Morgunblaðið - 30.03.1960, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 30. marz 1960
— Töpum við
Frh. af bls. 1.
fcandi við vandræðin á sölu fiski
mjölsins, að Perú framleiddi á sL
ári 387 þús. tonn, en reiknað er
með að framleiðsla þeirra fari
upp í 500 þús tonn á þessu ári,
og er það álíka mikið magn og
var á hinum frjálsa heimsmark-
aði fyrir fáum árum síðan. Hins-
vegar er nú reiknað með, að
nokkur söluaukning verði á fiski-
mjölinu vegna verðlækkunarinn-
ar.
Fyrir Islendinga er hér um
mjög alvarlegt fjárhagsmál að
ræða, eins og sjá má af tapinu,
aem verður af lækkuninni einni
saman. En það eru ekki íslend-
ingar einir, sem tjón bíða af hinni
auknu fiskimjölsframleiðslu
Peru heldur eru t.d. bæði Norð-
menn og Danir undir sömu sök
seldir.
Hraðfryst fiskibein
I tilefni þess spurðist blaðið
fyrir um það hjá Sturlaugi Böðv-
arssyni, hvernig gengi með fryst-
ingu og sölu á fiskbeinum til út-
landa. Sturlaugur kvað mjög
mikla eftirspurn eftir hraðfryst-
um fiskbeinum til refa og minka
fóðurs, bæði frá Noregi, Svíþjóð
og Danmörku. Mundi vera hægt
að selja þangað tugi þúsunda
sinálesta ef aðstaða væri til þess
að hraðfrysta allt það magn hér.
Við munum framleiða um 100
þús. tonn af fiskbeinum árlega,
e n enginn kostur mun vera að
hraðfrysta nema 2—3 þús. tonn
og þá aðeins í stærstu frystihús-
unum, þar sem vélakostur er
nokkuð rúmur. Hraðfrystivélarn-
ar gera sem sé lítið meir en að af
kasta frystingu fiskflakanna.
í>egar fiskbein erft hraðfryst eru
þau fyrst tætt í kássu í þar til
gerðri kvörn eða tætara, síðan
sett í síldarpönnu og fryst í 12
til 14 kg. stykkjum, og loks flutt
út með kæliskipum.
Verð á þessari vöru er nú sem
stendur það hagstætt, að betur
borgar sig að flytja beinin út
heldur en að vinna fisjcimjöl úr
þeim.
Þess má að lokum geta, að
beinin og annar úrgangur eru
um % af fiskinum, þ. e. a. s. það
fást ekki ngma 25—30 tonn af
flökum úr 100 tonnum af fiski.
Mikið magn af óseldri síld
Þá gat Sturlaugur Böðvarsson
þess, að mjög væri alvarlegt með
sölu hraðfrystu síldarinnar, sem
veiðst hefði hér við Faxaflóa eft-
ir áramót í vetur, en þessi síld
er aðallega seld til Austur-
Evrópu. Fram til áramóta var j
síldin seld jafnóðum og hún var
veidd, en venja er, að síldin er
seld út síðari hluta vetrar. Eftir
áramótin kom svo allmikil veiði-
hrota og liggur sú síld óseld enn-
þá og mun nú vera í athugun
h,vað um hana verður. Síldin
þolir ekki nema í mesta lagi 5—6
mánuði í frosti en þá fer hún að
gulna og þrána, og er þá ekki
hægt að gera annað við hana, en
að setja hana í gúanó.
Hvað um vorsíldveiðar
Astand þetta er enn alvariegra,
vegna þess að venjulega byrja
til dæmis Akranessbátar síldveið
ar hér við Suðurland eftir að kom
ið er fram í miðjan apríl og
þorskanetjaveiði fer að minnka.
Stendur sá síldveiðitími venju-
lega út maimánuð eða allt þar
til bátarnir fara á síldveiðar fyrir
Norðurlandi. Ef ekki tekst að
selja þá síld, sem nú liggur í
frystihúsunum, en magn hennar
nemur um 20 þús. tunnum, er
allt óvíst um vorsíldveiðarnar
hér, sagði Sturlaugur að lokum.
Þeldökk sjósr ■
varpsstjarna
væntanlegf
HEYRZT hefir að hin þeldökka
sjónvarpsstjarna Lucille Mapp,
sé- væntanleg til landsins í byrj
un apríl og muni eiga að
skemmta í Lidó.
