Morgunblaðið - 09.03.1960, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.03.1960, Qupperneq 14
14 Einar Eiríksson hrepp- stjóri — Minning Traustir skulu hornsteinar hárra sala í kili skal kjörviður bóndi er bústólpi bú er landstólpi því skal hann virður vel. J. Ól. MHJVIKUDAGINN 11. nóv. sl. lézt að heimili sínu, Fjallsseli í Fellum í N-Múlasýslu, Einar Ei- ríksson fyrrverandi hreppstjóri, Fellahrepps, á 79. aldursári. For- eldrar hans voru heiðurshjónin Ingibjörg Einarsdóttir og Eiríkur hreppstjóri Einarsson, er bjuggu mestan sinn búskap að Bót í Hróarstungu. Ingibjörg var dótt- ir hjónanna Sigríðar Ólafsdóttur frá Skeggjastöðum í Fellum og Einars bónda á Hafursá, Einars- sonar bónda á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal og var Sigríður mið- kona hans. Foreldrar Sigríðar voru Ólafur sonur Þorsteins bónda á Melum í Fljótsdal, sem Melaætt er frá talin og Guðrún Oddsdóttir kona hans, er bjuggu á Skeggjastöðum. Foreldrar Guð- rúnar voru hjónin Oddur Jónsson og Ingunn Davíðsdóttir frá Hell- isfirði, er landskunn varð fyrir þá skyggnigáfu er hún var gædd. Þau bjuggu á Skeggjastöðum. — Þeim Bótarhjónum In'gibjörgu og Eiríki búnaðist mjög vel og var bú þeirra talið eitt með beztu búum hér á Héraði. Þau áttu 7 börn en 2 þeirra dóu í æsku úr barnaveiki. Hin börnin ólust upp á heimili foreldra sinna til full- orðinsára og stunduðu skólanám. Haustð 1899 fór Einar á Möðru- vallaskóla og lauk þaðan burt- fararprófi 1901, með mjög góðum vitnisburði. Að loknu námi dvaldi hann með foreldrum sín- um. í janúar 1905 andaðist Ei- ríkur faðir hans úr lungnabólgu. Tók Einar þá við bústjórn með móður sinni til vorsins 1906. Þá brá hún búi. Haustið 1905 kvongaðist Ein- ar Kristrúnu Hallgrímsdóttur Hallgrímssonar frá Glúmsstöð- um í Fljótsdal. Móðir hennar var Ingunn Pálsdóttir Sigurðs- sonar af Krossavíkurætt. Vorið 1906 byrjuðu þau búskap á Fjalls 3eli í Fellahreppi. Fjallssel var kirkjueign og hafði verið í leigu- ábúð frá ómunatíð. Hafði hún hlotið misjafna meðferð, sem títt er um leigujarðir. Jörð þessi var talin allgóð fyrir sauðfénað, beit góð, er hennar naut, fjárgeymsla erfið og vetrarríki, þar sem mesti hluti landsins er fjalllendi og heiði. Tún lítið, húsakostur forn og mjög af sér genginn. En hjón- in voru ung og hraust og létu sér ekki allt í augum vaxa. Brátt festi Einar kaup á jörð- inni og tók að búa í haginn. Hann byrjaði á að lagfæra bæjarhúsin svo þau urðu íbúðarhæf og leiddi vatn í þau. Byggði gripahús og hlöður fyrir heyfenginn. Girti túnið með grjóti og varnarskurð- um, er jafnframt gegndu því hlutverki að veita vatni frá mýr- Iendi, er liggur að túninu og síð- ar var tekið til túnræktar og túnþúfunum fækkað ár frá ári. Fyrir þessar framkvæmdir óx töðufall hörðum skrefum og bú- peningurinn sömuleiðis. Þá byggði Einar íbúðarhús, tvílyft með kjallara. Útveggir voru gjörðir úr steinsteypu, en innanbygging úr timbri. Efnis- kaup, byggingarvinna og langir og erfiðir aðflutningar kostuðu svo mikið fé, að nú varð Einar að taka lán til þess að standa í skilum á byggingarkostnaðinum og var það víst eina lánið, sem hann tók x öllum sínum búskap. Allar þessar framkvæmdir voru gerðar af mikilli vand- virkni og ekkert til sparað að allt væri traust. Nú var Fjallssel orðið fallegt býli, og hjónin litu með ánægju á árangur iðju sinn- ar. — Á fyrstu árum sínum í Fjalls- seli var Einar kosinn í hrepps- nefndina og hlaut þar oddvita- starfið. Þá var kjörtímabilið 6 ár. En ekki féll honum betur starfið en það, að hann neitaði að taka við endurkosningu. Síðar var hann kosinn í nefndina og mun starfstími í henni hafa ver- ið 15 ár alls. Árið 1922 var Einar skipaður hreppstjóri Fellahrepps og gegndi hann því starfi til ársins 1956. Ýms önnur störf hafði hann á höndum fyrir hreppsfélagið. Öll störf Einars hvort sem hann vann þau fyrir sjálfan sig eða aðra, voru unnin af stakri reglusemi og vandvirkni. Þótt Einar væri Vil kaupa hlut í heildverzlun. — Einnig kæmi til greina heild- söluleyfi með eða án umboða. