Morgunblaðið - 20.11.1959, Page 2
2
MORCVNfílAÐIÐ
Föstudagur 20. nóv. 1959
Dalvíkingar drápu
350 grindahvali /
Hvalavaðan varb á leið Dalvikinga,
sem voru að koma úr róðri
DALVÍK, 19. nóv.: — Hér hefur
verið uppi fótur og fit síðan um
hádegið. að óvenjulegur atburður
átti sér stað. Sjómönnum héðan
úr Dalvík tókst þá að reka á land
hér innan hafnarinnar mjög stóra
hvalavöðu. Er lokið var við að
vinna á öllum grindahvölunum,
taldist mönnum svo til að í valn-
um lægju 350 grindur og eru sum
ar þeirra mjög stórar. f ráði er að
hvalskurður hefjist hér árdegis
á morgun, föstudag.
í morgun, er vélbáturinn
Bjarmi var á leið hingað inn úr
róðri, tóku skipverjar eftir hvala
vöðunni utan við Eyjafjörð. Tóku
þeir þegar að reka hana á undan
sér. Gekk það mjög vel og var
brátt komið inn í mynniEyjafjarð
ar. Rakst grindin svo vel að
Bjarmamenn þurftu enga aðstoð
fyrr en komið var hér inn á vík-
ina, og ekkert marsvínanna mun
hafa komist undan.
hvalirnir sumir hverjir mjög stór
ir og gizkuðu menn á að þeir
stærstu myndu ekki vera undir
tveim tonnum á þyngd.
Engu skal um það spáð hvernig
takast muni að vinna úr öllum
þessum afla og hagnýta hanns á
annan hátt. Hingað á að koma
í fyrramálið alvanur hvalskurð-
armaður frá hvalveiðistöðinni í
Hvalfirði og á hann að stjórna
verkinu. Að sjálfsögðu verður
kostað kapps um að frysta sem
mest af kjötinu til manneldis, en
því sem ekki verður fryst, verð-
ur reynt að koma til vinnslu í
verksmiðjum til fóðurfram-
leiðslu.
í*ess eru ekki dæmi að tekizt
hafi að reka grindahvali á land
hér í Danlvík og er þetta því al-
gert einsdæmi í sögu kauptúns-
ins. — S.P.J.
Togarinn Keilir flöggum prýddur i Hafnarfjarðarhöfn.
HAFNARFIRÐI — f fyrrakvöfb
Gert of mikið úr ágreiningi Breta
Norðmanna í Stokkhól
Skaug verzlunarmálaráðherra kvartar
yfir íímaþröng, en segir að malið
muni leysast
Tíðindin höfðu þá spurzt og
voru fjórir þilfarsbátar í víkinni
til taks er Bjarmi kom svo og
nokkrar trillur. Var nú sótt fast
að torfunni og henni þröngvað
inn á stöðugt grynnra og grynnra
vatn. Loks tókst bátunum að
koma vöðunni allri inn fyrir hafn
argarðinn og brátt brutust grind-
hvalirnir um skammt undan
fjöruborðinu, en þá var að falla
út.
Hver einasti rólfær Dalvíking-
ur mun þá hafa verið kominn
niður að höfninni og var aðgang-
ur þar harður meðan verið var
að drepa marsvínin, þar sem þau
brutust um. Að vísu dösuðust
þau fljótt eftir að þau strönduðu.
Gamall Færeyingur, sem hér hef
ur lengi átt heima, gekk mjög
rösklega fram við hvaladrápið,
einnig færeysk kona, sem ekki
var sein til, er fregnin barst um
hvalavöðuna og lét hún hendur
standa fram úr ermum!
Kraftmikill bíll og ýta voru svo
við það í dag að draga grindar-
hvalina upp á uppfyllinguna. Eru
Mjög góð sala
hjá Akurey
AKRANESTOGARINN Akurey
fékk í gærdag afar hátt verð fyr-
ir afla sinn. Seldi togarinn í Brem
erhavn 168 tonn af ísvörðum
fiski af miðum hér við land. Þessi
fiskur hefur án efa verið mjög
góður og ástand farmsins eftir
því, en aflinn seldist á 156.500
mörk, en það jafngildir um
13.000 sterlingspunda sölu. Mun
íslenzkur togari vart hafa fengið
öllu meira fyrir afla sinn í
Þýzkalandi. Hefur togarinn feng
ið rúmlega 5 steríingspund fyrir
hvert kit af aflanum. Skipstjóri
á Akurey er Kristján Kristjáns-
son á Akranesi.
Þórs-íundir
í Firðinum
HAFNARFIRÐI: — Málfunda-
félagið Þór heldur aðalfund sinn
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst hann kl. 8. Þar fara fram
venjuleg aðalfundarstörf. Eru fé
lagar beðnir að fjölmenna og taka
með sér nýja félaga. — G.E.
