Morgunblaðið - 06.04.1960, Page 6
6
MORCUIS T*T 4 fíjfí
Miðvik'udagur G. april 1960
Listahátíð í Reykjavík
í tilefni 10 ára afmælis
Þjóðleikhtjssins
TUTTUGASTA aprfl næst-
komandi á Þjóðleikhúsið 10
ára starfsafmæli. í tilefni
þessa eru á döfinni, á vegum
Þjóðleikhússins, miklir og
ánægjulegir listviðburðir, —
fyrst afmælishátíð og í fram-
haldi af henni listahátíð, sem
standa mun yfir í samfleytt
13 daga.
Á fundi með blaðamönnum í
gær skýrði þjóðleikhússtjóri frá
dágskrárliðum þessara tvöföldu
hátíðahalda, sem óhætt er að
segja, að eigi sér enga hliðstæðu
hérlendis, hvað fjölbreyttni og
listgildi snertir.
•
Afmælishátíðin hefst 20. apríl
með sýningu á leikriti Guðmund-
ar Kambans „í Skálholti" (nafn-
inu breytt í samræmi við óskir
höfundarins) í þýðingu Vilhjálms
Þ. Gíslasonar, útvarpsstjóra.
Á undan sýningu flytja mennta
málaráðherra, formaður þjóðleik
húsráðs og þjóðleikhússtjóri á-
vörp, og fluttur verður hátíðar-
forleikur Þjóðleikhússins, Sinfón-
íuhljómsveit íslands leikur, dr.
Róbert A. Ottósson stjórnar.
Leikfélag Reykjavíkur hefur
áður — 1945, sýnt þetta. leikrit
Kambans við mikla hrifningu leik
húsgesta. Kokkrir leikarar, sem
léku í leikritinu áður, leika einn-
ig í því nú, en í öðrum hlut-
verkum.
Stærstu hlutverkin skipa: Val-
ur Gíslason, sem leikur Brynjólf,
biskup, Kristbjörg Kjeld, Ragn-
Nicolaj Gedda
heiði biskupsdóttur, Regína Þórð-
ardóttir, Helgu í Bræðratungu,
Guðbjörg Þprbjarnardóttir, Mar-
gréti biskupsfrú, Erlingur Gísla-
son, Daða Halldórsson, Helgi
Skúlason, dómkirkjuprestinn,
Ævar R. Kvaran, skólameistar-
ann og Róbert Arnfinnsson, Torfa
prest.
Jón Þórarinsson, tónskáld, hef-
ur samið hljómlist við leikritið,
byggða á gamalli íslenzkri kirkju
tónlist — verður hún eins konar
tengiliður milli þátta leikritsins.
Leikstjóri verður Baldvin Hall-
dórsson, en Magnús Pálsson hef-
ur gert leiktjöldin.
•
Laugardaginn 23. apríl og
sunnudaginn 24. verður svo sýn-
ing á „Carmina Búrana“, kór-
verki með hljómlist eftir Karl
Orff, Þjóðleikhúskórinn og Fíl-
harmoníukórinn flytja — milli 70
og 80 manns — með undirleik
Sinfóníuhljómsveitar íslands. Ein
söngvarar verða Þuríður Páls-
dóttir, Kristinn Hallsson og Þor-
steinn Hannesson. Stjórnandi dr.
Róbert A. Ottósson.
Listahátíðin
í framhaldi afmælishátíðarinn-
ar hefst svo Listahátíð, eins og
áður er sagt, sem stendur yfir
frá 4. til 17. júní samfleytt. Á
þessu tímabili verða sýndar tvær
óperur, tvö leikrit ög ballett —
ein til fimm sýningar á hverju
verki. Fjöldi erlendra listamanna
taka þátt í þessum sýningum —
allt afburðamenn á sínu sviði.
Hátíðin verður opnuð í Þjóðleik-
húsinu laugardaginn 4. júní, kl.
