Morgunblaðið - 29.03.1960, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. marz 1960
Dagurinn rann upp. Julien
vaknaði, geispaði og teygði úr
sér óg leit síðan á konu sxna.
„Svafstu vel, elskan mín?“ sagði
bann og brosti.
Hún var dálitla stund að átta
sig. „Já, ágætlega“, svaraði hún.
„En þú, hvernig svafst þú?“
„Mjög vel“, svaraði hann. Síð-
an kyssti hann hana og hóf að
tala við hana um ýmislegt varð-
andi framtíðina. Hann lagði fyr-
ir hana framtíðarfyrirætlanir
sínar og ræddi um sparnað í sam-
bandi við lifnaðarhætti þeirra.
Það vakti undrun Jeanne, að
hann tók sér orðið sparnaður oft
í munn. Hún hlustaði á hann, án
þess að henni væri fyllilega ljóst,
hvað hann væri að fara.
Klukkan sló átta. „Við verðum
að fara á fætur“, sagði hann.
„Það þætti skoplegt, ef við kæm
um mjög seint niður“.
Þegar hann var klæddur, hjálp
aði hann konu sinni við síðustu
atriðin á búnaði hennar, til þess
að hún þyrfti ekki að kalla á
Rosalie.
Hún fór ekki niður, fyrr en há-
degisverðurinn var tilbúinn. Dag
urinn leið á sama hátt og aðrir
dagar, eins og ekkert nýtt hefði
skeð. Það var einum karlmanni
fleira í húsinu — bað var allt og
sumt.
( 5. kafli.
Korsika og nýtt líf.
Fjórum dögum síðar kom
íerðavagninn, sem þau ætluðu
með til Marseille.
Eftir fyrstu nóttina hafði Je-
anne vanizt kossum og blíðuat-
lotum Juliens, en þó gat hún enn
ekki hugsað sér nánari samskipti
þeirra í milli. Henni fannst hann
fallegur, hún elskaði hann. Hún
var aftur orðin glöð og ánægð.
Kveðjustundin var stutt og að
mestu laus við viðkvæmni. Bar-
ónsfrúin ein virtist með grát-
stafinn í kverkunum. Þegar vagn
inn var að renna af stað, lagði
hún þunga pyngju í lófa dóttur
sinnar, um leið og hún sagði: —
■ 1) Flýtið ykkur nú. Gest-
toiir koma eftir þrjá tíma!
Jæja, ég verð að segja það að
J>ú ert óvenjulega vingjarnleg við
Markús. Mér Hkar vel við hann
I'innur. Ég held það sé rétt hjá
„Hérna eru vasapeningar handa
þér á brúðkaupsferðinni", sagði
hún.
Jeanne stakk pyngjunni í vas-
ann, og vagninn ók af stað.
Þegar degi var tekið að halla,
spurði Julien: „Hvað mikið var
í pyngjunni, sem móðir þín gaf
þér?“
Það hafði ekki hvarflað að
henni fyrr að gá að því. Hún
hvolfdi úr henni í kjöltu sína. —
Hrúga af gullpeningum streymdi
úr henni: tvö þúsund frankar.
Hún klappaði saman lófunum.
Nú skal ég svei mér, láta eftir
mér að eyða peningum“, sagði
hún, um leið og hún tíndi pen-
ingana upp í pyngjuna’ aftur.
Eftir átta daga ferð í hræðileg
um hita, komu þau til Marseille.
Daginn eftir fóru þau með litlu
póstskipi, Roi-Louis, til Korsíku.
Korsíka! Stigamenn og fjöll!
Fæðingarstaður Napoleons! Je-
anne fannst hún vera að yfirgefa
veruleikann og koma inn í ævin-
týraheim, og þó var hún glað-
vakandi. Þau stóðu hlið við hlið
á stjórnpalli skipsins og virtu
fyrir sér kletta Provence, er þau
sigldu fram hjá.
„Manstu eftir ferðinni okkar í
bátnum hans Lastique garnla?"
sagði Jeanne.
