Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 23
Laugardagur 6. febrúar 1960 MORCUNBLAÐ1Ð 23 Námsstyrkir fyrir ungl- inga til Bandaríkjanna Dásamlegt land segir yfirmaður Leðurhálsanna um ísland — Washington, 5. febr. FYRIR nokkru var David M. Shoup skipaður yfirmaður landgönguherliðs flotans, hins harðgera baráttuliðs, sem oft gengur undir heit- inu „Leðurhálsamir“. Shoup hershöfðingi tók víða þátt í bardögum í síð- ustu heimsstyrjöld, aðallega á Kyrrahafinu og síðar í Kóreustyrjöldinni og er tal- inn hinn mesti kappi. Fyrir nokkru birtist samtal við hershöfðngjann í banda- rísku tímarti. Þar rifjaði hann það upp m.a. að hann hóf herþjónustu á íslandi ár- ið 1941. Hann var þá liðsfor- ingi í 6. herdeild landgöngu- Afli Bíldudals- báta í janúar BÍLDUDAL, 5. febr. — Gæftir hafa verið sæmilegar í janúar- mánuði. Heildarafli vertíðarbáta eru 186 lestir í 43 róðrum. Jör- undur Bjarnason fékk 96 lestir í 17 sjóferðum, Reynir 53 lestir í 15 sjóferðum og Geysir 37 lestir í 11 sjóferðum. Bv. Pétur Thorsteinsson land- aði hér 2. febrúar 35 lestum af fiski. Jökulfellið tók hér 3. febrúar 2100 kassa af hraðfrystum fiski úr hraðfrystihúsinu, og á hann að fara á Rússlandsmarkað. Sólarkaffi Bílddælinga verður 6. febrúar og stendur Kvenfélag- ið Framsókn að því. — Hannes. Borgað fyrir hundinn — London, 4. febr. ÞAÐ var talið fréttaefni í Lond- on í dag, að maður nokkur beit hund og var dæmdur í fangelsi. Maðurinn, sem heitir Samuel Wilson, hafði verið með óspektir í húsi nokkru og var lögreglan fengin til að fjarlægja hann. Sló Wilson þá og beit einn lögreglu þjónanna. Fluttu þeir hann á lögreglustöðina. Á ganginum fyrir framan fangaklefana lá lögregluhundur- inn Laddy og skipti sér ekkert af því sem fram fór. Réðst Wil- son á Laddy og beit hann, en lögreglan >om í veg fyrir það að Laddy fengi borgað fyrir sig. Wilson var dæmdur í sex mán- aða fangelsi. liðsins, sem gekk á land á Is- landi sumarið 1941, samkv. beiðni islenzku ríkisstjórnar- innar. Shoup hershöfðingi kveðst eiga margar góðar niinning- ar frá íslandsdvölinni: — Annars, hélðum við allir, að við fyndum aðeins isjaka og hvítabirni á ísiandi, sagði hann og hló við, — en við komumst að raun um annað. David M. Shoup, hinn nýskip- aði yfirmaður landgönguliða flotans. Það er dásamlegt Iand. Við héldum líka, heldur hann áfram, að við Banda- ríkjamenn værum orðnir gamlir og rótgrónir i lýðræð- inu. En við komumst að raun um að íslenzka Alþingi hafði verið til i margar aldir, áður en nokkur Bandaríki Amc- ríku voru til. (Frá USIS). 1902 en ekki 1922 í MINNINGARGREIN um Gísla heitinn Halldórsson frá Eyrar- bakka, sem birtist í blaðinu á fimmtudaginn, var sagt að for- eldrar Gísla, Halldór og Guðrún, hafi flutt til Reykjavíkur árið 1922. Er hér um ritvillu í handriti að ræða, því þau fluttu árið 1902. Hefur greinarhöfundur beðið að koma leiðréttingu á framfæri. Verður hann háls- höggvinn ? A N N A R aðalleiðtogi byltingarmanna í Al- geirsborg, hinn ungi og skeggjaði Pierre Lagail- lard, var handtekinn, þegar byltingin hjaðnaði niður. Hann var skjót- lega fluttur til Parísar og situr nú í Santé-fang- elsinu þar í borg. — De Gaulle ætlar ekki að sýna byltingarmönnum miskunn. Lagaillard sést hér á miðri mynd í lög- reglubíl við komuna til Santéfangelsisins. Hann mun verða ákaérður fyr- ir föðurlandssvik og lík- legast að hann verði háls höggvinn. Kvikmyndasýning Germaníu 1 DAG laugardag, verður kvik- myndasýning á vegum félagsins Germaníu í Nýja Bíó og verða þar sýndar eins og endranær Srétta- og fræðslumyndir. Fræðslumyndin er frá Eifel, en þar svipar landslagi að sumu leyti til þess, sem er hér á landi, jarðeldar hafa sett svipmót sitt á landið þar eins og hér, eld- gígir og hæðótt yfirborð jarð- skorpunnar bera þess augljós merki. En gamlar byggingar setja einnig svip sinn á landið. Þar gefur einnig að líta hinn al- kunna Núrnburgring, þar sem alþjóðlegur kappakstur er þreytt ur margsinnis árlega. Fréttamyndir sýna helztu við- burði síðari hluta ársins sem leið, þ. á. m. forsetaskiptin, en hinn vinsæli próf. Theódór Heuss lét af embætti í október sl. og mun sá mikilsvirti maður nú sjaldnar sjást á fréttamyndum en hingað til hefur verið. Einnig er sýnd embættistaka hins nýja for- seta, Heinrich Lubke. Þá erður sýnd sérstök firétta- mynd frá Berlín, þeirri marg- reyndu borg, sem bráðlega verð- ur enn á ný miðdepill í viðræðum hinna sterkustu í heimi hér. Kvikmyndasýningin hefst kl. 2 e.h. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill, börnum þó ein- ungis í fylgd með fullorðnum. UNDANFARIN þrjú ár hafa 25 íslenzkir framhaldsskólanemend- ur á aldrinum 16 til 18 ára hlot- ið styrki til náms við bandaríska menntaskóla. Hafa þeir farið til Bandaríkjanna fyrir milligöngu Islenzk-ameríska félagsins, en það hefur annazt alla fyrir- greiðslu hér heima fyrir stofn- un þá, er styrkina veitir, Ameri- can Field Service. Nú hefur American Field Service ennþá í hyggju að gefa íslenzkum framhaldsskólanem- endum kost á eins árs námstyrk við bandaríska menntaskóla á skólaárinu 1960—’61. Styrkir þessir nema ókeypis skólagjöld- um, húsnæði, fæði, sjúkrakostn- aði og ferðalögum innan Banda- ríkjanna. Meðan dvalið er vestra búa nemendurnir hjá bandarísk- um fjölskyldum í námunda við viðkomandi skóla. Ætlast er til þess, að nemendur greiði sjálfir ferðakostnað írá íslandi til New York og heim aftur. Ennfremur þurfa þeir að sjá sér fyrir ein- hverjum vasapeningum. Dómur Dawsons mildaður LONDON, 2. febrúar: — Fyrir tæpu ári var fjárglæframaður- inn George Dawson dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir margs konar óheiðarleik í viðskiptum, en sá hinn sami var eins og kunnugt er nokkuð viðriðinn fiskkaup af íslenzkum togurum í Englandi fyrir nokkrum árum. f dag var dómur hans nokkuð mildaður þegar lokadómur gekk í máli hans, og var hann dæmd- ur í fjögurra ára fangelsi. — Sigurður Guðjónsson, Guðrún Guðjónsdóttir, Kristján Guðjónsson, Ingimundur Guðjónsson, Svo sem áður er getið skulu umsækjendur um þessa styrki vera framhaldsskólanemendur á aldrinum 16 til 18 ára, jafnt pilt- ar sem stúlkur. Þeir þurfa að hafa góða námshæfileika, vera vel hraustir og geta talað eitt- hvað í ensku. Umsóknareyðublöð fyrir áður- greinda styrki verða aShent í skrifstofu Islenzk-ameríska fé- lagsins, Hafnarstræti 19, næstu daga frá kl. 5,30 til 6,30. Þurfa þau að hafa borizt þangað aft ur eigi síðar en 15. febrúar. Þorrablót 30. JANÚAR var hið árlega þorra blót að Hólum í Hjaltadal hald- ið. Frá gamalli tíð er þettað alltaf talinn nokkur viðburður í héraðinu þar sem þessi skemmt- un er mjög fjölbreytt — vel til hennar vandað og oft fjölmenn. Orðið þorrablót á þessari skemmt un hefir þó ekki þá merkingu, sem það áður hafði, því nú er ekki lengur etið hangikjöt Og harðfiskur úr trogum. Að þessu sinni voru Hólamenn mjög heppnir með veður, nokk- ur fjöldi fólks dreif að staðnum þar sem Hólasveinar skemmtu með karlakórsöng, Kvartett með gítarundirleik, Ræðum, Upplestri ljóða óg sögu og leikfimissýn- ingu. Dans var auðvitað stiginn af miklu fjöri á eftir aðal skemmtiskrá. Sýndist mér Hólasveinar mjög ánægðir með Löngumýrarnáms- meyjar í faðmi á dansgólfinu, verð ég að segja að margt af prýðilega glæsilegu fólki var þarna samankomið. Óvenju rólegt var á þessari skemmtim og hafði því lögreglan mjög náðugt. — Björn í Bæ. Þórður Guðjónsson, Guðni Guðjónsson, Sigríður Guðjónsdóttir, Eggert Guðjónsson, Guðmundur Guðjónsson. óskar eftir ungling til blaðburðar í eftirtalið hverfi Nesveg Þakka innilega vináttu mér sýnda á ájtatíu og fimm ára afmæli mínu. Jakobtna Hafliðadóttir. Alúðarþakkir til aílra sem sýndu mér vinarhug með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli mínu 20. f.m. Svanhildur Steindórsdóttir, Laufskógum 15, Hveragerði. Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför GUÐLAUGAR JÓNSDOTTUR frá Galtarholti. Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför sonar míns og bróður okkar LEIFS GRÉTARS GUÐJÓNSSONAR Jóna Guðmundsdóttir, Jóhanna Guðjónsdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.