Morgunblaðið - 30.03.1960, Side 9
Miðvikudagur 30. marz 1960
MORCVNBLAÐIÐ
9
Uppruni íslendinga
Ný bók eftir Baxða Guðmundsson
KOMIÐ er út á vegum Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs ritgerða-
safn eftir Barða Guðmundssoni,
fyrrverandi þjóðskjalavörð. Hafa
þeir Skúli Þórðarson og Stefán
I'élursson búið bókina til prent-
unar.
Bók þessi hefst á inngangsrit-
gerð eftir Skúla Þórðarson, þar
sem liann gerir grein fyrir
helztu kenningum, sem uppi hafa
verið um forfeður fslendinga og
rekur mjög glögglega hinar ný-
stárlegu kenningar Barða Guð-
mundssonar um þetta efni.
Bókin „Uppruni íslendinga"
hefur að geyma nær allar ritgerð
ir Barða Guðmundssonar sagn-
fræðilegs eðlis, prentaðar jafnt
sem óprentaðar, aðrar en þær, eu
hann reit um Njálu og höfund
hennar. Þær ritgerðir voru áður
komnar út á vegum Menningar-
sjó^. Er því með þessu verki lok
ið útgáfu þeirra ritgerða, sem
Barði Guðmundsson lét eftir sig.
11 ritgerðir
í hinu nýja ritgerðasafni Barða
eru samtals 11 ritgerðir, og er
hinr. mikli greinaflokkur hans,
„Uppruni íslenzkrar skáldmennt-
ar“, þá talin ein ritgerð. Áttai
þessara ritgerða fjalla um for-
sögu íslendinga og mynda megins
kafla bókarinnar. Hinar þrjár
fást við rannsóknarefni úr for-
sögu nágrannaþjóða vorra á Norð
urlondum og Bretlandseyjum.
Fyrsta ritgerð bókarinnar,
„Tímatal Ara Fróða“, hefur
ekki birzt áður á prenti. Er hún
brot af prófritgerð Barða við
meistarapróf í Kaupmannahöfn
•haustið 1929. Fjallar hún um
forníslenzkt tímatal og er athygl
isverð rannsókn á því. Ritgerðin
er skrifuð á dönsku, en birtist
hér í þýðingu Hannesar Péturs-
sonar.
Þær sjö ritgerðir aðrar, sem
myr.da meginuppistöðu bókarinn
ar, eru þessar: „Tímatal annála
um viðburði sögualdar", „Goð-
orðaskipun og löggoðaættir“„
„Goðorð forn og ný“, „Uppruni
Landnámabókar", „íslenzkt þjóð-
erni“, Uppruni íslenzkrar skáld-
menntar" og „Merkasta árið í
sögu lslendinga“.
Af þeim þrem ritgerðum Barða
Guðmundssonar um rannsóknar-
efni úr fornsögu nágrannaþjóða
vorra, sem prentaðar eru aftast
í bókinni, hefur aðeiris ein birzt
áðpr hér á landi og þá í mun
styttri" gerð en þeirri, sem hér
er prentuð. Það er ritgerðin
,.Stiklastaðarorusta“. Ér hún tek-
in úr „Historisk tidskrift" í
Barði Guðmundsson
Stokkhólmi og birt í íslenzkri
þýðngu Karls Ísfelds. Ritgerðin
„Staða Gautlands 950—1050“ er
úr „Hstorisk tidskrift" í Oslo í
þýðingu Arnheiðar Sigurðardótt-
ur. Loks ritgerðin „Ætt og kon-
ungdómur Haralds Guðinasonar“
prentuð hér í fyrsta sinn eftir
handriti, skrifuðu á norsku, sem
varðveitzt hefur í skjölum Barða.
Er hún birt í þýðingu Hannes
Péturssonar.
Bókinni fylgir rækileg nafna-
skrá, sem Stefán Pétursson nefur
samið.
„Uppruni íslendinga“ er 334
bls. að stærð, prentuð í Prent-
smiðjunni Odda h.f.
Söfnun til björgunar-
skútu við Breiðafjörð
BREIÐFIRÐINGAFÉLAGIÐ hélt
aðalfund sinn hinn 26. febrúar sl.
Það hefur enn starfað með áhuga
að ýmsum félagsmálum. En
markmið þess er að efla kynni
og samstarf Breiðfirðinga, sem
flutzt hafa hingað til borgarinn-
ar, og vinna að framfaramálum
í heimabyggð þeirra eftir föng-
um.
Fjölþætt starfsemi.
Félagið hafði sjö kynningar-
Og kaffikvöld árið 1959 og auk
þess vetrarfagnað, þorrablót og
sumarfagnað með þjóðlegu smði.
Það gekkst einnig fyrir jólagleði
handa börnum og bauð eldri
Breiðfirðingum til hátíðar í Breið
firðingabúð á uppstigningardag.
Björgunarskútusjóður.
Aðalmálefni félagsins nú er
söfnun til Björgunarskútusjóðs
Breiðafjarðar, og var sumarfagn-
aður félagsmanna algjörlega helg
aður því markmiði, og söfnuðust
þar á þriðja tug þúsunda.
Félagið gekkst fyrir því
að samstarf hófst milli allra
breiðfirzku átthagafélaganna um
myndarleg hátíðahöld um næstu
mánaðamót, til eflingar Björg-
unarskútusjóðnum. Verða þau
bátíðahöld í Lido n.k. föstudag.
(Merkjasala og kaffisala hefur
þegar verið haldin til ágóða þessu
málefni)..
