Morgunblaðið - 20.11.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.11.1959, Blaðsíða 3
Föstudagur 20. nóv. 1959 MORGVNfíT.AÐIO 3 Rabbað við Friðrik Ólafsson ekki leiður til lengdar. — Ég sá í einhverju blaði, að þú værir ekki hraustur — þú varst góður leikfimismað- ur í gamla daga. — Blaðamenn segja svo margt, en það er víst rétt, að ég hef ekki nægilegt úthald ennþá. Það reynir á taugarnar að sitja lon og don við skák- borðið, og taugarnar hafa svo áhrif á líkamann. Ég hef aldrei verið sterkbyggður. Maður þarf að jafna sig, safna í sarpinn, fá einskonar varasjóð. — Ætlarðu að fara að fita þig? — Nei, það er ekki beinlínis snertir — heldur eftir því hvernig framkoma þeirra er. — Hverja fannst þér bezt að tefla við — Það var einna þægilegast að tefla við gömlu jálkana, Keres, Smysloff, Petrosjan og Gligoric. Þá getur maður teflt ótruflaður af andstæðingun- um. Rússarnir eru farnir að venjast Tal. Maður þyrfti eig- inlega að leggja stund á sálar- fræði til að komast yfir þetta — eða jóga. — En áhorfendurnir — trufla þeir ekki Jú, en það gengur nú kannski nokkuð jafnt yfir alla. Þó verð ég að segja það, að Cera engan greinarmun á löðrung og góðum leik GLÍMUNNI miklu um réttinn til að skarra á heimsmeistarann er skák er lokið og stórmeistar inn okkar, Friðrik Ólafsson er kocninn heim, reynslunni rík- ari. Blaðamaður Morgunblaðs- ins hitti Friðrik fyrir skömmu og spjallaði lítilsháttar við hann um skák. Friðrik var ró- legur að vanda, eins og hann væri nýkominn ofan úr sveit. en ekki frá einu harðasta skák móti síðustu ára. — Jæja, Friðrik, ertu ekki þreyttur eftir öll þessi ósköp? spurði blaðamaðurinn. — Jú, satt að segja er ég orðinn langþreyttur, en þó einkum leiður, leiður á öllu sem heitir skák — í bili. Held- urðu að maður verði ekki leið ur eftir tveggja mánaða stanz- lausa törn? En maður verður það, sem ég á við. — Hver var taugaveiklaðast ur á mótinu? — Tal er alltaf á toppinum. Hann teflir svo flókið og veit aldrei, hvað andstæðingurinn kann að leika í þeim flóknu stöðum, sem hann sjálfur skapar. — Tal hefur kannski sigrað á taugaveikluninni? — Já, hann smitar hina. Þú getur ímyndað þér hvaða áhrif það hefur, ef einhver maður er alltaf á spani í kringum þig, þar sem þú situr og einbeitir þér að fremsta megni að því að hugsa. Fischer er það ung- ur, að hann þoldi það alls ekki. Það þarf vissan þroska til að brynja sig fyrir þess konar. Það er ótrúlega mis- jafnt að tefla við menn — ekki endilega hvað getu þeirra gauragangurinn hér heima er hátíð hjá þeim ósköpum, sem voru í kringum þetta mót í Júgóslavíu. Það var skárst að tefla í Bled, en versnaði eftir því sem sunnar dró. — Voru áhorfendurnir blóð heitari þar? — Það kann að vera. Ser- barnir voru verstir. Þeir gera engan mun á löðrungi og góð- um leik. Ef þeir voru kurteis- lega beðnir um að þegja, þá mótmæltu þeir hástöfum. Það gekk meira að segja svo langt, að hóta varð að ryðja salinn. Þá skánaði það um stund á eft- ir. Fyrirkomulagið þyrfti að vera eins og á bridgemótum, að áhorfendurnir séu í sér- stöku herbergi, og