Morgunblaðið - 29.03.1960, Síða 10

Morgunblaðið - 29.03.1960, Síða 10
10 M O R Cr V /V B L A Ð 1 Ð Þriðjudagur 29. marz 1960 Harriman gagnrýndur eflir Edward C/ankshaw CT EINHVERJIR skyldu enn vera þeirrar skoðunar, að Krús- jeff muni af ásettu ráði hefja stríð, væri ráðlegt fyrir þá að lesa mjög stutta bók eftir reynd- an bandarískan stjórnmálamann, Averell Harriman, sem fjallar um þetta efni af mikilli kunn- áttu. Harri'man hefir verið í fram- boði til forsetakjörs, fylkisstjóri í New York, stjórnað Marshall- áætluninni og verið sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi en þar að auki þekkir Harriman Rúss- land af eigin raun, síðan hann var kaupsýslumaður, áður en byltingin varð í Rússlandi, sér- stakur erindreki Roosevelts for- seta 1941 og síðar sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu. Nýlega fór hann aftur þangað sem venju legur ferðalangur, og í fyrr- nefndri bók skýrir hann frá þvi, sem fyrir augu hans bar, og á- lyktunum sínum. Að sjálfsögðu er hann maður, sem ástæða er til að gefa gaum. Hann er auðugur og frægur, og af því leiðir, að hann er ekki aö skrifa til að afla sér fjár og frama. Ekki þarf að lesa nema hálfa málsgrein til að gera sér Ijóst, að tilgangur hans er alls ekki að skrifa til þess eins að skrifa bók. Og af því hlýtur mað- ur óhjákvæmilega að draga þá ályktun, að hann hafi tekizt þetta verk á hendur, þar sem hann telji sig hafa einhvern mikilvæg- an boðskap að flytja. Getum við það? Hvað er það þá, sem honum liggur á hjarta? Að núverandi forráðar m Sovétríkjanna muni ekki heíji íð; að Sovétríkin séu vaxandi " un og þess sjá- ist engin merki, að hún muni hrynja; að fjölmare Sovétborg- arar hafi ekki lengur áhuga á kommúnisma; að forustan haldi eigi að síður fast við hugsjón „heimsbyltingarinnar" (hann nefnir ekki, hvaða merk- ingu hann ætlast til, að við leggjum í orðið heimsbylting). Enn er ótalin önnur meiri háttar niðurstaða, sem varðar Banda- ríkin, en við skulum láta hana liggja milli hluta í bili. Það væri viturlegt af þeim, sem ekki hafa þegar komizt að þessum niðurstöðum með sjálf- um sér, að lesa bók Harrimans. Enginn getur sakað manninn um að vera hlutdrægur Sovétríkjun- um í vil. Þeir, sem þurfa ekki að láta segja sér þessa hluti og hafa annað veifið gluggað í skrif á- reiðanlegra fréttamanna um Sovétríkin, geta með góðri sam- vizku látið bók Harrimans sigla sinn sjó, og við getum látið út- rætt um þetta. Eða getum við það? Nú hvarfl- ar að okkur spurning, sem raskar hugarró okkar. Hvers vegna tel- ur svo gáfaður og háttsettur maður það nauðsynlegt, eins og málum er nú háttað, að segja frá þessum atriðum, að fylla bók sína með frásögn af ferðalagi áhrifamanns um Sovétríkin, m. a. samtölum við Krúsjeff og fánýt- um athugasemdum um kommún- isma og frelsi, sams konar at- hugasemdum og þeim, sem alltaf blasa við á síðum vikuritsins Time? Er það maðurinn, sem er svona utanveltu, eða eru það les- endur bókar hans? Á hann ein- hverja lesendur? Hvers vegna? Lærisveinn Með tveimur tilvitnunum, sem ekki eru valdar af handahófi, má sýna, á hvaða stigi pólitískur hugsunarháttur Harrimans er: „Mér virðist, að Stalín hafi verið spámaður marxískrar trúar, en Krúsjeff sé aftur á móti framar öllu lærisveinn, og eins og allir lærisveinar jafnvel enn ofstækis- fyllri í trú sinni á kenningarnar." Annað dæmi: „Þó að Bandarikja mönnum kunni að virðast það ótrúlegt, er litið á okkur sem líklega árásarmenn.