Morgunblaðið - 17.01.1960, Blaðsíða 2
«
MOR CVNTtT. 4 ÐIÐ
Sunnudagur 17. jan. 1959
Fyrsta konan
við Háskóla
ver dokíorsritgerð
Islands
KLUKKAN 2 e. h. í gser varði
Selma Jónsdóttir listfræðingur
doktorsritgerð sína um býzanzka
dómsdagsmynd frá Flatatungu, í
hátíðasal Háskólans, að viðstödd
um forseta íslands, háskólarekt-
or o. fl., og hlaut fyrir nafnbót-
ina doctor philosophiae. Var sal-
urinn þéttskipaður áheyrend-
um, bæði niðri og uppi, og urðu
margir að standa. Andmælend-
ur voru dr. Kristján Eldjárn og
<L. Francis Wormald.
Athöfninni stjórnaði deildar-
forseti heimspekideildar, dr.
Guðni Jónsson prófessor. Gat
hann þess í upphafi að doktors-
vörnin, sem nú færi fram, væri
viðburður, sem geymast mundi
í annálum skólans, þar eð dokt-
orsefnið væri fyrsta konan, sem
hefur varið rifgerð við Háskóla
íslands frá upphafi. Kvað hann
þsjá sérfróða menn hafa rannsak
að vísindalegt gildi ritgerðarinn
ar, þá dr. Kristján Eldjárn, próf.
Magnús Má Lárusson og dr.
Francis Wormald, prófessor við
háskólann í London og þeir allir
verið á einu máli um að ritgerð
in væri þess verð að hún yrði
tekin gild til doktorsvarnar. —
Væri ritgerðin komin út á ís-
lenzku, og mánuður liðinn frá
birtingu hennar, eins og lög
gera ráð fyrir, og geti því vörn-
in farið fram.
Doktorsefnið sagði í upphafi
nokkur orð. Kvaðst Selma alltaf
hafa haft yndi af miðaldalist,
enda kynnt sér hana sérstakega
á námsárunum, lýsti hún því síð
an hvernig hún hefði fyrst séð
líkingu með fjölunum frá
Bjarnastaðahlíð, sem hanga í
Þjóðminjasafninu, og mynd af
byzönzkum dómsdegi ' dómkirkj-
unni í Torcello á ítalíu og síðan
fundið nokkrar dómsdagsmynd-
ii á söfnum erlendis, sem
styrktu þann grun.
Byzönzk dómsdagsmynd
í ritgerðinni gerir Selma Jóns
dóttir grein fyrir árangrinum af
rannsóknum sínum og tilraunum
til að tengja myndskurðinn á
Bjarnastaðahlíðarfjöiunum er-
lendri myndlist. Kemst hún að
Adenauer
Framh. af bls. 1.
stendur á bak þið þá með öllu
sínu veldi. Þeir hafa mína ábyrgð
á þessum orðum“.
í fregnum frá Saarbruck m
segir, aS þýzki Ríkisflokkurinn
hafi boðað til tveggja funda í
Saar um þessa helgi, en ríkisyfir
völdin bannað, að þeir yrðu haldn
ir og hafi nú flokkurinn skotið
málinu fyrir dómstólinn í Saar.
— Flokkurinn liggur nú undir
rannsókn fyrir stjórnarskrárbrot
og nazisma.
• Mótmælaganga.
Ýmsir flokkar, verkalýðsfélög
og æskulýðsfélög höfðu ákveðið
mótmælagöngu gegn flokknum
áður en tilkynnt var um fund-
arbannið. Verður sú ganga nú
farin til að mótmæla uppvakr.-
ingu nazismans og Gyðingaárás-
anna.