leikjunum sjónvarpað þangað — eða hafa glerbúr eins og á Morgunblað- — En getur það ekki verið hvetjandi að hafa áhorfendur í kringum sig? — Það þýðir ekkert að vera að hugsa um þá, þegar maður er að tefla. — Ætlarðu ekki að fara að gifta þig, Friðrik? — Nei. Það er nóg að vera giftur skákinni. Hitt er eins og að lifa í tvíkvæni. — En ef þú kenndir henni að tefla? — Það er erfitt að finna kvenmann, sem er góður skák maður. Það þarf svo mikla þolinmæði í skák. — Hvernig leizt þér á þig austan járntjalds? — Það er náttúrulega mun- ur á AUstur og Vestur Evrópu. Þar fyrir austan verða menn að hugsa um stjórnmál, hvort sem þeim líkar betur eða verr, en hér heima t.d. — ekki frek ar en þeir vilja. Ég hef sjálfur engan áhuga á stjórnmálum — og vildi ekki þurfa að neyðast til þess að hugsa um þau — nema í skákinni. En það gerir engum mein. Það er mikill munur á Júgóslavíu hvað þetta snertir, og hinum svo- kölluðu járntjaldslöndum. — Jæja, þú losnaðir við að tefla við heimsmeistarann. — Ég hef varla þroska til þess enn. — Finnst þér, að þú sért ekki enn búinn að ná fram öllu sem í þér býr? — Nei, ég er alls ekki búinn að ná öllu fram. Svo er dá- lítill munur að vera hér, utan við höfuðstraumana, eða til dæmis fyrir austan í skriðunni þar. Þar er breiddin svo mikil af jafngóðum skákmönnum, sem stöðugt geta borið skák- bækur sínar saman. Hér er ég óhjákvæmilega dálítið ein- angraður. En ég hef ekki sagt mitt síðasta orð. Nemandatónleikar í Gamla bíói ÞAÐ yrði of langt mál að telja allt upp, sem sungið var á þess- um þriðju nemendatónleikum Vincenzo Demetz í Gl. bíói 12. þ. m. Þessi söngskemmtun var í 12 liðum, og voru sungin íslenzk ög og aríur úr óperum. Þarna voru margir gamalkunn- ir söngvarar, já, óperusöngvarar að verki, sem vafasamt er að telja til nemenda í vanalegum skilningi, þó segja megi að mað- ur læri svo lengi sem lifir. ettar sem þau Inga Hjaltested og Guðmundur Ciuðjónson sungu og svo sextett úr „Lucia di Lamm ermoore", eftir Donizetti. Þessir sungu í sextettinum: Eygló Vic- orsdóttir, Sigurveig Hjaltested, Bjarni Bjarnason, Gunnar Krist- insson, Hjálmar Kjartansson og Erlingur Vigfússon. Körsöngur var í upphafi og í lok söngskrárinnar. Söng allur hópur nemenda Demitz undir stjórn Ragnars Björnssonar. — Hljómaði söngurinn vel undir ör- yggi Ragnars. Fritz Weisshappel lék undir og var í eldinum allan tímann og stóð sig svo sem vænta mátti eins og hetja. Söngskemmtun þessi var mjög vel sótt og klöppuðu áheyrendux söngvurum, svo og Demetz, lof í lófa. P. í. Báðir slógu af Fundum Adenauers og Macmillans lokið Af þeim yngri voru þarna Erlingur Vigfússon, sein er mjög efnilegur tenór. Inga Hjaltested, efnileg sópransöngkona, er gam- an var að hlusta á. Þá kom Bjarni Bjarnason læknir og söng m. a. aríu úr „Andrea Chenier“, eftir Giordano og varð ég stór- „imponeraður" af söng hans. — Hann er síungur, þó hann sé kom- inn af æskuskeiði fyrir nokkru. Snæbjörg Snæbjarnar og Jón Sigurbjörnsson sungu dúett úr 2. þætti óperunnar „Vald örlag- anna“ eftir Verdi, og leystu þau hlutverk sín