Morgunblaðið - 09.03.1960, Síða 3

Morgunblaðið - 09.03.1960, Síða 3
Miðvrkudagur 9. marz 1960 Monr.rnvrtT4fíiÐ 3 Iðn- lærðir menn STAKSTEINAR Y f irdrepsskapur Framsóknar Framsóknarmenn eru nú orðn- ir lafhræddir við þjónkun sína við kommúnista innan verka- lýðsfélaganna. Birtir nú Tíminn hvern leidarann á fætur öðrum, þar sem hann reynir að sverja af sér alla samvinnu við kommún- ista innan þessara félaga. Kemst Tíminn að orði um þetta á þessa leið í forystugrein sinni í gær: BIFVÉLAVIRKJAR hafa að undanförnu flykkzt í Vélskól- ann í Reykjavík, til námskeiða sem þar hafa verið og eru nú fcaldin fyrir þá. Mbl. hafði spurnir af námskeiði þessu og ljósmyndari blaðsins leit inn að kvöldlagi í Vélasal Vél- skólans. Þar voru 12 bifvéla- virkjar hver við sína vinnu, en unnu verk sitt undir leið- sögn eins kennara Vélskólans Jóhanns Péturssonar. Siík námskeið eru alger nýjung í staifsemi skólans. — Skólinn vildi þegar gera Annar námskeiðsflokkurinn við áhaldið, sem notað er til að stilla oliudælur dieselvéla. í fremri röð yzt til hægri er Jóhann Fétursson kennari »g Gunnar Bjarnason skólastjóri. lestrarformi um efnabætta olíu. Til fyrsta námskeiðsins komu 13 bifvélavirkjar en fleiri komasf ekki fyrir í senn og líkaði mjög vel. Annað nám skeiðið sóttu 12 menn. Nöfn- um á biðlista fór fjölgandi og þriðja námskeiðið var ákveð- ið frá 8. marz, með 13 mönn- um. Þá voru enn á biðlista 30 menn í Reykjavík og fyrir- og vinna að viðgerð þeirra hér. Þannig hafa þeir unnið nauðsynleg verk fyrir vinnu- veitendur sína um leið og þeir hljóta fræðslu, sem þeir hafa hvergi getað sótt áður. At- vinnurekendur hafa og skilið nytsemi þessara námskeiða og greitt kostnað fyrir menn sina varðandi þau. Menn sem ekki hafa hlotið kennslu í meðferð dieselvéla flykkjast á námskeið allt sem honum var unnt varð andi beiðni fræðslunefndar Félags bifvélavirkja, er hún bar upp þá ósk að skólinn efndi til námskeiðs fyrir bif- vélavirkja þar sem fram færi fræðsla um dieselvélar og einkum eldsneytisbúnað þeirra, sagði Gunnar Bjarna- son skólastjóri Vélskólans. Það er okkar skoðun, að skóiinn eigi að veita eins mikla fræðslu á sem flestum svið- um og frekast er unnt. ýkr Mikil aðsókn — Við í skólanum undir- bjuggum námskeiðið, hélt skólastjórinn áfram. Ákveðið var að það yrði 24 stundir í verklegri kennslu og auk þess nokkurra stunda ágrip í fyrir- spurnir höfðu borizt utan af landi frá mönnum sem gjarna vildu koma til námskeiðs. ★ Góður árangur Bifvélavirkjarnir voru önn- um kafnir við vinnu sína. Þeir koma frá ýmsum verkstæðum í bænum og firmum, sem mikið nota dieselbíla, sagði Jóhann Pétursson kennari. Hér hafa verið eða eru 9 menn frá Vegagerð ríkisins og fleiri koma, hér hafa verið menn frá Alm. byggingafélag inu, frá Strætisvögnunum, Reykjavíkurhöfn, Mjólkur- samsölunni, Olíufélaginu og víðar. Mennirnir koma sjálfir með verkefni — dælur og aðra hluti sem bilaðar eru en er falið viðgerð þeirr*. hafa eðlilega þurft að prófa sig áfram. En fræðslan er grundvöllur þekkingarinnar og hana reynum við að veita, og árangurinn hefur orðið góð ur, sagði Jóhann. •k Bifvélavirkjarnir ánægðir Einn úr fi’æðslunefnd félags bifvélavirkja var í salnum. Honum fórust orð á þessa leið: Það gleður okkur í fræðslu- nefndinni hve vel bifvélavirkj ar tóku þessari nýbreytni. Og það er ekki vafi á því, að þessi