Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 2
2 MORCVHBLAÐ1Ð Laugardagur 6. februar 1960 Enn stendur á síldinni ÁLASUNDI, 5. febrúar. — (NTB) — ENN er ekki hægt að segja, að vetrarsíldveiðarnar séu hafnar við vesturströnd Nor- egs og þykir síldarleysið nú með ódæmum. Það reyndist blekking ein, sem flaug víða á þriðjudaginn, að síldin væri þá komin. — Þær fregnir spruttu af því, að eitt norskt fiskiskip fékk ágætis kast í herpinót, um 1400 hektólítra. Daginn eftir fékkst að vísu samtals 17 þúsund hektólítra afli, en síðan dró mjög úr honum og virðist hann aðeins ætla að verða um 5000 hektólítrar í dag. Sá afli skiptist á hundrað báta, enda eru margir þeirra með aðeins eitt eða tvö mál og þeir hæstu með 150 hektólítra. Einn herpi- nótabátur fékk 400 hektólítra. Aflinn fékkst einungis út af Raumsdal. Út af Sunnmæri var bræla í morgun og enginn afli. Það hefur lægt með kvöldinu en aflinn er þó tregur. Fiskirannsóknaskipið G. O. Sars finnur nú hvergi verulegt síldarmagn nær landi en 20 míl- ur. Könnunarflugvél tilkynnir að hún hafi séð um 85 rússnesk rek- netaskip um 50 mílur norðvestur af Álasundi og Kristjánssundi. Akranesbátar AKRANESI, 3. febrúar: — Flest- ir eru á sjó hér í dag. f gær lönd- uðu 12 bátar hér samtals 118 lestum. Aflahæstir voru þessir: Ólafur Magnússon með 16,8 lest- ir, Sveinn Guðmundsson með 16,3 lestir og Ásmundur 15 lest- ir. Þetta eru um 10 lestir á bát að meðaltali og er aflinn sóttur út á Jökultungur. Heildarafli bátanna hér í jan- úarmánuði var 1240 lestir. Ein af nýjustu málverkaeftirprentunum Helgafells eftir Jóhannes KjarvaL málverk Lislaverkaúf- gáfa Helgafells ÞÓ HELGAFELLSÚTGÁFAN haSi gefið út mestan fjölda hinna fremstu rithöfunda okkar fyrr og síðar, er verk forlagsins í þágu íslenzkrar myndlistar ekki síð- ur athyglisvert. Auk bókanna, sem aliir þekkja, um Kjarval, Asgrím og Jón Stefánsson og minni bóka um Ásmund, Nínu, Þorvald o. fl. eru nú í undirbún- ingi hvorki meira né minna en 7 málverka- og höggmyndabækur eins og stóra Kjarvalsbókin, og sumar þeirra næstum fullgerð- ar og væntanlegar á þessu ári. þannig mun forlagið hafa látið taka ljósmyndir og litmynda- piötur síðastliðin tvö ár af á fimmta hundrað listaverkum, höggmyndum og málverkum, sem allar eiga að koma í þess- um útgáSum. Þó er eitt verkefni ónefnt, en það er prentun málverka í ná- kvæmum eftirlíkingum til þess að hengja á veggi. Þessi merki- lega útgáfa mun á næstu árum skapa alveg nýja og einstæða Fréttist af honum 1 Vesturbænum í GÆRKVÖLDI var lýst eftir öldruðum vistmanni af Elliheim- ilinu Grund. Heitir hann Líka- frón Sigurgarðarsson og hafði farið að heiman um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Þegar blaðið bafði samband við lögreglustöð- ina hafði frétzt af honum í bæn- um, en ekki ennþá verið haft samband við hann. möguleika til landkynningar um allan heim, með þesskonar myndarbrag, sem aðeins lista- menn örfárra stórþjóða heims hafa átt kost á, en fullyrt er að erlendum listamönnum og list- fræðingum, er eignast hafa eftir- prentanirnar, að í myndlist standi íslendingar hæst, eða að minnsta kosti á borð við það allra bezta sem þeir hafa afrek- að í bókmenntum. Þó málverkaprentanir Helga- fells, sem gerðar hafa verið og gerðar munu verða eftir Segurstu málverkum okkar eldri og yngri sem geymd eru í einkasöfnum manna þar sem enginn á aðgang að þeim, og seldar munu verða á næstu árum í 100—500 eintök- um á íslenzk heimili og skóla, skapi ekki með sama hætti persónuleg heimili og listaverkin sjálí og geti aldrei komið í þeirra stað, er hér um að ræða lifandi heimilisprýði og stórkostlegan menningarauka frá því að horfa á auða veggi eða klædda ljós- myndum og öðrum ólistrænu drasli, en höfuðtilgangur forlags ins er hin uppeldislega hlið máls ins, að gera heimilin að þeim skóla, sem þau voru áður, og þá einnig alþýðuheimili landsins, sem mundi smám saman skapa með þjóðinni þann smekk á myndlist sem hún hefir almennt eignast í bókmenntum. Helgafell hefir nú þegar gefið út all fjölbreytt safn málverka, alls 30 myndir eStir þessa mál- ara: Ásgrím Jónsson, Jón