Morgunblaðið - 17.01.1960, Blaðsíða 6
6
MORCUNRLAfílÐ
Sunnudagur 17. jan. 1959
lír verinu
Einar Sigurðsson<
Togararnir.
Tíðin hefur verið ágæt á
heimamiðum, hæg austan og suð
austan átt.
Allir togararnir eru á heima-
miðum til og frá út af Vestfjörð-
um nema tveir, sem eru nýkomn
ir frá Nýfundnalandi. Var um
tíma farið að óttast um annan
þeirra, Úranus, en sem betur fór
reyndist það ástæðulaust, loft-
skeytatækin höfðu bilað.
Afli hefur verið sáratregur
eins og áður hjá þeim skipum,
sem verið hafa á heimamiðum,
en togararnir, sem komu af Ný-
fundnalandsmiðum, komu báðir
með fullfermi.
Flestir, sem eru á heimamið-
um, sigla nú með aflann til sölu
erlendis, og hafa þeir fengið á-
gætt verð.
Sölur erlendis:
Akurey 129 tonn fyrir 10.662 £
Askur 143 t. fyrir DM 106.000
Neptúnus, 129 t. f. DM 82.230
(síid)
Fisklandanir:
Marz (heimamið) 124 t. 12 d.
Þorm. goði (Nýf.l.).360 t. 16 d.
Úranus (Nýf.l.) 260 t. 17 d.
Reykjavík
Einmuna blíða var alla sl.
viku og róið upp á hvern dag.
Afli var heldur góður, dag-
róðrarbátar voru að fá 5—9 lest-
ir í róðri og nokkru minna hjá
smærri bátunum. Um helmingur
aflans er ýsa.
Þrír útilegubátar voru komnir
inn á föstudagskvöld og von jafn
vel á tveimur í gaerdag, en 5
bátar eru nú í útilegu. Voru
þessir 3 bátar með við 45 lestir
hver af slægðum fiski og höfðu
lagt 5 sinnum. Útilegubátarnir
hafa haldið sig aðallega norðan
við Kollálinn ,sem genjur inn í
Breiðafjörðinn, svo langt er sótt.
Enn er vart kominn afli, sem
er í frásögur færandi, þó má geta
þess, að Kári, sem byrjaði einna
fyrstur, var búinn að fá á föstu-
daginn við 60 lestir, óslægt. Úti-
legubátarnir Björn Jónsson^og
Hafþór voru þá komnir með við
60 lestir hvor af sl. fiski og Helga
45 lestir, en hún byrjaði eitthvað
seinna. Von var á Rifsnesinu og
Auði inn seint í gær. Þrír bátar
róa með þorskanet og hafa ekk-
ert fengið.
Keflavík
Róið var alla vikuna og renni-
blíða hvern dag, svo að elztu
menn muna ekki aðra eins tíð í
janúarmánuði.
Afli hefur verið sæmilegur, yf-
irleitt 6—9 lestir í róðri. Mið-
vikudagurinn var jafnbezti dag-
urinn í vikunni, var þá aflinn
7—11 lestir á bát og komst upp
í rúmar 14 lestir, Jón Finnsson.
Sótt hefur verið frekEir stutt,
1%—2 tíma frá Garðskaga þar
til á fimmtudag, að Guðmundur
Þórðarson fór út í dýpið og fékk
12% lest af góðum fiski. Fóru
þá fleiri þangað daginn eftir og
öfluðu vel.
Aflahæstu bátarnir 15. jan.:
71 t. ósl.
69-----
66-----
60-----
60-----
Askur .........
Jón Finnsson ..
Guðm. Þórðarson
Bjarmi ........
Ól. Magnússon
Akranes
Gæftir voru ágætar alla vik-
una og allir alltaf á sjó, sem til-
búnir eru. Það eru nú 15 bátar
um þessa helgi. Þrír eru þá ó-
byrjaðir og 2 nýir bátar, sem
eru ókomnir til landsins.
Afli var algengastur 9—11 lest-
ir og komst upp í 13 lestir. Var
það Sigrún, sem fékk þann afla
sitt hvorn daginn. Aflahæstu
bátarnir eru með tæpar 50 lestir
í 7 róðrum.
