Morgunblaðið - 06.02.1960, Side 6
6
MORCUyfíLAÐIÐ
Laugardagur 6. febrúar 1960
Stjórnarandstaðan og
efnahagsfrumvarpið
dregið gegn stefnu ríkisstjórnar-
innar. Ógiftusamlega og sorglega
hefði tekizt til um undirbúning
þessa máls og meðferð þess og
mikil væri sekt þeirra manna,
sem færu gálauslega með æðstu
málefni landsins.
Ræða Gylfa
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra, kvað gengisbreyt-
Tónlistarkynning
í háskólamim
TÓNLIST ARK YNNIN G verður
haldin í hátíðasal háskólans á
morgun, sunnudag, 7. þ. m. kl. 5
stundvislega. Þar mun dr. Hall-
grímur Helgason ræða um helztu
stefnur og straumhvörf í tónlist
20. aldar, og flutt verða af hljóm
plötutækjum háskólans verk eða
kaflar úr verkum eftir þessa
höfunda: Debussy (Nuages), Si-
belius (Svanurinn frá Tuonela),
Ravel (Bolero), Schönberg, Bar-
tók og Sjostakovitsj (úr 10. sin-
fóníunni).
Greint verður frá imperssion-
ismanum hjá Debussy og Ravel
og sérstöðu Sibeliusar meðal nú-
tímatónskálda, expressionisma
Schönbergs og folkklórisma Bar-
tóks og þeim skyldleika við
hann, sem fram kemur hjá
Sjostakovitsj.
Aðgangur að tónlistarkynning-
unni er ókeypis og öllum heimill.
Cengisbreytingin 1958
meiri en nú — Frá Alþingi
þeir að ærast, ef borið væri fram
frumvarp um 3% kjaraskerðingu.
Eini munurinn væri sá, að þá
hefðu þeir verið í ríkisstjórn og
ætlað sér að vera í ríkisstjórn
áfram, en nú væru þeir utan-
stjórnar. Gat ræðumaður þess að
■ "" —— ■■
skrifar ur
daqleqa lifinu J
* Faðir Leifs Heppna
Fyrirtæki eitt hér í bænum
var að ráða til sín starfsstúlk-
ur um daginn. Og til að fá
hugmynd um greind og al-
menna þekkingu umsækjenda,
var útbúinn spurningalisti,
sem lagður var fyrir stúlkurn-
ar.
Ein spurningin hljóðaði
svona: Hver er Eiríkur Kristó-
fersson? — Faðir Leifs
heppna, svaraði einn um-
sækjandinn.
♦ Óánægja með miða-
sölu
Eftir símtölunum, sem Vel-
vakandi átti eftir kl. 2 sl. mið-
vikudag að dæma, var mikil
óánægja með fyrirkomulagið
á miðasölunni í Þjóðleikhús-
inu þann dag. Auglýst var
sala á aðgöngumiðum á tvær
sýningar á barnaleikritinu
„Ræningjarnir í Karde-
mommubæ“, á síðdegissýn-
ingu á sunnudag og kvöldsýn-
ingu á föstudag.
Leikritið ætlar sýnilega að
verða ákaflega vinsælt, bæði
fyrir fullorðna og börn, og
miðar seljast upp á skömmum
tíma. Því var fólk farið að
standa í biðröð kl. að ganga
12 þenan dag, þó miðasalan
hæfist ekki fyrr en kl. 1.15
Kona ein, sem fór að bíða
kl. 11.30 og ekki fékk miða á
sunnudagssýniguna, spurði
hvernig á því stæði. Hún
hafði verið að reikna út með-
an hún beið, að hver mann-
eskja fyrir framan hana þyrfti
að taka meira en hálfan bekk
á sunnudagssýningu, til að
hún missti af miðunum. Svar-
ið var: Það hafa verið tekn-
ar pantanir í þrjá síma.
Meðan fólkið í biðröðinni
var afgreitt um tvær lúgur,
var sem sagt svarað í 3 síma
og teknir frá miðar fyrir fólk,
sem sat heima hjá sér. Ein-
hvern tíma var þó sá háttur
hafður á, að ekki var svarað
í síma fyrsta klukkutímann
eftir að miðasala hófst, ef að-
sókn var svo mikil að fólk
hafði staðið lengi í biðröð Af
hverju skyldi því fyrirkoinu-
lagi hætt?