Stefáns son, Kjarval, Scheving, Engil- berts, Kristínu Jónsdóttur, Nínu Tryggvadóttir, Svavar Guðna- son, Kristján Davíðsson, Þorvald Skúlason, Guðmund horsteinsson Ásgerði Búadóttur, Þórarin Þorláksson, Gunnlaug Blöndal, Jóhann Briem og Asmund Sveins son. Nýjustu málverkaprentanir Helgfells verða til sýnis í sýn- ingarglugga Morgunblaðsins næstu daga. íslendingar keyptu nær 1300 nýja bíla EFTIR því sem Mbl. hefur tekizt að afla sér upplýsingar um, þá munu hafa verið skrásettir nær Mikilvæg ráð- steina um kaf- bátahernað NORFOLK, 5. febrúar. — (USIS) — JERAULD Wright, yfirflota- foringi Atlantshafsbandalags- ins, verður í forsæti á sér- stakri ráðstefnu sjóhernaðar- fræðinga, sem á að fjalla um kafbátahernað og varnir gegn kafbátum. Áður hefur Wright efnt til tveggja ráðstefna um þetta sama efni, en þessi verður stærst og mikilvæg- ust, enda er nú litið svo á að hin rússneska kafbátaógn fari stöðugt vaxandi. Kafbátaráðstefnan á að standa yfir dagana 8.—12. febrúar og munu sitja hana yfir 100 sjóliðsforingjar frá 12 ríkjum. Einum ráðstefnu- deginum verður eytt í sigl- ingu út á Atlantshaf, þar sem John E. Clark aðmíráll, yfir- maður kafbátaspillasveita Bandaríkjanna, stjórnar æf- ingum í kafbátaeyðingu. Námsstyikur að við TILGANGUR sjóðsins er styrkja stúdenta til náms verkfræðideild Háskóla Islands eða til framhaldsnáms við annan háskóla að loknu fyrra hluta prófi í verkfræðideild háskólans. Styrkurinn er veittur án umsókn ar og þeim einum, sem kunnir eru að drengskap, dugnaði og reglusemi. Hinn 21. des. 1959 veitti stjórn sjóðsins stud. polyt. Þorvaldi Búasyni 5000 kr. námsstyrk. 1300 nýir bílar, stórir og smáir á sl. ári. Að auki var svo nokkur innflutningur á notuðum bílum. Aðal bílainnflutningslandið er Sovét Rússland. Þaðan voru keyptir á árin'u, samkvæmt milli- ríkjasamningum rúmlega 460 bílar .fólksbílar og jeppar. Frá öðru vöruskiptalandi, Tékkó- slóvakíu, voru fluttir inn 77 bíl- ar. Af Vestantjaldsbílum, höfðu langsamlega flestir verið fluttir inn frá V-Þýzkalandi, nær 390. Eru það einkum Volkswagen bíl- ar, en næst koma svo Ford Taun- us, og síðan aðrar þýzkar bíla- tegundir. Frá V-Þýzkalandi höfðu auk þess verið fluttir inn 38 notaðir bílar. Næst þýzku bíl- unum komu amerískir bílar. Frá Bandaríkjunum komu tæpiega 160 nýir bílar. En þaðan voru líka fluttir inn notaðir bílar og komu rúmlega 100 slíkir bílar þaðan. Sunnan frá Ítalíu 95 Fiat-bílar og frá Bretlandi 62 og loks komu frá Svíþjóð nær 50 bílar. Þá munu hafa „komið í um- ferð“, 160 bílar frá sölunefnd varnarliðseigna. Ef tekin er heildartala nýrra og notaðra bíla, sem teknir voru í umferð á árinu 1959, mun láta nærri að alls hafi um 1600 bílar fengið íslenzkt númer á árinu sem leið. Frú Katrín Smári tekur sæti á Alþingi FUNDUR var haldinn í samein- uðu þingi í gær og tekin fyrir rannsókn kjörbréfs frú Katrinar Smára. Var þess óskað að frúin tæki sæti á þingi, sem varamað- ur Eggerts G. Þorsteinssonar, í veikindaforföllum hans. Kjör- bréfanefnd tók bréfið til rann- sóknar og lýsti framsögumaður nefndarinnar, Jón Pálmason, því yfir, að nefndin legði til að kjör- bréfið yrði tekið gilt. Var það samþykkt samhljóða. Undirritaði frú Katrín Smári eiðstaf og tók sæti á þingi. 5.2.1960 kl. 11 A/A /5 hnútor S SV 50 hnútor ¥: Snjókoma > Oði \7 Slcúrír IZ Þrumur W:z, KuUaahil Hi/tski! H Hm» A.. Stormur á Grænlandshafi A VESTANVERÐU Græn- landshafi var djúp og kröpp lægð um hádegisbilið í gær og voru 45 hnútar (9 vind- stig) og éljagangur á veður- skipinu Alfa. Mun hlýrra loft var hér suður undan, 7 stig á veðurskipinu India og 6 stig á Loftssölum kl. 14. Á Akur- eyri hlýnaði um 9 stig frá kl. 11 til kl. 14, úr -—6 í +3 stig. Austur af Nýfundnalandi er ný lægð á ferðinni norð- , norðaustur. i Veðurútlit kl. 22 í gærkv.: ■ SV-land til Vestfj., SV-mið j til Vestfj.-miða: Suðvestan i kaldi, og slydda eða snjóél • fyrst, en síðan vaxandi suð- s austanátt. N-land til Austfj., I N-mið til Austfj.-miða: Suð- s vestan kaldi skýjað. SA-land • og SA-mið: skúrir. Suðvestankaldi, i S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.