STOKKHÓLMUR, 19. nóv. —
(Fréttaritari NTB) —■
ARNE SKAUG verzlunar-
málaráðherra Norðmanna,
sagði í kvöld að alltof mikið
hefði verið gert úr ágreiningi
Breta og Norðmanna varð-
andi sölu fiskafurða í Frí-
verzlunarsvæðinu. Taldi hann
líklcgt að samkomulag myndi
nást um það eins og önnur
ágreiningsatriði í sambandi
við stofnun Fríverzlunar-
svæðisins, og tók það fram að
ráðherrafundirnir í dag hefðu
farið fram eins og búizt hefði
verið við. Allir vildu Frí-
verzlunarsvæði. Gallinn væri
að tímaþröng rikti á ráð-
stefnunni.
Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélags
Kópavogs
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa-
vogs heldur aðalfund sinn í Val-
höll, mánudaginn 30. nóv. n.k.
og hefst hann kl. 9 e.h. Venju-
leg aðalfundarstörf.
LISTMUNAUPPBOÐ Sigurðar
Benediktssonar fer fram í Sjálf-
stæðishúsinu í dag kl. 5 e.h.
Verða þar seldir 40 munir, mest-
megnis málverk, sem eru 34 tals-
ins, en auk þess kvenskart, kera-
ník-kanna, franskt spilaborð o.
fi. Málverkin eru eftir ýmsa lista-
menn meira og minna þekkta, m.
Þótt Skaug geri þannig ekki
mikið úr þessu vandamáli er það
vitað, að langmestur tími á ráð-
herrafundinum í dag fór í að
ræða fisksöluvandamálið. Var
og haldinn sérstakur fámennur
fundur um það mál, sem aðeins
fulltrúar Dana, Norðmanna og
Breta tóku þátt í. Það vakti líka
athygli, að fiskimálaráðherrar
Dana og Norðmanna komu í
kvöld til ráðstefnunnar og hafði
ekki verið búizt við þeim þang-
að. Sitja 13 ráðherrar frá stofn-
ríkjunum sjö þar með ráðstefn-
una.
Það sem málið snýst nú aðal-
lega um er að Bretar veigra sér
við að heimila meira en 20 þús.
tonna innflutning á ári af freð-
fiski frá Norðurlöndunum þrem-
ur, Noregi, Danmörku og Sví-
þjóð. Freðfisksala þessara landa
til Bretlands er nú miklu minni
en þessu nemur, en fiskimenn á
Norðurlöndum vita, að mögu-
leikar eru miklir á auknum fisk-
markaði og vilja því ékki afsala
sér þeim aðalkosti Fríverzlunar-
svæðisins á þessu sviði, að stærri
Imarkaðir myndist og að hægt
verði að hagnýta sér það án
takmarkana.
Arne Skaug verzlunarmálaráð-
herra Norðmanna sagði frétta-
manni NTB í kvöld, að Bretar
væru nú horfnir frá því að setja
eiginlegan kvóta um 20 þús.
tonna freðfisksölu, en rætt væri
aðeins um það, hvað gera skyldi
ef freðfisksala Norðurlandanna
þriggja yrði meiri en þetta inn-
flutningsmagn. Gæti þá komið til
a. eru þar 8 eftir Jóhannes Kjarv-
al, sem marga mun fýsa að eiga.
Eitt þeirra er mjög stórt, „Á Hell-
isheiði (Súlur)“, olía á lérefti,
110x213. Auk þess má nefna 2
myndir eftir Guðm. Thorsteins-
son (Mugg), 2 eftir Þórarinn B.
Þorláksson og 2 eftir Ásgrím Jóns
son. ^ -
greina að haldin yrði sérstök ráð-
stefna til að fjalla um það vanda-
mál þegar þar að kæmi, m. a.
hvort Bretar mættu þá hækka
tolla á freðfiski.
Þá er það sjónarmið ríkjandi
á ráðstefnunni, að ekki beri að
ræða um fiskveiðilandhelgi' á
þessari ráðstefnu, slíkt sé sér-
mál Norðmanna og Dana ann-
ars vegar og Breta hins vegar.
— Útsvör
Framh. af bls. 1.
nefna 1,5 millj. kr., er gert væri
ráð fyrir að Bæjarútgerðin
greiddi bæjarsjóði í útsvar, en
hún hefði ekki áður skilað hagn-
aði. Gert væri ráð fyrir nokk-
urri hækkun á arði af fyrirtækj-
um, m. a. frá Hita-, Vatns-, og
Rafmagnsveitu, sem stafaði af
því, að hrein eign þessara fyrir-
tækja hefði hækkað. Þá væri
einnig gert ráð fyrir tekjuhækk-
un vegna hækkaðrar leigu af iðn-
aðarlóðum bæjarins.
