Morgunblaðið - 13.12.1959, Side 3
Sunnudagur 13. des. 1959
MORGfllSm,AT>1Ð
3
Ein fegursta bdkin
sem ut hefur komið a
siðari árum
Ferðabok Dr. Helga Pjeturss
í bók þessarl eru saman komnir yfir 50
ferðaþættir, sem hinn frábæri ritsnillingur
og ágæti náttúrufræðingur ritaði á langri
ævi sinni. Ritið skiptist í þrjá höfuð kafla:
Grænlandsförin 1897, sem hefur að geyma
sérstæða ferðarsögu höfundar til Grænlands
I vísinda erindum. Þar er að finna mjög
skemmtilegar lýsingar á lifnaðarháttum
Eskimóanna fyrir aldamót, er þeir enn lifðu
sínu frumstæða lífi.
Annar þátturinn ber heitið. Það líkist eng-
um löndum og segir þar frá ferðum Dr.
Helga um ísland, óbyggðir, örævi og sögu-
lega staði. Er þarna brugðið upp fjölmörg-
um heillandi fögrum ná,ttúrulýsingum auk
þess sem í þessum köflum felst mikill fróð-
leikur um náttúru landsins.
Þriðji hluti bókarinnar ber nafnið Suður i
lönd, og eru þar ferðapistlar frá dvöl höf-
undar í Englandi, Norðurlöndum, Þýzka-
landi, Sviss og Ítalíu. Inn í þessar ferða-
sögur er ofið mörgum skemmtilegum frá-
sögnum af frægum mönnum svo sem Cæsar,
, Goethe, Napoleon og Brandes jafnframt því,
sem dregnar eru upp eftirminnilegar myndir
af ýmsum stórborgum Evrópu, svo sem Vín,
Berlín, Munchen, London, París og Milano,
eins og þær voru fyrir fyrri heimsstyrjöld-
ina.
Halldór Pétursson hefur skreytt bókina
fagurlega fjölda pennateikninga.
Vilhjálmur Þ. Gíslason sá um útgáíua,
valdi efnið og ritaði formála.
Ferðabók Dr. Helga Pjeturss er öndvegisrit og kjörgripur, sem hvert menningarheim ili þarf að eignast
Skemmtileg ferðabók
Rituð af mikilli stílsnilld
á kjarnmiklu máli
Lifandi sagnfræði
um hugnæmt efni
Bokfellsutgáfan