af hendi með prýði. Snæbjörg er gædd miklum söng- hæfileikum, ágætri rödd og drama tískum krafti. Guðm. Guðjónsson er þegar góðkunnur tenórsöngv- ari, og gerði hann hlutverkum sínum ágæt skil. Sama má segja um Eygló Victorsdóttur, sem er áberandi músíkölsk og hefur háa tindrandi sópranrödd. En söngur Hjálmars Kjartanssonar snart mig einna mest. Hér er skín- andi bassasöngvari, sem hefur næma tilfinningu fyrir því, sem hann túlkar. Sigurveig Hjaltested mezzosópran hefur fagra rödd, sem naut sín einkar vel í „Nótt“ eftir Árna Thorsteinsson og aríu úr „Samson og Dalila“ eftir Saint-Saéns. Hér við bættust dú- LONDON, 19. nóv. (Reuter). — í dag lauk þriggja daga viðræðum þeirra Macmillans og Adenauers forsætisráð- herra Bretlands og Vestur- Þýzkalands. Svo virðist sem viðræðurnar hafi verið mjög hreinskilnar og orðið árang- ursríkar. Þær muni verða til þess að auka samheldni þessara tveggja stóru ríkja. Stjórnmálafregnritarar eru þeirrar skoðunar, að þeim for- sætisráðherrunum hafi tekizt betur en nokkur þorði að vona að jafna skoðanaágreining sín á milli um alþjóðavandamálin. — Telja þeir að báðir, Macmillan og Adenauer, hafi slegið nokkuð af og breytt um stefnu, svo að báðir séu þeir hinir ánægðustu með fundinn. Svo virðist sem Macmillan hafi nú fallizt á sjónarmið Adenauers um að Vesturveldin geti ekki sætt sig við að komið verði á kjarnvopnalausum svæðum í Mið-Evrópu. Það var utanríkis- ráðherra Póllands, Rapacki, sem fyrstur bar fram tillögur um slíkt og er talið, að Macmillan hafi verið kominn á hans skoð- un eftir Moskvuferð sína. Hins vegar hefur Macmillan haft fram sinn vilja um að ræða megi Berlínarvandamálið sér á fyrirhugaðri ráðstefnu æðstu manna stórveldanna. Þegar Adenauer kom til Lund- úna fyrir þremur dögum varð þess vart við komuna til Viktoría járnbrautarstöðvarinnar, að brezkur almenningur tók honum kuldalega. Þetta breyttist meðan hann dvaldist í Bretlandi og við brottförina á sömu stöð safnað- ist stór hópur manna saman og hyllti hann með fagnaðarópum og með því að syngja „For he’s a jolly good fellow.“ ,,Ferð án enda" — ný bók Freuchens „FERÐ ÁN ENDA“, heitir bók eftir Peter Freuchen, sem Skugg- sjá hefur sent á bókamarkaðinn. Þetta er þriðja bókin eftir Freuchen, sem sú útgáfa sendir frá sér. Hinar tvær voru „í hrein- skilni sagt“ og „Hreinskilinn sem fyrr“, þar sem Freuchen lýsti ævi sinni á skemmtilegan og eft- irminnilegan hatt.Bókin „Ferð án enda“ er í nánum tengslum við hinar tvær. Jón Helgason ritstjóri hefur íslenzkað. í bókinni „Ferð án enda“, lýsir Freuchen mörgum óvenjulegum og stórfenglegum atburðum. Þar er frásögn um atburðina í Pilik, þegar gullþorsti tryllti hvítu mennina. Þar er sagt frá Norð- manninum Ólafi og félögum hans í einveru þeirra á Austur-Græn- landi. Frásögn er um kraftaverk- ið, er heilög guðsmóðir lyfti portú gölsku skipti á hafsbotni, ferða- raunir Grænlendingsins er drap banadrískan vísindamann, sem ekki kunni að lifa á norðurhjar- anum og síðast en ekki sízt, er er lýst samlífi höf. og Navarönu, hinnar grænlenzku konu hans. Slúður Tímans Þjóðviljinn og Tíminn lýsa von brigðum sinum yfir því, að sam- komulag hefir náðzt á milli Al- þýðuflokks og Sjálfstæðismanna um myndun ríkisstjórnar. Þjóð- viljinn reynir að fela þau undir þessari fjögurra dálka upphrop- un: „Miðstjórn Alþýðuflokksins gafst upp á einróma ákvörðun sinni.