16. —
í upphafi hátíðarinnar flytja
framkvæmdastjóri hátíðarinnar,
Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleik-
hússtjóri, og formaður þjóðleik-
húsráðs, Vilhjálmur Þ. Gíslason,
ávörp, en að þeim loknum hefst
sýning á óperunni „Selda brúð-
urin“ eftir Smetana, gestaleikur
frá Prag-óperunni, með aðstoð
Þjóðleikhúskórsins og Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, stjórnandi
dr. V. Smetácek.'
Stina Britta Melander
Þessi ágæta ópera verður sýnd
alls 4 sinnum. önnur sýningin
verður á annan í hvítasunnu,
mánudaginn 6. júní kl. 15, þriðja
sýning kl. 20 sama dag. Fjórða
sýning verður þriðjudaginn 7.
júní kl. 20 og sú fimmta mið-
vikudaginn 8. júní kl. 20. Allir
söngvararnir, sem syngja í óper-
unni hafa hlotið viðurkenningu
sem „þjóðlistarmenn", en slíka
viðurkenningu " hljóta aðeins
beztu listamenn þar eystra.
•
Fimmtudaginn 9. júní kl. 20
verður svo sýning á leikritinu
Hjónaspil eftir bandaríska skáld-
ið Thornton Wilder, en það hef-
ur undanfarið verið sýnt í Þjóð-
leikhúsinu við góða kæti áhorf-
enda. Er það sýnt þennan dag til
þess að gefa utanbæjarfólki, sem
væntanlega fjölmennir á Lista-
hátíðina, tækifæri til að sjá það.
•
Föstudaginn 10. júní hefst svo
sýning á annarri óperu — óper-
unni Rigoletto eftir Verdi, en það
er einmitt sú ópera, sem Þjóðleik-
húsið sýndi fyrst. Leikstjóri verð
ur sá sami og þá — Simon Ed-
wardsen, en stjórnandi verður
dr. V. Smetácek, sá sami og stjórn
ar óperunni „Selda brúðurin".
Tveir erlendir söngvarar syngja
í óperunni sem gestir: Hinn heims
frægi tenórsöngvari Nicolaj
Gedda frá Metropolitan-óperunni
í New York og Stina Britta
Melander frá Ríkisóperunni í
Berlín, en hún er íslendingum áð-
ur að góðu kunn fyrir söng sinn.
Fer frægð hennar stöðugt vax-
andi í Þýzkalandi.
Titilhlutverkið syngur okkar
ágæti söngvari Guðmundur Jóns-
son, sem kemur gagngert frá Vín-
arborg, þar sem hann hefur ver-
ið við nám, til þess að syngja
sitt gamla hlutverk, en það var
Atriði úr bailettinum „Fröken Julie“
Guðmundur kom fyrst fram sem
óperusöngvari í Þjóðleikhúsinu á
sínum tíma og hlaut sérstakt lof
fyrir.
Óperan verður sýnd alls þrisv-
ar sinnum, en því miður getur
Nicolaj Gedda aðeins sungið í
henni tvisvar, þar sem hann er
of eftirsóttur, ef svo má að orði
komast. Við hlutverki hans í
þriðju sýningu tekur annar ágæt-
ur söngvari, Sven Erik Vikström
frá Konunglegu óperunni í
Stokkhólmi.
Önnur sýning óperunnar verð-
ur laugardaginn 11. júní kl. 20
og þriðja og síðasta sýning, sunnu
daginn 12. kl. 2p.
•
Mánudaginn 13. júni verður
aftur tekin upp ein sýning á leik-
riti Guðmundar Kambans „í Skál
holti“, með sömu skipan og áður.
Þriðjudaginn 14. júní verður
ballettsýning. Sýndur verður
ballettinn „Fröken Julie“ eftir
Birgit Cullberg, en þessi ballett,
sem samin er við samnefnt leik
einmitt í þessu hlutverki, sem rjt eftir August Strindberg, hef-
skrifcsr úr
daglegq lifínu
i
• Bifreiðarnar teknar
mmm^^^mmmammmmmmmmmammmmmmmmmtm
til viðgejðar
Nú þegar greinilega er vor
í Jofti, eru húsmæðurnar
komnar í hreingerningarham-
inn, húseigendur farnir að
dytta að húsum sínum, báta-
eigendur að mála bátana sína
og bifreiðaeigendur að koma
bílum sínum í gott lag, til að
geta brunað út um land í góða
veðrinu með fjölskylduna.
