Morgunblaðið - 06.04.1960, Síða 10

Morgunblaðið - 06.04.1960, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. apríl 1960 Austan-brim við hafnarmynnið í Vesimannaeyjum. En það er ekki einasta að bát- unum hefir fjölgað, heldur er nú stserð þeirra orðin að með- altali 50—60 tonn og þeir stærstu eru allt að 100 tonn. Þannig hefur bátastærðin fylgt í kjölfar hafnarfram- kvæmdanna. En ekki mun verða staðar numið við framkvæmdir þær, sem þegar hafa verið gerðar. Enn er höfnin orðin of þröng, og er nú varið að hefjast handa um byggingu bólverka norðanmegin í höfninni gegnt Friðarhafnarbryggjunni og mun skapast þar rúm fyrir 100 báta í viðbót Talið er að það mannvirki muni ekki kosta innan við 20 milljónir króna. Á árunum eftir aldamótin var ekki hægt að verka fisk- inn á annan há'tt en salta hann. Var hann þá þurrkaður á klöppum og stakkastæðum. Þegar árið 1901 var ísfélag Vestmannaeyja stofnað. ísvél- ar voru þá að sjálfsögðu engar til, en ísnum safnað af tjörn- um á vetrum. Reynt var að geyma beitu í is og þá var nokkuð gert af því að flytja út góðfisk ísaðan í kössum. Hraðfrysting hefst Hraðfrysting fisks byrjar ekki hér fyrr en upp úr 1930, og er þá stofnuð hraðfrysti- stöð Vestmannaeyja. Fyrst var góðfiskurinn hraðfrystur. Nú eru hér fjögur stór hrað- í stærstu verstöð landsL\s. V grein ■ ■ . ■ ■ ■ ■ ui ii iíiu ÞAÐ mun enginn vera í vafa um það, við hvað er átt, þegar talað er um hjarta Vestmannaeyja. — Auðvitað er það höfnin og athafnasvæðið í kringum hana. — Við skulum því bregða okkur á tal við for- seta bæjarstjórnar Vest- mannaeyiakaupstaðar, Ár- sæl Sveinsson, útgerðar- mann, en hann mun einn þeirra manna, sem kunn- ugastur er framkvæmdum við höfnina frá upphafi. Hann hefúr verið forseti bæjarstjórnar sl. 6 ár, átt sæti í bæjarstjórn rúm 20 ár og í hafnarnefnd kaup- staðarins nærfelt 30 ár. — Auk þessa hefur hann stundað útgerð allt frá 1912 og á nú fjóra mótorbáta í félagi við tvo syni sína og rekur auk þess stóra fisk- verkunarstöð. Hann hefur alla sína tíð haft afskipti af útgerð, fyrst sem sjómaður og skipstjóri, áður en hann hóf sjálfstæðan atvinnu- rekstur. Það fyrsta sem Ársæll segir við okkur, er þetta: — Nú munu Vestmannaey- ingar ekki sofa rótt í næstu 40 daga (viðtalið er tekið um miðjan marz), því þá munu koma á land 4/5 hlutar alls vertíðaraflans. Nú eru neta- veiðarnar einmitt að hefjast. I stórum dráttum rekur Ár- sæll nú fyrir okkur sögu hafn- arframkvæmdanna í Eyjum. Aðeins 6—10 tonna bátar Eins og kunnugt er, byrjar mótorbátaútgerð hér í Vest- mannaeyjum 1906. Þá er hér engin höfn, sem því nafni er hægt að kalla, og ekkert hefur verið gert til þess að hægt sé að taka á móti slíkri útgerð. Á fyrstu árunum voru bátam- ir 6—10 tonn að tjurðarmagni og máttu ekki rista nema 5—6 fet, til þess að komast út úr og inn í skipalægið. Árið 1913 er svo komið að hér eru 50—60 mótorbátar. Þá er þörfin orð- in mjög brýn fyrir gerð hafn- athafnasvæði, sem höfnin nef. argarða til þess að loka úti versta sjóganginn í stórviðr- um. Fram að þeim tíma voru bátarnir bundnir við keðju, sem strengd var þvert yfir skipalægið. Lágu þeir þar hlið við hlið og er stórviðri gerði lömdust þær saman og brotn- uðu, slitnuðu upp og ráku upp í fjöru í víkinni og varð oft af þessu alvarlegt tjón. Hafnargarðar 30 ár í byggingu. Segja má, að bygging hafn- argarða hér í Vestmannaeyj- um stæði yfir allt frá 1913- fram til 1942, að garðamir voru orðnir svo traustir að ekki hefur þurft að endur- byggja þá síðan. Meðan garð- arnir voru í byggingu kom það næsta oft fyrir í stórviðrum að skemmdirnar á þeim urðu svo miklar að byggingarfram- kvæmdirnar, sem staðið höfðu heilt ár hrundu til grunna í einu veðri. Jafnframt þessu var dýpi hafnarinnar og botn. lag kannað. í fyrstu var að- eins 7 feta dýpi milli hafnar- garðanna og takmarkaði það, sem fyrr segir, stærð og djúp- ristu bátanna. Nú er dýpið hins vegar orðið 30 