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „Heildverzlun.. 9844“. Trésmíðaverkstœði Til leigu er lítið trésmíðaverkstæði með vélum í miðbænum. — Upplýsingar í sima 15812 og eftir kL 20, 24903. Stúlka óskast nú þegar til afgreiðslustarfa BINNABÚ®, Njálsgötu 26. MORCl) 1S BLAÐIÐ alvörumaður tók hann græsku- iausri glettni og gamansemi mjög vel, og í vinahóp gat hann verið hrókur fagnaðar. Hann var hjálp fús og óáreitinn, en hélt fast á sínum hlut ef því var að skipta. Hann var áhugamaður um al- menn mál og færði glögg rök fyr- ir sinum málstað. Oft var gest- kvæmt í Fjallsseli. Ef ekki var annatími, kom Einar með spilin. Hann var slyngur spilamaður og hafði mjög gaman af að spila, sérstaklega ef við góða spilamenn var að etja. Þau Fjallsselshjón eignuðust 8 börn. Fyrsta barnið andaðist á fyrsta ári. Hin eru öll á lífi og dvöldu í foreldrahúsum fram um og yfir tvítugsaldur. Sem vænta mátti, var vandað mjög uppeldi þeirra, og ekki horft í kostnað við skólanám né annað, en þeim má til styrktar verða á lífsleið- inni. Þetta er mannvænlegur og vel gefinn hópur, er vafalaust verður sjálfum sér og þjóðinni til sóma, sem þau eiga kyn til. Af því, er hér hefir verið sagt sést glöggt að Fjallsselsheimilið var eitt af hinum styrku stoðum, er þjóðfélagið hvílir á. Sú kona er elur mörg börn, og annast uppeldi þeirra með sóma, auk bústjórnar innanhúss, skilar þjóð nýtara starfi en margur gjörir sér grein fyrir. Kristrún í Fjallsseli andaðist þar í júní árið 1947, og skorti þá fáa daga í 68 ára aldur. Hún var jarðsett í heimagrafreit, að viðstöddu fjölmenni. Skömmu síðar brá Einar búi. Jörðina fékk hann í hendur Ei- ríki syni sínum og konu hans Ingunni Sigurðardóttur. Hjá þeim dvaldi hann til hinstu stund ar og undi vel sínum hag. Á síð- ustu árum hans var heilsu hans þannig farið að hann þarfnað- ist sjúkrahússvistar, en þar gat hann ekki unað. Heima í Fjallsseli vildi hann deyja. 19. nóv. var hann lagður til hvíldar í heimagrafreitnum við hlið konu sinnar. Sóknarpresturinn Marinó Kristinsson jarðsöng, flutti hús- kveðju og söng einsöng. Börn Einars komu um langa vegu (3 frá Reykjavík) til þess að heiðra útför hans með nær- veru sinni. Fjöldi annarra manna var þar við staddur, sem er ljós- asti vottur þess, hve Einar var vel metinn og vinmargur. Sveinn Bjarnason, Heykollsstöðum. Stúlkur helzt vanar, óskast á Ijósmyndavinnustofu strax. Uppl. hjá Sveinn Björnsson & Co., Hafnarstræti 22 kl. 5—6,30 í dag. Stúlka óskast til símavörzlu og vélritunnar. — Enskukunn- átta nauðsynleg. * Gunnar Asgeirsson Suðurlandsbraut 16 — Sími 35202 Dodge-Weapon skuffubill Nýrri gerð til sýnis og sölu á vélaverkstæði Þ. JÓNSSONAR & Co., Brautarholti 6 Stúlka á aldrinum 18 til 25 ára, óskast til iðnaðarstarfa. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Burstagerðin Laugavegi 96 Menn vantar til netaveiða á v.b. Freyju. —- Úpplýsingar um borð í bátnum, sem liggur við Grandagarð, I. bi-yggju og í síma 17311 eftir kl. 7. DUGLEGUR PILTUR ÓSKAST til afgreiðslustarfa í matvöruverzlun frá 1. apríl n.k. Umsóknir ásamt meðmælum sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi föstudag, merkt: „9842“. Stækkar með barninu fyrir 3—8 mánaða . . . hér hafið þér ágætis svefn- og kerrupoka fyrir 1—2 ára Leikgalli, sem er einkar hentugur hinum misjöfnu leikjum barnsins AUSTURSTRÆTI 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.