Vestmannaeyjar
Ágætt sjóveður var aila vik-
una og róið dag hvern.
Milli 50—60 bátar eru nú byrj-
aðir róðra og fjölgar daglega.
Afli hjá línubátum hefur al-
mennt verið 6—10 lestir og nokkr
ir daglega með meiri afla. Bezta
róðurinn í vikunni fékk Dala- j
röst, skipstj. Hilmar Bjarnason.
Afli er mest ýsa og langa, varla
að þorskur sjáist. Dæmi eru til
þess, að í 6 lesta afla hafi verið
aðeins 2 þorskar.
Smábátarnir hafa verið með
handfæri, og sumir þeirra fengið
ágætis afla. Ein trilla með tveim
ur mönnum fékk t.d. einn dag-
inn 4.5 lestir af stórufsa.
Hæstu bátarnir til og með 15.,
föstudeginum:
Stígandi ............70 1. ósl.
Gullborg............ 67 - —
Huginn ............. 62 - —
Eyjaberg............ 57 - —
Leó ................ 57 - —
Reynir.............. 51 - —
Viðskipti og vörugæði
Allir landsmenn eiga mikið
undir, að vel takist til um sölu
útflutningsframleiðslunnar. Fyr-
ir hana eru keyptar allar erlend-
ar nauðþurftir þjóðav nnar. Á
þetta ekki hvað sízt , ið um sjáv-
irafurðir, þaðan sem 95 aurai
af hverri krónu koma.
Skrif um utanríkisviðskiptin
og vörugæði útflutningsfram-
leiðslunnar eru vandasöm, því
að hér er ekki aðeins verið að
skrifa fyrir landsmenn sjálfa,
heldur eru skrif þessi oft hinar
mikilvægustu upplýsingar fyrir
erlenda viðskiptamenn fslend-
inga, sem hagnýta sér þau út í
æsar.
Togararnir eru nú allir á heimamiðum
Fyrir nokkrum dögum var í
blöðunum verið með fullyrðing-
ar um, að verð á frosnum fiski í
Bandaríkjunum færi lækkandi.
Það má ef til vill segja, að slík-
ar fréttir séu ekki nema almenns
eðlis, þótt slæmar séu, og ekkert
við þeim að segja, ef sannar eru.
íslendingar eins og aðrar þjóðir,
sem selja vöru sína á heimsmark
aði, verða að sætta sig við það
verð, sem fáanlegt er á hverjum
tíma. En séu þessi skrif orðum
aukin, geta þau aðeins skaðað
þjóðina, ekki sízt þegar eins
stendur á og nú að verið er að
senda nefnd til Sovétríkjanna til
þess að semja um % hluta af
ársframleiðslu íslendinga af
frosnum fiski.
Að því er varðar þann fisk, er
Sölumiðst. hraðfrystihúsanna sel-
ur í Bandaríkjunum verður ekki
annað séð en að þessar fréttir
séu gripnar úr lausu lofti. Það
hefur engin verðlækkun átt sér
stað á þessum fiski í Bandaríkj-
unum nú, en Sölumiðstöðin sel-
ur um 80% af íslenzka freðfiskin-
um, sem seldur er þar. Auðvitað
eiga sér stað við og við verð-
sveiflur, þar sem þetta er full-
komlega frjáls markaður, þar
sem verðið er háð framboði og
eftirspurn, en aðallega eiga þær
sér stað eftir árstíðum, og lækk-
ar verðið venjulega yfir sumar-
mánuðina.
í þessu sambandi má geta þess,
að verðlag á fiski, og er þá hér
aðallega átt við freðfisk, hefur
farið jafnt og þétt hækkandi 1
Bandaríkjunum undanfarin ár.
Er það ekkert sérstakt, hvað fisk
snertir, því að verðþróunin hef-
ur yfirleitt verið í þá átt í Banda
ríkjunum, þótt þess hafi ekki
hvað sízt gætt hvað fisk snertir.
Kemur þar til yfirleitt minnk-
andi afli og íólksfjölgun og vax-
andi eftirspurn eftir fiski.