Úfilegukind fundin
Gjögri, 29. marz.
KRISTINN bóndi Jónsson á
Dröngum heimti nýlega
tveggja vetra kind, sem
mannshönd hefur ekki
snert frá því hún var
mörkuð.
Fyrir um það bil viku var
Guðjón hreppstjóri á Eyri
ásamt sonum sínum á leið
til Skjaldarvíkur að sækja
rekavið. Sáu þeir þá kind,
sem þeir áttu ekki von á
þar. Eftir mikinn eltingar-
leik gátu þeir feðgar náð
kindinni milli kletta í svo-
nefndum Bjarnarfirði, sem
er örstutt frá Skjaldarvík.
Kindin var mjög stygg og
erfið viðureignar.
Eign Kristins í Dröngum
Kindin reyndist eign
Kristins í Dröngum, en í
fyrrahaust kom hún ekki
fram við smölun. 1 haust-
göngum náðist hún, en þeg-
ar kindahópurinn nálgaðist
mannabyggðir stökk þessi
úr hópnum ásamt þrem
öðrum kindum og fóru þær
í ófærur, stukku- fram af
klettum og fundust hræin
af ánum þrem, sem með
henni voru, löngu seinna.
Hélt Kristinn að þessi ær
hefði farið sömu leið og
hinar.
Þegar Kristinn fór yfir
Drangajökul á dögunum, sá
hann slóð eftir eina kind,
og eru menn nú vissir um
að það hafi verið þessi.
Kindin er ullarsíð, vel
feit og stór, þrátt fyrir að
hún hefur sjálf orðið að sjá
sér farborða. — Gengur
Kristni ekki sem bezt að
venja hana á að matast
með öðrum sér líkum.
— Regína.
100 Jbús til blóðsegavarna
Varnarráðstafanir gegn alvarlegasta
sjúkdómi þjóðarinnar
ALÞINGI samþykkti í gær við
afgreiðslu fjárlaga, að verja
100.000,00 kr. til blóðsegavarna á
Landspítalanum á þessu ári.
Blóðsegar eru æðatrombosis,
en hjarta- og æðasjúk-
dómar eru algengustu dánar-
orsakir hér á landi eða 1.6%, en
krabbamein svo dæmi sé tekið
1,3%.
Frá haustinu 1956 hefur verið
haldið uppi blóðsegavörnum á
lyflæknisdeild Landspítalans við
mjög ófullkomin skilyrði, að
því er getur í bréfi prófessors
Sigurðar Samúelssonar til land-
læknis, er Magnús Jónsson vitn-
aði til á Alþingi í fyrradag. í
bréfinu er þess enn fremur getið,
að árangur af þessari starfsemi
■hafi þó orðið mjög góður og dán-
artala sjúklinga lækkað um %,
sem jafngildi 110 til 120 manns
Til tungls á
nœsta ári
WASHINGTON, 29. marz:
Jíandaríkjamenn munu
gera nýja tilraun til að
skjóta eldflaug til tungls-
ins á næsta ári og 1962
munu þeir reyna að skjóta
aldflaugum til Marz og
Yenusar, sagði forstöðumað
ir bandarísku geimrann-
ióknarstjórnarinnar í dag.
Sagði hann ennfremur, að á
tiæstu 10 árum þyrfti 12 til
15 milljarða dollara til
geimranrisókna. Ennfremur
ið árið 1965 mundu Banda-
íkjamenn eiga eldflauga-
ireyfla, sem hefðu 6—12
nilljóna punda þrýstiorku.
Satum-eldflaugin, sem
Bandaríkin ætla að fullgera
1964, mun verða knúin átta
Jupiter-hreyflum og fram-
leiða 11/2 millj. punda
þrýstiorku. Sagði forstöðu-
maðurinn, að eftir 1965
mundu Rússar vart smíða
öflugri hreyfla í eldflaug-
ar, en Bandaríkjamenn
væru þá færir um að búa
til.
lífum á ári miðað við sex síðustu
ár.
í niðurlagi áðurgreinds /bréfs,
að hér sé mu að ræða mikils-
verðar vamarráðstafanir gegn
alvarlegasta sjúkdómi þjóðar-
innar og fyrirgreiðsla við þessa
lækningastarfsemi þoli enga bið.
