Morgunblaðið - 29.03.1960, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. marz 1960
Utg.: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480.
Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
B
UMFERÐAR-
ÖRYGGI
IFREIÐAEIGN lands-1 það hlýtur að verða mjög
manna fer vaxandi með
hverju ári sem líður og skap-
ast því eðlilega ný og ný
vandamál í umferðinni. En
stöðugt er unnið að lausn
þessara vandamála, þó að
árangurinn sýnist oft á tíðum
ekki eins mikill og hann í
rauninni er, vegna þess hve
margt er jafnan ógert á hverj-
um tíma.
Ný umferðamerki
Fyrir ári síðan var gefin út
reglugerð um ný umferðar-
merki óg notkun þeirra. Ekki
mun hafa verið gerð nein al-
þjóðleg samræming á um-
ferðarmerkjum. En þau sem
hér hafa verið ákveðin munu
þó hafa verið gerð í samræmi
við það, sem algengast er í
nágrannalöndunum. Nýlega
var byrjað að setja upp hin
nýju merki í Reykjavík. —
Sjálfsagt mun alllangur tími
líða þar til þau eru komin upp
alls staðar, þar sem þau eiga
við. Og takmarkið er að
koma upp slíkum merkjum
um allt land. Kostnaður við
mikill. En ekki er nokkur
efi á því að árangurinn verð-
ur einriig mikill. Enda er þess
að vænta, að fólk fari eftir
hinum nýju merkjum, og að
sú villimennska sé brátt út-
dauð, að nota umferðarmerki
fyrir skotmörk.
Mikið í húfi
Frumskilyrði fyrir lög-
hlýðninni er það, að fólk
finni að boðin og bönnin séu
sett af sanngirni og skynsemi.
í þessu sambandi má benda
á, að nýju umferðarmerkin
greina milli algerrar stöðvun-
arskyldu við aðalbrautir og
biðskyldu fyrir bílum, ef um-
ferðin er ekki mjög hröð og
útsýni er gott út á aðalbraut-
ina. —
Baráttunni fyrir auknu
umferðaröryggi má líkja
við baráttuna gegn ýmsum
skæðum sjúkdómum. —
Hvoru tveggja miðar að
því að koma í veg fyrir
örkuml og dauða. Það er
því ekki lítið í húfi, að
góður árangur náist.
FISKVERKUNIN
CÖLUSAMTÖK sjávarút-
^ vegsins birtu um sl.
helgi greinargerð, þar sem
rædd er orsök þeirra gífur-
legu skemmda á fiski, sem
orðið hafa undanfarið.
þjóðarinnar. Það er auðvitað
geysi þýðingarmikið, að þessi
vara sé sem bezt og verkun
fiskjarins sem vönduðust. En
á þessu er mikill misbrestur.
Óhóflegur netafjöldi
1 henni eru helztu orsakir
hinnar hroðalegu meðferðar á
fiskinum taldar vera þær, að
netafjöldi bátanna er orðinn
svo óhóflegur, að
þeirra komast aldrei yfir að
draga öll netin í einu. Netin
liggja því sólarhringum sam-
an í sjó og veldur það þegar
stórskemmdum á fiskinum.
Þá benda sölusamtökin á það,
að fiskimönnum sé greitt
sama verð fyrir góðan línu-
fisk og tveggja nátta hálf-
ónýtan netafisk, enda þótt
öllum megi vera ljóst, að á
þessari vöru sé reginmunur.
Hér er um svo stórt mál
að ræða, að þjóðin verður að
gera sér það ljóst, að í húfi
er hvorki meira né minna en
samkeppnisaðstaða okkar á
erlendum mörkuðum. Þess
vegna verður nú að bregða
skjótt við. Við verðum að
sumir gera róttækar ráðstafanir til
þess að bæta meðferð fiskj-
arins, allt frá því hann er
veiddur, hvort heldur í net
eða á línu, í vörpu eða á færi.
Taka verður upp eins og sölu-
samtökin benda á, strangt
fiskmat og vinnslumat á fiski.
Ennfremur er ekkert eðli-
legra, eins og sölusamtökin
einnig telja nauðsynlegt, en
að gerður verði verðmunur á
ýmsum gæðaflokkum hráefn-
isins.
Ömurleg mynd
Lýsing sölusamtakanna á
tneðferð fiskjarins bregður
vissulega upp ömurlegri
mynd. Fiskurinn og þær af-
urðir, sem úr honum eru unn-
ar, eru aðalútflutningsvara
Geimferð
undirbuin
F Y R I R nokkrum dögum
lagði Eisenhower Bandaríkja-
forseti fram skýrslu í þinginu
frá geimferðastjórninni banda
rísku. —• Fjallar skýrslan um
síðari árshelming 1959. —
Samkvæmt henni er fyrir-
Á næsta ári ráð-
gera Bandaríkja-
menn að láta
mann svífa í
„geimhylki" þrjá
hringi umhverfis
jorðina í 160
km hæð .......
Það verður að hef ja alls-
herjar herferð til þess að
bæta meðferð fiskjarins
og vanda útflutningsfram-
leiðsluna. Þar má enginn
skerast úr leik. Allir verða
að leggjast á eitt.
hugað, að Bandaríkin sendi
í fyrsta skipti mann út í geim-
inn á næsta ári, og skal hann
í þessum fyrsta áfanga svífa
þrjá hringi umhverfis jörð-
ina fyrir utan gufuhvolfið.
