Morgunblaðið - 30.03.1960, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.03.1960, Qupperneq 23
Miðvikudagur 30. marz 1960 MORGUNBLAÐIÐ 23 Ennþá atvinnulausir sjómenn í Fœreyjum NESKAUPSSTAÐ, 29. marz. — Faereyskur togari, Leivur Öss- ursson frá Trangisvögi kom hing að skömmu fyrir kl. eitt í dag til að kaupa 30 lestir af ís. Hafði verið fengið leyfi viðskiptamála- ráðuneytisins til að selja skipinu ísinn. Skipstjórinn heitir N. P. Non- stein og skýrði hann frá því, að afli skipsins væri orðinn 2000 kit (120—130 lestir) í þessari veiði- ferð. Hefur hann fengið aflann mest út af Austfjörðum, einkum í 'Berufjarðarálnum. Er þetta blandaður fiskur og heppilegur Tal vann sjöundu skákina Mosvku, 29. marz. SJÖUNDA einvígisskákin um heimsmeistaratignina var tefld hér í dag. Var skákin lengi friðsamleg framan af og barst leikur- inn út í jafnt endatafl, en þá gerðust óvæntir atburð- ir. — Tal gaf fyrst nokkurn höggstað á sér, en kom síð- an með Ieikfléttu, sem setti heimsmeistarann í vanda. Framhaldið tefldi Tal af mikilli nákvæmni og tókst að ná sigri að lokum. Staðan er nú þannig, að Tal hefur 5 vinninga en Botvinnik 2. — Næst tefla þeir á fimmtudaginn. — Herskip Ef bandaríska tillagan verður samþykkt, munu Bretar reiðu- búnir að gera samninga vegna sérstöðu íslands og m. a. leggja deiluna fyrir alþjóða dómstólinn í Haag. En ítrekaðar tilraunir af hálfu Breta hafa engan ár- angur borið svo að ósennilegt er, að hægt yrði að komast að samkomulagi við fslendinga. Þáttur sérfræðinganna Hann var spurður að því, hvort aflamagnstakmörkun bandarísku tillögunnar væri framkvæman- leg. Hare svaraði á þá lund, að þá hlið málsins yrðu fiskifræð- ingarnir að annast, fiskiskýrslur töluðu sínu máli, og það væri verk sérfræðinganna að draga ályktanir af þeim. Bretar hefðu allra þjóða mest áhuga á fiski- friðun, en í þessu tilliti yrði að fara eftir friðunarsamþykkt síð- ustu ráðstefnu. Vildi ekki svara að svo stöddu Loks var John Hare spurður að því, hvort Skotar ætluðu að víkka fiskveiðilögsögu sína, hvort þeir gætu það upp á eigin spýtur. Svaraði hann því til, að þetta væri að vísu vandamál sjómanna, sem veiddu við Skotlands-strend- ur og Cornwall, en það væri hag- kvæmara fyrir útveg Breta í heild að hafa fiskveiðilögsöguna litla. Hvort Skotar gætu laga- lega framkvæmt slíka útfærzlu upp á eigin spýtur, því sagðist John Hare skyldi svara síðar, þegar að því kæmi — en ekki nú. — Þ. Th. YFIRLYSING 1 SAMBANDI við frétt í blaðinu í gær um úrskurð, sem gefinn var í Sakadómi Reykjavíkur um vínleit í bifreið minni, R-2501, sem gefinn var samkvæmt fram- burði fulltrúa lögreglustjóra, sem ég tel mjög svo vafasaman, vil ég taka eftirfarandi fram: Bifreiðina R-2501 hef ég á leigu og er hún að öllu leyti óvið- komandi eiganda, svo lengi sem staðið er í skilum með leigu. Arnljótur Ólafsson. til sölu í Englandi. Leivur Öss- ursson á að selja í Grimsby fimmtudaginn 8. apríl og getur hann því fiskað til sunnudags- morguns. Ekki voru annarra þjóða togar- ar að veiðum þarna en færeysk- ir, en Leivur er nú einn eftir. Einn rússneskur togari kom þarna að vísu, en fór aftur eftir fáeina klukkutíma Þriðji skipstjórinn Leivur Össursson er nýtt skip, byggt í Portúgal í maí í fyrra og er 800 lestir að stærð. Skipstjórinn sagði, að útgerð togarans hefði gengið fremur treglega og væri hann þriðji skip stjórinn á honum, en þetta er önnur veiðiferð Nonsteins skip- stjóra með skipið. Síðast landaði hann 2600 kitt- um í Englandi, seldi fyrir 9000£. Var það mesti afli færeýsks tog- ara í þeirri veiðiferð, en einhver seldi fyrir hærri upphæð. Færeyingar eru að auka togara flota sinn og eiga nú eina 10—12 nýtízku togara. Þeir eiga tvo tog- ara í smíðum, sem