Þegar bifreiðaviðgerðatím-
inn er kominn fyrir alvöru
falla oft ýms orð í garð bif-
reiðaveíkstæðanna, en það
minnir mig á fróðlega grein,
sem forstöðumaður tæknideild
ar sambands norskra bifreiða-
verkstæða, Johan Meyer, rit-
aði nýlega um starfsemi
norskra bifreiðaverkstæða í
tímaritið Iðnaðarmál, ef þær
uppl. gætu orðið að gagni
hér. En Johan Meyer var hér
á sl. ári og kynnti sér þá
skipan þessara mála. Hann
segir að vandamál verkstæð-
anna séu þau sömu á báðum
stöðum, en öllu umfangsmeiri
hér, enda hafi verið ráðið
fram úr mesta vandanum eða
dregið úr vandamálunum í
Noregi á síðustu árum.
• Tilhögun í Noregi
í Noregi er þess krafizt að
verkstæði hafi hlotið viður-
kenningu skv. lögum um lög-
gildingu verkstæða, til að geta
tekið að sér bifreiðaviðgerðir
gegn borgun. Löggildinguna
veita bifreiða sérfræðingar
ríkisins í samráði við fulltrúa
frá sambandi bifreiðaverk-
stæða og fulltrúa frá samtök-
um bifreiðavirkja.
Innflutningur varahluta er
frjáls í Noregi, verðtollur
20% og söluskattur 10%. Opin
bert verðlagseftirlit með vara
hlutum var afnumið hinn 1.
marz 1954 og hafði sú ráð-
stöfun enga verðhækkun í för
með sér. Þá var einnig afnum-
ið opinbert eftirlit með sölu-
verði vinnustunda, en verk-
stæðum heimilað að reikna út
sitt eigið verðlag, er miðað
skyldi við raunverulegan
kostnað og hæfilegan gróða.
Um húsakost verkstæðanna í
Noregi er það að segja, að
dregið hefur verið úr takmörk
un af hálfu hins opinbera frá
styrjaldarlokúm, og er nú til-
tölulega auðvelt að fá bygg-
ingarleyfi fyrir vefkstæðis-
húsum, en lánsfjárskortur
hamlar helzt byggingarstarf-
semi. Innflutningur véla, verk
færa og annars útbúnaðar hef- f
ur verið frjáls í mörg ár.
Þá hefur verið lögð mikil
áherzla á menntun bifvéla-
virkja á siðari árum. Náms-
tími er 4 ár.
tekizt í æ ríkari“mæli að verð*
við þeim kröfum, sem nútíma
bifreiðakostur gerir til við-
gerðarþjónustunnar, iðnfræði-
lega séð, án þess að það hafi
haft verulegar verðhækkanir
á viðgerðum í för með sér (ef
tekið er tillit til almennrar
hækkunar verðlags á sama
tíma). En þó viðgerðarþjón-
usta bifreiða hafi þannig tek-
ið allmiklum framförum,koma
ýms vandamál stöðugt í ijós,
m. a. sem afleiðing af þróun
bifreiðatækninnar og síaukn-
um bifreiðakosti. Þessi vanda-
mál verður fyrst og fremst að
leysa með góðu . skipulags-
starfi, og ekki sízt með full-
komnu iðnnámi, sérhæfingu
og sérþjónustu.“
• Niðurlagsorð
— _HI—III ■! II ■» I
Eftir afnám verðlagseftir-
litsins, segir hinn norski sér-
fræðingur, hafa bifreiðaverk-
stæðin norsku lagt allmikið
fjármagn í byggingar, véla-
kost og útbúnað, jafnframtþví
sem þeim hefur tekizt æ bet-
ur, með launahækkunum, að
halda sérlærðu starfsliði í
þjónustu sinni og styrkja
stjórn sína. Þeim hefur þannig
•Rottueitur
En Velvakandi hefur undan
farið blaðað í fleiri ritlingum
en Iðnaðarmálum. í handbók
fyrir sveitarstjórnir rakst
hann t. d. á þessa áthyglis-
verðu klausu í lögum um eyð-
ingu á rottum: „Við eitrun
skal aðeins nota þær eiturteg-
undir sem óskaðlegar eru
mönnum og skepnum, sem
þyngri eru en 1 kílógramm".
