Morgunblaðið - 20.11.1959, Qupperneq 21
lTöstudagur 20. nóv. 1959
MORCVJSJil.AÐiÐ
21
— Mirmingarorð
Framh. af bls. 17.
Sem ég standi á eyði-ey
öllu lífi fjarri.
Það á hér sannarlega hema, þó
ég sendi þessa vísu undir öðrum
kringumstæðum á sínum tíma.
Þangað sótti ég yndi æ
efldist þróttur virkur
er nú hljótt í „Ölmu bæ“
eilíf nótt og myrkur.
Fari Alma að kvarta er of langt
gengið, sagði Þorleifur og er það
satt. Býst við að fjöldinn skilji
lítið sorg þessarar konu. Hún er
dálítið óvanaleg eins og samband
þeirra hjónanna var. Mundum við
sem erum búin að njóta hjúkrun-
ar og huggunar hjá þessum hjón-
um ekki þrá Þorleifs vegna, hvað
sem öðru liði, að gera eitthvað
fyrir hjartkæru vinuna hans. Það
voru fleiri en ég sem komu þang-
að sjúkir — undarlega margir —
og fóru styrkir andlega og líkam-
lega.
Þarna fæddust nokkur börn,
allt fór vel í öllum þrengslunum
og vandræðunum. Þorleifur var
svo hjálplegur, gat einskis manns
bón neitað, hjálpsemin var þarna
í öndvegi og samstarfið kærleiks-
ríkt. Enginn bætir Þorleifi. Tóm-
ið er svo mikið.
Nú kveð ég hann með hjartans
þakklæti fyrir alla vináttuna, allt
lífið, sem hann veitti mér, en bezt
þakka ég, er hann rétti mér dreng
inn sinn og segir: „Reyndu að
njóta hans í sumar og hafa yndi
af honum, eri getir þú það ekki
er þér ekki lífvænt", — og hló,
hann var alltaf glettinn. Ég bið
guð að gefa honum alla sælu á
„nýjum akri eilífðar“. Gefi guð
huggun konunni hans og syni,
sem ég óska af heilum hug þeirr-
ar gæfu ásamt konu og börnum
að hann geti og það allt verið
móðir hans huggun þess er hún
að fullu verðug en ég veit það
þarf mikið til og dálítið sérstætt.
Guð varðveiti Þorleif Jónsson.
Gamall vinur.
H ið sápuríka Rl N SO
fryggir fallegustu áferðina
Það er reglulega gaman að hjálpa mömmu
Önnu er sérstaklega ljúft að hjálpa mömmu sinnl
við að búa um rúmin, því það er svo hreinleg vinna.
En hvers vegna er rúmfatnaðurinn svona
tandurhreinn og hvítur? Jú, það er vegna þess, að
mamma veit, að noti hún RINSO, fær hún tryggingu
fyrir því, að þvotturinn hennar verður snjóhvítur
og fallegur. RINSO inniheldur aðeins hrein sápuefni,
þess vegna eyðileggur það ekki hið viðkvæma lín
og skaðar ekki hendurnar. Einnig fer það vel með
kjörgripinn hennar mömmu — þvottavélina.
Rinso þvottur er ávallt fullkominn
og skilar líninu sem nýju
X-R WEN-M45-M
Sendisveinn
Röskan sendisvein vantar okkur strax.
Vinnutími 6—12 f.h.
JltorgtittÞInfrife
afgreiðslan — Sími 22480
Atvinna
nokkrar stúlkur óskast til starfa um næstkomandi
mánaðamót við framreiðslu og eldhússtörf í nýrri
kaffistofu í miðbænum. Vaktavinna. Uppl. eftir
hádegi í dag í sírha 19176.
Skrifstofustúlka
óskast nú þegar eða frá næstu áramótum að
telja. Málakunnátta æskileg (enska-danska). Til
greina kemur að skipta starfinu milli tveggja, þann-
ig að hvor vinni hálfan daginn.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, sendist fyrir 25. þ.m. auðkenndar:
„Atvinna, Pósthólf 134, Rvk.“
Carðyrkjuskóli
Skodej Havebrugsskole Skodje, pr. Alesund, Norge,
býður yður 12 mánaða verklegt og bóklegt námskeið, frá
12. jan. 1960. Skólinn er nýstandsettur með hagnýtu
gróðurhúsi, ávaxtagarði, gróðrastöð og jarðvinnslu m. m.
Nemendurnir búa í nýtízku heimavist. Skólinn er á fögr-
um stað 30 km. frá Álesund. Skrifið og fáið nánari uppl.
Umsóknir sendist fyrir 5. desember.
Vinnufatabúðin Laugaveg 76
Samfestingar allar stærðir
Skinnblússur allar stærðir
Ytrabyrði á gæruskinnsúlpur allar
stærðir
Kuldaúlpur á börn og fullorðna allar
stærðir
Vinnufatabuðin Laugaveg 76
Vel klœddir karlmenn
láta okkur annast skyrtuþvottinn
Fullkomnar vélar.
Fljót afgreiðsla
Festar á tölur
Plast-umbúðir
Sækjum — Sendum
Þvottalaugin FLIBBINN
Baldursgötu 12 — Sími 14360
Ttuúmised T£i6bi