Ræningjarnir í Karde-
mommubæ er sýnilega eins
heppilegt og skemmtilegt
barnaleikrit og frekast verður
á kosið. Og ekki er það verra,
að íslenzk börn eru orðin
kunnug ræningjunum og öðr-
um íbúum þessa skemmtilega
bæjar gegnum útvarpið. Ef
sögur eru skemmtilegar vilja
krakkarnir heyra þær aftur
og aftur og þykir ennþá meira
gaman eftir því sem þau
heyra þær oftar.
Komið hafa fram tilögur
um að geyma þetta leikrit og
færa það upp við og við eða
hafa það fast á sýningaskrá
leikhússins. Það ætti reyndar
að gera við öll þau barna-
leikrit sem vinsælda njóta, því
á þremur til fjórum árum, eru
komnir upp nýir leikhúsgestir
á bamasýningar. T. d. eru nú
vaxnir upp krakkar, sem aldr-
ei áttu kost á að sjá „Litla
Kláus og stóra Kláus“.
FYHSTA umr. um efnahags-
málafrumvarp ríkisstjórnar-
innar stóð yfir í neðri deild
í gær. Ólafur Thors, forsætis-
ráðherra, fylgdi frumvarpinu
úr hlaði og er ræða hans birt
annars staðar í blaðinu.
Næstur talaði Eysteinn
Jónsson, 1. þingmaður Aust-
urlands, og þá Gylfi Þ. Gísla-
son, viðskiptamálaráðherra.
Fleiri höfðu ekki talað kl.
7,30 í gærkvöldi, en þá var
gert fundarhlé til kl. 9.
Ræða Eysteins
Eysteinn Jónsson rakti fyrst
sögulegan inngang eða aðdrag-
anda að þessu frumvarpi, sem
hann kallaði svo. Taldi hann það
tímabil frá því minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins kom til valda,
hefði stjórnarstefnan frá því og
allt til þessa dags verið samdrátt-
arstefna, er væri í beinni and-
stöðu við byggðastefnuna, sern
Framsóknarflokkurinn beitti sér
fyrir. Ræðumaður kvað þann
vanda, sem við væri að glíma,
minni nú en oft áður en peninga-
valdið vildi nota þann vanda,
sem fyrir hendi væri til að taka
upp nýja stefnu, sem m.a. kæmi
fram í lánapólitíkinni, þar sem
ekki mætti að mati ríkisstjórn-
arinnar taka lán til framkvæmda
heldur aðeins kramvörulán, jafn-
framt því, sm dregið væri úr
verklegum framkvæmdum.
ingu þá, sem nú væri á lögð
minni en þá gengisbreytingu, er
ríkisstjórn Hermanns Jónasson-
ar hefði staðið fyrir vorið 1958.
Ræddi hann nokkuð það óheil-
brigða ástand, sem ríkt hefði í
gengisskráningu á undanförnum
árum og galla uppbóta- og
styrkjakerfisins almennt, sem m.
a. væri orsök þess, að togara
flotinn hefði ekki verið endur-
nýjaður á síðustu árum, en allt
of mikill hluti þjóðarteknanna
beinzt að óarðbærri framleiðslu.
Ekki hægt að taka alvarlega
Þá rakti ráðherrann afstöðu
Framsóknarmanna og kommún-
ista til gengisbreytingar og ann-
arra nauðsynlegra ráðstafana á
Panikráðstafanir og heljarstökk
Um ráðstafanir ríkisstjórnar-
innar í heild komst þingmaður-
inn svo að orði, að það væru
panikráðstafanir og það sem rík-
isstjórnin hefði kokkað væri fá-
sinna. Nú ætti að taka heljar-
stökk til að komast út úr upp-
bótakerfinu, en ekki væri litið
við þeirri leið að leggja það nið-
ur í áföngum, og mundi ekki
komið standandi niður úr því
heljarstökki. Eysteinn Jónsson
sagði að lokum, að Framsóknar-
flokkurinn mundi beita sér ein-
Eysteinn Jónsson
dögum V-stjórnarinnar, eins og
getið er á öðrum stað í blaðinu.
Einnig bar hann saman þær ráð-
stafanir ,er gerðar voru í efna-
hagsmálum 1958 og þær sem nú
liggja fyrir. Þá hefði framfærslu-
vísitla hækkað um 19 stig og
þeirri hækkun verið mætt með
5% grunnkaupshækkun. Þá hefðu
Framsóknarmenn og kommúnist-
ar samþykkt löggjöf um 5%
kjaraskerðingu, en nú ætluðu
Gylfi Þ. Gíslason
lokum, að gengi krónunnar mið-
að við útflutning hefði lækkað
um 30% vorið 1958 og einnig
um 30% miðað við innflutning.
