Morgunblaðið - 02.04.1960, Blaðsíða 9
Laueardaeur 2. apríl 1966
■ •■■ ■ .-. .,:•,<■■ :■■■<■■
MORKUNBLAÐI9
Sextugux í dag:
Hjalti Lýðsson forstj.
Á FYRSTA fjórðungi aldarinn-
ar var það næsta algengt fyrir-
bæri, að ungir bændasynir, eink-
um úr sveiturn Árnes- og Rang-
árvallasýslu, flyttust hingað til
Reykjavíkur og hyggðu á nýtt
landnám hér í höfuðstaðnum.
Sjaldan fluttu þessir ungu menn
méð sér digra sjóði, en margir
þeirra höfðu annað veganesti,
sem ekki var minna um vert.
s iAthafnaþrá var þeim mörgum í
blóð borin og dugnaður og vinnu-
semi þeirra einkenni.
Reyndin hefir líka orðið sú,
að margir þessara manna hafa
orðið hinir nýtustu borgarar og
tekið góðan og virkan þátt í
þeirri efnahagslegu viðreisn, sem
hér hefir átt sér stað.
Einn þessara ungu manna, em
hingað leitaði er Hjalti Lýðs-
son. Hann er fæddur 2. apríl ár-
ið 1900, að Hjallanesi á Landi.
Að honum stendur traust og
dugmikið fólk, einkum úr byggð-
um Rangárþings.
Faðir Hjalta var Lýður Árna-
son, bóndi á Hjallanesi, Árna-
1 sonar, bónda á Skammbeinsstöð-
um í Holtum, Finnbogásonar,
bónda á Galtalæk á Landi, Þor-
gilssonar, bónda á Reynifelli á
Rangárvöllum. Árni, afi Hjalta,
átti Ingigerði Guðmundsdóttur
hins rika- á Keldum, Brynjólfs-
• Sonar í Vestra-Kirkjubæ, Stefáns
sonar í Árbæ, Bjarnasonar á
Víkingslæk (Víkingslækjarætt).
Móðir Hjalta var Sigríður Sig-
urðardóttir, bónda í Saurbæ og
i Haga í Holtum, Sigurðssonar
. prests x Guttormshaga, Sigurðs-
sonar, prests í Reynisþingum,
Jónssonar, en kona séra Sigurð-
ai* í Gúttormshága var Sigríður
Jónsdóttir, prets í Holti og því
: systir Steingríms biskups í
Laugarnesi.
Eins og af þessu sést á Hjalti
til góðra að telja í báðar ættir.
Margir ættmenn hans voru á
sínum tíma annálað dugnaðar-
fólk og er því ekki langt að leita,
hvaðan Hjalta kemur sá dugn-
aður og atorka, sem jafnan hefir
einkennt hann og starf hans.
, Foreldrar Hjalta eignuðust 12
börn og var honum því snemma
haldið að vinnu eins og títt var
um unglinga í sveit á þeim tíma.
Sextán ára gamall fluttist Hjalti
til Reykjavíkur og réðst sem árs-
maður til Emils Rokstad á
Bjarmalandi, sem á þeim árum
hafði hér margháttaða umsýslu
og búskap. í þeirri vist var Hjalti
í fimm ár. Hafa mér sagt kunn-
ugir menn að vinnusemi hans og
húsbændahollusta, á þessum ár-
um, hafi verið svo frábær, að
jafnvel einsdæmi gat talizt. Kom
þar líka brátt í Ijós verkhyggni
hans og atorka að hverju sem
hann gekk.
Á þessum árum kynntist Hjalti
ýmsum útlendingum, einkum
Norðmönnum. Varð það til þess,
að hann sigldi til Noregs 1921 og
hugðist kynna sér niðursuðu á
fiski og reykingu á matvælum.
Dvaldi hann um rúmlega eins
árs skeið í Frederikstad og Hauga
sundi og vann þar að þessum
störfum. Er heim kom setti hann
á fót fyrirtæki, sem hafði það
verksvið að vinna úr fiski, sjóða
og leggja niður síld o. fl. Hjalti
er því meðal þeirra fyrstu, sem
hér kom auga á mikilvægi þess-
arar atvinnugreinar og hófst
handa um að byggja upp þessa
starfsemi. En hér átti hann að
ýmsu leyti erfitt uppdráttar, enda
má segja, að nú nálega 30 árum
síðar, sé þessi atvinnuvegur enn
ekki komin í það horf, em æski-
legt er. Þessum tilraunum lauk
því, eftir nokkur ár, með því að
Hjalti sneri sér að kjötvinnslu og
sölu á kjöti í því sambandi. Rak
hann um næsta aldarfjórðungs-
skeið þrjár kjötverzlanir hér í
bænum. Kostaði hann jafnan
kapps um að hafa góða vöru á
boðstólum, enda blómguðust
verzlanir hans og nutu almennr-
ar hylli bæjarbúa.