ur á undanförnum árum farið
sigurför víða um heim,
Dansarar í ballettinum eru Mar-
garetha von Bahr, Klaus Salin
frá Finnsku óperunni í Helsing-
fors, og Birgitt Cullberg (höfund-
ur) frá Konunglegu óperunni í
Stokkhólmi, auk þeirra eru þrír
dansarar frá bailett Konunglegu
óperunnar í Stokkhólmi og nem-
endur í Listdansskóla Þjóðleik-
hússins. Hljómsveitarstjóri verð-
ur dr. Róbert A. Ottósson, en
stjórnandi ballettsins höfundur.
Önnur sýning verður miðviku-
daginn 15. júní kl. 20 og þriðja
sýning fimmtudaginn 16. kl. 20.
•
Listahátíðin lýkur þjóðhátíðar-
daginn, 17. júni með ballettsýn-
ingu og dansleik á sviði og sal
Þjóðleikhússins, og í Leikhús-
kjallaranum. Verða danshljóm-
sveitir og söngvarar á báðum
stöðum.
Þessi síðasti þáttur Listahátíð-
arinnar hefst kl. 21.
•
Eins og sést á framansögðu
eru hér á ferðinni óvenjulegir
listviðburðir — hver sýningin
rekur aðra og allt fyrsta flokks
verk, leikin og sungin af fyrsta
flokks listamönnum.
Listahátíðir sem þessi eru al-
kunnar erlendis og þykja ætíð
mikill viðburður. Sækir þær
fjöldi erlendra manna ár hvert.
Nægir í þessu sambandi að minna
á Listahátíðina í Edinborg, sem
flestir hafa heyrt um og margir
sótt.
Þessi íslenzka listahátíð er
fyrsta tilraun, sem gerð er í
þessa átt hérlendis — og veltur
mikið á að hún takist vel og
menn sýni henni verðskuldaðan
áhuga — þá aðeins' getum við
vænzt framhalds hennar á næstu
árum.
Því miður hafa aðrir listamenn
þjóðarinnar svo sem málarar og
skáld, ekki séð sér fært að taka
virkan þátt í þessari hátíð eins og
tíðkast erlendis, en ef vel tekst
verða þeir einnig með næst.
' •
Verndari Listahátíðarinnar
verður forseti fslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson. Heiðursnefnd
skipa dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, Friðjón
Skarphéðinsson, forseti samein-
aðs Alþings, frú Auður Auðuns,
borgarstjóri menningarmála í
Reykjavík, Ragnar Jónsson, for-
maður Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, Svavar Guðnason, formað-
ur bandalags ísl. listamanna, Hall
dór Kiljn Laxness, rithöfundur
og dr. Páll ísólfsson, tónskáld.
Hátíðarnefdina skipa eftirtaldir
menn: Vilhjálmur Þ. Gíslason,
formaður Þjóðleikhússráðs, for-
maður, Guðlaugur Rósinkranz,
þjóðleikhússtj., Haraldur Björns-
son, leikari fulltrúi í Þjóðleik-
húsráði, Hörður Bjarnason, húsa
meistari ríkisins, fulltr. í Þjóð-
leikhúSr., dr. Jakob Benedikts-
son, fulltr. í Þjóðleikhúsr., frk.
Valgerður Tryggvadóttir, skrif-
stofustjóri Þjóðleikhússins og
Valur Gíslason, leikari, form.
Félags ísl., leikara.