Farartæki mannsins verður
„geimhylki", sem gert er úr sér-
stökum málmblöndum, er eiga að
geta þolað 1600—1700 stiga hita
á klst. — og tekur hylkið nú að
svífa til jarðar. Ef allt fer eftir
áætlUn,- lendir það svo brátt á
hafinu. Þar eiga skip að vera til
taks að „fiska“ það upp, en það
á að geta haldizt á floti, þótt ein-
á Ceicius. Brautin, sem geimfar-
ið mun fara eftir, verður um 160
km frá jörðu, og liggur hún vænt
anlega yfir Afríku, Ástralíu,
Mexíkó og Bandaríkin. — „Flug-
hraðinn“ verður um 28.800 km á
klst.
0 Lendir á hafinu
Þegar þriðju hringferðinni er
að Ijúka, ræsir geimfarinn litla
eldflaug, sem á að draga veru-
lega úr ferðinni — eða niður í
560 km á klst. Verður geimfarið
þá yfir Kaliforníu. Þegar það
verður komið yfir Bahama-eyj-
arnar, hefir enn dregið úr ferð-
inni vegna loftmótstöðunnar —
og nú lætur geimfarinn mikla
fallhlíf þenjast út, en við það
hægir hylkið enn meira á sér.
Fer þá hraðinn niður í 325 km
Fyrir alllöngu voru valdir
sjö menn, eftir nákvæma
rannsókn, til þess að hefja
æfingar með geimferðir fyr-
ir augum — og hafa þeir
síðan verið þjálfaðir linnu-
Iaust. — Gera menxi ráð
fyrir, að það verði einn úr
þessum hópi, sem sendur
verður í hina fyrirhuguðu
fyrstu geimferð á næsta ári
— Myndin er tekin í fyrra-
sumar, þegar þeir félagar
fengu í fyrsta skipti að sjá
„geimhylki“ það, sem vænt-
anlega mun bera einn þeirra
út fyrir gufuhvolf jarðar
eftir um það bil ár.
hver bið verði á því, að skipin
komi á vettvang.
0 Varaeldflaug
Þegar geimfarinn lendir, hefir
nann verið á lofti í um það bil
fjóra og hálfa klukkustund. —
Allan tímann mun hann hafa
radíósamband við stöðvar á
jörðu niðri, sem fylgjast munu
náið með ferðum hans. — „Geim
hylkinu" verður skotið á loft
með eldflaug af Atlas-gerð — en
á henni verður lítil varaeldflaug,
sem nota skal til ?ess að losa
hylkið frá aðaleldflauginni, ef
eitthvert óhapp verður við út-
skotið. A þá geimfarinn að geta
bjargað sér og farkosti sínum til
jarðar með fallhlífinni.
— ★ —
Þess má loks geta, að ráðagerð
ir eru uppi um að senda menn
þvert yfir Atantshaf með Red-
stone-eldflaug þegar á þessu ári.
— Verður það þá líklega eins
konar lokaæfing undir fyrstu
geimferðina.
ÞAÐ er eðlilegt að hin-
ir kommúnisku stjórn-
arar Sovétríkjanna, er
ekki trúa á framhald
lífsins eftir líkamsdauð
ann, leggi áherzlu á að
gera tilraunir til að
lengja hið jarðneska líf
eftir föngum. Og þótt
ekki hafi enn náðst
verulegur árangur á
þessu sviði, er stöðugt
haldið áfram athugun-
um og tilraunum með
það fyrir augum að
„teygja úr“ lífinu.
102 ára
og kennir enn
það sérstökum tíðind-
um sæta, ef hann vant-
ar einn einasta dag í
skólann.
★ Nýlega hefir stjórn
sovétríkisins Georgíu
komið á fót sérstakri
stofnun, sem hafa skal
með höndum það verk-
efni að rannsaka, hvers
vegna sumt fólk nær
svo miklu hærra aldri
en almennt gerist. —
Og Georgía er vel fall-
in til slíkra rannsókna,
því að það eru, sam-
kvæmt opinberum upp-
lýsingum a.m.k. 10 þús.
íbúanna eldri en níræð-
ir — en % öldunganna
eru konur.
★ Meðal hinna þekkt-
ustu þeirra eru Aleksei
Gugava, fjallabúi, sem
sagður er 132 ára gam-
all, Osman Dienia, sem
nýlega settist í helgan
stein. Þá 125 ára að
aldri — og Gcorgi
Bolkvadze, sem er hálf-
gerður „unglingur“ í
samanburði við þessa
tvo, „aðeins“ 102 ára —
enda stundar hann enn
kennslu við sama skól-
ann sem hann hefir
starfað við í áratugi.
Georgi gamli er enn
stálhraustur, og þykir
★ Hinir georgísku vís-
indamenn fullyrða, að
fjöldinn af þeim, sem á
annað borð ná níræðis-
aldri og þaðan af meira,
séu yfirleitt stálhraust-
ir — verði tæpast mis-
dægurt, og hafi flestir
góða sjón og heyrn. Og
það þykir ekki tiltöku-
mál þar um slóðir þótt
menn vinni allt að því
fullan starfsdag eftir
níræðisaldur — og jafn-
vel enn lengur, eins og
þeir heiðursmenn, sem
fyrr voru nefndir.