“ Tíminn huggar sig aftur á móti með þessari fyrirsögn: „Olafur Thors forsætisráðherra án atkvæðisréttar í nýrri stjórn“. Auðvitað er „atkvæðisréttur" innan stjórnarinnar fyrirhugaður sem sama hætti og venja er til. Hitt er annað, að afgreiðslu mála á stjórnarfundum er öðru vísi háttað en á Alþingi, svo sem leiðir af reglunum um ábyrgð ráðherra. Á þeim verður engin breyting gerð. Tal Tímans er því alveg út í bláinn. Eins er „upp- gjöf“ Alþýðuflokksins aðeins heiti vonsvikinna kommúnista á því, að Alþýðuflokkurinn tók ákvörðun, sem Tíminn lýsir svo: „í rauninni er myndun þessarar stjórnar og skipan hennar engin nýlunda lengur, enda hafa skrif Morgunblaðsins og Aiþýðublaðs- ins undanfarið bent eindregið til þess, að hún yrði mynduð af flokkum þessara blaða“. Hér veldur þó mestu um hinn ótvíræði vilji kjósenda, sem lýsti sér í kosningunum. Samstjóin Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- manna er rökrétt afleiðing þeirra. Afreksverk? Skilningur Tímans á viðfangs- efnum stjórnmálanna birtist í upphafi forystugreinar hans í gær: „Morgunblaðið ræðir það nú dag eftir dag með stóryrtum lýs- ingum, hvílíkt afreksverk það muni nú vera að taka við stjórn landsins, því að ástandið í efna- hagsmálunum sé svo bágborið“. Hér kemur enn fram hugsunar- háttur Hermanns Jónassonar og félaga hans. Fyrir Hermanni hef- ur það ætíð verið „afrek“ að vera í stjórn. Þess vegna taldi hann það mikið „afreksverk“ að mynda V-stjórnina. Hitt var algert auka- atriði, hvernig til tækist um mál- efnin. Þar af komu hin sífclldu svik á svik ofan. Ef hin nýja ríkisstjórn ræður við þá erfiðleika, sem V-stjórnin lét henni eftir, er tímabært að ræða um „afreksverk“ hennar, fyrr ekki. l Mótsagnir Þjóðviljans Þjóðviljinn finnur öðru hvoru að því, að of Iítið sé gert til að afla málstað okkar í landhelgis- málinu fylgis út á við, jafnframt því, sem hann bölsótast yfir, að notuð eru beztu tækifærin, er til þess gefast. Af því tilefni segir Alþýðublaðið í fyrradag: „Jafnframt finnst kommúnista blaðinu fara illa á því, að þrír Islendingar sitji þingmannafund Atlantshafsbandalagsins í Was- hington sömu dagana pg ráð- stefnan um landhelgismálið er haldin i Lundúnum. Einnig sú afstaða er fljótfærnisleg. íslend- ingum er mikils virði að gera grein fyrir skoðunum sínum og rökum í Iandhelgismálinu á al- þjóðavettvangi. Þess vegna væri undanhald af okkar hálfu að mæta ekki til þingmannafund^r Atlantshafsbandalagsins.Fjarvera þar myndi á engan hátt verða okkur til gagns í landhelgismál- inu. Þátttakan tryggir hins veg- ar, að íslenzki málstaðurinn í landhelgisdeilunni verði heyrin- kunnur. Það er of veigamikið at- riði til þess, að Þjóðviljinn .átá þýðingu þess liggja í láginni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.