60
ara
STEINVÖR Símonardóttir Aust-
urkoti Vatnsleysuströnd ,er 60
ára í dag. Ég óska henni til ham-
ingju með daginn og þakka henni
fyrir liðin ár.
(Vinur).
— Málamiðlun
Frh. af bls. 1.
löguna um 12 mílna landhelgi.
Og Perú krafðist 200 mílna land-
helgi.
Þessar þrjár tillögur eru nú
aðalumræðuefni manna hér á
ráðstefnunni, sem nú hefir stað-
ið í nær tvær vikur. Að vísu hefir
fjórða tillagan komið fram, til-
laga Mexico, sem felur í sér allt
að 18 mílna fiskveiðilögsögu.
Fulltrúi ítala sagði í ræðu sinni
í dag, að ítalir hefðu alltaf haft
6 mílur og viðurkenni ekki við-
bótarbelti. Um 40% fiskiflota
þeirra mundi missa atvinnu sína
ef einkaréttur strandríkis á við-
bótarbelti yrði viðurkenndur.
Mundi slíkt valda atvinnuleysi
400 þúsund manna á Ítalíu og
milljóna manna í öðrum löndum.
Ef bandaríska tillagan verður
ekki samþ. sagði fulltrúinn, mun
ftalía ekki viðurkenna neitt við-
bótarbelti.
Fulltrúi Perú sagði í sinni ræðu
að stjórn sín væri andvíg svo-
nefndum sögulegum réttindum,
eins og hann komst að orði.
Fiskveiðar væri eini atvinnuveg-
ur fólksins við sjávarsíðuna í
Perú, það væri vannært, og von-
ir allra væru bundnar við fisk-
iðnaðinn.
Tékkneski fulltrúinn benti á
í sinni ræðu, að mörg ríki hefðu
fært út landhelgi sína og sum
fiskveiðilögsögu, þar á meðal fs-
land. Straumurinn lægi í þessa
átt, þróunin væri ljós. Tékkar
styðja rússnesku tillöguna.
í Reuters-frétt í kvöld segir að
kanadiska tillagan njóti stuðn-
ings Norðmanna, fslendinga og
Dana ásamt fleiri. Og rússneska
tillagan njóti stuðnings nokkurra
Afríku og Asíuríkja, svo og Suð-
ur-Ameríkuríkja.
Þá segir Reuter, að engin til-
laganna þriggja muni að svo
komnu njóta nægilegs fylgis til
þess að hljóta tilskylda % hluta
atkvæða, hver um sig hafi
nægilega öflugt fylgi til þess að
hindra framgang hinna. Ennfrem
ur að nú virðist sem einhvers
konar málamiðlun feli í sér einu
vonina um að samkomulag náist
á ráðstefnunm.
Reynt að brúa bilið
milli „Ytri sjö"
París, 29. marz.
I DAG hófst hér fundur 20 ríkja
um það hvernig koma megi í veg
fyrir að bilið milli hinna
tveggja verzlunarbandalaga Ev-
rópu breikki meira en orðið er.
Lítil bjartsýni ríkir á fundin-
um, því sex landa markaðsbanda-
lagið og sjö landa fríverzlunar-
bandalagið greinir á um margt.
Eru menn þeirrar skoðunar, að
heppilegast yrði að miðla málum
á breiðum grundvelli á einhverju
tilteknu tímabili.
Markaðíbandalagið er eldra og
í því eru Frakkland, V-Þýzka-
land, Ítalía, Holland, Belgía og
og markaðsbandalagsins
Luxemburg. í fríverzlunarbanda-
laginu, sem stundum er nefnt
„Ytri sjö“ eru Bretland, Noregur,
Danmörk, Svíþjóð, Austurríki,
Sviss og Portúgal.
Bandalag „Ytri sjö“ ríkjanna
var myndað eftir að Bretum mis-
tókst að koma á breiðari efna-
hagssamvinnu við markaðs-
bandalagsrikin. Tollamálin og
séraðstaða samveldislandanna
gagnvart Bretlandi, urðu til þess
að ekki gekk saman.
Helzta umræðuefni fundarins
verða tollamálin og hvort ekki sé
hægt að samræma aðgerðirnar á
þeim sviðum og brúa bilið þannig
smám saman.
Faðirinn leyíði ekki blóðgjof
Fundinn sekur um munndrúp
Melbourne, 29. marz.