Verð á fiski í' vöruskiptalönd-
unum hefur hins vegar lítið
breytzt árum saman, og þótt það
þætti gott, þegar um það var
samið í upphafi, er það nú farið
að dragast aftur úr: íslendingar
hafa því við síðustu samninga
lagt mikið kapp á að fá verð
þetta hækkað, en lítið orðið á-
gengt.
Nokkuð sama máli gegnir um
hvatvís skrif og sleggju-
dóma um, að íslenzk fram-
leiðsla sé stórgölluð eða lé-
leg að gæðum. Slíkt getur aðeins
bakað þjóðinni fjárhagslegt tjón
og valdið henni álitshnekki og
erfiðleikum við að selja þessa
lífsbjörg sína. Hitt er allt ann-
ars eðlis að hvetja til vöruvönd-
unar, og verða landsmenn aldrei
um of brýndir með því, hve mik-
ilvægt það sé að ná sem lengst í
þeim efnum.
Ef fslendingar eiga að geta
lifað á borð við þær þjóðir, sem
búa við bezt lífskjör, verða þeir
að geta framleitt vöru, sem
stenzt samkeppni á hinum vand-
látasta markaði heimsins, Hvergi
hafa þeir náð lengra í þeim efn-
um en í frosna fiskinum, þar
sem þeir hafa rutt honum til
rúms sem fullunninni vöru í
neytendaumbúðum á vandlátasta
markaði heims, Bandaríkjunum.
Brezkir fiskibátar skráðir
í írlandi
Landhelgismál íra hafa nýlega
borið á góma í fréttunum. og var
þá sagt frá því, að Bretar hefðu
sent herskip sín á vettvang til
þess að verja þau í hinni ný-
stækkuðu landhelgi fra. írar
höfðu dregið grunnlínur og helg
að sér þannig firði og flóa eins
og Norðmenn gerðu eftir Haag-
dóminn og íslendingar stuttu
seinna ,er þeir færðu landhelg-
ina út í 4 mílur. frar hafa þó ekki
nema 3 mílur.
Þessi áreitni Breta var þó bor-
in \il baka skömmu seinna og
talið, að um kurteisisheimsókn
hafi verið að ræða!
Nú segja brezk blöð frá því, að
ensk, skozk og norður-írsk skip
séu skráð í írskum höfnum til
þess að geta veitt innan írskrar
landhelgi. Hefur þetta vakið
mikla andúð í írskum hafnarbæj-
um.
Ný-nazistar úr haldi
Borgarstjórn V-Berlínar áhyggjufull
BERLÍN, 15. jan. (Reuter) —
Dómstóll i Vestur-Berlín dæmdi
í dag 51 árs gamlan mann, Kurt
Hátzung að nafni, í sex mánaða
fangelsi fyrir að hafa viðhaft
skrlfor
daqiegq lífírnf
úr
9 ,
• Kuldi suðurfrá —
hiti hér.
í blöðum, sem berast frá
Norðurlöndum og Norður-
Evrópulöndum, blasa við
myndir af kuldaklæddu fólki,
bifreiðastjórum að ýta bílurn.
sem ekki fara í gang í kuld-
anum og aðrar reglulegar
kulda- og snjómyndir. Dönsku
blöðin tala um að nú sé ísinn
að byrja að leggja undir sig
beltin, og ísbrjótarnir að bua
sig undir að fá nóg að starfa.
En hér í norðri er milt veð-
ur og logn dag eftir dag. Dag-
blöðunum í Reykjavík berast
fregnir frá fréttamönnum sin-
um um allt land, um óvenju
milt veðurfar. Norður á
Ströndum er enn fært um alit,
útsprungin garðblóm hafa
komið undan snjónum á Húsa-
vík og fleiri dæmi mætti
nefna.
Það er ekki laust við að
sumu gömlu fólki þyki orðið
nóg um og sjái í þessu alls
kyns fyrirboða. Fátt er það i
veðurfari, sem ekki boðar eitt-
hvað, samkvæmt ísl. þjóð-
trúnni. Sumt er að einhverju
leyti byggt á brjóstviti og skyn
samlegum athugunum athug-
ulla manna gegnum aldirnar,
en annað að sjálfsögðu hrein-
ustu hindurvitni, orðin til
fyrir beyg fólksins af veðrinu.
Eins og mynd af
tunglinu.
