Morgunblaðið - 09.03.1960, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.03.1960, Blaðsíða 6
6 MORCVNBLAÐ1Ð Dæmdur í rétta rsekt vegna ummæla um lögregluna I HÆSTARÉTTI er genginn dóm ur sem ákæruvaldið höfðaði gegn Marteini Magnússyni Skaft fells, kennara Hamrahlið 5 hér 1 bæ. Reis mál þetta út af því, er kennarinn ók bíl sinum af Tjarn- argötunni og inn á Hringbraut- ina. Kennarann bar að gatnamót- unum í bíl sínum, um leið og einn af bílum lögreglunnar er kom þar að eftir Hringbrautinni. Lenti kennarinn í kasti við lög- regluna. Tapaði Marteinn Magnússon málinu bæði fyrir undirrétti og Hæstarétti. Hæstiréttur tók sér- staklega fyrir í sambandi við uppkvaðningu dómsins, óviður- kvæmileg ummæli kennarans um annann lögregluþjónanna sem í lögreglubilnum var og stöðvaði Martein M. Skaftfells á bíl sín- um. í forsendum dóms Hæstaréttar er atvikum málsins lýst og seg- ir þar m. a. á þessa leið: í veg fyrir lögreglubílinn „Er atvik þau gerðust, sem mál þetta er af risið, voru lög- regiumennirnir Arnþór Ingólfs- son og Þorvarður Trausti Eyjólfs- son á leið austur Hringbraut í Reykjavík í lögreglubifreiðinni R—4010 og stjórnaði Þorvarður Trausti þeirri bifreið. Akærði, Marteinn Magnússon Skaftfells, ó'k hins vegar bifreið sinni R—9797 suður Tjarnargötu. Samkvæmt skýrslum málsins virðist bifreiðum þessum hafa verið ekið með svipuðum hraða og eigi yfir 30—35 km., miðað við klukkustund. Bar bifreiðarnar samtímis að mótum nefndra gatna, og voru samkvæmt eið- festu vætti lögreglumannanna að eins um 10 metrar á milli þeirra. er ákærði ók í veg fyrir lögreglu- bifreiðina inn á Hringbraut, sem er aðalbraut. Með því að hemla lögreglubifreiðina af skyndingu varð árekstri afstýrt, en ákærði ók austur Hringbraut, eins og í héraðsdómi greinir, án þess að sinna stöðvunarmerkjum lögreglumanna, sem veifctu honum eftirför. 1 dómsforsendum segir svo: „Eigi er í Ijós leitt, að stöðvun- armerki, sbr. 4. mgr. 48. gr. um- ferðarlaga nr. 26/1958, hafi á þeim tíma, er hér skiptir máli, verið við Hrin^braut á mótum hennar og Tjarnargötu. Verður ákærði því eigi talinn hafa brot- ið gegn greindu ákvæði. Að öðru leyti hefur héraðsdómari fært háttsemi ákærða til réttar refsiákvæða. Með þessum athugasemdum þykir mega staðfesta héraðsdóm- inn, að öðru en því, að frestur til greiðslu sektar, 400 krónur, verði 4 vikur frá birtingu dóms þessa. Ummæli dæmd ómerk I varnarskjali sínu fyrir héraðs dómi hefur ákærði gerzt sekur um óviðurkvæmileg ummæli. Segir þar m. a. um Arnþór lög- reglumann Ingólfsson. „Augljóst er, að viðkomandi lögregluþjónn er reiðubúinn ef í hart slær að hagræða fram- burð i sínum sér í vil og vinna eið að, vitandi, að eiður lögreglu- manns er mjög þungur á metun- um. Hér er misræmið í fram- burði hans svo glöggt, að eiður- inn vottar litla virðingu hans fyrir staðreyndum". Þá lúta eftirfarandi ummæli að lögreglumönnunum Arnþóri Ingóífssyni og Þorvarði Trausta Eyjólfssyni sameiginlega: „Hver hefði svo borið ábyrgð- ina, ef kærendur með glæfra- akstri sínum hefðu orðið valdir að árekstri tjóni á báðum bílum og ef til vill slysum? Leikur á því nokkur vafi, að þeir hefðu reynt að ýta sökinni á mig? Hefðu þeir ekki verið fúsir til að hvítþvo sig af allri ábyrgð með eiði?“ Þessi meinyrði hafa ekki verið réttlætt. Eiga þau að vera dauð og ómerk. Þá ber og samkvæmt 160. gr. sbr. 159. gr. laga nr. 27/1951 að dæma ákærða fyrir ummæli þessi réttarfarssekt til ríkissjóðs, kr. 400,00, og komi varðhald 3 daga í hennar stað, verði hún eigi greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa. Akærði greiði allan áfrýjunar- kostnað sakarinnar, þar með talin laun sækjanda og verjanda, kr. 2000.00 til hvors. Q Hér eru bassaleikarar í /) A Sinfóníuhljómsveit Islands h \ með hin „virðulegu" hljóð- x V færi sín. Myndina tók ljós- ý 0 myndari Mbl., Ólafur K. 0 Q Magnússon, á æfingu Q Q liljómsveitarinnar í Góð- Q A templarahúsinu sl. mánu- A \ dag, en í gærkvöldi hélt \ V hljómsveitin fyrstu tónleik- v Q ana af