“ Fimmta meiri háttar níiður- staða höfundar er, að eina leiðin til að hafa í fullu tré við komm- únista sé að efla efnalega getu Bandaríkjanna takmarkalaust „án þess þó að fórna eitt andar- Averill Harriman tak því aðalmarkmiði okkar að ala upp fágaða, vel menntaða einstaklinga", og láta efnislegum náðargjöfum rigna yfir þá hluta heimsins, sem verr hefur vegnað en okkur. Hann segist hafa séð nýjar framkvæmdir, sem sýni að stal- ínsk harðstjórn hafi orðið að þoka um set: Þetta kynni að hafa verið athyglisvert, ef óþekktur öldungadeildarþingmgður hefði sagt frá þessu fyrir 4—5 árum. Annars lýsir það bezt frásagnar- hætti hans, hvernig hann kemur skoðunum sínum á framfæri. „Ég sá enga sönnun þess, að . .. . “ er eftirlætissetning, sem hann endurtekur hvað eftir annað og á sennilega að hljóma sem á- kveðin röksemd, en verður í raun og veru merkingarlaus: a) af því að það sé ekki hugsanlegt, að hann hafi getað séð neina sönn- un — t. d. um „skipulagða and stöðu" gegn stjórnarvöldunum, b) af því að raunverulega sá hann enga sönnun heldur fyrir hinu gagnstæða. Einhver kynni að spyrja, hvers vegna ég ráðist á veslings Harri- man? Margir hafa skrifað lakari bækur um Rússland. Og svarið er einmitt: Af því að hann er ríkur, háttsettur og frægur, eins og þegar hefir verið bent á, og ég deili á hann, einmitt af því að hann er maður, sem hefði átt að ala með sér nýtilegar hugs- anir ekki aðeins um Rússland, sem hann þekkir betur en flestir aðrir, heldur og um Bandaríkin, sem hann hefir verið opinber full trúi fyrir. En það kemur engin ný hugmynd fram í bókinni, bregður varla fyrir frumlegri hugsun. Ef ég væri Rússi og læsti þessa bók, myndi ég gefa lítið fyrir Vesturlönd. Hvergi vottar fyrir vangaveltum. Hvað eru Rússar að reyna að gera, hvers vegna og hvernig? Hvernig stendur á því, að fjölmenn þjóð sættir sig við slíkt stjórnarfar, þegar við fyll- umst vonleysi af tilhugsuninni um það einni, saman, og flestir Sovétborgarar deila á það, þótt þeir beygði sig undir það? Sovézkt stjórnarkerfi mun verða varanlegt, segir Harriman réttilega, en hvers konar þjóð- félag heldur hann, að muni koma undanþeirri þvingun sem þetta kerfi leggur á andlegt líf í Rúss- landi? Hvers virði eru í raun og veru steinrunnar hugmyndir okkar um frelsi og „fágaða" ein- staklinga? Hvað er athugavert við lífsviðhorf Bandaríkjanna, sem veldur því, að tugir milljóna utan Bandaríkjanna líta á það með efasemi og vantrausti? Óhyggjandi forsendur? Harriman kann að svara því til, að þess konar bók hafi hann alls ekki ætlað að skrifa; og fátt veldur meira hugarangri en að vera gagnrýridur fyrir að skrifa ekki allt aðra bók; flestir rit- höfundar þekkja það af eigin raun. En ég svara því aftur til. að áhrifamenn í þjóðfélaginu ættu að láta öðrum eftir að skrifa bækur á borð við þá, sem Harri- man hefir skrifað. Og taki stjórn málamenn ekki til óspilltra mál- anna við að spyrja róttækra spurninga, ekki aðeins um full- yrðingar Rússa, heldur og um sínar eigin fullyrðingar, verður, þess ekki langt að bíða, að við missum sjálfir alla trú á okkur. Það er sem sé ekki nógu gott að leggja til grundvallar sem óhyggj andi forsendu, að allt, sem Bandaríkjamenn (eða Bretar) gera, sé rétt, og það eitt sé að- finnsluvert hjá Rússum, að leið- togar þeirra hindri þá í að vera alveg eins og við erum. Séð yfir afgreiðsluborðið í Matstofu