námskeið hafa orðið bifvélavirkjum til ómetanlegs gagns. Hér í Vélskólanum gæt um við sótt miklu meiri fræðslu, en aðstæður ýmsar leyfa ekki að námskeiðin standi nema stuttan tíma í einu. En hér eru tæki góð og góð kennsia og árangurinn og ánægja okkar bifvélavirkja er að sama skapi. ýk Flest strandar á hálfgerðu húsi Reynslan af þessum nám- skeiðum er mjög lærdómsrík sagði skólastjórinn er við kvöddum hina iðnu menn. Hún sýnir nauðsynina á að gert sé vel við Vélskólann. Hvergi annars staðar hér á landi er unnt að veita slíka þjónustu sem þessi námskeið eru. En hið sorglega er, að það er vart hægt ennþá. Astæðan er sú að húsrýmið vantar. Nýr vélasalur er í byggingu og var tekinn í notkun í haust, þó slíkt sé varla forsvaranlegt, þar sem húsið er ekki full- gert. En hefðum við ekki haft þennan ófullgerða sal, hefðu þessi námskeið verið útilokuð með ölu — þó allt annað, kennaralið og tæki séu og hafi verið fyrir hendi. Vélasalurinn hefur nú verið í byggingu í 3 ár og bygging hans undirbúin löngu áður. En aldrei hefur runnið til hans sérstök fjárveiting. Til að full gera allt í hólf og gólf vantar 1 til 1,5 milljónir króna og verður þá salurinn kominn í fullkomið horf m.a. með rými fyrir frystivélakerfi. Ávkeðið er, að þegar salurinn fæst fullgerður, verði verkleg kennsla vélstjóra aukin um helming. Leyfi hefur fengizt til ráðningar nýs fastakennara m.a. vegna þessarar aukning- ar. En allar þessar ráðagerðir stranda meira og minna á hálfgerðu húsinu. Héðan braut skrást um 40 vélstjórar árlega og „hverfa eins og dögg fyrir sól“. — Eftirspurnin eftir tæknilærðum mönnum héðan fer sívaxandi, enda er þetta eini tækniskóli landsins. Mönnum, sem héðan koma, er fengið það verkefni að gæta véla á sjó og landi, sem kosta hundruð miljóna króna. Það er því mikill ábyrgðarhluti að draga það öllu lengur að full- gera það hús, sem þegar er reist og með því gera kleift, að veitt sé sú verklega fræðsla sem gerir mennina hæfa til sinna ábyrgðarmiklu starfa, sagði Gunnar Bjarnason skóla stjóri að lokum. Skólinn er á framfarabraut, og hefur fegið lof erlendra sér fræðinga fyrir það. M.a. hreyfst danski vélfræðingur- inn sem hefur eftirlit með vél um nýja varðskipsins Oðins, mjög að skólanum, og kvaðst myndu skýra frá fyrirkomu- agi skólans í Reykjavík er hann kæmi til skólans í Höfn. Bifvélavirkjar við viðgerðir í Vélskólanum Hvatarkonur ræddu um efnahagsráðstafanirnar A MÁNUDAGSKVÖLD hélt Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt fund í Sjálfstæðishúsinu. Al- þingismennirnir, frú Ragnhildur Helgadóttir og frú Auður Auð- uns, borgarstjóri, fluttu þar ræð- ur um efnahagsmálin. Ýmislegt fleira var til fróðleiks og skemmtunar og á eftir settust fundarkonur að kaffidrykkju. Frk. María Maack, formaður félagsins, setti fundinn. Frú Soffía Ólafsdóttir, ritari, las fundargerð síðasta fundar. Alþingiskonurnar fluttu framsöguræðu Þá tók frú Ragnhildur Helga- dóttir til máls. Ræddi hún um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efna hagsmálum, rakti tildrög þess að þessar ráðstafanir nú voru nauð- synlegar, og skýrði nokkuð frum- vai-pið. Sagði hún að nauðsynlegt væri að fólk biði og gæfi því kerfi, sem nú kemur fram, tíma til að reyna sig, því ef til mikils er að vinna er líka nokkuð á sig leggjandi. — Þolinmæði og skilningur er aðalatriðin, og þá ekki sízt skilningur