Morgunblaðið - 06.04.1960, Page 13

Morgunblaðið - 06.04.1960, Page 13
Miðvikudagtir 6. apríl 1960 MOrtcrjNnr ArtiÐ 13 Einar B. Pálsson, yfirverkfræðingur: Miklabraut í Víðtækar, vísindalegar rann- sóknir fóru fram áður en mal- bikun hennar hófst HÉR fer á eftir meginefni seinni hluta erindis Einars B. Pálssonar, yfirverkfræðings, um Miklubrautina. Fyrri hlutinn birtist í blaðinu í gær. Hér er einkum rætt um hinar vísindalegu rannsóknir, sem fóru fram áður en malbikun götunnar hófst, og sem framkvæmdar voru af innlendum og erlendum sérfræðingum. Því hefur stundum verið haldið fram, að ráðizt hafi verið í þetta verk af fyrirhyggju- leysi, en sannleikurinn er sá, að það var undirbúið af meiri ná- kvæmni, en flest önnur mannvirkjagerð hér á landi. Enda voru þeir möguleikar, sem til greina komu, athugaðir áður en fram- kvæmdir hófust. E. B. P. hélt áfram á þessa leið: Undirstaða götunnar Eins og ég hef getið um hér áður, er gerð grein fyrir því á fyrstu skipulagsuppdráttunum, er sýna Miklubraut, að hún ligg- ur sums staðar yfir svæði, þar sem djúpt er á fast. Vitað var að í Kringlumýrinni voru mógrafir bæjarbúa á órum fyrri heims- styrjaldarinnar. En menn hafa væntanlega ekki búizt við erfið- leikum, að því er snertir undir- stöðu brautarinnar. Umferð var þá lítil og bifreiðir léttar. Málið horfir öðruvísi við fyrir okkur, sem fjöllum um gerð Miklubrautar nú, því að nú er ætlazt til þess að hún beri mikla umferð með þungum bifreiðum, eins og gerist í öðrum löndum, og vissa er fyrir því, að umferð- ar-álagið á eftir að aukast mikið. Akbrautir slíkrar götu þurfa að vera sléttar og haldast sléttar. Það þýðir að gatan má ekki mis- síga neitt að ráði. Á fyrsta kafla Miklubrautar, frá Miklatorgi að Rauðarárstíg, taka við mýrar, Norðurmýri og Kringlumýri, sem eru mikið til óslitnar austur á Grensás, en eru þó mjög misdjúpar á þeirri leið. Við núverandi Kringlumýrarveg og á Grensási er malarkenndur jarðvegur. Þar eru gamlir sjávar- bakkar. Austan við Grenás tekur við mýri á nýjan leik, Sogamýr- in, austur af gatnamótunum við Suðurlandsbraut. Miklabraut er því ekki lögð um hentug svæði til gatnagerðar, að því er undir- stöðu snertir. Undirstöðurannsóknir Árin 1952 og 1953 var undirlag götunnar í Hlíðahverfinu rann- sakað. Auk verkfræðinga bæjar- verkfræðings starfaði að því dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræð- ingur. Hann samdi greinargerð um uppruna og eðli jarðlaganna í götustæðinu á þessu svæði og hvaða ráð virtust tiltækileg, til þess að forðast mikið sig göt- unnar. Mýrarjarðvegurinn er þarna um 2 til 3 m, að meðaltali 2,4 m á þykkt. Undir honum er botnurð jökulsins, er huldi landið á ísöld- inni. Efstu lög þessarar botnurð- ar eru brimþvegin og því malar- kennd, því að svæðið lá undir sjávarmáli, þegar jökullinn hörf- aði af því í ísaldarlokin, sem talin eru hafa verið fyrir um 10 þús- und árum. Mýrarjarðvegurinn er því myndaður síðan ísöld lauk og landið reis úr sjó. Hann greinist í meginatriðum í þrjú lög. Neðst eru mjög sundurgrotnaðar jurta- leifar, blandaðar leifum þör- ungagróðurs og kallar dr. Sig- urður þetta módrullu. Miðlagið er leifar gras- og skógargróðurs. Þær leifar eru all-fúnar, sums staðar með birkilurkum. Þetta lag er myndað á hlýviðrisskeiði því, sem hér var um miðbik þess tímabils, sem liðið er frá ísaldar- lokum og náði hámarki um 2500—500 f. Kr. Efsta lagið hefur myndazt á undanförnum 2500 ár- um. Það er mýrartorf, lítt