Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 22
22
MORCUISRLAÐIÐ
Laugardagur 6. febrúar 1960
Hópar ísL írjálsíþróttamanna fara til
Oslo, Róm, Winnipeg
Schwerin, Varsjá
Bukarest og Dresden
UM síðustu helgi hélt stjórn
Frjálsíþróttasambands íslands
allfjölmennan útbreiðslufund í
Framsóknarhúsinu hér í Reykja
vík. örn Eiðsson, form. út-
breiðslunefndar FRÍ, setti fund-
inn, en síðan flutti Brynj. Ing-
ólfsson, form. FRÍ, stutta ræðu.
Rakti hann þar helztu verkefni
sumarsins, sem virðist ætla að
verða með þeim viðburðarrík-
ustu í sögu frjálsra íþrótta á ís-
landi. Að vísu hefur enn ekki
verið gengið endanlega frá inn-
anlandsmeistaramótunum, en þó
mun ákveðið, að innanhússmeist
aramótið fari fram 13. marz og
Meistaramót fullorðinna um eða
fyrir miðjan ágúst, bæði í
Reykjavík.
Eins og áður hefur verið skýrt
fiá munu ísl_ frjálsíþróttamenn
taka þátt í 4ra landa keppni í
Oslo 20.—21. júlí n.k., en að því
loknu (um mánaðamótin júlí—
ágúst) er talið fullvíst, að álit-
legum hópi ísl. frjálsíþrótta-
manna og kvenna verði boðið til
keppni í Kanada m.a. á íslend-
ingadeginum í Winnipeg. Er hér
um allnýstárlegt og glæsilegt
boð að ræða, en nú eru einmitt
liðin 35 ár síðan ísl. frjálsíþrótta
menn hafa keppt þar vestra sbr.
hina frækilegu frammistöðu
Garðars S_ Gíslasonar á sínum
tíma.
I frjálsíþróttakeppni Olympíu
leikanna í Róm 31. ágúst til 8.
sept. munu að öllum líkindum
taka þátt 5—8 íslendingar, en
strax að leikunum loknum fer
fram fyrsta landskeppni íslend-
inga og A-Þjóðverja (B-liðs) 11.
—12. sept. í borginni Schwerin.
Auk þess má gera ráð fyrir að
nokkrum íslendingum verði boð
ið á Varsjármótið í júní. Búkar
estmeistaramótið í sept. og Dresd
enmótið í lok sept..
Að lokinni ræðu formanns fór
fram verðlaunaafhending. Af-
hentu þeir Jóhann Bernhard,
varaform. FRÍ og Jóhannes
Sölvason, ritari FRÍ, verðlaun
fyrir Drengjameistaramót ísl. sl.
sumar og ennfremur nokkra bik
ara frá Meistaramóti íslands, þ.
á.m. meistaramótsbikarinn, sem
Vilhj. Einarsson hlaut fyrir
bezta afrek mótsins. Þá fluttu
stutt ávörp þeir Vilhjálmur Ein
arsson, sem lagði áherzlu á gildi
slíkra kynningarfunda svo og á
nauðsyn þess, að innanlandsmót
unum yrði sýndur verðugur
sómi — og Benedikt Jakobsson,
sem flutti hvatningar- og leið-
beiningarorð til hinna ungu
frjálsíþróttamanna.
Að lokum var sýnd kvikmynd
■in frá EM í Stokkhólmi 1958 —
og væri satt að segja ekki van-
þörf á því að ísl. íþróttaunnend-
ur ættu oftar kost á því að sjá
og kynnast þeirri lærdómsríku
og skemmtilegu kvikmynd.
Skíðakemisla
í Hveradölum
VEITINGAMENN Skíðaskálans
hafa ákveðið að haáa skíða-
kennslu við skíðaskálann alla
næstu viku og áfram milli helga
eftir því sem færi leyfir.
Mun TJlfar Skæringsson dvelja
í Skíðaskálanum næstu viku og
leiðbeina skíðamönnum, sem
þangað sækja. Eftir hann taka
við aðrir þaulreyndir skíðamenn.