Austurbæjar. Matstofa Austurbœjar breytir afgreiðsluháttum MIKIL umskipti hafa orðið á Matstofu Austurbæjar, Lauga- veg 118. í stað þjóna við borð- hald, eins og áður var, hefir nú verið tekið upp sjálfsafgreiðslu- fyrirkomulag, sem flýtir mjög fyrir allri fyrirgreiðslu, eins og kunnugt er. Hluta Matstofunnar var gjör- breytt og annaðist breytinguna Daníel Pétursson, en hann hefur kynnt sér rekstur hótela í Banda- ríkjunum. Ganga gestir um leið og þeir koma inn úr dyrunum að löngu borði, sem er margskipt. Fyrst er kældur sýningarskápur, sem geymt er í ábætisréttir, smurt brauð og kökur alls kon- ar. Þá kemur hitað borð og er tfiekið komið, en umslogf vantar GJÖGRI, 23. marz: — Nú er loksins kominn skrifpappír til Djúpuvíkur. Nokkur stykki komú af kúlupennum og er það strax bót í máli. En verst af öllu er þó umslagaleysið. Rétt er að geta þess í sam- bandi við skort þennan hér á Ströndum að kaupfélagsstjór- inn pantaði bæði blek og skrif- pappír um mánaðamótin nóv. —des. og er pöntunin núna fyrst að koma. Svona er af- greiðsla Sambandsins við þessa minni staði og útkjálka, sem hafa slæmar samgöngur. — Regína. Gamanleikurinn „Hjóna- spil“ er sýndur við mikla hrifningu í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Þetta er gamanlcikur fullur af gáska og fjöri og kemur leikhúsgestum í gott skap. Myndin er af Rúrik Har- aldss., Haraldi Björnss., Herdísi Þorvalds., Bessa Bjarnasyni, Guðbjorgu Þor- bjarnardóttur og Brynju Benediktsdóttur í hlutverk- um sínum. venjulegast á boðstólum tvær súputegundir, þrír kjötréttir og jafnmargir fiskréttir. Þessu næst kemur kæliborð fyrir mjólk og gosdrykki og að lokum kaffi- kanna. Tilfærsla þessi hefur haft það í för með sér að gólfpláss hefur aukizt og borðum því verið fjólg að. Er Matstofan nú einna stærst allra greiðasölustaða í bænum. Eigendur hennar eru Gunnar Vilhjálmsson og Ragnar Guð- laugsson. Aðalíundur Bak- arasveinafélagsins AÐALFUNDUR Bakarasveinafé- lags íslands var haldinn 23. marz. Úr stjórn félagsins áttu að ganga formaður, ritari og fjármálaritari og voru þeir allir endurkjörnir. Stjórn félagsins er nú þannig skipuð: Guðm. B. Hersir, form., Jón Árnason, varaform., Sigurð- ur B. Jónsson, ritari, Alfreð Antonsen, gjaldkeri og Jón Þ. Björnsson, fjármálaritari. Sogsrafmagn að Skógum HVOLSVELLI, 17. marz: — I byrjun febrúarmánaðar kom hingað flokkur raflínumanna frá Rafmagnsveitum ríkisins, til þess að vinna að uppsetningu staura og undirbúa fyrirhugaða há- spennulínu frá Hvolsvelli að Seljalandi undir Eyjafjöllum. I fyrstu var ákveðið að háspennu- línan næði aðeins að Seljalandi, en hefur nú verið framlengd að Skógum. Síðar mun svo áætlað að línan nái alla leið til Víkur í Mýrdal. Raforkan verður tekin úr spennistöðinni á Hvolsvelli. Fluttur verður 30 kw. rafstraum- ur í spennistöð er reist verður við Markarfljótsbrú en síðan 19 kw. straumur þaðan austur að Skógum. Verkinu hefur miðað sérstaklega vel áfram, tími sá er valinn var í þessar byrjunar- framkvæmdir hefur reynzt mjög heppilegur, t. d. voru reistir imi 250 staurar fyrstu 4 vikurnar, þrátt fyrir að víða hefur þurft að sprengja. Línulengd samkvæmt fyrr greindu mun verða um 50 til 60 km. og staurafjöldi áætlað- ur töluvert á 7 hundraðið. Raf- veituflokkurinn hefur nú flutt bækistöðvar sínar að Seljalandi. Verkstjórn annast Guðmundur Hannesson. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.