Morgunblaðið - 16.03.1960, Page 1
20 síður
Afvopnun
rædd í Genf
Genf, 15. marz. (NTB-Reuter).
ALÞJÓÐA ráffstefnan um af-
vopnun hófst í Genf í dag. Er
þetta fyrsta tilraun Austurs og
Vesturs til aff ná samkomulagi
um almenna afvopnun síðan 1957.
Formaður brezku sendinefnd-
arinnar á ráðstefnunni, David
Ormsby Gore, lýsti því yfir að
andrúmsloftið á ráðstefnunni
gæfi aukr.ar vonir um frekari ár-
angur en hingað til hefur náost
á samskonar fundum. En hann
varaði samt við of mikilli bjart-
sýni og tók skýrt fram að fyrsia
sporið væri erfiðast. Þegar við
opnun ráðstefnunnar komu erfið-
leikarnir í Ijós, er formaður
rússnesku sendinefndarinnar,
Valerian Zorin, sagði að tillög-
ur Vesturveldanna um afvopnun
í þrem áföngum virtust ekki við
fyrstu athugun fela í sér skýr á-
kvæði um almenna og algjöra af-
vopnun.
En Zorin sagði að Ráðstjórnar-
ríkin mundu taka tillögurnar til
gaumgæfilegrar athugunar.
Minni þvermóffska
Á fyrsta fundinum fluttu tveir
nefndarformenn stuttar skýrsl-
ur um álit landa sinna á afvopn-
unarmálinu.
Ekkert kom fram.á fundinum
í dag, sem hefur nokkrar breyt-
ingar í för með sér á núverandi
ástar.di. En allir aðilar lýstu yf-
ir áhuga sínum á að samningar
takist. Þessar yfirlýsingar hafa
að vísu áður komið fram á slík-
um ráðstefnum, en þeir sem til
þekkja voru samrrrála um að ekki
ríkti eins mikil þvermóðska hjá
fulltrúunum og oft áður.
Sama og að
ibeita þýzk-
um Uúm á
danskt
land
Kaupmannahöfn, 15. marz. —
Einkaskeyti til Mbl. —
EXTRABLADET í Kaupmanna-
höfn birtir í dag grein um land-
helgismálin undir fyrirsögninni
„Örlagarík ráffstefna“. Segir þar
að þaff sé ósanngjarnt aff fjar-
lægum löndum sé heimilt aff
senda fiskiskipaflota sína til aff
stunda rányrkju viff strendur
ríkja, sem byggja alla afkomu
sína á fiski. Þetta sé jafn ósann-
gjarnt og ef til dæmis Þjóffverj-
um væri heimilt aff reka naut-
pening sinn á beit í dönsku
landi.
Að sjálfsögðu vinna allar rík-
isstjórnir að áhugamálum landa
sinnna, en ef réttlæti á að ríkja,
verður að taka tillit til sanngirni
og skynsemi.
Valdbeiting Breta
Verði Englendingum bægt frá
ströndum íslands, Færeyja og
Grænlands, þýðir það ekki þjóð-
Framh. á bls. 2
Deilt um leiðir
Tillögur Vesturveldanna um af
vopnun ganga út frá því að af-
vopnunin verði framkvæmd í
þrem áföngum, án þess að setja
nokkurt tímatakmark fyrir því
hvenær henni verði lokið. En
kon.múnistaríkin halda fast við
tii'ögur þær er Krúsjeff forsæt-
isráðherra lagði fyrir þing Sam-
einuðu þjóðanna í fyrra haust. Er
í þeim reiknað með algerri af-
vopnun, sem lokið verði áÞjórum
árum.
íp , ggjgg gg ■: ^ ' ' < - -í
,
Þegor kvikn-
nði í Vísundi
ÞESSAR myndir tók Jón K.
Guðmundsson, 2. vélstjóri
á Vísundi, þegar skipverjar
fóru um borff í hann aftur
til aff festa dráttartaug milli
bátsins og varðskipsins
Gauts, eins og skýrt var frá
í blaðinu í gær, en þar seg-
ir: „Er varðbáturinn Gaut-
ur kom á vettvang, fóru
skipstjóri, 1. vélstjóri og
stýrimaffur yfir í Vísund
til að festa í hann kafflana.
Var skipiff allt þá orffiff
mjög heitt“.
Þess má geta aff skipverj-
ar á Vísundi björguðu sér
yfir í vélbátinn Reyni, þeg-
ar eldurinn kom upp og
voru þar þangað til þeir
voru fluttir yfir í varff-
skipið.
Myndirnar hér aff ofan
eru teknar úr Reyni, en á
blaffsíðu 3 eru myndir, sem
teknar voru þegar komiff
var meff Vísund inn á
Reykjavíkurhöfn í fyrri-
nótt.
r
Ottazt um flugvél
BONN, 15. marz. (NTB-Reuter):
Óttazt er um flutningaflugvél frá
þýzka hernum með sex manna á-
höfn. Flugvélin var á leið frá
Þýzkalandi til Torino á ítalíu og
er óttazt að hún hafi hrapað ein-
hversstaðar í suð-austur Frakk-
landi. Italskar og Bandarískar
flugvélar hafa í dag haldið uppi
leit að hinni týndu flugvél, en
síðast heyrðist í henni á þriðju-
dagsmorgun,
Framsókn
lögin um
vill hækka fjár-
700 millj. króna
Framsóknarflokkurinn
hefur nú lagt fram á
Alþingi breytingartillögur
við fjárlögin, sem hafa í
för með sér nær 100 millj.
Togaraesgendur í Grims-
by vilja ísl. fisk
Grimsby, 15. marz (Reuter).
BREZKIR togaraeigendur i
Grimsby felldu í dag tillögu þess
efnis að íslenzkum togurum yrði
bannaff aff landa öllu umsömdu
íiskimagni í Grimsby eingöngu.
Samkvæmt samningi togara-
eigenda landanna, er íslending-
um heimilt að landa fiski að verð
mæti 450.000 sterlingspund á
hverjum ársfjórðungi, og hefur
íslenzkum togaraeigendum ver-
ið mögulegt að ákveða að mestu
leiti sjálfir í hvaða höfn löndun
fari fram.
Framh. á bls. 2
kr. útgjaldahækkun hjá
ríkinu á þessu ári. Leggja
fulltrúar flokksins í fjár-
veitinganefnd til að verð-
tollurinn hækki um 55
millj. kr., söluskattur af
innfluttum vörum um 20
millj. kr. og innflutnings-
gjald um 21 millj. kr. Sam-
tals nema þessar hækkan-
ir, sem Framsóknarmenn
flytja til breytingar á tekju
áætlun fjárlaga 96 millj.
króna.
ENGIN TILLAGA
TIL SPARNAÐAR
ýf Síðan flytja Framsókn
armenn tillögur um að
þcssum tekjuauka skuli
varið til margvíslegra fram
kvæmda í landinu, meira
og minna gagnlegra, eins
og gengur. En þeir höfðu
ekki í gær lagt fram eina
einustu tillögu um sparnað
eða niðurfærslu útgjalda.
Þetta eru sömu menn-
irnir, sem ásaka ríkis-
stjórnina fyrir há fjárlög
og skort á sparnaðarvilja.
Má segja að ekkert lýsi
betur ábyrgðarleysi Fram-
sóknarflokksins um þessar
mundir en þessar stór-
kostlegu hækkunartillögur
þeirra.