Morgunblaðið - 29.03.1960, Síða 1
24 síður
47. árgangur
74. tbl. — Þriðjudagur 29. marz 1960
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Átök í S-Afríku í gærkveldi
Brenndu skóla
og kirkjur
— Jóhannesarborg, 28. marz. —
í ALLAN DAG var andrúmsloftið í borgrum og bæjum Suður-
Afríku þrungið spennu. Innfæddir boðuðu 24 stunda verkfall í
virðingarskyni við þá, sem féllu fyrir vopnum lögreglunnar í fyrri
viku og í mörgum borgum var verkfallsboðinu almennt hlítt. —
Framan af degi var allt með ró, en í kvöld kviknaði ófriðareldur-
inn. 1 mörgum borgum fóru svertingjar fylktu liði, brenndu hús og
réðust með grjétkasti á samgöngutæki og opinberar byggingar. —
A. m. k. einn þeldökkur lögregluþjónn beið bana.
Beittu kylfum og táragasi
I bænum Worchester, um 100
km frá Höfðaborg, brenndu
blökkumenn allar kirkjur, skóla,
opinberar byggingar og heimili
margra lögregluþjóna. í hjarta
höfuðborgarinnar beitti lögregl-
an táragasi til að tvístra um þús-
und blökkumönnum, sem létu
ófriðlega. í a. m. k. þremur öðr-
um bæjum kom til átaka og
kirkja ein í útjaðri Jóhannesar-
borgar var brennd til grunna.
Óþœgileg
klípa
LUNDÚNARBLAÐIÐ Dai-
ly Telegraph ræðir Genfar-
ráðstefnuna í forystugrein
í síðustu viku og segir m.a.:
í gær héldu Kanadamenn
því fram, að landhelgi
skyldi vera 6 milur og einka
réttur til fiskveiða, ef hans
yrði krafizt, yrði aðrar sex
mílur.... En þetta
mundi hindra fiskveiðar
Breta við Islandsstendur.
Vegna þess, að við höfum
haldið fram okkar fyrri
rétti í þessu sambandi, höf-
um við orðið af miður þægi-
legri nauðsyn að vernda
fiskveiðiflota okkar með
flotadeildum. Ef við drög-
um okkur til baka og látum
sem ekkert sé, hvernig verð
ur litið á það í Grimsby og
Hull? Ef við gerum það
ekki mundum við verða
eins og utan gátta á ráð-
stefnunni. Þetta er óþægi-
leg klípa, en hún getur ekki
verið rikisstjórninni ný.
Við skulum vona að þegar
Hr. Hare rýfur þögnina í
Genf í næstu viku, þá láti
hann skoðun vora ekki fara
milli mála.
Gera þeirsamning?
PARÍS, 28. marz. — Krúsjeff og
föruneyti hans heimsótti Mars-
eille og Dijon í dag og var vel
fagnað. Orðrómur er á kreiki
um að ýmislegt bendi til þess að
þeir Krúsjeff og de Gaulle geri
mikilvæga samninga áður en
Krúsjeff kveður Frakkland. Þeg-
ar hafi komið til tals, að löndin
skiptist á mikilvægum upplýsing-
um, sem ekki eru hernaðarlegrar
þýðingar.
Lögreglan mun hvergi hafa beitt
skotvopnum, heldur kylfum og
táragasi.
Brenndu vegabréf sín
Það voru tvö stærstu samtök
blökkumanna, sem boðuðu til
verkfallsins og mátti heita, að
það væri algert. Þeldökkir í öll-
um atvinnugreinum sátu heima,
en á stöku stað mættu þeir þó til
vinnu. Óttast stjórnarvöldin, að
kynbræður þeirra ætli sér að
koma fram hefndum á þeim, sem
mættu.
Síðari hluta dags fóru blökku-
menn víða á stjá og á götum sá-
ust þeir brenna vegabréf sín,
sem þeir eru skyldaðir til að
bera. Lögreglan sendi út aðvar-
anir til þeirra um að engrar misk
unnar yrði að vænta, ef menn
eyðileggðu vegabréfin. Þingið
lýsti og yfir banni við starfsemi
tveggja samtaka blökkumanna,
Þjóðlega Afríkusambandsins og
Al-Afríkusambandsins.
Mótmæli
Víða um heim hafa stjórn-
Framhald á bls. 2
Ingiríður Danadrottning fimmtug í gær
INGlRlÐUR, drottn-
ing Danmerkur, átti í gœr
fimmtugsafmæli. — Hún
kom fyrst hingað til lands,
sem krónprinsessa íslands
fyrir rúmum tuttugu ár-
um, ásamt manni sínum,
F r i ð r i k IX., núverandi
Danakonungi. Hin un g a
krónprinsessa vákti hvar-
vetna hrifningu þar sem
hún fór um hér á landi. —
Árið 1956 kom hún
hingað aftur, sem drottn-
ing Danmerkur. Var hennx
þá innilega fagnað af ís-
lenzku þjóðinni. Er óhœtt
að fullyrða að hún hafi á-
unnið sér traust og virð-
ingu állra landsmanna með
glœsilegri og drengilegri
framkomu sinni.
Islendingar senda Ingi-
ríði drottningu innilegar
hamingjuóskir meö fimm-
tugsafmœliö og árna jafn-
framt Friðriki konungi IX.
og dönsku þjóðinni állra
heilla. —
SHre/s/r
hrað-
frysti-
stöð
í Hollandi
M E I R I hluti f járveitinga-
nefndar Albingis lagði fram
á þingi í gær tillögu um
heimild til handa ríkisstjórn-
inni að ábyrgjast fyrir Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna
lán allt að 400 þús. dollara til
að reisa hraðfrystistöð í Hol-
landi, með þeim lánskjörum
og gegn þeim tryggingum,
sem ríkisstjórnin telur við-
unandi.
Magnús Jónsson, formaður fjár
Framh. á bls. 2.
Frondizi topoði
BUENOS AIRES, 28. marz. —
Frondizi Argentínuforseti og
hinn róttæki flokkur hans töp-
uðu í kosningunum um helgina,
er helmingur þingmanna var
endurkjörinn. Alþýðlegi-róttæki
flokkurinn, sem er klofnings-
flokkur úr flokki Frondizi, vann
hins vegar sigur, þó ekki nægi-
legan til þess að hljóta meiri
hluta á þingi. Um 20 flokkar
buðu fram, en aðeins þessir tveir
flokkar hafa fylgi um allt landið.
Kommúnistar og Peron-istar skor
uðu á sína menn að skila
auðu. Foringi Alþýðlega-rót-
tæka flokksins er Ricardo Bald-
Þessi kös er framan við fiskmóttöku Fiskiðjunnar í Vestmannaey jum, en þangað bárust á föstudaginn 490 lestir af fiski til vinnslu,
en sá dagur var mesti afladagur í sögu Eyjanna. (Ljósm.: Sigurgeir J., Vestm.eyjum.)