Morgunblaðið - 29.03.1960, Síða 17
Þriðjudagur 29. marz 1960
MORGUNBLAÐIÐ
17
Bjarni Bjarnason
bóndi og skólastjóri Laugarvatni
SÍÐLA hausts 1959 skrifaði ég
afmælisgrein um góðkunningja
minn, samstarfsmann— þó ekki
í stjórnmálum, — bónda og
starfandi fulltrúa i félags og
verðlagsmálum landbúnaðar, en
af einhverju framkvæmdarleysi
var hún aldrei send til birting-
ar.
Nú vil ég minnast þessa kunn-
ingja í tilefni 70 ára aldursaf-
mælis hans. Maður þessi er
Bjarni Bjarnason bóndi á Laug-
arvatni fyrrv. skólastjóri.
Bjarni Bjarnason er fæddur 23.
október 1889, að Búðarhóli í A-
Landeyjum, Rangv. Foreldrar
hans voru Bjarni bóndi Guð-
mundsson bónda í Búðarhólshjá-
leigu Sigurðssonar og kona hans
Vigdís Bergsteinsdóttir bónda
á Torfastöðum í Fljótshlíð, Vig-
fússonar frá Grund í Skorradal.
Er mér tjáð af kunnugum, að for-
eldrar Bjarna skólastj. hafi verið
mjög mæt hjón og merk, og sé
ætt hans gott bændafólk.
1 foreldrahúsum vandist Bjarni
allri vinnu og deildi kjörum með
sparsömu og ráðdeildarsömu
fólki. Er mér í fersku minni, hve
Bjarni Bjarnason sagði í útvarps
þætti vel frá reynslu sinni og
kynnum af fátæku heimili, —■
svöngum börnum, er hann 10—12
ára drengur var sendur þangað í
ákveðnum erindum og varð þar
næsturgestur. Var frásögnin lát
laus og lýsti ástandinu á heim-
ilinu, sem var átakanlegt vegna
bj argræðisskorts.
Þá eru mér minnisstæð
fyrstu kynni okkar Bjarna. Það
var á fyrsta ári mínu í Brautar-
holti, að ég tók til geymslu nokk-
ur hundruð hross, er Guðmund-
ur Böðvarsson kaupm. hafði
keypt norður í Húnavatnssýslu,
meðan skipið var að verða ferð-
búið í Rvk. Ég skyldi sjá um
rekstur þeirra til skips, en hann
sendi mér einhverja rekstrar-
sveina. Hann sendi mér tvo og
það voru þeir Bjarni Bjarnason
og Pálmi Hannesson rektor. Ferð-
in gekk ágætlega og í Gufunesi
bættist við Jónas Björnsson
bóndi þar. Er mér enn í minni
sá glaðværi hópur góðra félaga
og hestamanna.
Bjarni Bjarnason gekk í Flens-
•borgarskólann árin 1907—1909 og
lauk kennaraprófi úr Kennara-
skólanum vorið 1913.
Síðar fór hann til Kaupmanna-
hafnar og lauk prófi frá Statens
Gymnastik-Instititut árið 1914.
Er heim kom varð hann kennari
við barnaskóla Hafnarfjarðar og
skólastjóri frá 1915—1929.
Árið 1929 varð hann skólastjóri
héraðsskólans á Laugarvatni og
gengdi því starfi um 30 ár eða
til síðastl. hausts.
Starf Bjarna Bjarnasonar sem
skólastjóra á Laugarvatni, verð-
ur að skoða hans aðal ævistarf
og munu menn, sem kunnugir
eru, telja, að hann hafi unnið
þrekvirki í starfi sínu þar og
verið stjórnsamur og hinn nýt-
asti maður.
Á vettvangi opinberra mála
heíur hann og verið ötull og af-
kastamikill, en ég mun ekki ræða
þann þátt hér.
Bjarni Bjarnason er dreng-
lyndur og sanngjarn í viðræðum.
Hann er ræðumaður góður, ein-
arður í málflutningi, nokkuð her-
skár og kauppsfullur ef þung and
staða verður fyrir.
Ég sem þessar línur rita, hefi
unnið all mikið með Bjarna á
fundum Stéttarsambands bænda,
því þar hefur hann verið fulltrúi
frá stofnun þess, og nú í stjórn
þess og í Framleiðsluráði — og
ætíð þótt gott með honum að
vinna. Það er mitt álit, að hann
hefir ætíð viljað vinna vel og
Félng Fromreiðslumanna
Fundur verður haldinn í Félagi Framreiðslúmanna
fimmtudaginn 31. marz n.k. í Nausti kl. 5 s.d..
Ýms áríðandi mál á dagskrá.
Félagar f jölmennið.
STJOBNIN.