Talsmaður ríkisflokksins kvaðst
bjartsýnn á að banninu yrði af-
létt og vitnaði í það að ekki
tókst að banna fundi flokksins í
Rínarhéruðunum um síðustu
helgi. Meðal ræðumgnna, sem
áttu að ávarpa fundinn í dag, var
Hans Ulrich-Rudel, sem var fltig
maður í síðustu heimsstyrjöid,
einasti maðurinn, sem sæmdur
var æðsta heiðursmerki Þjóð-
verja fyrir hugrekki. Adolf von
Thadden, sem áður var foringi í
Hitlersæskunni, en er núna einn
af stjórneudum Ríkisflokksins,
átti að ávarpa fund, sem halda
átti á morgun í Saarlouis.
þeirri niðurstöðu með saman-
burði á fjölunum og dómsdags-
myndium frá 11. og 12. öld, að
á þeim sé hluti af byzanzkri
dómsdagsmynd. Er þetta mjög
merkilegt, þar eð örfáar slíkar
myndir hafa fundizt í Vestur-
Evrópu, og engar svona norðan-
lega. Kveður hún stíleinkennin
á Bjarnastaðahlíðarfjölunum í
nánum skyldleika við list þá, er
var í Monte Cassino á dögum
Desideriusar ábóta á síðari hluta
11. aldar. Leiðir hún getum að
því, að fyrirmyndin hafi borizt
hingað með þrem ermskum bisk-
upum, er Ari fróði segir frá, og
þt mynd hafi ísl. listamaður
síðan notað sem fyrirmynd að
býzanzkri dómsdagsmynd í
Flatatunguskálann, og fjalirnar
séu úr honum.
Um eðalstein að ræða
Andmælendur luku lofsorði á
ritgerðina í heild, en gagnrýndu
ýms atriði í henni, eins og vera
ber.
Dr. Wormald sagði að það væri
ekki á hverjum degi sem svo göm
ul listaverk fyndust, hvað þá
svona langt frá þeim stöðum,
Skjaldarglíma
r
Annanns
SKJALDARGLÍMA ÁRMANNS
verður háð í íþróttahúsinu að Há
logalandi, mánudaginn 1. febr.
Keppt verður þar um Ármanns-
skjöldinn, sem er gefinn af Egg-
ert Kristjánssyni, stórkaupm.,
handhafi hans er Ármann J.
Lárusson, Ungmennafélagi Rvík-
ur.
Keppendur í glímunni skulu
gefa sig skriflega fram við stjórn
glímudeildar Ármanns fyrir 25.
jan. n. k. í pósthólf 1086.
sem búast mætti við þeim. Gat
hann þess, að til hefðu verið
tvær tegundir af dómsdagsmynd
um. Sú austræna fluttist sjaldan
í vestur og hann vissi ekki til að
sú vestræna hefði farið austur á
bóginn.
Dr. Kristján Eldjárn sagði m.
a., að hingað til hefði engum
skilizt að hér væri um eðalsteina
að ræða, þar sem þessar fjalir
eru, og enginn reynt að ganga
úr skugga um að svo væri. Kvað
hann ritgerð þessa opna alveg
nýja sýn og það msundu áreiðan-
lega þykja merk tíðindi erlendis,
er það spyrðist að hér hafi verið
býzönzk dómsdagsmynd. Og
óvíst væri hve langur Þyrnirós-
arsvefn myndarinnar hefði orð-
ið, ef verk Selmu Jónsdóttur
hefði ekki komið til.
Eftir að sókn og vöm hafði
fram farið, fóru dómendur afsíð-
is og komu eftir skamma stund
aftur með úrskurð sinn um að
vörnin hefði verið tekin gild.
Fór of snemma(
á fætur
París, 16. jan. (Reuter).(
Francoise-Sagan, skáldkon-/
\ an heimsþekkta, er mesti nátt/
.hrafn, en maður hennar, bóka)
'útgefandinn Guy Schöller, ei)
)hestamaður mikill og fer eld-
)snemma á fætur á morgnana,(
\til að komast á hestbak. Af-/
.leiðingin hefur orðið sú, að)
þau hafa nú ákveðið að ski-lja.'