eru ellefu hundruð lestir að stærð eða 100 lestum stærri en þeir togarar, sem íslendingar eiga nú í smíð- um. Tveir þriðju með tólf mílum Nonstein skipstjóri sagði, þeg- ar fiskveiðilögsöguna bar á góma, að minnsta kosti tveir þriðju hlut ar færeysku þjóðarinnar væru eindregið fylgjandi tólf mílna fisvkeiðilögsögu, en hinir hefðu nokkuð skiptar skoðanir um málið. Færu þær nokkuð eftir pólitík. Þá sagði Nonstein, að ennþá vær'u atvinnulausir sjómenn í Færeyjum, en úr því færi að rakna, er Grænlandsveiðarnar byrjuðu. — Fréttaritari. Vel miðar í Camp David GETTYSBURG, 29. marz. — Blaðafulltrúi Eisenhowers for- seta sagði í kvöld, að vel hefði miðað í viðræðum þeirra Mac- millans og Eisenhowers. Er talið, að þeir komist að samkomulagi í meginatriðum, en viðræðunum heldur áfram þar til fullt sam- komulag hefur náðst, sagði Hag- erty blaðafulltrúi. Sérfræðingar þeirra Eisenhowers og Macmill- ans komu til Washington í kvöld, en sjálfir munu leiðtogarnir dveljast í Camp David í nótt og halda viðræðunum áfram í fyrra málið. Ýmsir aðilar eru nú farnir að ræða um það, að sennilega verði hægt að undirrita samkomulagið um bann við kjarnorkutilraunum á leiðtogafundi stórveldanna, sem hefst í París 16. maí. Hreppamaðurinn kominn út HREPPAMAÐURINN, fimmta rit, er nýkomið út og hefur ein- tak borizt Mbl. Hreppamaðurinn er í bundnu máli, efni hans mest- megnis auglýsingar um hin og þessi fyrirtæki. Höfundur er Bjarni Guðmundsson, frá Hörgs- holti. Ritið er prentað í Prent- smiðju Suðurlands á Selfossi en höfundur gefur það út sjálfur. Hér skal sýnt dæmi af einni rímaðri auglýsingu í Hreppa- manninum: Heilagfiskur, húsmæður, hanginn fiskur, stútungur, sólþurrkaður saltfiskur, sumarlax og nýr þorskur. — Genf Framh. af bls. 1 jafnvel utan landhelgi, svo að fiskfriðunin gæti ekki verið grundvöllurinn, sem kröfurnar um frekari útfærzlu fiskveiðilög- sögunnar væru byggðar á. Það, sem liggur hér að baki, sagði Hare, er vandinn á skiptingu aflans. Strandríkin vilja öðlast einkarétt til handa eigin fiski- mönnum, en vildu reka sjómenn annarra ríkja í brott til eigin stranda. Nauðsyn rekur sjómenn á fjarlæg mið Hann varpaði fram þeirri spurningu, hvers vegna sjómenn leituðu yfirleitt á fjarlæg mið. Og hann svaraði henni sjálfur á þá lund, að landfræðilegar ástæður gætu valdið, sum ríki væru fámenn, önnur fjölmenn og þyrftu að leita víða eftir fæðu- öflun. Sum ríki hefðu litla strandlengju og önnur enga. Hann sagði ennfremur, að við strendur sumra ríkja væri fiski- stofninn mikill og ekki í réttu hlutfalli við stærð ríkisins. Það væri ekki vegna þess, að gengið hefði miklu meira á suma fisk- stofna frekar en aðra, heldur af því að fiskmagnið í sjónum væri misjafnlega mikið á hinum ýmsu hafsvæðum. Nefndi hann sem dæmi Norðursjó, sem um langan aldur hefði verið aðalfisk- veiðisvæði Evrópu, og sagði að þar væri meiri afli núna en nokkru sinni fyrr. Norðursjór fullnægði þó ekki þörf Evrópu, þess vegna hefðu Evrópu-þjóðir veitt á fjarlægari úthafsmiðum í margar aldir. Heildaraflinn minnkaði Hare lagði áherzlu á það, að stefna Breta í landhelgismálun- um ætti ekkert skylt við heims- valda- eða nýlendustefnu, því fiskimenn nýju ríkjanna leituðu líka á fjarlæg mið. I mörgum til- fellum væri útvegur strandríkja vanþróaður, þau gætu því ekki veitt þann fisk, sem fjarlæg ríki myndu gera. Þannig myndi heild- araflinn minnka, ef fiskveiðilög- sagan yrði færð of langt út. Stórfellt áfall Þetta er sérstaklega ranglátt, ef sjómenn fjarlægra ríkja yrðu reknir af miðum, sem síðar yrðu ekki nýtt. Ráðstefnan verður að skilja hve geysilegt áfall það yrði fjarlægu ríkjunum. Þau væru ekki öll auðug, stór eða voldug. Fiskur væri aðalfæða margra þeirra, og ekki yrði