Velvakandi flaug yfir sunn-
anvert landið i fyrradag. Land
ið var ákaflega einkennilegt
á að líta. Hvergi snjór fyrr
en í 800 m. hæð, en allt þakið
gráu hrími, því skyndilega
hafði kólnað nokkuð. Mér er
næst að halda svo þykkt lag
af hrími yfir alauðri jörðinni
sé sjaldgæft. Það gerir landið
ennþá auðnarlegra en ella.
Allt lítur út eins og grár út-
brunninn fláki, hvergi litar-
ögn af neinu tagi. Úr flugvél
er rétt eins og að horfa á mynd
irnar. af tunglinu. Ef ókunn-
ugir horfðu yfir landið í þess-
um ham, við skulum segja ef
menn af öðrum hnöttum
kæmu hér svífandi í farartæk-
um sínum og þótt væri það
sem þeir sæju fyrst af Jörð-
inni, þá mundi þeim ekKi
detta í hug að hér byggju lif-
andi verur — og lifðu góðu
lífi.
* Safnast saman á
bílastæðinu
Talsvert er rætt um ólæti
þau, sem unglingar eru teknir
upp á að hafa í frammi í mið-
bænum, sor. KVÖldið þegar
þeir gerðu aðsúg að lögreglu-
stöðinni. Borgari einn, sem oft
á leið um miðbæinn á kvöldin,
ræddi málið við Velvakanda
um daginn. Hann kvaðst vita
að lögreglan væri of liðfá, ef
stórir hópar unglinga taka upp
á slíkum ólátum. En hann
kvaðst vilja benda á, að sér
sýndist unglingarnir hafa enn-
þá meira svigrúm til óknytta,
ef Austurstræti er lokað fyrir
bílaumferð, eins og stundum
er gert, og strákaflotar gætu
þá óhindraðir vaðið þar um.
Einnig vill hann benda á, að
bílastæðið á gömlu Hótel ís-
land lóðinni virðist stundum á
kvöldin verða samkomustaður,
þar sem ólátaseggir safnast í
bílum. Á daginn er þarna
greit fyrir bílastöður og vörð-
ur, og telur maðurinn af fyir-
greindum sökum þurfi einnig
að hafa þann hátt á að kvöld-
lagi.
móðgándi orð opinberlega vifi
ungan Gyðing. — í gær leysi dóm
ari við annan rétt í borginni þrja
menn úr haldi, en þeir eru grun-
aðir um að hafa stofnað ný-naz-
istafélag, og höfðu verið settir 1
gæzluvarðhald. — Taldi dómar-
inn rétt' að sleppa mönnunum,
þar til mál þeirra verður tekið
fyrir.
Borgarstjórn Vestur-Berlínar
lítur á þetta tiltæki mjög alvar-
legum augum. Sagði talsmaður
Willy Brandts yfirborgarstjóra,
í dag, að borgarstjórnin væri
mjög vonsvikin yfir þessari
ákvörðun réttarins. — Við erum
að athuga, hvaða tökum við eig-
um nú að taka þetta mál, sagði
hann.
Formælandi félags ungverskra
flóttamanna í Vínarborg, sagði í
dag, að það væri sannfæring fé-
lagsmanna, að svívirðingaralda
sú gegn Gyðingum, sem breiðzt
hefur út um hinn frjálsa heira
undanfarið, væri runnin undan
rifjum Austur-Evrópuríkjanna og
að henni væri stjómað frá járn-
tjaldslöndunum. Lögregluyfir-
völd í Vestur-Berlín skýrðu frá
þvi, að einn nýnazistanna, sem
handteknir voru 3. jan. sl., hefði
viðurkennt, að hann væri útsend-
ari austur-þýzku öryggisþjónust
unnar og hefði haft fyrirmæli
um að taka þátt í fundum og
öðrum samkundum ný-nazista í
Vestur-Berlín.
Gromhi hrátt
ferðafær
RÓMABORG, 12. jan. — Gronchi,
forseti Ítalíu, mun fara 1 Rúss-
landsheimsóknina 6. febrúar n.k.
og halda heimleiðis þann 11. í
rauninni átti þessi heimsókn að
standa 7.—11. janúar, en vegna
veikinda forsetans varð að skjóta
henni á frest.