Nokkru eftir síðustu heims-
*
styrjöld kenndi Hjalti ser nokk-
urs heilsubrests, enda hafði hann
í starfi sínu oft lagt nótt með
degi, ef svo má segja. Hann hugði
því á breytingu og réðst I það,
fyrst í félagi við aðra, að koma
á fót og reka kvikmyndahús
(Stjörnubíó). Gerðist hann for-
stjóri þessa fyrirtækis og hefir
verið það síðan. Ekki er þvi að
leyna, að misjafnlega var á það
litið ,hvernig Hjalta myndi farn-
ast í hinu nýja starfi. En það
er skemmst frá að segja, að fyr-
irtækinu hefir vegnað vel, enda
ekki sízt að þakka dugnaði og
hyggni forstjórans.
Hjalti Lýðsson er sextugur í
dag. Þegar hann, á þessum tíma-
mótum lítur um farinn veg munu
margir telja, að hann megi una
vel við þann árangur, sem starf
hans hefir fært honum. Þeir sem
til þekkja munu þó fúslega við-
urkenna, að farsæld hans sé
verðskulduð, sökum dugnaðar og
árvekni hans sjálfs. Á það ber
þó einnig að líta, að hann hefir
haft við hlið sér traustan og góð-
an förunaut. Árið 1927 kvæntist
hann heitmey sinni Elviru, hinni
ágætustu konu. Er hún norskrar
ættar, frá Frederikstad. Hefir
hún búið manni sínum og börn-
um hið vistlegasta heimili.
Eg vil Ijúka þessum línum með
því að óska Hjalta og fjölskyldu
hans allra heilla og vona að hann
eigi enn eftir langan starfsdag
við góða heilsu. O. G.
Ford Falcon 1960
til sölu á réttu verði milliliðalaust. Upplýsingar
í síma 36073 frá kl. 14—18 laugardag.
VörugeymsZa
til leigu nú þegar. Stærð 300 ferm. Umsóknir merkt-
ar: „Vörugeymsla — 9394“ sendist afgreiðslu blaðs-
ins fyrir 5. apríl.
Sælgætis- og tóbaksverzlun
í fullum gangi er til sölu. Tilboð óskast send Mbl.
fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Vesturbær — 9973“.
HúsnœBi
4 herbergi, hentug fyrir skrifstofur eða lækninga-
stefur, til leigu á Laugavegi 27. Upplýsingar í sím-
um 33150 og 16393.
SkrifstofuhúsnœBi
Stórt skrifstofuhúsnæði (5 herbergi) í miðbænum
til leigu nú þegar. Umsóknir sendist afgreiðslu blaós
ins fyrir 5. apríl, merkt: „Miðbær — 9375“.
TIL KAUPENDA
í Kópavogi
Framvegis
mun frú Gea-ður Sturlaugsdóttir,
Hlíðarvegi 35 Kópavogi.
sími 14947 annast afgreiðslu
á blaðinu í Kónavotri.
Stúlka óskast
á hótel úti á landi. Upplýsingar í síma
10039.
Matráðskona
óskast í veiðiskála frá 15. júní til 31. ágúst. Tilboð
sendist Morgunbl. merkt. „Ráðskona — 9457“.
Einbýlishús
til sölu 6 herbergi, eldhús og bað á tveimur hæðum.
Húsið fullgert og með bílskúrsréttindum. Útborgun
150.000,00.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl.
Laufásveg 2 — Sími 19960 og 11628.
Starfsstúlka óskast
að heimavistarskólanum Jaðri í 2 mánuði. Uppl, hjá
skólastjóra Nóatúni 32 eftir hádegi í dag sími
23255.
Vil kaupa milliliðalaust góða
3/o til 4ra herb. íbúð
á hitaveitusvæði í vesturbænum, útborgun 250 til
300 þúsund. Tilboð leggist inn á afgr. blaðsins fyrir
4 aprfl merkt: „Vesturbær — 9391“.
íbúð
2ja—3ja herb. íbúð óskast fyrir hjón búsett erlendis
en ætla að dvelja hér um eins árs skeið. Æskilegt að
einhver húsgögn íylgi. Uppl. í síma 35564.
Hef opnað
Hef opnað ljósmyndavinnustofu mína að Laufásvegi
4 Rvík. — Fvamvegis mun ég annast allar mynda-
tökur utan stofu. Svo sem: heimamyndir, sam-
kvæmismyndir, skólamyndir, auglýsingamyndir
o. m. fl.
Áherzla lögð á fljóta og vandaða afgreiðsln.
Um fermingarnar: Myndatökur í heimahúsum og
fermingarveizlum. — Hef meðferðis Kyrtla.
Tekið á móti pöntunum í síma 15602.
ÞÓRIR H. ÓSKARSSON, ljósmyndavinnustofa
Laufásvegi 4 — Sími 15602,Rvík.
FLJOTT OG ODYRT
sjálfsafgreiðsla
á HÁDEGIS- og
KVÖLDVERÐUM.
★
Lystugt og gómsætt
kaffibrauð.
★
Hraði, þægindi, Gæði.
KVÖLDVERÐUR
kl. 6 til 9.
MATSTOFA AUSTURB/EJAR
Laugaveg 116.