Nú væri gengisbreytingin, sem
gert væri ráð fyrir, 20% miðað
við útflutning og 31% miðað
við innflutning, og þannig minni
en sú gengisbreyting, sem ríkis-
stjórn Hermanns Jónassonar
hefði lögleitt. Að þessu athug-
uðu væri ekki hægt að taka al-
varlega hina hörðu fordæmingu
Framsóknarmanna og kommún-
ista á þeim ráðstöfunum, sem nú
ætti að gera.
Lúðvík Jósefsson, 4. þ.m. Aust-
urlands, tók fyrstur til máls er
fundi neðri deildar var fram-
haldið kl. 9 í gærkvöldi. í upp-
hafi máls sína kvartaði hann vmd
an því, að ríkisstjórnin skyldi
ekki hafa birt áætlun um hve
miklar auknar álögur á lands-
menn hinar nýju efnahagsráðstaf
anir munu hafa í för með sér.
Lúðvík Jósefsson
Kvaðst hann vita, að þetta hefðu
hagfræðingar ríkisstjórnarinnar
getað reiknað rétt, því að þeir
gætu reiknað einföld dæmi, enda
þótt þeir bæru ekkert skyn á at-
vinnuvegi þjóðarinnar og þekktu
ekki mun á framstafni og aftur-
stafni á skipi.
Þá vék 4. þ.m. Austurlands í
löngu máli að ræðu viðskipta-
málaráðherra og var algerlega á
öndverðri skoðun við hann um
uppbótakerfið, sem nú ætti að
leggja niður að undirlagi hag-
fræðinganna, sem teldu það ur-
elt, þó þeir, sem til þekktu, vissu
betur.
Hið nýja í þessum efnahags-
ráðstöfunum taldi Lúðvík Jósefs
son það, að nú ætti að velta öllu
yfir á launþega án þess þeir
fengju neitt í staðinn. Þá fór
hann nokkrum orðum um gengís-
breytinguna 1950, sem hann kvað
margt illt hafa hlotizt af.
Kekkonen
skorinn upp
HELSINGFORS, 5. febrúar. Reut
er: — Kekkonen Finnlandsfor-
seti liggur á sjúkrahúsi í höfuð-
borginni. Hann gekk í morgun
undir gall-uppskurð. Heppnað-
ist aðgerðin vel og er fiorsetinn
talinn á góðum batavegi.
Ósigur komm-
únista í Kerala
NÝJA DELHI, 5. febr.
— (Reuter) —
INDVERSKI kommún-
istaflokkurinn gaf í dag
út tilkynningu, þar sem
hann viðurkenndi og
sætti sig við ósigur sinn
í sambandsríkinu Kerala
í Suður-Indlandi. Mið-
stjórn flokksins segir
hins vegar, að kosninga-
úrslitin feli aðeins í sér
tímabundinn sigur „aft-
urhaldsaflanna“.
Kommúnistaflokkur-
inn hlaut nú aðeins 26
þingsæti af 126 á héraðs-
þinginu, en hafði síðast
60 þingsæti. Flokkurinn
og fylgifiskar hans
héldu hins vegar at-
kvæðahlutfalli sínu.
Dregið í Vöru-
happdrættinu
í GÆR var dregið í 2. flokki
Vöruhappdrættis S.Í.B.S. Dregið
var um 785 vinninga að fjárhæð
samtals 903 þús. kr. Eftirtalin
Nr. 18642 kr. 200 þús. Nr. 6252
númer hlutu hæstu vinningana.
kr. 100 þús. Nr. 46269 kr. 50 þús.
Tíu þús. kr.: nr. 11961, 14887,
15480, 19445, 24412, 28474, 36221,
36221, 36271, 42340, 46061.
Fimm þús. kr.: nr. 7481, 9353,
12607, 15832, 30451, 35650, 38698,
41269, 42833, 55413, 55915.
Þúsund krónur: nr.:
833 8249 10518 15164 24107
25103 25444 26236 31350 32737
34645 35461 35487 37474 39307
39958 40120 40910 41153 41573
41736 41877 45077 46356 48989
49123 52523 52704 53031 53899
58733 60902 61239 62572 63781
(Birt án ábyrgðar)
• SKÁK •
HAFNARFJÖRÐUR
ABCBEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
8.eöxdð
★
KEFLAVÍK
ABCDEFGH
AKRANES
9. 0-0-0