Spánarviðskipti
•
Get útvegað íslenzkum innflutningsfyrirtækjum
hverskonar vörur frá Spáni. Verð og vörugæði sam-
keppnisfært. Verð til viðtals næstu daga að Hótel
Borg, herbergi No. 302, og veiti frekari upplýsingar.
S. MONTANER.
Hestamannafélagið HOROUR
Hestamannafélagið Hörður Kjósarsýslu minnist 10
ára afmælis síns með samkomu að Hlégarði laugard.
2. april kl. 21. Aðgöngumiðar seldir hjá stjórninni
og Kristjáni Vigfússyni Reykjavík. Miða þarf að
kaupa fyrir fimmtudagskvöld 31. marz.
STJÓRNIN
drengilega að málum bænda, og
þeirra sem við landbúnað starfa.
Bjarni Bjarnason kvæntist
fyrri konu sinni Þorbjörgu Þor-
kelsdóttur árið 1928, en hún and-
aðist á Laugarvatni í april 1946.
Var Þorbjörg sál. vel gefin kona
og manni sínum samhent. Þau
hjónin eignuðust tvö börn. —
Árið 1950 gekk Bjarni að eiga
seinni konu sína Önnu Jónsdóttur
alþingismanns Jónatanssonar er
var bústjóri í Brautarholti 1901—
1908 og síðar bóndi á Ásgauts-
stöðum í Flóa og starfsmaður hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands.
Þau hjónin Anna og Bjarni eru
góð heim að sækja og með góð-
vild taka þau'á móti gestum sem
ber að garði og veita þeim gleði-
stund með góðum samræðum um
margvísleg efni.
Bjarni var glímu og íþrótta-
maður mikill á yngri árum og
mun hafa allt til þessa tíma verið
til í að taka glímutökin, ef svo
bar undir.
Hann var og er íþróttaleiðtogi
mikill og mesti drengskaparmað-
urí allri keppni og framkomu.
Hestamaður er Bjarni á Laugar-
vatni og á margt góðra hesta.
Bjarni Bjarnason var alþingis-
maður Árnesinga 1934—42 Snæ-
fellinga 1942. Fulltrúi á Búnaðar-
þingi hefur hann verið lengi.
Áður en hann fluttist að Laugar-
vatni hafði hann búskap á
Straumi sunnan Hafnarfjarðar.
Þá var það, að hann mætti á
aðalfundi Mjólkurfélags Reykja-
víkur, sem fulltrúi fyrir sveit
sína.
Var fundur þessi vel sóttur og
mál rædd, sem voru mikilsverð
fyrir starfsemi félagsins og fé-
lagsmenn og tók Bjarni vel og
órengilega þátt í þeim umræð-
um.
Síðar áttum við Eyjólfur Jó-
hannsson forstjóri Mjólkurfélags
ins samtal um burtför Bjarna úr
héraðinu og töldum það báðir
tjón fyrir byggðarlagið.
Að síðustu vil ég óska þeim
hjónum, Önnu og Bjarna til ham-
ingju með afmælisdag húsbónd-
ans á Laugarvatni og óska þeim
góðra og bjarta starfsdaga.
Ólafur Bjarnason.
H úsgagnasmiðir
Húsgagnaverzlun óskar eftir því að komast í sam-
band við verkstæði, sem framleiðir pianóbekki. Til-
boð ásamt mynd óskast send afgr. blaðsins merkt:
„Pianóbekkir — 9454“, fyrir 10. apríl n.k.
Verzlunarhúsnæði óskast
til kaups eða leigu nú þegar. Lysthafendur sendi
nafn og símanúmer í lokuðu umslagi til afgreiðslu
blaðsins merkt. „Staðgreiðsla — 9450“.
Jarðýta
Til sölu er stór jarðýta. Upplýsingar í síma 22676
milli 7—8.
Heildverzlun óskar eftir að taka á leigu gott lager-
pláss fyrir vefnaðarvörur, sem næst miðbænum. Upp-
lýsingar í síma 15805 og 15508.
Dieselbifreið
Til sölu er Volvo dieselvörubifreið 8—9 tonna, með
vörupalli. Bifreiðin hefir verið notuð í 4 ár, og
reynst mjög vel og er í góðu lagi. Upplýsingar gefur
Magnús Kristjánsson Hvolsvelli Rang.
Sérhver kona á auðvelt með að
sjá hvenær maðurinn er aftur
sómasamlega rakaður *
10 blaða málmhylki með
hólh_ fyrir notuð blöð
Og slíkur rakstur fœst aðeins með
Bláu Gillette Blaði í Gillette rakvél.1
Reynið eitt blað úr handhægu málmhylkjunum 4
morgun og finnið mismuninn.
Gillette
Til að fullkomna raksturinn — Gillette rakkrem