Snjór er nú nægur í skíðaskála
brekkunni og færi ágætt. Skíða-
lyftan er yfirleitt í gangi þegar
skíðafiólk er þar og brekkan upp-
lýst eftir að dimma tekur.
Er þetta mjög ákjósanlegt tæki
færi fyrir þá sem geta komið því
við til þess að bæta skíðamennt
sína. Notið snjóinn og sólskinið.
Danir í
úrslitum
EVRÓPUKEPPNIN í Hand-
knattleik nálgast lokin — á
miðvikudag vann AGT, Aar-
hus, lið stúdenta í París með
miklum yfirburðum 20:11
(11:4). Úrslitin fara fram í
París og keppa þar AGT við
Dynamo Búkarest, en Dyn-
amo Búkarest vann Göpping-
en eftir harðan leik fyrir
nokkrum dögum.
InnanhiYsmeistara-
mót íslands
INNANHOSMEISTARAMÖT Is-
lands fer fram í íþróttahúsi Há-
skólans sunnudaginn 13. marz
n.k. Keppt verður í hástökki án
atrennu, langstökki án atrennu,
þrístökki án atrennu, stangar-
stökki, hástökki með atrennu og
kúluvarpi. Þátttaka er heimil öll
um félögum innan vébanda FRl
og ÍSÍ — og skal tilkynnt stjórn
Frjálsíþróttasamband Islands,
Pósthólf 1099, Reykjavík, fyrir
6. marz n.k.
Hætta að trufla
LONDON, 3. febrúar (Reuter).
Rússar hafa tilkynnt sendiherra
Breta í Moskvu að frá því í
kvöld munu þeir hætta að trufla
útsendingar brezka útvarpsins á
rússnesku.
Ekki var tekið fram hvort einn
ig yrði hætt að trufla útsendingar
til annarra austur Evrópuþjóða
eða til Austurlanda.
Talsmaður brezka sendiráðs-
ins í Moskvu kvaðst fagna þess-
arri ákvörðun, sem væri afleið-
ing sáttmála er undirritaður var
í London 1. des. sl.
Árið 1956, snemma sumara^
hættu Rússar þessum truflunum,
en tóku þær upp að nýju eftir
byltingartilraunina í Ungverja-
landi þá um haustið.
— Soustelle
Fram. af bls. 1.
við kommúnistana og aðra svik-
ara og stuðningsmenn hinna
serknesku uppreisnarmanna.
SOUSTELLE
f öðru lagi, ég tel hættulegt að
beita franska menn kúgun og
hefnigirni, jafnvel menn sem orð
ið hafa á mistök, meðan skæru-
liðar, sem hafa ægilega glæpi á
samvizkunni fá að ganga lausir.
Loks vil ég benda á það, að
Frakkland á aðeins einn fjand-
mann í Alsír, og það er Fellag-
ann eða hinir serknesku upp-
reisnarmenn."
Framh. af bls 11
um árum hafa bætt lífskjör sín
meir og örar en nokkru sinni
fyrr.
Örlagastund upprunnin
Það hlýtur að vera okkur
öllum, sem beina og óbeina
ábyrgð berum á því, að fs-
land riðar nú á glötunarbarmi.
svo að engu má muna, að f jár-
hagslegt og pólitíkt frelsi þjóð
arinnar glatist, meira gleði-
efni en orð fá lýst.
Háttvirtir alþingismenn!
Örlagastund er upp runnin
í lífi þjóðarinnar, sem nú
stendur á vegamótum. Okkar
er að vísa veginn — marka
stefnuna. Önnur leiðin liggur
fram af glötmnarbarminum, —
Við embætti Soustelle sem
kjarnorku og Saharamálaráð-
herra tók Robert Lecour fyrr-
um aðstoðar forsætisráðherra og
við embætti landvarnarráðherra
Pierre Messmer fyrrum land-
stjóri Frakka í Vestur-Afríku.