hægt að bæta þann missi að fullu með öðru. Við Bretar erum ekki fátæk þjóð, en við erum fjölmennir og búum á lítilli eyju 'og erum stærstu matvælainnflytjendur í heimi. Okkur hefir sjálfum tek- izt að afla megnið af fiskinum, sem við þurfum, og það er eink- um að þakka veiðunum á fjar- lægu miðunum, þar sem helm- ingur aflamagnsins er fenginn. F.f við misstum af þessum afla, yrði það stórfellt áfall fyrir efna hag okkar og mátvælaframleiðslu — og að sjálfsögðu útveginn. John Hare sagði, að sömu sögu væri að segja um fleiri lönd, en ekki mætti beita Breta ranglæti, þótt þeir væru í minnihluta. Sjó- menn, hafnarverkamenn og fjölskyldur þeirra, eiga allt undir sjávarútveginum, og auk þess jmyndi aragrúi fólks bíða mikið tjón af. Ekki blindir á þarfir strandríkja Bretar eru þó ekki blindir á þarfir strandríkis og til þess að gæta réttlætis gagnvart því, eru Bretar reiðubúnir til að fallast á ný fiskveiðimörk, sem veita einkarétt á svæði, sem hingað til hefir verið úthaf. Þó að við föllumst á nýjar regl ur, teljum við ekki rétt að reka sjómenn af fjarlægum miðum, sem þeir hafa sótt sér til lífs- bjargar um aldir, eins og rússneska, mexíkanska og kana- 1 díska tillagan gerir ráð fyrir. Að með einu pennastriki, á einni nóttu, verði fjöldi fólks víða um heim sviftur atvinnu, heilir at- vinnuvegir lamaðir og fæðuöfl- unarleiðir fjölmenna þjóða stór- skertar. Þess vegna styðja Bretar banda rísku tillöguna, enda þótt það sé mikil fórn og útvegur Breta verði fyrir alvarlegu áfalli með sam- þykkt tillögunnar. Þetta mál er efnahags- og félagslegs eðlis, það er líka mannúðarmál. Móðir okkar LAUFEY VILHJALMSDÓTTIR andaðist í Landakotsspítala 29. marz. Guðrún Guðniundsdóttir, Vilhjálmur Guðmundsson, Örn Guðmundsson, Finnbogi Guðmundssou Eiginkona mín SIGURVEIG KETILSDÓTTIR Hafnargötu 43, Keflavík, andaðist að heimili sínu þriðjud. 29. marz. Friðrik Gunnlaugsson. Móður mín GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR Öldugötu 17, Hafnarfirði , andaðist að Hjúkrunarheimilinu Sólvangi, fimmtudag- inn 24. þessa mánaðar. —• Verður jarðsungin frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn 1. apríl kl. 2 e.h. Jónína Guðlaugsdóttir Eiginkona mín, GUÐRtíN JÖNSSON fædd Geisler verður jarðsungin frá Neskirkju, föstudag. 1. apríl kl. 3. Ársæll Jónasson Fósturmóðir mín, SIGURLAUG SIGURÐARDÓTTIR Árbakka, Skagaströnd andaðist mánudaginn 28. marz sl. Fyrir mina hönd og annarra vandamanna. Þórhildur Jakobsdóttir frá Árbakka Útför eiginmanns míns KARLS Ö. BJARNASONAR fyrrum varaslökkviliðsstjóra, fer fram frá Dómkirkjunni n.k. föstudag 1. apríl kl. 1,30. Kristín L. Sigurðardóttir og böm. Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SÓLVEIGAR BERGSVEINSDÓTTUR fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. marz kl. 1,30 e.h. Ásta Þórarinsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Dagbjörg Þórarinsdóttir, Ásgeir V. Björnsson, Sæinundur Þórarinsson, Hulda Guðjónsdóttir, Sigurbergur Þórarinsson, Inga Steinþórsdóttir, Ölafur Sigurðsson og barnaböm. ♦ Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu MARfU SÆMUNDSDÓTTUR Hvítárvöllum. Börn, tengdaböra og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður SESSELJU EIRfKSDÓTTUR Suðurgötu 9, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sólvangs fyrir veitta hjúkrun. Börn og tengdabörn. Innilegustu þakkir fyrir sýnda hluttekningu og samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns ÞORGEIRS JÓNSSONAR Blönduhlíð 11. Guðrún Eiríksdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför eiginmanns míns VIGFÚSAR GUNNLAUGSSONAR Túngötu 20, Siglufirði. Fyrir hönd aðstandenda. - Sigfússína Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.