„Ég fór í rúmið kl. 4 á(
) morgnana, hann á fætur kl.(
)7 til að fara á hestbak", sagði,
ÍSagan við blaðamenn. „Við'
'höfum tekið ákvörðun, og þið'
)megið trúa því að mér þykir(
)þetta leiðinlegt, en við gátum(
\ ekki haldið svona áfram“.
Francoise Sagan bætti því)
1 við, að sér fyndist hjónaband(
) og böm hið eftirsóknarverð-
)asta í lífinu — og kvaðst/
\mundu byrja upp á nýtt. —,
Kommúnisti handtekinn
fyrir ný-nazisma
Sumarvatn
í Skeiðará
í GÆR var komið sumarvatn í
Skeiðará og hafði vaxið talsvert
í ánni í fyrrinótt, samkvæmt
fréttum frá Ragnari bónda í
Skaftafelli.
Þykir það merkilegt að hlaup
skuli koma í Grímsvötnin svona
um hávetur, en á því er ekki
lengur vafi að svo er.
BERLÍN 16. jan. (Reuter). Lög-
reglan í Vestur-Berlín hefur
handtekið 22ja ára gamlan njósn
ara kommúnlsta, sem í sex mán
uði hefur verið einn af stjóm-
endum æskulýðsfélags, sem bann
að var í Berlín vegna nazisma.
Atti njósnarinn, Bernhard
Schlottman, að gefa austur-
þýzka öryggismálaráðuneytinu
skýrslu, um meðlimi þjóðernis-
félags stúdenta. Eftir að lögregl
an hafði handtekið nokkra með-
limi félaglsins á útifundi í einum
af almenningsgörðum vestur-
Berlínar sunnudagskvöldið 3.
janúar, fékk Schlottman fyrir-
skipanir um að flýja til Austur-
Berlínar. Þetta gerði Schlottman
6. jan. s. 1., en sneri aftur til
vestur Berlínar hinn 13. og gaf
sig fram við lögregluna daginn
eftir.
Tu«milljóna tjón
AMSTERDAM, Hollandi, 16. jan.
(Reuter). — Risastórar dælur
hófu í dag að dæla sjónum burt
af flóðasvæðinu í úthverfi Amst
erdam, þar sem heimili 11.250
manna hafa legið undir vatni síð
an á fimmtudag.
Reiknað er með að það taki
ur' fimm daga að þurrausa svæð
ið, og að nokkrar vikur til við-
bótar muni líða áður en allsiherj
ar hreinsun er lokið og íbúarn-
ir geta flutt inn að nýju. Þótt
tjónið sé metið í milljónum doll-
ara, munu hollenzk tryggingarfé
lög engar bætur greiða. Síðan
flóð í suður-Hollandi urðu 1835
skrifstofa bæjarverkfræðings manns að bana fyrir sjö árum,
gatnahreinsunina svo og sorp- I hefur ekki verið unnt að tryggja
Bæjarverkfræð-
in»ur anuast
alla hreinsun
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn var samþykkt
að fela bæjarverkfræðingi að sjá
um alla þá hreinsun, sem bær-
inn þarf að sjá um. Áður hafði
hreinsunina. I sig gegn þeirri hættu.
NA /5 hnúfar y/ SV 50 hnútar X Snjókoma > ÚSi \7 Skúrir K Þrumur 'W,%, KuldaskH Zs* HihskH H Hcti 1
Kuldaskil yfir íslandi
I DAG liggja kuldaskil frá
Breiðafirði suð-austur um
Hornafjörð og verður vestan-
átt með 5 stiga hita sunnan
þeirra, en hæg norðanátt með
tveggja stiga frosti að norðan.
Fyrir sunnan landið er enn
sem fyrr háþrýstisvæði og
hlýindi, en hins vegar er kalt
háþrýstisvæði yfir N-Græn-
land og er 33 stiga frost í
Meistaravík.
Um vestanverða Evrópu er
norðanátt og kalt í veðri, t.d.
5—6 stiga frost í Frakklandi.
Við Labrador er djúp lægð-
armiðja og SA-rok milli henn
ar og S-Grænlands.
.........