fúið. Það er mjög áberandi, hve jarðvegurinn er vatnsósa þarna. Sums staðar var erfitt að ná jarðvegssýnishornunum upp með rannsóknatækjunum, því að efn- ið mátti heita fljótandi. Þarna hafði verið gerð malar- gata árið 1944. Gatan hafði sigið mikið þau 8—9 ár, sem liðin voru síðan þá. Greinilegur hrist- ingur fannst í götuyfirborðinu, þegar fólksbifreiðir óku framhjá, jafnvel upp í 20 metra fjarlægð. Hristingurinn var meira áber- andi þegar þyngri farartæki óku framhjá. Kvartað var um hrist- ing inni í húsum við Miklubraut. Ég var þeirrar skoðunar, að víðtækari rannsóknir væru nauð- Síðari hluti synlegar. Það varð til þess að fenginn var hingað til lands árið 1953 þýzkur sérfræðingur í geo- teknik og undirstöðugerð mann- virkja, Dr. Ing. Hans Leussink, er þá var talinn meðal fremstu sérfræðinga Þjóðverja á þessu sviði. Þegar þetta var, hafði hann m. a. starfað sem ráðgef- andi verkfræðingur við áætlanir um undirstöðurnar að stíflunni í Níl við Assuan í Egyptalandi, einu mesta mannvirki heims af því tagi. Dr. Leussink er síðan orðinn prófessor í geoteknik og undirstöðum mannvirkja við Tækniháskólann í Karlsruhe í Þýzkalandi. Hann er nú rektor háskólans í Karlsruhe. Dr. Leussink gerði rannsóknir á jarðvegi í götustæði Miklu- brautar, bæði í Hlíðahverfinu og í Kringlumýri. Hann gaf fyrst bráðabirgðaskýrslu á árinu 1953 og svo fullnaðarskýrslu árið 1954 um rannsóknir sínar. Fylgja þar með ákveðin ráð um undirstöðu götunnar. Skal ég hér greina nokkuð nánar frá þessu. Mörg sýnishorn af jarðveginum voru tekin og sum þeirra þannig, að hið náttúrulega ástand þeirra helzt óbreytt um langan tíma. rannsakaður, hafði vatnsinni- hald yfirleitt frá 200% til 600%, meira að segja allt upp í 740%. Vatnið er sem sé að þunga til tvisvar til 7,4 sinnum meira en fasta efnið í jarðveginum, en að rúmmáli til er vatnið 1,5 til 5 sinnum meira en fasta efnið. Slík mýri er því á ýmsan hátt nær því að vera tjörn en fast land. En mikill hluti vatnsins er hér bundinn í óteljandi holrúm um og frumum órotnaðra plöntuleyfa, Rúmþyngdin mældist fró 1,01 til 1,36 og sýnir það, að jarðveg urinn inniheldur lítið af stein- efnum. Glæðitapið er mælikvarði fyr- ir innihald jarðvegsins af líf- rænum efnum. Þegar glæðitap hjá jarðvegi fer yfir 10%, er talið, að talsvert mikið sé af líf- þykkt jarðvegsins og því, hvö vatnsþéttur hann er. Hjá slíkum jarðefnum má ekki búast við því, að samþjöppunin verði jöfn alls staðar. Það verður því að gera ráð fyrir áberandi missigi, sem næmi einum eða jafnvel fleiri desimetrum. En svo er önnur tegund af sigi, sem kemur til viðbótar hjá jarð- vegi, sem inniheldur mikið af lífrænum efnum og er talið að stafi frá rotnun hinna lífrænu efna. Einnig það er breytilegt frá einum stað til annars og kem- ur því jafnframt fram sem mis- sig. Styrkjur jarðefnisins gagnvart þverkröftum er mikilsvert atriði fyrir burðarþol þess. Þessi styrk- ur myndast úr tveimur liðum, samloðun og innri núningsmót- stöðu. Styrkurinn gegn þver- Vestasti hluti Miklubrautar eins og hann lítur út í dag. Ýmsir eðlisfræðilegir eiginleikar jarðvegins voru rannsakaðir. Nokkra þeirra gat Atvinnudeild Háskólans fundið, en það, sem ekki var hægt að gera hér á landi, var rannsakað í rann- sóknarstofnun dr. Leussinks í Essen í Þýzkalandi. Hinir rann- sökuðu eiginleikar voru þessir: Vatnsinnihald. Rúmþyngd Glæðitap, þar með innihald líf- rænna efna. Samdráttur við þurrkun. Flotmörk, þar sem efnið fer úr