagt fram í desember, en nú hefði verið hafizt handa um undirbúning svo snemma, að hægt er að leggja það fram á síðari fundi í nóvember. Hefði mjög vel verið unnið að frum- varpinu af Gunnlaugi Péturs- syni borgarritara, Guttormi Er- lendssyni aðalendurskoðanda og Guðm. Vigni Jósefssyni skrifstofu stjóra. Frumvarpið hefði verið rætt rækilega á fundum bæjar- ráðs. Þá minntist borgarstjóri á nokkur meginatriði frumvarps- ins. Drap hann fyrst á, að við samningu þess væri kaupgjald fastra starfsmanna bæjarins reiknað samkvæmt launasam- þykkt bæjarins, er gilt hefði frá 1. janúar 1956, að viðbættri 5% hækkun, 1. júní 1958, og 6 og 9% hækkun 1. september s.á., en þetta væru grunnlaun samkvæmt gildandi lögum. Laun lausráðinna starfsmanna væru miðið við kaup gjald 1. nóvember. 7 millj. kr. lækkun. Rekstrargjöld bæjarins á næsta ári væru áætluð 202 milljónir króna, en á yfirstandandi ári hefðu þau verið áætluð 209 millj., og væri það því um 7 milljón króna lækkun að ræða. Til verk- legra framkvæmda og annarra eignabreytinga væru áætlaðar 46,7 milljónir í stað 47,1 milljón í gildandi fjárhagsáætlun. Heild- arútgjöld væru áætluð 248,7 millj. en hefðu verið 256,1 milljón og væru þannig 7,4 milljónir kr. lægri en gildandi fjárhagsáætlun. Aðrar tekjur en útsvör væru áætl aðar .2,8 millj. kr. hærri en í gild- andi fjárhagsáætlun, og ef reikn að væri saman hækkun tekna annarra en útsvara og lækkun heildarútgjaldanna, kæmi fram að útsvörin myndu lækka um 10,2 milljónir samkvæmt áætl- uninni. Heildarupphæð útsvara hefði í ár verið 215,1 milljón, en væri nú áætluð 204,9 milljónir. Lækkaði heildarupphæðin þann- ig um 10,2 millj. eða 5%. Mætti gera ráð fyrir að þessi lækkun jafngilti 15% lækkun á útsvars- stiganum. Nýir tekjuliðir. Af nýjum tekjuliðum mætti Framh. á bls. 2 „Menn og minningar" — ný bók eftir Valtý Stefdnsson ritstjóra %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.