Veðurútlit kl. 8 í gærkvöldi:
SV-land og Faxaflói: Vestan-
átt og þíðviðri fram eftir
nóttu, en síðan NA-átt, senni-
lega með dálítilli snjókomu.
Breiðaf jörður til Austf jarða:
NA-kaldi, sumstaðar lítilshátt-
ar snjókoma og 3—6 stiga
frost.
SA-land: N- og NA-kaldi,
léttskýjað.
Tengdasonur
keisarans —
sendiherra?
TEHERAN, 16. jan. (Reuter). —
Talið er, að Ardestir Zahedi,
tengdasonur íranskeisara, verði
skipaður sendiherra írans í
Bandaríkjunum á næstunni. —
Zahedi, sem er 31 árs gamall, er
kvæntur Shahna prinsessu, sem
er eina barn keisarans. Móðir
hennar er Fawzia, systir Farúks,
fyrrum Egyptalandskonungs, en
hún var fyrsta kona keisarans.
Ættu að hljóta
dauðadóm
REUTER, 16. jan. — Þrír
unglingar í New York, sem
ásakaðir eru um tilraun til
að stofna félag gegn Gyðing-
um, voru í gær kærðir Cyrir
landráð samkvæmt lögum er
heimila dauðarefsingu.
Unglingarnir, sem eru 21,
20 og 16 ára gamlir, voru
fyrst ákærðir fyrir ólöglegar
fyrirætlanir, en dómarinn,
Milton Solomon fyrirskipaði
að þeim yrði haldið fyrir
landráð. — „Mér finnst tíma
bært að þessir drengir, sem
hafa í hyggju styrjöld gegn
þjóðfélaginu og ríkisstjórn-
inni, verði dæmdir til dauða“,
sagði dóbarinn.
Eden enn sama
sinnis um Súez
LONDON, 16. jan. — Sir Ant-
hony Eden hefir sagt í sjónvarps-
viðtali í Bandaríkjunum, að
hann hafi ekki breytt um skoð-
un varðandi átökin við Súez
fyrir þrem árum. Hann sagði,
að gott hefði leitt af íhlutun
Breta og Frakka þar, a. m. k.
að einu leyti: Að Sameinuðu
þjóðirnar hefðu þá sýnt, að þær
væru annað og meira en vett-
vangur umræðna, er þær hefðu
sent alþjóðlegt lögreglulið sitt a
vettvang.
Eden var spurður um nýlendu-
stefnuna og áhrif hennar í heim-
inum ídag. Lét hann svo um
mælt, að Sovétríkin væru í raun
og veru eina nýlenduveldið í
heiminum nú.
Mikill föp;iiuðiir
í héraðiuu
ÞÚFUM, 14. jan. — Hér er blíð-
skaparveður daglega og snjó-
laust í byggð. Margir rækjubát-
ar eru á veiðum í Djúpinu, en
sækja nú innar í Djúpið til veiða
en undanfarið. A veiðistöðvum
í útdjúpinu er róið daglega. —
Sækja bátamir alllangt út af
Homi og fiska allvel, eða frá
4—5 upp í 10—12 lestir í róðri,
og einstaka bátar fá meiri afla
með köflum. Nokkrir bátar geta
ekki byrjað fyrir mannleysi. —
Von var á Færeyingum, sem
ekki eru komnir.
Mikill fögnuður varð í hérað-
inu er fregnin barst um, að Úr-
anus væri kominn fram.
— P. P.
Aldrei meira byggt
á Akureyri
AKUREYRI, 15. jan. — Sam-
kvæmt upplýsingum bygginga-
meistara hefur aldrei verið byggt
jafnmikið hér á Akureyri og á
síðastl. ári.
Á þessu mikla byggingaári
höfðu 50 hús með 89 íbúðum ver-
ið fullgerð. Undir þak höfðu
komizt 61 hús, með 106 íbúðum.
Þá var byrjað á 36 íbúðum. —
Eru þessar byggingar mun
meiri en fólksfjölguninni í bæn-
um nemur. __JOB.