Kostnaður við stjórn bæjar-
ins væri þó áætlaður hinn sami
og í ár, en gert ráð fyrir örlíl-
illi hækkun á löggæzlukostnaði,
vegna fólksfjölgunar. Um bruna-
málin væri það að segja, að sam-
kvæmt ákvörðun bæjarstjórnar
yrði brunavörðum fjölgað um
6 um næstu áramót, en gert væri
ráð fyrir að sá kostnaðarauki yrði
greiddur úr húsatryggingasjóði,
eins og gert væri ráð fyrir í lög-
um um brunatryggingar húsa i
Reykjavík. Til félagsmála væri
áætlaðar 66 millj. kr. Væri það
900 þús. kr. meira heldur en á
þessu ári, en mest væri það um
lögbundinn kostnað að ræða. —
Gjöld til almannatrygginga
mundu hækka nokkuð, og einnig
framlag til Strætisvagna Reykja
víkur, vegna fjölgunar vagnanna.
Þá gat borgarstjóri um tekju-
auka að upphæð 13 millj. kr., sem
væru gjöld vegna lóðaúthlutana
og hlutdeild húseigenda í kostn-
aði við að fullgera götur. — Þessi
gjöld hefðu ekki enn verið inn-
heimt, en reglur þar að lútandi
væru í undirbúningi.
Er Gunnar Thoroddsen hafði
lakið máli sínu, tóku til máls
Þórður Björnsson, Magnús Ást-
marsson og Alfreð Gíslason, en
að því loknu var frumvarpinu
að fjárhagsáætlun fyrir árið 1960
vísað til 2. umræðu með sam-1
hljóða atkvæðum. J
kom hingað til bæjarins hinn nýi
togari, sem Axel Kristjánsson
hefur keypt frá Þýzkalandi. —
Heitir hann Keilir, og hefur ein-
kennisstafina GK 3. Togarinn,
sem er 640 brúttólestir, og byggð-
ur árið 1950, er keyptur hingað
frá Bremerhaven, en þar fóru
fram á honum margvíslegar lag-
færingar og endurbætur. Sagði
Þorsteinn Auðunsson, sem sigldi
Keili heim, og verður með hann
fyrst um sinn, að togarmenn í
Bremerhaven hefðu kallað Keili
1957 „model“, svo miklar og
gagngerðar endurbætur hefðu
fram farið á honum, áður en hann
var afhentur hinum nýju eigend-
um. — Kvað hann bezta veður
hafa verið á heimleiðinni, en
þrátt fyrir það, gæti hann fullyrt,
að togarinn væri hið bezta sjó-
skip.
Keilir er að stærð eins og minni
togararnir hér, en lestarrými er
allmiklu meira, og mun hann
taka eins mikið fiskmagn og stærri
togarar, svo sem Júní. Hann er
olíúkyntur og er með skipti-
skrúfu, sá eini íslenzkra togara.
Þá hefir hann rafmagnsdrifið
stýri og að sjálfsögðu öll helztu
siglingatæki, svo sem gyro-átta-
vita. Keilir gengur að meðaltah.
IOV2 sjóm. í honum eru vistar-
verur með ágætum, rúmgóðar og
bjartar. —G.E.
15 þús. kr. stolið
í Hainariirði
HAFNARFIRÐI. — í fyrrinótt
var brotizt inn í Málningarverk-
stæði Sveins Magnússonar við
Lækjargötu og stolið þaðan úr
skjalatösku um 13 þúsund krón-
um og um 1900 kr. úr skrifborðs-
skúffu. Hafðist þegar í gærmorg-
un upp á þeim, sem verknaðinn
framdi, og reyndist það vera
maður um þrítugsaldur, sem
nokkrum sinnum áður hefir kom
izt í kast við lögregluna. Þegar
hann var handtekinn. hafði hann
eytt um 5500 krónum af pening-
unum.
Komst hann inn í Málningar-
verkstæðið með þeim hætti að
brjóta rúðu í kaffistofu, en síðan
var greiður aðgangur inn í skrif-
stofuna. Þar var fyrrnefnd skjala
taska geymd þessa nótt, en
annars eru peningar ekki geymd-
ir þar næturlangt.
Er þetta fjórða innbrotið hér
í bænum á skömmum tíma. í öll
skiptin hefir lögreglunni tekizt
nær samstundis að upplýsa þjófn
aðinn, og er það vel af sér vikið.
— G.E.
Listmunauppboð í
Sjálfstœðishúsinu í dag