í stað þess að svara, kyssti
hann hana á vangann.
Jeanne andaði djúpt að sér
fersku sjávarloftinu. I fjarska
mótaði fyrir einhverju gráu, sem
sást ekki skýrt í birtu dögunar-
innar. Það líktist einna helzt sér
kennilegum skýja myndunum,
strýtulöguðum og hrufóttum, er
flutu ofan á sjávarfletinum.
Brátt skýrðist sýnin með auk-
inni birtu. það mátti greina röð
tindóttra, sérkennilegra fjalla.
Sólin var að koma upp að baki
þeirra, og gerði það svarta, skörð
ótta tindana enn sérkennilegri en
ella. Mikill hluti eyjarinnar var
þó enn hulinn móðu.
Skipstjórinn, lágvaxinn, sól-
brenndur náungi, veðurbarinn af
söltum vindum, birtist á stjórn-
2) Flýttu þér að bera leik-
föngin upp á loft! Gestirnir
koma eftir þrjú korter!
honu mað reyna að bjarga Háu
skógum.
Næsta dag.
Ragnar, þér eruð mjög áhrifa-
palli og sagði við Jeanne með
rödd, sem var orðin hás af að
skipa fyrir í tuttugu ár í stormi
og hafróti:
„Finnið þér ilminn?“
Hún fann höfgan og sérkenni-
legan ilm eins og af jurtum.
„Það er angan Korsíka, sem
leggur langar leiðir, frú mín“,
sagði skipstjórinn. „Þessi ilmur
er einkennandi fyrir hana. Þótt
ég hefði verið að heiman 1 tutt-
ugu ár, myndi ég þekkja þenn-
an ilm úr fimm mílna fjarlægð.
Ég er sjálfur ættaður þaðan. —
Hann þarna á st. Helenu, talar
að sögn, alltaf um ilm fæðingar-
staðar síns. Við erum skyldir".
Skipstjórinn tók ofan og
hneigði sig í áttina til Korsíku
og síðan út á hafið í áttina til
dvalarstaðar hins fangna keisara
lega skyldmennisins.
Jeanne var svo hrærð, að henni
lá við gráti.
Skipstjórinn benti á sjóndeild
arhringinn:, „Les Sanguinares"
sagði hann.
Julien stóð við hlið konu sinn-
ar og hélt um mitti hennar. Þau
hórfðu bæði í áttina þangað,
hann benti. Þau sáu um síðir
strýtumyndaða kletta, og nokkru
síðar sveigði skipið fram hjá
þeim inn á lygnan flóa, um-
kringdan háu mfjöllum, þöktum
gróðri, sem líktist mosa, upp með
hlíðunum.
Skipstjórinn benti á lágvaxinn
kjarrgróðurinn: „Þetta er „le
maquis" kjarrvöxturinn, sem er
einkennandi fyrir Korsíku".
Þegar þau höfðu haldið lengra
áfram, virtist fjallahringurinn
lokast að baki þeirra, og skipið
leið eftir lygnu, dimmbláu vatni,
svo gagnsæju, að það lá stundum
við að það sæist til botns.
Skyndilega kom hvít borgin í
ljós við enda flóans, á sjávar-
bakkanum við rætur fjallanna.
Nokkrir litlir, ítalskir bátar lágu
fyrir akkerum í höfninni. Fjórir
eða fimm árabátar reru upp að
hlið Roi-Louis til að sækja far-
þega.
3) Flýttu þér nú einhvern
tíma. Þú átt líka eftir að
bursta skóna þína. Fólkið get-
ur komið á hverri stundu!
mikill þingmaður og mig vantar
aðstoð við að forða Háu skógum
frá eyðileggingu.
Mér þykir það leitt ungi mað-
Julien, sem var að taka sam-
an farangurinn, sagði við konu
sína lágri röddu: „Það er nóg að
gefa burðarmanninum tuttugu
„sous“, er það ekki?“ í viku hafði
hann stöðugt spurt hana þessar-
ar sömu spurningar, henni til
sárrar gremju.