plastisku ástandi í fljótandi ástand. Mörkin, þar sem efnið fer úr föstu í plastiskt ástand. Stuðull hins plastiska ástands, sem finnst úr tveim fyrr- greindum stærðum. Sambandið milli þrýstings og samþjöppunar. Sambandið milli samþjöppunar og tíma. Verða þessi atriði nú rædd nokkru nánar. Sá jarðvegur, sem hér var rænum efnum. Glæðitapið mæld- ist hér frá 20% til 90%. Þessi gildi eru talin óvenjulega há. Samdráttur efnisins við þurrk- un er mældur sem hlutfallið milli rúmmálsminnkunar og upp- runalegs rúmmáls. Það er reynsluatriði, að jarðvegur, sem fær 15% samdrátt við þurrkun, er mjög linur jarðvegur. Sam- dráttur þess efnis, sem hér var rannsakað mældist yfirleitt milli 25% og 75%, jafnvel upp í 90%. Samþjöppun efnisins var mæld sérstaklega og samband hennar við þrýsting. Stífleikastuðull efnisins mældist 2,6—5 kg/cm2, þegar áreynslan á það var milli 0 og 2 kg/cm2. Þetta þýðir, að ef eins metra þykkt sandlag er lagt ofan á þriggja metra þykkt jarðlag af slíkum jarðvegi, þá sígur yfirborðið við það um 12 —23 cm. Þetta sig verður við það, að samsvarandi magn af vatni press- ast úr jarðveginum. Það vatn þarf að komast brott og tím- inn, sem það tekur, er háður Við' lagningu Miklubrautar hafa verið notaðar stirvirkustu vinnuvélar. — Á myndinni sést flutn- ingavagn af Ue Tourneau-gerð, er flytur 20 lestir. — Vagninn tæmir sig sjálfur. Karminum er þá rennt aftur á bóginn en vagnbotninn situr kyrr. tarmurinn ýtir þá hlassinu afur af botninum. — kröftum í jarðvegi sem þessum er nær eingöngu háður samloð- uninni. Samloðunin er afleiðing af þeim leifum af plöntutágum, sem mynda jarðveginn. Hún er stöðug meðan jarðvegurinn er óhreyfður, en hverfur ef sam- hengið er rofið, t. d. ef eitthvað er rótað eða grafið í jarðvegin- um eða gatan ofreynd aðeins einu sinni. Hin mikla samþjöppunarhæfni mýrarjarðvegsins í götustæði Miklubrautar ásamt litlum styrk gegn þverkröftum gera jarðveg- inn að eins nélegu undirstöðuefni fyrir götu og hugsazt getur. Dr. Leussink dró þá ályktun af þessu, að það kæmi ekki til mála að byggja varanlega götu á þess- um jarðvegi, heldur yrði að gera sérstakar ráðstafanir. Báff til úrbóta fyrir undirstöð'U Miklubrautar Að fenginni þessari niður- stöðu, hélt E. B. P. áfram. var athugað hvaða ráðstafan- ir væru tiltækilegar, sem mættu teljast fullnægjandi — að sjálf- sögðu miðað við þær forsendur, sem ég hefi áður getið um, að Miklabraut ætti að vera aðalum- ferðargata og fyrir þungaflutn- inga. Þær helztu ráðstafanir, sem íhugaðar voru, eru þessar: 1. Sandfylling er lögð á götu- stæðið, en mýrin sprengd brott með sprengiefni, undan sand- ifyllingunni. Þar sem búið var að reisa hús við götuna og leggja leiðslur í hana, kom þessi leið ekki til greina 2. Breiðir skurðir eru grafnir beggja vegna við götuna. Þykk sandfylling er lögð á götustæðið, til hliðar, út í skurðia. Ekki mögulegt hér af sömu ástæðum og fyrr er greint, auk þess sem það hindrar umferð og tekur of langan tíma. 3. Fléttur eða mottur úr hrísi eða viðjum eru lagðar á jörðina og síðan fyllt ofan á þær 0,5 til 1,5 þykku sand- eða malarlagi. Þetta er hollenzk aðferð. Á þenn- an hátt er myndað eins konar „viðbent" burðarmannvirki, sem verka þungadreifandi. En hvorki flýtir fyrir sigi sé minnkar það og afleiðing af aðferðinni er hár viðhaldskostnaður. Aðferðin getur því ekki hentað hér. 4. Þurrkun jarðvegsins með því Framhald á bls. 17,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.