Er þess vænzt, að allir Breið-
firðingar, hvort sem þeir eru fé-
lagsbundir eða ekki, leggi þama
fram sinn skerf, þessu þjóðnytja-
máli til framgangs, en það py í
senn framfaramál og líknarstarf-
til aukinnar menningar og gleði
við Breiðafjörð.
Ritun menningarsögu.
Nú er einnig að hefjast á veg-
um Breiðfirðingafélagsins ritun
á Menningarsögu Breiðfirðinga,
en það verður rit hliðstætt ritpm
Skagfirðingafélagsins um Skaga-
fjörð og sögu hans.
Bergsveinn Skúlason, íræði-
maður frá Skáleyjum er nú að
skrifa um atvinnuhætti við
Breiðafjörð á liðnum öldum og
árum. En héraðið hefur að ýmsu
leyti sérstöðu á því sviði, eink-
um vegna eyjanna og vinnu-
bragða þar. Enn er í ráði að fá
skráðar sögur höfðingjasetranna
við Breiðafjörð, sögur breið-
firzkra sæfara og skálda, eftir
því, sem við verður komið.
Tímarit félagsins, Breiðfirðing-
ur, kemur út árlega og flytur
margs konar fróðleik og fréttir,
auk skemmtiefnis og minningar-
greina um merka, látna Breið-
firðinga.
Stjórn Breiðfirðingafélagsins
skipa nú þessir menn: Sr. Árel-
íus Níelsson, formaður, Jóhannes
Ólafsson, varaform., Alfons Odds
son, féhirðir og Ástvaldur Magn-
ússon, ritari.
Mál flutningsskrif stof a
JÓN N. SIGURBSSON
hæstar éttarlögma ður
Laugavegi 10. — Sími: 14934.
Jón Þorláksson
lögfræðingur.
Hafnarhvoli. — Sími 13501.
Camla bílasalan
Kalkofnsvegi. — Simi 15812.
Bílar til sölu og sýnis
Mercury ’55. — Útborgun
kr. 20—30 þúsund.
Dodge ’47, engin útb.
Nash ’48. Útb- kr. 8 þús.
Chevrolet ’51, útb. 25 þús.
Standard 8 ’46, engin útb.
Wolsley ’49, útb. 8 þús.
Bílar til sýnis daglega. —
Gamla bílasalan
Kalkofnsvegi sími 15812
Vatnsgeymir
óskast til kaups. Þyrfti að vera
ca. tvö þúsund lítra að stærð.
Uppl. í sima 50764.
Svart kvenveski
Svart kvenveski með slitnum
hanka öðrum megin, tapaðist
mánudaginn 21. marz. Finn-
andi vinsamlegast hringi í
síma 1-44-55.
Mercury '47
óvenju góður til sýnis og
sölu í dag. —
Bifreiðasalan
Barónsstíg 3. — Simi 13038.
Vestur-Þýzkur
Sendiferckibill
smíðaár ’52, % tonn, lítur út
[ eins og nýr, mjög lítið keyrð-
ur, til sýnis og sölu í dag. —
Höfum íjöldan allan af bif-
reiðum til sýnis og sölu. Verð
og skilmálar við allra hæfi.
Bifreiðasalan
Baronssug 3. Simi 13038.
ZOLEX
blöndungar fyrir
Mercedes-Benz
Standard
Ford Junior
Fiat 1400
Tatra
Volga
Pobeta
Moskwitch
P. STEFÁNSSON h.f.
Hverfisgötu 103. — 1345.
Drengja-gallabuxur
Drengjaskyrtur
Köflóttar vinnuskyrtur
Vinnubuxur
Vinnusloppar
Sarnfestingar
— Gamla verðið. —
VERÐANDI h.f. „
Ársháfíð F. í. H.
verður haldinn mánudaginn 4.
apríl í Þjóðleikhúskjallaranum
kl. 18,30.
Aðgöngumiðar í Þjóðlekihús-
kjallaranum mánud. 4 apríl.
Umboð fyrir ísland
Viðurkennd verksmiðja, sem framleiðir gúmmívörur
óskar eftir sambandi við umboðsmann sem getur
tekið að sér sölu og dreyfingu á Islandi.
WORLD’S BEST GUMMIVAREFABRIK
nr. Alle 32 — Aarhus, Danmark.
Sendisveinsstörf
Röskan og áreiðanlegan sendisvein vantar okkur
nú þegar. Uppl. í skrifstofunni.
FÁLKINN H.F.
Sími 18670.
Mercedes Benz diesel
smíðaár 1956 til sölu.
BIFREIÐ AS Al AN
Ingólfsstræti 9 — Sími 18966 og 19092.
Skuldabréf
Til sölu nokkur skuldabréf með sérstaklega hag-
kvæmum kjörum. Þeir sem hafa áhuga á þessu sendi
tilboð til afgreiðsiu blaðsins merkt: „Kjarakaup —
9981“.
Kaupmenn
MERKIBLÝANTAR,
sem skrifa má með á
gler, sellofan, leður, plast, emalje,
tré, málma og margt fleira.
Þurrkast út með þurrum klút.
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
Morgunblaðshúsinu — Aðalstræti
Nouðungaruppboð
annað og síðasta, á 14 hluta húseignarinnar nr. 12
við Ingólfsstræti, hér í bænum, þingl. eign Málfríðar
Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri, laugardag-
inn 2. apríl 1960, kl. 2M> síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 12., 13. og 15. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1960, á m/s íslending R.E. 73, talin eign
Baldurs Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Guð-
mundar Péturssonar hrl. við skipið, þar sem það
liggur í fjörunni við Elliðaárvog, austan við Klepp,
fimmtudaginn 31. marz 1960, kl. 2% síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.