Parísarblaðið France-Soir skýT
ir frá því í kvöld að komizt hafi
upp um mjög alvarlegt samsæri
hægri öfgamanna heima í Frakk-
landi. Hefuir lögreglan fundið
skjöl um þetta í húsrannsóknum
og var það liður í samsærisáætl-
unum, að ráðast á herbúðir í
Frakklandi og ná vopnum úr
þeim, m. a. skriðdrekum.
í dag voru þrír kunnir stjórn-
málaforingjar franskra land-
nema í Alsír handteknir: Þeir
voru Meningaud aðstoðarmaður
Ortiz byltingarforingja, Robert
Martel forseti 13. maí-hreyfing-
arinnar og Jean Demarque, gam-
all Poujadistaþingmaður, sem
tók þátt í byltingartilrauninni í
Algeirsborg og flutti margar æs-
ingaræður í gjallarhom frá bæki
stöð Ortiz.
Turninn hallast
LONDON, 2. febrúar: — Turn-
inn á brezku þinghöllinni hall-
ast um 4 þuml. Þetta var upp-
götvað ekki alls fyrir löngu, en
ekki hefur tekizt að sannprófa,
hvort turninn hefur hallazt frá
upphafi, eða hallinn sé nýtilkom-
inn. Big-Ben er í þessum turni,
sem er 102 ára gamall.
hin til aukins öryggis og
bættra lífskjara.
Ég bið þing og þjóð að
kynna sér málið til hlítar.
Ríkisstjórnin og þinglið henn-
ar telja valið vandalítið. Hin-
ar framúrskarandi greinar-
góðu upplýsingar, sem sér-
fræðingar okkar hafa viðað
að, sanna svo ekki verður um
villzt:
Aðeins eitt kemur til
greina
1. Uppbótakerfið hlýtur fyrr.
en varir að færa yfir þjóð-
ina geigvænlegt atvinnu-
leysi.
2. Til úrbóta er um ekkert val
að ræða. Aðeins EITT kem-
ur til greina: RÉTT SKRÁN
ING KRÓNUNNAR.
3. Uni þjóðin aðgerðunum,
bíða hennar góð og batnandi
kjör.
Frægasti dávaldur og hugsanaíesari Evrópu
— Rœða Ólafs Thors
• Dóleiðslu
* Hugsonaíestur
Dr. Pefer Lei
&
íris Lei
Sýna listir sínar á
Kvöldskemmtun
Laugard. 6. febrúar kl. 77,30 eh.
í Ausiurbæjarbíói
AðgÖngumiðasala er í Austurbæja rbiói
frá kl. 2 eh.
Það er því höfuðtilgangur
allra þessara aðgerða:
1. Að forða þjóðinni frá óhugn
anlegu atvinnuleysi.
2. Að leitast við að kref jast
þeirra einna fórna af þjóð-
inni, sem með öllu eru ó-
umflýjanlegar til að sporna
gegn atvinnuleysinu, og
gæta þess jafnframt gaum-
gæfilega, að þeim verði alls
ekki íþyngt, sem minnst
hafa burðarþolið.
3. Að opna þjóðinni leið til
batnandi lífskjara.
Ríkisstjórnin biður þing og
þjóð um aðstoð til að bjarga
þjóðinni frá voðanum. Og jafn
vel þá, sem líta úrræðin öðr-
um augum en við gerum, sem
að þeim stöndum, biðjum viS
um að fresta mótaðgerðum
um nokkurt skeið og gefa með
því REYNSLUNNI FÆRI Á
AÐ KVEÐA UPP SINN
ÓLÝGNA DÓM.
Mitt mat er, að þessi úrræði
komi að haldi, ef þjóðin tekur
þeim vel. Annars ekki.
Mistakist þau, blasa við
miklir örðugleikar og lang-
varandi.
ENGINN ÆTTI AiÐ SÆKJ-
AST EFTIR AB BERA
ÁBYRG® Á ÞEIM.