sex, sem haldnir Q ^ verða næstu vikurnar í til- A A efni af tíu ára afmæli A \ hennar. \ Stúdentar lesa með skólafólki VINNUMIÐLUN stúdenta vill vekja athygli á því, að nokkrir stúdentar hafa áhuga á að taka að sér lestur með skólafólki og öðrum, sem þess æskja. skrifar úr daglegq iífinu ] • Óbragð að danska smjörinu Gæfuleysi fslendinga í smjörmálum ríður ekki við einteyming. Nú um nokkurt skeið höfum við búið við gæðasmj örsfyr irkomulagið, en nú upp úr miðjum vetri virð- ast kýrnar hafa þðrnað, svo rjómi til gæðasmjörsgerðar er ekki falur. Þá er gripið til þess ráðs að flytja inn danskt smjöc. Kona, sem keypt hefur danska smjörið og neytt þess, spyr: — Af hverju er þetta óbragð af danska smjörinu? Þetta hefði ekki þótt góð innleggs- vara þegar ég var við fram- leiðslustörf í sveit. Þar sem ég þekki til smjörgerðar og kann ast við þetta bragð langar mig til að koma þeirra spurningu á framfæri til réttra aðila í hvaða gæðaflokki þetta danska smjör sé. • Of mccrgum boðið í bíó Velvakandi var einn þeirra, er sáu afríkönsku siðvæðingar kvikmyndina Frelsi í fyrra- kvöld. í sambandi við sýning- una er þess fyrst að geta, að allt of mörgum hafði verið veittur aðgangur að henni. Var þröng fólks standandi í húsinu og veitti Velvakandi því sérstaka athygli, að bisk- upinn yfir íslandi, sem boðið hafði verið á sýninguna, fékk ekki sæti. Verður það að telj- ast mikið fyrirhyggjuleysi þeirra, sem að sýningunni stóðu, að útbýta svo mörgum aðgangskortum, að fjöldi manns varð að horfa á sýn- inguna standandi, sér til þreytu og trm leið lokandi út- sýni fyrir þeim, er höfðu ver- ið það hamingjusamir að krækja sér í sæti. * Iðrun og fyrir- gefning Kvikmyndin Frelsi er gerð, tekin og sýnd að tilhlutan sið- væðingarhreyfingarinnar. Sýn ir hún hver áhrif boðskapur siðvæðingarinnar hefur haft á þá Afríkubúa, sem um er fjall að. Meginatriði boðskaparins er að byrja á því að líta í eigin barm, áður en menn ráðist að öðrum og geri kröfur til þeirra. Hefur siðvæðingar- hreyfingin hér gert raunveru- legt eitt meginboðorð kristin- dómsins og verða þeir, sem kristnir vilja kallast, að viður kenna yfirburði siðvæðingar- manna á þesu sviði. Miðvik'udagur 9. marz 1960 Pósturinn kom ríðandi STYKKISHÓLMI, 5. marz. — Undanfarna sólarhringa hefur kyngt niður snjó hér á Snæfells- nesi og er nú lokuð leiðin til Grundarfjarðar og inn á Skógar strönd í Dali. Þó er fært KerL ingarskarð og Fróðárheiði mun einnig fær, en sjálfsagt" þungfær. Pósturinn, sem fer frá Stykk- ishólmi inn Skógarströnd og inn í Dali kom í morgun að sækja póstinn og var þá á hestum, en það er fyrsta gerðin á þessum vetri, sem hann verður að nota hesta. Var að þessu dálítil til- breyting og vantaði hann ekk- er nema lúður, til að blása í svo allt væri eins og í gamla daga. Árshátíð bamaskólans. Barnaskólinn í Stykkishólml hélt sína árhátíð í dag og í kvöld og fór hún hið bezta fram, var bæði fjölmenn og ánægjuleg. — Hefur skólinn haft þennan hátt á um lengri tíma og hafa skemmt anir þessar verið vel sóttar aí bæjarbúum. Goðafoss var hér í Stykkis- hólmi í dag að taka fisk til út- flutnings. — FréttaritarL Styðja frelsisbar- áttu nýlenduþjóða FULLSKIPAÐUR stjórnarfund- ur Rithöfundasambands íslands, haldinn í Reykjavík hinn 29. febrúar 1960, beinir þeirri ein- dregnu áskorun til ríkisstjórnar- innar, að hún bregðist drengilega við málaleitun þjóðfrelsishreyf- ingar Nýasalandsmanna og flytji mál hinna fangelsuðu leiðtoga hennar fyrir Mannréttindadóm- stóli Evrópu. Stjórn Rithöfundasambands ís- lands telur það eitt höfuðhlut- verk Islendinga á alþjóðlegum vettvangi að veita frelsisbaráttu nýlenduþjóða og ánauðugra kyn- þátta allt það fulltingi, sem þeir frekast mega. Slík barátta er í fyllsta samræmi við íslenzka mannréttindahugsjón frá fornu fari og á enn óskiptan hljóm- grunn með allri þjóðinni. HAFNARFJÖRÐUR ABCDEFGH ABCDEFGH KEFLAVÍK 25.. Hc8—c5 ★ KEFLAVÍK ABCDEFGH ABCDEFGH AKRANES 22.. g7xf6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.