fet. Árið 1934 keypti höfnin dýpkunar- skip, sem það á enn í dag og er sleitulaust unnið með því við dýpkun hafnarinnar og stækkun athafnasvæðisins inn an hafnargarðanna. Sem dæmi má nefna, að þar sem nú er bezta bryggjan í höfninni, voru áður kartöflugarðar og íþróttavöllur. í dag er svo kom ið að heita má að athaína- svæðið sunnan meginn í höfn- inni sé fullnýtt. Á fyrstu dögum mótorbáta- útgerðarinnar var ekki hægt að skipa aflanum úpp við land. Sækja varð hann á smá- skektum út í bátana og róa með hann upp í fjöru eða að smábryggjum. Með uppgreítri hafnarinnar var byggt allt pað ur til umráða nú í dag. Á því 120 bátar á vertíð, en fjöldi þeirra er ofurlítið breytilegur standa hraðfrystihúsin og fisk vinnslustöðvarnar. Nú 120 bátar 50—60 tonna I dag er óhætt að fullyrða, að Vestmannaeyjahöfn sé al- gerlega öruggt skipalægi. Núna eru gerðir hér út um frá ári til árs. Auk þessa eru svo gerðir út 30 aðkomubátar. frystihús, auk þess sem all- margir einstaklingar reka sölt unarstöðvar. Allar þessar stöðvar taka nú á móti 50—60 þúsund tonnum af fiski vegn- um upp úr sjó. En það er ekki einasta að fiskurinn sé allur nýttur, heldur og allur úrgangur úr honum, sem hér áður fyrr varð að fleygja að mestu. Má þar nefna lifur, hrogn, bein og slóg. Hér eru starfræktar 2 Við mælingar í Vestmannaeyjahöfn. í miðju hafnarvörður, Bergsteinn Jónasson, þá bryggjuverðir, Arnór Sigurðsson og Kristinn Sigurðsson. Þessir menn stjórna hinni miklu um- ferð um Vestmannaeyjahöfn og sjá um ið útvega hverjum báti sitt rúm. fiskimjölsverksmiðjur og auk þess er .. lítils háttar hert af aflanum, svo sem keila og smá fiskur. Aldrei hefur þó verið mikið um það. Nú er netaveiðin mest Eitt af því sem rak Vest- mannaeyinga til þess að stækka báta sina var sumar- síldveiðin fyrir Norðurlandi. Vetrarvertíð hér við Eyjar er aðeins lítinn hluta úr árinu og þess vegna þurftu sjómenn og útgerðarmenn að fá aukin verkefni fyrir báta sina. Þorskanetjaveiðar byrja hér 1913—14 en voru litlar til að byrja með og stóðu aðeins skamman hluta vertíðarinnar, enda var þá sú veiðiaðferð mjög á frumstigi. Nú er neta- veiðin hins vegar orðin uppi- staðan í vertíðinni og mun ó- hætt að fullyrða að % hlutar vertíðaraflans séu teknir í net. Og það er oft á tíðum ekkert smáræði, sem berst á land í Eyjum á einum og sama degi, því til er að einn afladagur hefur gefið 2000 tonn af fiski. Tal okkar Ársæls beinist nú smátt og smátt yfir á önnur svið og hann drepur á fleiri vandamál, sem þennan mikla útvegsbæ varða. Ársæll Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja Vatnsskorturinn íbúafjöldi Vestmannaeyja nemur nú 4500 manns og yfir vertíðina er allt að 2000 að- komumanna. Stórauknar at- hafnir og fólksfjölgun hefur ýms vandamál í för með sér. Það hefur jafnan verið mikið vandamál að afla nægilegs vatns, bæði til neyzlu og í fisk verkunarstöðvarnar. Við fisk- verkunina hefur sjór verið notaður, en nú er ætlunin að breyta hér um. Talsvert hefur verið unnið að því að leita að fersku vatni í Eyjunum og hefur nú fundizt nokkurt magn af því undir svonefndu Langabergi. Ætlunin er að dæla því upp í vatnsgeyma, sem staðsettir verða á hæðun- um skammt fyrir ofan kaup- staðinn, en síðan verður því veitt þaðan út um bæmn. Framkvæmdir við mannvirki þetta munu hefjast nú í sum- ar. Við þær aðstæður, sem nú eru, hafa náðst þarna um 700 tonn á sólarhring en vojir standa til að það geti orðið meira. Brunnur er sem kunn- ugt er við hvert einasta hús hér í bænum. í brunnana er vatninu safnað í vætutíð af þökum húsanna. Þetta er m. a. ein orsökin til þess að flest eða nær öll hús í Vestmannaeyj- um eru einbýlishús- eða tví- býlishús. Sambýlishús hefur ekki verið hægt að býggja vegna þess að þakið verður aldrei nema eitt og vatns- skortur mundi því verða í þeim. Rafmagnsmálið Eitt af stærstu hagsmuna- nálum Vestmannaeyinga, eins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.