DÓMSTÓLL úrskurðaði í dag, að
maður nokkur, sem af trúarleg-
um ástæðum neitaði að gefa
heimild til þess að dauðvona
barni hans yrði gefið blóð, væri
sekur um að hafa banað barn-
inu. Sams konar atburðir hafa
gerzt áður, víðar en í Ástralíu,
en þetta mál var höfðað gegn
föðurnum sem prófmál.
Kviðdómurinn úrskurðaði, að
manninum skyldi í þessu tilfelli
þyrmt, enda þótt sekt hans væri
sönnuð.. í framtíðinni yrði hins
vegar að heimila læknum með
lögum að veita börnum þá
læknishjálp, sem þeir teldu nauð-
synlega.
Maðurinn, sem hér um ræðir,
er 29 ára, úr flokki Votta Je-
hova. Bam hans var tvéggja
daga gamalt, er læknar sögðu, að
blóðgjof væri það eina, sem
bjargað gæti lífi þess. Af trúar-
legum ástæðum voru hjónin mót-
fallin blóðgjöfinni, veittu ekki
r
A veitingamanna-
mót
í FYRRADAG fór utan Þorvald-
ur Guðmundsson veitingamaður
til þess að sitja alþjóðamót veit-
inga- og gistihúsaeigenda, sem
haldið er að þessu sinni í Dublin
á írlandi. Mót þetta mun standa
í 10 daga. Þorvaldur mun fyrst
og fremst fara þessa ferð til þess
að fræðast um nýjungar í hótel-
málum.
leyfi til þess að hún væri fram-
kvæmd — og barnið dó.
Við réttarhöldin sagði eigin-
maðurinn: — Ég bjóst aldrei við
að barnið mundi deyja.
Eiginkonan sagði hins vegar:
— Ég mundi banna blóðgjöf,
enda þótt þetta sama endurtæki
sig. —
Dagskrá Alþingis
DAGSKRÁ Alþingis miðvikudag
inn 30. marz kl. 1,30 miðdegis.
Sameinað þing:
Fyrirspurnir:
1. Niðurgreiðsla fóðurbætis.
2. Málaleitan Nyasalandsmanna
um að kæra Breta fyrir mann-
réttindanefnd Evrópuráðsins.
Efri deild:
1. Almannatryggingar, frv. — 2.
umr. — Ef leyft verður.
2. Ferskfiskeftirlit, frv. — 1.
umræða.
3. Alþj óðasamningur um fisk-
veiðar á norðausturhluta
Atlantshafs, frv. — 2. umr. —
Ef leyft verður.
Neðri deild:
1. Útsvör, frv. — 2. umræða. —
2. Sala lands í Vestmannaeyjum
í eigu ríkisins og eignarnáms-
heimild á lóðar- og erfðafestu-
réttindum, frv. — 2. umr.
3. Vatnasvæði Þverár og Mark-
árfljóts, frv. — 1- umr. — Ef
deildin leyfir.
4. Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins o. fl„ frv. — 1- umr. — Ef
deildin leyfir.
, S** /VA /5 hnúiar v' SV50hnútar X Snjókoma > ÚSi \7 Skúrír IC Þrumur Kutíasti! Hitaski! H Hcti L Lattji
Staðviðri
HÁÞRÝSTISVÆÐI innan
1020 mb. línunnar setur svip á
kortið og ræður veðri að
mestu leyti á svæðinu um-
hverfis Island. Hæðarmiðjan
er milli íslands og Færeyja.
Suðvestur af Grænlandi er víð
áttumikið en kraftlítið lægð-
arsvæði og snjóar eða rignir
víða á sunnanverðu Græn-
landi.
Kaldasti staðurinn á kortinu
er Goose Bay með 25 st. frost. ^
1 Gander á Nýfundnalandi er S
12 stiga frost, en í París, sem |
er á h. u. b. sama breiddar- ^
stigi er 25 stigum hlýrra. s
kl 22 í gær-
Veðurhorfur
kvöldi:
SV-land til Vestfj. SV-mið)
ti Vestfj.miða: Sunnan gola j
skýjað. N-land, NA-land, N- s
mið: Hægvirði, víðast létt-)
skýjað. Austf., SA-land, ^
Austfjjnið, SA-mið: Hægvirðis
skýjað, þoka til hafsins. )