Hann var stöðugt að lenda í
þrasi við gistihússtjóra, þjónustu
lið, ökumenn og kaupmenn, og í
hvert skipti sem honum tókst að
þjarka niður verði á einhverju,
neri hann saman lófunum og
sagði við Jeanne: „Ég kæri mig
ekki um að láta féflétta mig“.
Hún varð óstyrk í hvert skipti,
sem þeim var sýndur reikningur,
þar sem hún vissi fyrirfram
hverjar athugasemdir hann
myndi gera við hvern einstakan
lið. Hún fyrirvarð sig fyrir þref
hans og rekistefnu og roðnaði
upp í hársrætur, er hún sá fyrir-
litninguna í augnatilliti þjónustu
fólksins, þegar það tók við smá-
sálarlegu þjórfénu úr höndum
hans.
Hann lenti einnig í stælum við
bátsmermina, sem fluttu þau í
land.
Fyrsta tréð, sem Jeanne sá, var
pálmatré. Þau fóru ti stórs gisti-
húss, sem stóð við víðáttumikið
torg, og báðu um morgunverð.
Eftir klukkustundar hvíld,
gerðu þau áætlun um, hvernig
tíma þeirra þarna skyldi varið.
Þegar þau höfðu dvalið þrjá
daga í þessum molluheita smábæ
við fjarðarbotninn í skjóli hárra
fjalla, ákváðu þau að leigja sér
hesta til þess að komast upp í
fjallaskörðin. Þau völdu sér svo
korsíkanska hesta, snareygða,
grannvaxna og þrautseiga, og
lögðu af stað morgun einn um
dögun. Þau höfðu með sér leið-
sögumann, sem hafði múldýr til
reiðar og reiddi nestið, enda eng
in veitingahús að finna í hinu
villta landslagi.
Stígurinn lá meðfram flóanum
og sveigði brátt inn í dalverpi í
áttina til hárra fjallanna. Loft-
ið var þrungið höfgum ilmi hins
sérkennilega gróðurs eyjarinnar.
í fjarska sáust rauð og bláleitir
tindar granítfjalla, sem vörpuðu
ævintýraljóma á umhverfið og
þéttir skógar hárra kastaníu-
trjáa lægra í hlíðunum voru sem
lágvaxið kjarr í samanburði við
hæð fjallanna.
öðru hvoru benti leiðsögumað
urinn upp í .hæðirnar og nefndi
nafn einhvers staðar. Þau Jeanne
og Julien litu jafnan í áttina
þangað, en sáu ekkert í fyrstu.
Um síðir komu þau auga á grá-
ar þústir, líkastar steinum, sem
4) Eg held, að þetta fólk
hefði ekki átt að gera boð á
undan sér. Eg hefði þá ekki
þurft að raka mig!
ur, en ég styð frumvarp Watsons
þingmanns. Hann ætlar að styðja
frumvarp mitt um.......
hrunið^ hefðu úr tindunum. Það
voru þörp grárra steinhúsa, sem
minntu á risastór fuglshreiður,
næstum ósýnileg í hinum hrika-
legu fjöllum.
Jeanne var farið að leiðast að
fara fót fyrir fót. „Yið skulum
fara hraðar“, sagði hún og hott-
aði á hestinn. Hún leit við, er hún
varð þess vör, að eiginmaður
hennar hafði ekki við henni. Hún
gat ekki varizt hlátri, þegar hún
sá, að hann var fölur yfirlitum
og hélt sér dauðahaldi í fax hests
ins, sem brokkaði óþyrmilega. —
Hetjulegt útlit hans og búnaður
gerði klaufaskap hans og kjark-
leysi enn spaugilegra en ella.