á því hvern- ig ástandið var orðið áður en ráðstafanirnar voru gerðar, sagði Ragnhildur að lokum. Frú Auður Auðuns tók til með- ferðar í ræðu sinni þær sérstöku ráðstafanir, sem gerðar hafa ver- ið til að létta á þeim, sem erfið- ast eiga með að taka á sig byrð- arnar, er ráðstafanirnar hlutu óhjákvæmilega að hafa. Tók frú Auður undir orð Ragnhildar um að tími yrði að fást til að reyna á ráðstafanir þessar, því ef egnt væri áður til verkfalla og kaup- hækkana, væri fótunum kippt undan því að þær gætu orðið það sem allir hlytu að vona að þær yrðu. Að ræðu frú Auðar lokinni, tók frú Sesselja Konráðsdóttir til máls. Tók hún undir orð fyrri ræðumanna um efnahagsráðstaf- anirnar. Og í lok ræðu sinnar færði hún Maríu Maack heilla- óskir af tilefni 70 ára afmælis hennar, sem var á sl. hausti. Þá hvatti María Maack fundar- konur til að duga nú vel í undir- Framh. á bls. 22. „Framsóknarmenn álita, að forystulið stjórnmálaflokka eigi ekki að hafa afskipti af niálum innan stéttarfélaga. Þetta á jafnt við um samtök bænda og launa- fólks. Forysta Framsóknarflokks ins hefur engin afskipti af því, hvernig Framsóknarmenn í stétt- arsamtökunum haga slarfi sína þar“. Hverjir eiga að trúa þessu? Hverjir skyldu nú eiga að trúa þessu? Aðeins örfáir dagar eru liðnir, síðan Tíminn, aðalmálgagn Framsóknarflokksins, beitti sér af alefli fyrir því, að framboðs- listi kommúnista í Iðju, félagi verksmiðjufólks og Trésmiðafé- lagi Reykjavíkur næði kosningu. ITíminn birti mynd af Birni Bjarnasyni, harðsoðnasta Mosk- “ vu-kommúnista landsins, sem var í formannssæti kommúnista í Iðju og skoraði á alla „vinstri menn“ að fylkja sér um Björn og samstarfsmenn hans. Sama saga gerðist í Trésmiða- félagi Reykjavíkur. Tíminn birti Imyndir af framboðslista komm- únista og herhvöt til trésmiða um það að duga nú kommúnist- um vel. Svo kemur Tíminn í gær og segir með sakleysissvip: „Forysta Framsóknarflokksins hefur engin afskipti af því, hvern ig Framsóknarmenn í stéttarsam tökiunum haga starfi sínu þar. Það er alveg þeirra mál en ekki Framsóknarf lokksins".' Er nú hægt að hugsa sér meiri tvöfeldni og yfirdrepsskafp, er birtist í þessari framkomu aðal- málgagns Framsóknarflokksins? Nei, sannleikurinn er sá, að kommúnistar og Framsóknar- menn hafa gert með sér bandalag innan verkalýðsnreyfingarinnar í þeim tilgangi að berjast gegn og brjóta niður þær viðreisnarráð- stafanir, sem núverandi rikis- stjórn hefur beitt sér fyrir. AtkvæðagTeiðslan í Eyjum Atkvæðagreiðslan, sem for fram meðal sjómanna i Vest- mannaeyjum um síðustu helgi, Ium heimild til vinnustöðvunar, og úrslit hennar syna greinilega, hvernig örlítill hluti fólks i stétt arfélögum getur tekið fram fyrir hendurnar á miklum meirihluta félagsmanna. í þessari atkvæða- greiðslu tóku þátt 130 manns, er skiluðu gildum atkvæðum. í Vél- stjórafélagi Vestmannaeyja og Sjómannafélaginu Jötni eru hins- vegar um eða yfir 400 manns. Af þeim 130, sem skiluðu gildum at- kvæðum, voru 76 með að veita verkfallsheimild en 54 á móti. I þessu sambandi má ennfremur benda á bað að sjómenn í Vest- mannaeyjum eru nú nokkuð i annað þúsund. Engu að síður geta 74 menn heimilað stjórnum félaganna að skella á verkfalli og stöðva þar með allt athafnalif í þessari lang samlega stærstu og þróttmestn verstöð landsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.