Morgunblaðið - 20.11.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.11.1959, Blaðsíða 22
22 MORGUNfíLAÐIÐ 'F'östudagur 20. nóv. 1959 Sigurður Lúfer Vigfússon Fosshóli — minning \LrtJí ar um: + KVIKMYNÐIR + f DAG er til moldar borinn Sig- urður L. Vigfússon, bóndi og gest gjafi að Fosshóli við Goðafoss. Sigurður var fædur að Úlfsbæ í Bárðardal 30. september 1901, sonur hjónanna Vigfúsar Krist- jánssonar og Hólmfríðar Sigurð- ardóttur, sem um langt skeið bjuggu þar myndarbúi. Vigfús lézt fyrir allmörgum árum, en Hólmfríður lifir enn, komin á ní- ræðisaldur. Um 1930 stofnaði Sigurður nýbýlið Fosshól við Goðafoss og rak þar myndarlegt fjárbú, en hafði auk þess með höndum póst- og símavörzlu, benzínafgreiðslu og greiðasölu. Ofan á öll þessi störf bættist það, að Sigurður var um margra ára skeið sönn hjálparhella sýslunga sinna um aðdrætti alla og flutn- inga, sérstaklega þegar hinn þing eyski vetur veifaði veldissprota sínum og umbrotafærð var um héraðið. Ótaldar munu þær ferðir er Sigurður brauzt gegnum tor- færur með lækni eða lyf til bjarg ar sveitungum sínum — og aldrei hugsaði hann um endurgjald, hitt var honum hugstæðara, að verða að liði þeim, sem voru hjálpar- þurfi. Það er mál allra, sem Sig- urði voru samferða í slíkum svaðilförum, að vaskleiki hans var frábær, úrræði á hverjum fingri, mælti ekki æðruorð, en hafði þeim mun fleiri gaman- yrði á vör, hvað sem á bjátaði, og jafnan mun hann hafa komizt á áfangastað þó að stundum mun- aði mjóu. En þetta var einmitt aðall Sig- urðar — að verða öðrum til styrkt ar og uppörvunar jafnt hvort um var að ræða erfiðleika og raunir eða gleðistundir. Hann var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann fór og það full- yrði ég óhikað, að hann átti eng- an óvildarmann. Hitt er jafn víst, að hann átti fjölmarga vini og góðkunningja — og ekki ein- Sigurður ölason HæstaréttarlÖgmaður Þorvaldur Lúðvíksson HéraðsctómslögniaSur Málflutningsskrifstofa Austurstræti 14. Sími 1-55-35 ungis í heimabyggð sinni heldur um land allt, því að Sigurður var löngu þjóðkunnur maður, og þá ekki sízt vegna sagna þeirra, sem af vaskleika hans fóru á vetrarferðum fyrr á árum. Sigurður kvæntist aldrei, en eignaðist eina dóttur barna, Hóim fríði, efnisstúlku, sem nú er um tvítugt og dvelst í föðurhúsum. Sigurður var heilsuhraustur alla ævi, en veiktist snögglega af heilablóðfalli er hann var að gegn ingum á búi sínu fyrir nokkrum dögum. Hann var fluttur til Húna víkur þá þegar og þar lézt hann að morgni 13. þ. m. Það var táknrænt, að þessa nótt, sem Sigurður fór sína síð- ustu ferð til Húnavíkur, þá var hríðarveður og umbrotafærð. Og nú var það hann, sem var hjálp- ar þurfi. Þá brugðust sveitungar hans vel og drengilega við og sýndu þakklæti sitt í verki, því að hvert heimili á leið til Húsa- víkur sá um að ryðja veginn, hvert í sinni landareign, svo að hinn fársjúki maður komst til læknis eins skjótt og framast var unnt. En allt kom fyrir ekki, dauðinn hafði þegar tekið sína ákvörðun. Þungur harmur er kveðinn að háaldraðri móður, ungri dóttur og öðrum ástvinum. En minningin lifir um góðan dreng. Kj. R. Tjarnarbíó: YFIR BRÚNA ÞETTA er ensk sakamálamynd frá Rank-félaginu, gerð eftir samnefndri skáldsögu hins kunna brezka rithöfundar, Grahams Greene. Fjallar myndin um brezkan fjárglæframann, sem gerzt hefur sekur um stórkostleg fjársvik. Hann er staddur í New York þegar hann fréttir að Scot- land Yard hafi tekið til rann- sóknar fjármálaferil hans. Hann bregður skjótt við og tekst að flýja til Mexíkó, en til þess hefur hann orðið að grípa til glæpsam- legra aðgerða. Þegar til Mexíkó kemur hefst óslitinn hrakfalla- ferill hans og stöðugúr flótti undan ásókn réttvísinnar. Allir snúa baki við honum og að lok- um á hann aðeins einn vin, hund- inn Dolores. Brúin milli landa- mæra Bandaríkjanna og Mexíkó gegnir miklu hlutverki í mynd- inni og þar lýkur sögu þessa hrjáða manns. í efnisskrá kvikmyndahússins er mynd þessi sögð „fræg“, en ég leyfi mér að taka þeirri fullyrð- ingu með varúð því að fátt er það í myndinni sem rís hærra en gerist og gengur um fjöldann allan af þeim miðlungsmyndum, sem oftast eru hér á boðstólum. Enginn leikendanna sýnir veru- leg tilþrif í leik nema Rod Steig- er í hlutverki fjárglæframanns- ins Carls Schaffners. Hundurinn gerir og sínu hlutverki hin furðulegustu skil, enda er sam- band hans og húsbónda hans hið eina, sem situr eftir í huga áhorfandans þegar sagan er öll. Nýja bíó: LUISE PRÚSSADROTTNING ÞETTA er ein af mörgum kon- unga- eða keisaramyndum, sem Þjóðverjar hafa verið svo iðnir í við að framleiða eftir síðari heimsstyrjöld. Líklega er það einhver „reaktion" eftir hörm- ungar styrjaldarinnar og nazista- tímabilsins og þá gott að láta hugann hverfa til skrautsins og íburðarins í hinum friðsælu, þýzku „óperettu“-ríkjum á öld- inni sem leið. Mynd sú, sem hér ræðir um, er þó ekki út af eins „sentimental", eins og margar aðrar myndir af þessu tagi, sem hér hafa verið sýndar, enda efnismeiri og er þá reyndar ekki mikið sagt. Myndin gerist á tímum Napo- leons-styrjaldanna er Prússland var króað inni á milli Frakk- lands og Rússlands í átökum þessara stórvelda um yfirráðin í Evrópu. Fór svo sem kunnugt er að Napoleon óð inn í Prússland með hinn sigursæla her sinn og vann frægan sigur á Prússum og Rússum. Sögulegt gildi þessarar mynd- ar er lítið eða ekkert, enda hinar sögulegu persónur fjarri öllum sanni. Alexander Rússakeisari er þarna sýndur sem hver annar TÍMARITIÐ „Frjáls Verzlun" er komið út. — Er það 5. hefti þessa árs (okt.-nóv.) — Forustugrein- in nefnist „Hinar vinnandi stétt- ir“, en af öðru efni ritsins skal þetta nefnt: Svavar Pálsson, viðskiptafræð- ingur, skriíar Um skattamál sam- vinnufélaga. — Dr. Sigurður Pétursson, gerlafræðingur, skrif- ar greinina Niðursuðuiðnaður á íslandi. — Þá birtist ræða, sem Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamála- ráðherra, flutti á aðalfundi Verzl- unarráðs íslands, og nefnist hún Innflutningshöftin eru arfleifð frá kreppu- og stríðsárunum. — Einnig birtist ræða Gunnars Guðjónssonar, formanns Verzl- unarráðsins, er hann flutti á að- alfundi þess — og nefnist Stefnt lítilssigldur kvennabósi, Napo- leon nánast sem fífl, Talleyrand svo sem ekki neitt og Friðrik Prússakonungur er sveimhuga og kjarklaus og hallar sér að barmi hinnar fögru konu sinnar til trausts og hughreystingar í hverju vandamáli. Hin unga og glæsilega drottning er notuð sem tálbeita fyrir hina kvenhollu keisara í austri og vestri til hags- bóta fyrir Prússland en án árang- urs. — Það leynir sér ekki að við samningu þessarar myndar hafa menn haft í huga reynslu styrjaldaráranna og Hitlers- tímabilsins og það ástand sem ríkt hefur í heimsmálunum eftir stríðið. Er það góðra gjalda vert þó að ekki verði sagt að á því efni sé tekið af neinum tilþrifum. Leikurinn í myndinni er dá- góður, en beztur þó leikur Rut Leuwerik í hlutverki Luise drottningar, þó að einstaka sinn- um bregðist henni bogalistin. í rétta ótt. — Þá er viðtal, er Sigurður Benediktsson hefir átt við Jóhann Ármann Jónsson, úr- smíðameistara. Síðan er mynd- skreytt grein um Argentínu. —- Birtar eru ályktanir aðalfundar Verzlunarráðs íslands. — Þá er stutt grein með myndum um Flugvélar fyrir íslenzkar aðstæð- ur. — Höskuldur Ólafsson, spari- sjóðsstjóri, segir frá Verzlunar- sparisjóðnum. — Og loks er frá- saga eftir Guðmund Daníelsson, rithöfund. — Með gamla Ben Cherrington í Denver. Margs konar annað efni er í ritinu, svo sem hinir föstu þætt- ir, Úr gömlum ritum og Athafna- menn og frjálst framtak — og mikið er um myndskreytingar. Frjóls Veizlun 5. hefti komið út Landsmálafélagið Vörftur heldur fund ■ Sjálfstæðishúsinu ■ kvöld kl. 8.30 Lmræðuefni: Stjórnarskiptin og ný viðhorf Frummælandí: Úlofur Thors, form. SjdlfstæSisflokksins Allt Sjálfstæðisfólk er velkomið meðan húsrúm leyfir Landsmálafélagið Vórður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.