Þau héldu rólega áfram för-
inni. Stígurinn lá nú milli
tveggja kjarrbreiðna, sem
klæddu hlíðar fjallsins. Þetta
var hinn svokallaði „maquis“
gróður, í senn dvergeik, einiberja
runnar, vafningsviður, lárviður,
myrta og ýmsir sígrænar runna-
tegundir, sömuleiðis risavaxnir
burknar og ýmsar ilmríkar blóma
tegundir. Allt fléttaðist þetta sam
an í þéttan gróður, sem þakti hlíð
arnar eins og ull.
Þau voru svöng. Leiðsögumað-
urinn fylgdi þeim að einni þeirra
uppsprettulinda, sem oft er að
finna í fjalllendi. Iskalt vatn
streymdi úr klettasprungu og
einhver, sem farið hafði um
þarna á undan þeim, hafði beint
rennslinu með kastaníublaði, svo
að hægt var að drekka beint íir
lindinni.
ajtltvarpiö
Þriðjudagur 29. marz.
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik-
ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleik
ar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20
Tónleikar).
12.00 Hádegisutvarp.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Amma segir börnunum sögu.
18.50 Framburðarkennsla í þýzku.
19.00 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.40 Tilkynningar. — 20.00 Fréttir.
20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson
cand. mag.).
20.35 Utvarpssagan: „Alexis Sorbas",
eftir Nikos Kazantzakis; IX. (Erl«
ingur Gíslason leikari).
21.00 Islenzkt tónlistarkvöld: Dr. Páft
Isólfsson tónskáld. — Eftir hann
verða flutt þessi verk:
a) „Ur myndabók Jónasar Hall*
grímssonar** (Hljómsv. Ríkis-
útvarpsins leikur; Hans
Antolitsch stj.).
b) „Glettur'* (Haraldur Sigurðs-
son leikur á píanó.
c) Chaconne (Höfundurinn leik-
ur á orgel.)
d) Lög úr sjónleiknum „Veizlan
á Sólhaugum“ (Hljómsveit
Ríkisútvarpsins leikur; Hans
Antolitsch stj.).
e) „Rís, Islands fáni“ (Tónlistar
félagskórinn syngur; dr. Vict-
or Urbancic stjórnar).
Dr. Páll Isólfsson og Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason útvarpsstjóri
flytja ávörp.
22.00 Fréttir og veðurfregni .
22.10 Passíusálmur (37).
22.20 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson).
22.40 Lög unga fólksins (Guðrún Svaf
arsdóttir og Kristrún Eymunds-
dóttir).
23.30 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 30. marz
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik-
ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón-
leikar. — 9.10 Veðurfregnir. —
9.20 Tónleikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25
Fréttir og tilkynningar).
12.50—14.00 „Við vinnuna": Tónleikar
af plötum.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp.
18.25 Veðurfregnir.
gð,18.30 Utvarpssaga barnanna: „Gest-
ir á Hamri“ eftir Sigurð Helga-
son; I. (Höfundur les.)
18.55 Framburðarkennsla í ensku.
19.35 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson
cand mag).
20.35 Erindi: Þeir, sem deyja ungir
(Grétar Fells rithöfundur).
21.00 Fiðlutónleikar: David Oistrakh
leikur verk eftir Tartini, Bartók,
Szymanowski og Suk.
21.30 „Ekið fyrir stapann'*, leiksaga eft
ir Agnar Þórðarson, flutt undir
stjórn höfundar V. kafli. —
Sögumaður Helgi Skúlason. Leik-
endur: Ævar R. Kvaran, Herdís
Þorvaldsdóttir, Guðmundur Páls-
son, Karl Guðmundsson, Bryndís
Pétursdóttir og Nína Sveinsdóttir.
22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10
Passíusálmur (38).
22.20 Ur heimi myndlistarinnar (Björn
Th. Björnsson listfræðingur).
22.40 „Gamlir kunningjar": Lárus Ing-
ólfsson, Soffía Karlsdóttir o. 11.
syngja með hljómsveit Ðjarna
Böðvarssonar.
23.10 Dagskrárlok.
Skáldið og mamma litla
a
r
k
u
ó